Fréttatíminn - 03.02.2017, Page 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017
Höllu hagnaðist um 217 milljónir
í viðskiptunum og greiddi hún út 99
milljóna króna arð til sín út af við-
skiptunum með húsið í fyrra. Rekstr-
arfélög í eigu þessara aðila, Klíník-
in og hjúkrunarfyrirtækið Sinnum,
voru þá búin að gera langa leigu-
samninga við fyrirtækið sem átti
húsið en öll þessi félög voru í eigu
sömu aðila. Þannig voru rekstrarfé-
lögin notuð til að búa til verðmæt-
ari fasteign fyrir eigendur hennar;
fasteign sem svo var verið að selja
með þinglýstum margra ára leigu-
samningum.
Hverjum kemur hagnaðurinn við?
Ein af þeim spurningum sem verið
hefur í umræðunni um hagnað og
arðgreiðslur fjárfestingarfélaganna í
velferðargeiranum í Svíþjóð er hvort
almennum borgurum komi það við
hvað verður um þessa fjármuni ef
þjónustan sem einkafyrirtækin veita
er góð og ekki dýrari en þjónusta
ríkisreknu fyrirtækjanna.
Þjónusta St. Görans-sjúkra-
hússins í Stokkhólmi hefur til dæm-
is þótt góð í gegnum tíðina og hef-
ur sjúkrahúsið oft verið efst á lista
félagsmálayfirvalda í Svíþjóð um
minnsta biðtímann eftir þjónustu
á bráðadeildum landsins. Ein slík
niðurstaða úr könnun var birt um
miðjan janúar þar sem niðurstað-
an var að biðtími eftir lækni fyrir
einstaklinga sem væru 80 ára og
eldri væri 19 mínútur á St. Görans
á meðan biðtíminn á til dæmis
Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gauta-
borg væri 100 mínútur. Í skýrslu
sænskra heilbrigðisyfivalda frá vor-
inu 2015 var St. Görans efst á blaði af
þremur sjúkrahúsum – hin tvö eru
ríkisrekin – í samanburði á kostn-
aði heilbrigðisþjónustunnar, ánægju
starfsmanna með vinnustað sinn og
ánægju viðskiptavina með þjón-
ustuna.
Í Svíþjóð eru því ekki miklar deil-
ur um að þann bræðing af ríkis-
reknu og einkareknu heilbrigðiskerfi
sem búið hefur verið til í landinu á
liðnum áratugum jafnvel þó óá-
nægja með arðgreiðslur til og út úr
fjárfestingarfélögum í skattaskjólum
sem reka þessa þjónustu sé einnig
almenn.
Samkvæmt könnun, sem birt var
í lok síðasta árs, eru 56 prósent Svía
fylgjandi einkarekstri í heilbrigð-
iskerfinu en aðeins 31 prósent er á
móti slíkum rekstri. En svo eru það
arðgreiðslurnar út úr þessum fyr-
irtækjum: Samkvæmt könnun sem
unnin var fyrir sænska ríkissjón-
varpið í fyrra eru 8 af hverjum 10
Svíum sem annað hvort vilja banna
arðgreiðslur út úr einkareknum
velferðarfyrirtækjum eða takmarka
arðinn verulega. Svíar virðast því
vera fylgjandi einkarekstri í heil-
brigðiskerfinu, almennt séð, en vera
á móti óhóflegum arðgreiðslum út
úr slíkum fyrirtækjum.
Almennum skattgreiðendum í
Svíþjóð er því ekki sama um þessa
spurningu og því má segja að sú
skoðun sem stjórnarformaður
Samtaka sænskra áhættufjárfesta,
Gabriel Urwitz, hefur látið hafa eftir
sér í bókinni De Svenska Riskkapita-
listerna eigi varla við til að lýsa hug
almennings til málsins: „Ég sé ekk-
ert athugavert við það að Zlatan fái
100 milljónir fyrir að spila fyrir Paris
St. Germain heldur. En jú ég get skil-
ið að svo fáir hafi grætt svo mikið
af peningum á skömmum tíma en
það er svona sem markaðssamfélag-
ið virkar.“
Rökin um að minnka biðlista
Þó umræðan um einkarekið
sjúkrahús Klíníkurinnar snúist að
mestu ennþá um hvort það opni
eða ekki þá er umræðan um hagn-
að og arðgreiðslur slíkra einkarek-
inna heilbrigðisfyrirtækja alltaf liður
í henni. Enn liggur þó eðlilega ekki
fyrir hvernig slíkur einkarekstur á
sjúkrahúsi muni ganga og þá eins
hver hagnaðurinn verður og hversu
miklum arði verður útdeilt til hlut-
hafa og fjárfesta.
Forsvarsmenn Klíníkurinnar
hafa fært rök fyrir mikilvægi legu-
deildarinnar með því að stytta þurfi
biðlista eftir aðgerðum á ríkisrekn-
um sjúkrahúsum. „Það sem er mik-
ilvægast er að við tryggjum aðgengi
og réttindi þeirra sem þurfa þjón-
ustuna. En við getum ekki tryggt
að fólk fái þjónustu innan eðlilegs
biðtíma. Það eru til dæmis um 500
manns á biðlista eftir mjaðmaskipta-
aðgerðum og 800 manns bíða eftir
hnjáskiptum. […] Hvernig sem menn
ætla að fara að því að laga þennan
vanda þá verða yfirvöld bara að
hysja upp um sig buxurnar og laga
þetta,“ sagði Hjálmar Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Klíníkuarinn-
ar, í viðtali við Fréttatímann fyrir
skömmu.
Umræðan um fjárhagslega þætti
einkarekstrarins hefur því enn
ekki hafist nema að litlu leyti en
það er fyrst og fremst sú umræða
sem er viðkvæm þegar rætt er um
einkarekstrarvæðingu innan heil-
brigðiskerfisins, hvort sem það er
á Íslandi eða í Svíþjóð. Fylgjendur
einkarekstrarvæðingar vilja reyna
að láta umræðuna snúast um hags-
muni sjúklinganna fyrst og fremst
enda skipta peningar takmörkuðu
máli í samanburði við heilsu fólks.
Á endanum, líkt og gerst hefur í Sví-
þjóð, þá snýst þessi umræða hins
vegar enn meira um það hvort rétt-
lætanlegt sé að fjárfestar taki fjár-
muni frá ríkisvaldinu í gegnum
einkarekin lækningafyrirtæki og
stingi honum í vasann.
*Heimild: De Svenska Risk-
kapitaisterna: En berrättelse om
makt, pengar och hemligheter eftir
Carolinu Neurath og Jan Almgren.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra liggur ennþá undir feldi og hefur ekki ákveðið
hvort hann muni heimila að Sjúkratryggingar Íslands geri samning við Klíníkina
um opnun sjúkrahúss.
Sjúkrahús
Klíníkurinnar
og einkavæðing
heilbrigðiskerfisins
Samkvæmt könnun sem
unnin var fyrir sænska
ríkissjónvarpið í fyrra eru
8 af hverjum 10 Svíum
sem annað hvort vilja
banna arðgreiðslur út úr
einkareknum velferðar-
fyrirtækjum eða takmarka
arðinn verulega.
2.590.000 kr.2.990.000 kr.
Kia Soul EXKia cee’d EX 1.6
Árgerð 6/2015, ekinn 70 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,2/100 km.
Árgerð 9/2015, ekinn 9 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, beinskiptur,
eyðsla frá 4,2 l/100 km.
3.150.000 kr.
Kia Soul EX
Árgerð 12/2015, ekinn 27 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,2 l/100km.
5.390.000 kr.6.290.000 kr.
Kia Sorento EX LuxuryKia Sorento EX Luxury
Árgerð 12/2014, ekinn 84 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 6,7 l/100 km.
Árgerð 3/2015, ekinn 50 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 6,7 l/100 km.
21.460 kr. á mánuði*24.800 á mánuði*
51.500 kr. á mánuði*
25.800 kr. á mánuði*
43.900 kr. á mánuði*
Raðnúmer: 290535
Raðnúmer: 320412 Raðnúmer: 320045
Raðnúmer: 290627 Raðnúmer: 170228
4.590.000 kr.5.790.000 kr.
Kia Sportage EX 4WDKia Sportage GT Line 4WD
Árgerð 11/2015, ekinn 69 þús. km,
bensín, 1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,9 l/100 km.
Árgerð 2/2016, ekinn 15 þús. km,
bensín, 1.591 cc, 177 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 7,5 l/100 km.
47.400 kr. á mánuði* 37.900 kr. á mánuði*
Raðnúmer: 170266 Raðnúmer: 992224
21.400 kr. á mánuði*
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
2.590.000 kr.
Kia cee’d LX 1.4
Árgerð 4/2015, ekinn 35 þús. km,
dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla frá 4,2 l/100 km.
Raðnúmer: 320333
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 84 mánuði. Vextir 8,50%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,30%.
Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
*
Notaðir bílar
3 til 6 ára ábyrgð fylgir!