Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 36

Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017 Silkimjúkt og ljúffengt „poached“ egg er tilvalið ofan á brauð. Nýjasta æðið í morgunmat hér á landi er svokallað „poached“ egg, en er það er algjörlega að velta ristuðu brauði með avókadó úr sessi, sem hinn eiginlegi hátísku morgunverður. Það má eiginlega segja að „poached“ egg sé avókadó ársins 2017. Það er reyndar ekkert því til fyrirstöðu að þetta sé allt borðað saman, eggið, avókadó- ið og brauðið. En það er ákveðin kúnst að ná egginu rétt elduðu og með útlitið í lagi. Galdurinn er að fylla pott með vatni að ⅔ og láta það sjóða. Lækka svo hitann þannig að rétt kraumi í vatninu þegar eggið er sett ofan í. Brjóttu eggið í desilítra- mál og leggðu það varlega ofan í pottinn eftir að hafa bætt smá ediki útí og hrært þannig að hvirf- ilbylur myndist. Eggið er soðið í um fjórar mínútur og svo veitt upp úr og þerrað. Saltað, piprað og borðað. Heitasti morgunmaturinn Kúnstin að elda „poached“ egg með fagurfræði í fyrirrúmi. Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Í ljósi sögunnar Vera Illugadóttir hefur komið þessum fræðandi útvarpsþætti á kortið. Þættirnir fara í loftið á föstudagsmorgnum, en þá er einnig hægt að finna á vefsíðu Ríkisútvarpsins. Vera tínir hér upp þætti úr sögunni sem eru í brennidepli og rekur söguna aftur á bak á lifandi máta. The Guilty Feminist Hér er að finna samræður hinnar sprenghlægilegu Deborah Frances-White og hinna ýmsu gesta hennar er þau ræða um efni sem „allir 21. aldar femínistar eru sammála um.“ Létt og einlægt hlaðvarp fyrir nútímafólk. My Dad Wrote a Porno Nafnið segir sig kannski sjálft. Pabbi Jamie Morton ákvað einn daginn að skrifa erótíska ástar- sögu. Í þessu létta og skemmti- lega hlaðvarpi fjallar Morton um ákvörðun föður síns og les upp úr sögunni fyrir vini og hlustendur. Þægilegt að hlusta á fyrir svefn- inn, en bara fyrir fullorðna. Englaryk Við minnum aftur á hið íslenska Englaryk með þeim Hönnu og Dröfn. Dröfn er búsett í Kaliforníu og Hanna á Íslandi. Þar ræða þær stöllur helsta slúðr- ið í Hollywood- heiminum í bland við daglegt líf. Létt og skemmtilegt fyrir þá sem hafa áhuga á dægurlíf- inu. Hlaðvörp helgarinnar Í skammdeginu er gott að hlusta á mjúka tóna eða fræðandi efni á meðan arkað er í gegnum storminn. Þá eru hlaðvörp tilvalin. Hér eru nokkrar uppástungur af fræðandi og léttum hlaðvörpum fyrir helgina. Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Hér á landi er ekki óal-gengt að fólk sinni fleiri en einu starfi í einu enda hefur fjölhæfni löngum þótt kostur. Hver er ástæðan fyrir því að fólk tekur að sér mörg verkefni í einu? Er það til að ná endum saman eða til að mæta kröfum atvinnulífsins um skrautlega ferilskrá? Valgerður Anna Einarsdóttir er öflugur 24 ára háskólanemi sem nýlega var ráðin dagskrár- og við- burðastjóri Stúdentakjallarans. Valgerður, eða Vala, hefur verið áberandi í háskólalífinu frá því að hún hóf þar nám árið 2013. Þessa dagana er Vala á sinni síðustu önn í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún nóg annað fyrir stafni, er í þremur vinnum og hefur lengi virk í stúdentapólitík. „Ég hef náð að „jöggla“ þessu ágætlega, en ég væri ekki á lífi ef ég ætti ekki dagbók,“ segir Vala hlæj- andi. Viðskiptafræðin nýtist bæði í námi og starfi, enda er hún vel með- vituð um framgang starfsferilsins. „Stundum hugsa ég mikið um fram- tíðina, hvað kemur næst og hvað ég vil gera.“ Vala hefur sterkar skoðanir á vinnu með skóla, sem henni þykir skipta miklu máli. „Mér finnst eig- inlega fáránlegt að vera bara í námi, vinna aldrei og kunna ekkert á at- „Múltítaskarinn“ Enginn tími fyrir Tinder-deit Valgerður Anna Einarsdóttir er í þrem- ur vinnum og stundar nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Auk þess er hún virk í félagslífinu. Þess vegna hefur hún lítinn tíma fyrir stefnumót. Valgerði Önnu líður best þegar hún hefur nóg að gera. Þess vegna er hún í þremur vinnum og námi. Mynd | Hari My Dad Wrote a Porno.Englaryk. Í ljósi sögunnar. The Guilty Feminist. vinnulífið. Ef þú ferð bara úr einum skóla í annan, hvað ertu þá búin að læra?“ En Vala er ekki einung- is á hraðleið að næla sér í gráðu í viðskiptafræði heldur er hún einnig með diplóma í förðunarfræði. „Ég var komin með skólaleiða og ákvað að fara í kvöldskóla í förðunarfræði með viðskiptafræðinni. Ég fann fljótt að ég vildi ekki vinna við þetta. Námið var því bara fyrir mig,“ segir Vala sem nýtur þess að farða sig. Vala tók sér árshlé haustið 2015 og hélt til Ástralíu í skiptinám. Þar fannst henni annað andrúmsloft en heima. „Maður verður gamall snemma hérna,“ segir Vala íhugul. „Þar ver fólk frekar tvítugsárunum í að fíflast.“ Að mati Völu eru kostirn- ir fleiri en gallarnir við það að vera stöðugt með alla bolta á lofti. Hún segir þó lítinn tíma vera fyrir djam- mið eða stráka. „Þegar maður hefur svona mikið að gera, verður eitthvað að mæta afgangi. En maður reynir að lyfta sér upp annað slagið!“

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.