Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017
Keppir á HM í rúningi
hinumegin á hnettinum
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Þetta snýst fyrst og fremst um að skepnunni líði vel. Hún er kyrr ef hún er sátt og þá gengur allt vel. Enginn verður brjálaður,
hvorki skepnan né maðurinn,“ segir
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjár-
bóndi á Ljótarstöðum, fósturteljari
og rúningsmaður, um kúnstina að
rýja kindur fljótt og vel. Hún er nú
stödd á Nýja-Sjálandi þar sem hún
mun taka þátt í heimsmeistaramóti
í rúningi sem fer fram dagana 7. til
11. febrúar.
Heiða er þó búin að vera úti frá
því í byrjun janúar, ásamt félaga
sínum Hafliða Sævarssyni, en fyrstu
tvær vikurnar voru þau í vist hjá
rúningsverktaka þar sem þau voru
að læra og vinna við rúning.
„Við fengum kennslu og þjálfun
og nóg af kindum til að æfa okkur
á. Verktakinn er með fjölda manns í
vinnu, bæði í að rýja og að ganga frá
ullinni og við vorum hluti af þessu
gengi,“ útskýrir hún.
Að þessum
tveimur vikum
liðnum, komu
kona Hafliða og
systir hennar
út til Nýja-Sjá-
lands og hafa
þau fjögur verið
að ferðast saman
síðustu daga.
„Við leigðum
okkur húsbíl og
erum búin að
fara í þyrluflug,
fallhlífarstökk og
synda í Kyrrahaf-
inu. Svo erum við
auðvitað búin að
skoða stórkost-
lega náttúru Nýja-Sjálands, kindur
og kýr,“ segir Heiða og hlær en það
er kærkomið fyrir bónda, sem er
í fullri vinnu við að
sjá um búið sitt allan
ársins hring, að fá
smá frí.
Á ekki möguleika
Í vikunni sem er
að líða fengu Heiða
og Hafliði svo að
mæta á æfingar
fyrir heimsmeist-
aramótið, en um er
að ræða risastóran
íþróttaviðburð. Þar
fengu þau leiðsögn
frá færustu þjálfur-
um og kennurum
á Nýja-Sjálandi.
„Þessir bestu rún-
ingsmenn eru
toppíþróttamenn.
Þeir þurfa að búa yfir miklum
styrk og lipurð. Þeir þurfa að taka
allar strokur réttar
og vera algjörlega í
takt við skepnuna.
Þetta krefst mikill-
ar æfingar. En hér
á Nýja-Sjálandi er
verið að rýja allt árið
og því meira hægt
að æfa sig. Á Íslandi
eru þetta bara tveir
mánuðir í heildina.“
Þetta er í fyrsta
skipti sem Heiða tek-
ur þátt í heimsmeist-
armóti en Hafliði
hefur farið einu
sinni áður. Árið 2015
tók Heiða hins vegar
þátt í rúningsmóti í Bretlandi
sem var töluvert smærra í sniðum.
Nú eru þátttökuþjóðirnar 32 og að-
spurð segist Heiða ekki eiga neina
möguleika á verð-
launasæti. Hún hlær
bara þegar blaðamað-
ur spyr. „Við erum
fjarri þeim standard
sem er á rúnings-
mönnum hér. Alveg
órafjarri. Það sem
skortir fyrst og fremst
heima er góð kennsla
og þjálfun rúnings-
manna frá upphafi.“
Mikil kúnst að rýja
Á Íslandi er eingöngu
boðið upp á grunn-
kennslu og stutt nám-
skeið. „Svo djöflast allir
af stað og venja sig á
allskonar vitleysu. Það
er því miklu minni fag-
mennska í rúningi á Íslandi.“
Heiða vill leggja sitt af mörkum
til að breyta þessu. „Við erum bæði
að reyna að læra eitthvað til að geta
mögulega miðlað einhverjum fróð-
leik. Besta leiðin til að ná góðum
standard í rúningi á Íslandi væri að
stelpur og strákar sem hafa áhuga á
rúningi drifu sig út að læra.“
Hún segir það nefnilega mikla
kúnst að verða góður rúningsmað-
ur. „Þetta er hellings kúnst, fyrst og
fremst tækni. Svo er þetta auðvitað
ofboðslega gaman.“
Töluvert er um bændur rýi sínar
eigin kindur hér á landi og stundum
hjálpast hópar að við verkið. „Það
getur myndast skemmtileg stemn-
ing í kringum það. En algengara
er að fólk þurfi að fá einhvern til
að rýja fyrir sig þannig það vantar
alltaf færa og fljóta rúningsmenn.
Þetta er skemmtileg vinna og ágætis
tekjur af þessu.“
Tveir bændur frá
Íslandi eru nú staddir
á Nýja-Sjálandi þar
sem heims meistara-
mót í rúningi fer fram
í næstu viku, en um
er að ræða risa stóran
íþróttaviðburð. Þau
Heiða og Hafliði eru
búin að vera á nám-
skeiðum hjá færustu
rúnings mönnum
heims og vonast til að
miðla þekkingunni
til Íslands.
Heiða ferðaðist alla leið frá Ljótarstöðum í Skaftártungu til Nýja-Sjálands til að
læra rúning af þeim bestu.
Þegar skepnunni líður vel þá
gengur rúningurinn vel.
Hópurinn hefur farið í þyrluflug
og upplifað stórkostlega náttúru
Nýja-Sjálands.
„Ég fékk fullt af skilaboðum og
fyrirspurnum um það hvort ég
ætlaði ekki örugglega að halda
áfram með hópinn. Ég þurfti al-
veg að hugsa mig um þar sem það
er mikil vinna að láta svona hóp
ganga upp og halda dampi,“ segir
Harpa Rut Heiðarsdóttir, fanga-
vörður og einkaþjálfari, sem í
byrjun árs stofnaði facebook-hóp-
inn Jákvæður janúar. Hugmyndin
var útbúa sameiginlegan vettvang
fyrir fólk sem var að leita sér að
jákvæðri hvatningu á ýmsum svið-
um. Viðtökurnar voru svo góðar
að Harpa hefur nú ákveðið að
halda verkefninu áfram, en hópur-
inn heitir nú Fræðandi febrúar.
„Ég þurfti reyndar ekki að
hugsa mig lengi um þar sem að
janúar er búinn að vera virkilega
áhugaverður og lærdómsríkur. Ég
ákvað að þessi hópur myndi vera
virkur út árið en með mismunandi
áherslum.“
Hugmyndin er að vera með nýtt
þema í hverjum mánuði sem hefur
sama upphafsstaf og mánuðurinn
sjálfur.
Ég var reyndar lengi að ákveða
mig með nafnið á febrúar, en loks-
ins komst ég að niðurstöðu. Ég vil
að fólk læri eitthvað nýtt og
því varð þetta nafn fyrir
valinu. Ég mun koma
með alls konar fræðslu
tengda heilsu, hreyf-
ingu, andlegri líðan
og daglegu lífi. Einnig
munu meðlimir fá
tækifæri til að fræða
mig. Það er enginn sem
kann allt og það er enginn
of gamall til að læra eitt-
hvað nýtt. En undirtónninn
í öllum mánuðunum verður
jákvætt viðhorf,“ segir Harpa
létt í bragði en hún vonast til
að læra eitthvað nýtt
og spennandi á
hverjum degi í
febrúar. Hún
hvetur fólk til
að vera dug-
legt að miðla
ýmis konar
þekkingu sem
bætir lífið á ein-
hvern hátt. | slr
Jákvæður janúar verður fræðandi febrúar
Harpa Rut stofnaði
facebook-hópinn
jákvæður janúar
til leggja sitt af
mörkum við að
breiða út jákvæðni
í samfélaginu.
Viðtökurnar voru svo
góðar að hún ákvað
að halda áfram með
verkefnið út árið.
Harpa þurfti ekki að hugsa
sig lengi um hvort hún
ætti að halda áfram með
facebook-hópinn.
Vinsælt og nothæft námskeið fyrir einstkalinga og pör sem ég
hef verið með í 25 ár. Námskeiðið byggist upp á slökunarnuddi
á bak, háls og handleggi með sérvöldum ilmkjarnaolíum.
Djúp- og þrýstipunktanuddi ásamt svæðameðhöndlun.
Farið í ilmolíur og góðar uppskriftir.
Ath! Námskeiðið er þessa tvo daga,
laugardaginn 4. febrúar frá kl. 11.00-15.00
og fimmtudaginn 9 febrúar
frá kl. 17.00 - 21.00
Verð: kr. 33.000 innifalið í
verði ilmolíuflaska og mappa.
Ath! aðeins 6 manns í hóp.
Nánari upplýsingar:
heilsusetur.is og 896-9653
Bakn dds-
námskeið
Helgina 30. apríl - 1. maí
næstkomandi.
Verð 32.000 kr. með olíu
og bæklingi.
BAKNUDDNÁMSKEIÐ
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 552 1850 / 896 9653. netfang:
thorgunna.thorarinsdottir@gmail.com.
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
balsam.is
Bláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is | Selena undirfataverslun
ÚTSALA
30—60%
afsláttur
af völdum vör
um.