Fréttatíminn - 03.02.2017, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 03.02.2017, Blaðsíða 64
Aukin tækifæri til að þróast í starfi Öflugt landsfélag í kjaramálum og réttindabaráttu. Unnið í samstarfi við VM Félag vélstjóra og málm-tæknimanna, VM, er meðal stærstu fag- og stéttarfé-laga landsins. Vélstjórar og málmiðnaðarmenn eiga margt sameiginlegt bæði í námi og á vinnumarkaði. Nám þeirra skarast að hluta og málmiðnaðarmenn og vélstjórar starfa iðulega á sömu vinnustöðum. Öflugt landsfélag Félagsmenn VM sinna fjölbreytt- um störfum við vélstjórn, vélavið- gerðir, málmsmíði og netagerð. Stefna VM er að koma öllum sem starfa í þessum greinum í félag- ið og vera öflugt landsfélag sem yrði um leið með meira vægi til að sinna málefnum þessara greina, bæði í kjaramálum og annarri réttindabaráttu. Auðvelt að sækja endur- og símenntun Starfsgreinarnar sem um ræðir eru: vélvirkjun, vélstjórn, stálsmíði, rennismíði, blikksmíði, málm- steypa, mótasmíði, netagerð og málmsuða. Þetta eru fagstörf sem eiga skilgreindar námsbrautir í framhaldsskólakerfinu. Tæknin þróast hratt og gerir símenntun enn mikilvægari. Fræðslusjóður fé- lagsins veitir félagsmönnum aukin tækifæri til að þróa sig í starfi með því að auðvelda þeim að sækja sér endur- og símenntun. Frístundaaðstaða víðs vegar um landið Sjúkrasjóður félagsins veitir víð- tækar tryggingar í formi dagpen- inga og styrkja þegar veikindi eða slys bera að. Félagsmenn eiga einnig kost á úrræðum hjá VIRK endurhæfingarsjóði. Að eiga tíma utan vinnu er mikilvægt og frístundaaðstaða félagsins víðs vegar um land veitir félagsmönn- um kærkomið afdrep til að njóta frítímans. Séð úr vinnslu Héðins, stálsmiðju, sem er öflugt þekkingarfyrirtæki í málmiðnaði og véltækni. Unnið í samstarfi við Rafís Kristján Þórður Snæbjarnar-son, formaður Rafiðnað-arsambandsins, segir að grundvallarþáttur sam- bandsins sé að vinna með kjara- samninga og tryggja og bæta kjör félagsmanna sinna. „Þegar ekki eru kjaraviðræður erum við að að- stoða okkar félagsmenn við að fá rétt kjör ef brotið er á þeim. Síðan erum við með sjúkrasjóð sem er að greiða styrki til félagsmanna. Mikilvægastir eru sjúkradagpen- ingarnir ef menn lenda í lengri veikindum. Þá eru menn að fá 80% af launum í 6-12 mánuði sem er einhver sú besta trygging sem menn geta fengið,“ segir Kristján. Einnig fá félagsmenn fæðingar- styrk þegar þeir eignist barn auk líkamsræktarstyrkja og fleiri hefðbundin hlunnindi. Einnig er rekinn öflugur orlofssjóður sem gerir félagsmönnum kleift að nýta sér fjölda sumarbústaða og íbúða víðsvegar um landið og utan land- steinanna. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Tryggja kjör og veita ráðgjöf Mikilvægt að fólk geti leitað til öflugra stéttarfélaga. „Fólk kemur að leita ráð- legginga um ýmis málefni. Sem betur fer leysist flest með því að fara yfir málið en þónokkuð er um að við verðum að fara lengra með málin og jafnvel í hendur á lögfræðingi okkar sem er fólki að kostnaðarlausu,“ Verkefnin mörg og ærin Hlutverk Rafiðnaðarsambandsins er fjölþætt og félagsmenn leita gjarnan til þess þegar upp koma vafamál eða fólk er óöruggt um stöðu sína. „Fólk kemur að leita ráðlegginga um ýmis málefni. Sem betur fer leysast flest með því að fara yfir málið en þónokkuð er um að við verðum að fara lengra með málin og jafnvel í hendur á lögfræðingi okkar sem er félags- mönnum að kostnaðarlausu,“ segir Kristján og bætir við að það sé afar mikilvægt að fólk geti leitað til sterkra stéttarfélaga til þess að fá stuðning við að sækja og tryggja réttindi sín. Málin geta verið ým- iss konar og verkefnin ærin; þetta geta verið spurningar um samsetn- ingu launa, hvort þau séu of lág eða fólk vinni of mikla yfirvinnu sé fólk á pakkalaunum, útskýring á frítökurétti eða hvað skuli greiða fyrir vinnu í matartímum. Svona mætti lengi telja. Fjölbreytt störf í rafiðnaði Kristján merkir, líkt og aðrir, skort á iðnaðarmönnum en verkefni þeirra séu afar sveiflukennd og sjaldan í jafnvægi. „Það er í raun ekki að lagast neitt verulega en við sjáum það þó á okkar greinum að núna erum við með metfjölda í sveinspróf. Til lengri tíma þarf að viðhalda þessum fjölda til að halda í við endurnýjunarþörfina. Miklar sveiflur eru á verkum, helst byggðingariðnaði, en núna er fínn tími þar. Þá verður skortur á mann- skap og botnlaus vinna. Þetta dettur svo niður þegar hægist um, þetta eru miklar öfgar,“ segir Kristján en leggur áherslu á að vegna fjölbreytni í störfum innan rafiðnaðarins geti rafiðnaðarmenn innan byggingargeirans oftast leitað í önnur störf þegar lægð er í byggingastörfum. RSÍ á og rekur Rafiðnaðarskól- ann í samstarfi við atvinnurek- endur í rafiðnaði. „Þar er boðið upp á fagnámskeið fyrir rafiðnað- armenn, endurmenntun sem allir félagsmenn hafa kost á því að nýta sér. Menn geta jafnframt náð sér í meistarabréf í iðninni, það er vin- sælasta námsleiðin í skólanum,“ segir Kristján. Frá Íslandsmóti iðn- og verkgreina 16 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.