Fréttatíminn - 03.02.2017, Page 26
HELGAR
BRUNCH
Laugardaga og sunnudaga
11.30–14.30
GASTROPUB
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
2.590 kr.
1.590 kr.
2.390 kr.
Glas
1.790 kr.
MEGA BRUNCH
BLOODY MARY AMERÍSKAR PÖNNUKÖKUR
CR’Q MADAME
Kanna 1 l
3.990 kr.
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017
man til dæmis vel eftir því fyr-
ir svona 10 árum þegar ég var að
hjóla á opnun á einhverri sýningu
í Berlín. Í kringum mig á götunni
var auðvitað fullt af fólki að gera
sína venjulegu hluti og allt í einu
fannst mér að allt þetta fólk væri
að verða of seint. Það hlyti að vera
á leiðinni á sömu opnun og ég. Ég
hugsaði í alvöru: „Af hverju eru
ekki allir að flýta sér á opnunina?“
sem var auðvitað fáránleg hugsun í
svona stórri borg. Mér fannst eins
og allir væru myndlistarmenn og
gat ekki skilið að það væru ekki all-
ir í þessu. Þetta lýsti því ágætlega
hvað maður er rosalega gegnsýrður
af þessu umhverfi. Ég þekki eigin-
lega bara myndlistarmenn í Berlín
og borgin er full af þannig fólki.
Myndlistarheimurinn er dálítið eins
og stækkuð útgáfa af einhverjum
menntaskóla þar sem maður kemst
í einhverja klíku, eða ekki, án þess
að ég velti því of mikið fyrir mér.“
Húmorinn nauðsyn
Verkið sem þeir Ugh og Boogar eru
að vinna að fyrir Feneyjar mun
heita Out of Controll in Venice og
það er ekki laust við að Egill hafi
smá áhyggjur af framvindu verks-
ins þegar hann er spurður að því
við hverju megi búast af tröllunum
Ugh og Boogar.
„Þeir ætla að bjóða upp á eitthvað
sem þeir kalla upp á ensku „soci-
al interactive work,“ segir Egill.
„Það verður semsagt einhvers kon-
ar félagslegt og gagnvirkt listaverk.
Þetta hefur valdið mér smá áhyggj-
um því að ég gæti trúað að í huga
trölla þýði það einfaldlega bara að
borða fólk.
Þeir Ugh og Boogar læra hratt,
eru til dæmis búnir að ná tökum
á því að drekka kaffi á kaffihús-
um eins og alvöru listamenn, en
þetta eru samt auðvitað tröll sem
bjuggu í helli á hálendinu áður en
við kynntumst. Þar hafa þeir látið
ýmislegt hverfa í gegnum árin, til
dæmis óþekk börn og villuráfandi
ferðamenn. Þeir hafa hæfileika til
að breyta sér í hvað sem er, jafnvel
í stórar sprungur eða stórar öldur
við strendur landsins, og þannig
hefur ýmislegt horfið. Nú er svo
komið að þeir eru farnir að taka
vinnustofuna mína yfir og eru til
alls líklegir.“
Það er oft stutt í hómor í verkum
Egils Sæbjörnssonar. „Húmorinn
Tvíæringurinn
í Feneyjum:
Fyrsti myndlistartvíæringur-
inn í Feneyjum var haldinn árið
1895, en síðar hefur hátíðin verið
víkkuð út til fleiri listgreina. Á
listsýningarnar kemur í hvert
sinn ríflega hálf miljón gesta en
fyrirkomulagið skiptist í tvennt.
Annars vegar eru þjóðir heims
með svokallaða þjóðarskála sem
bæði dreifast um borgina og eru
líka til staðar á aðalsýningar-
svæðinu. Margir þeirra voru sér-
staklega byggðir fyrir sýningar
viðkomandi þjóðar. Hins vegar
er aðalsýningu hátíðarinnar á
hverjum tíma stýrt af sýningar-
stjóra sem velur á sýningu sína
myndlist úr ýmsum heimshorn-
um eftir ákveðnu þema eða
hugmyndafræði. Að þessu sinni
mun franski sýningarstjórinn
Christine Macel stýra sýn-
ingunni.
Ísland hefur tekið þátt í mynd-
listartvíæringnum frá árinu 1960
en þá tóku Ásmundur Sveinsson
og Kjarval þátt. Frá aldamótum
hafa þessir listamenn tekið þátt:
2001 – Finnbogi Pétursson
2003 – Rúrí
2005 – Gabríela Friðriksdóttir
2007 – Steingrímur Eyfjörð
2009 – Ragnar Kjartansson
2011 – Libia Castro og Ólafur Ólafsson
2013 – Katrín Sigurðardóttir
2015 – Christoph Büchel
Svona sjá Ugh og Boogar sam-
starfsmann sinn Egil Sæbjörns-
son sem þeir kynntust 2008.
Ugh og Boogar eru svipsterk tröll.
Hægt verður að fylgjast með
undirbúningi þeirra og ævintýr-
um í Feneyjum á Instagram undir
heitinu icelandicpavilion.
kom eiginlega inn í mína myndlist
af illri nauðsyn. Þegar maður var
að alast upp í þessu myndlistar-
umhverfi hér heima á tíunda ára-
tugnum þá var þetta oft bara svo
ógeðslega leiðinlegt. Konseptið og
minímalsminn voru málið en svo
voru þetta líka fordómar í manni,
því að auðvitað leyndist húmorinn
í verkum margra listamanna inn á
milli ef vel var að gáð. Maður bara
upplifði þetta svona og mér fannst
enginn vera að taka alvöru áhættu,
því að þetta var allt svo „vitrænt“
og í höfðinu á listamanninum. Þetta
var dálítið eins og að vera í ein-
hverjum potti sem sauð í, en lokið
var kyrfilega fast á honum.
Svo þegar maður varð fyrir góð-
um verkum þar sem húmor var
notaður skemmtilega þá upplifiði
maður hann eiginlega sem mjög
róttækan. Mig hefur síðan langað
að nota húmorinn í verkum mín-
um en hann er samt þannig að fólk
annað hvort brosir eða finnst verk-
ið alveg glatað. Þannig er húmor og
maður tekur bara sénsinn,“ segir
Egill Sæbjörnsson.
Myndlistartvíæringurinn í Fen-
eyjum verður opnaður almenningi
13. maí næstkomandi og stendur til
26. nóvember.
Egill Sæbjörnsson er með hugann
við Feneyjar þessa dagana. Vinna
við þátttöku Íslands á hátíðinni
hefur staðið síðan í fyrrasumar,
en verkefnið er óðum að taka á sig
mynd í huga Egils og samstarfs-
manna hans Ugh og Boogar.