Fréttatíminn - 03.02.2017, Page 50
2 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA
Þetta er yndislegt félag sem á sér fallega og góða sögu. Það hefur gert svo mikið fyrir iðnaðinn í landinu,“ segir Val-
björg Elsa Haraldsdóttir, formaður
Iðnaðarmannafélagsins í Reykja-
vík.
Iðnaðarmannafélagið fagnar nú
í vikunni 150 ára afmæli sínu og
þess er minnst með veglegum há-
tíðarhöldum. Tilgangur félagsins
er og hefur frá upphafi verið að efla
menntun og menningu iðnaðar-
manna og styrkja stofnanir sem
starfa í þeirra þágu.
Lýsa upp styttu Ingólfs
Iðnaðarmannafélagið í Reykja-
vík stóð fyrir stofnun Iðnskólans
í Reykjavík, fyrir fyrstu iðnsýn-
ingunni hérlendis og var virkur
þátttakandi í stofnun Iðnaðarbanka
Íslands, svo stiklað sé á stóru. Á
þessum tímamótum hefur Iðnað-
armannafélagið ákveðið að minna
á sögu sína og fortíð með því að
standa fyrir hönnun og kosta lýs-
ingu á styttu Ingólfs Arnarsonar á
Arnarhóli. Styttan var, sem kunn-
ugt er, gjöf félagsins til þjóðarinnar
árið 1924.
„Ég hef verið formaður í fjögur ár
og það var mitt áhugamál í upphafi
að við myndum á þessum tíma-
mótum minnast forveranna með
því að lýsa upp styttu Ingólfs. Mér
hefur oft fundist dapurt að hafa
hana óupplýsta. Stjórnin tók strax
vel í þetta og við höfum unnið að
þessu í eitt og hálft ár,“ segir Elsa
en kveikt verður á lýsingunni við
formlega athöfn á Arnarhóli í dag,
föstudag, klukkan 17. Forsætisráð-
herra verður viðstaddur athöfnina
ásamt erlendum gestum og fleir-
um. „Það er rétt að taka það fram
Félag sem styður við menntun
og menningu iðnaðarmanna
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík fagnar nú 150 ára afmæli sínu. Elsa Haraldsdóttir, formaður félagsins, segir að mikið
verði um dýrðir í tilefni afmælisins. Vígð verður lýsing á styttu Ingólfs Arnarsonar, heimildarmynd verður gerð um sögu
félagsins og sú hefð að veita gullorðu Iðnaðarmannafélagsins verður endurvakin.
að Hóllinn er opinn öllum. Á sama
tíma verður Harpa lýst upp í Norð-
urlandafánunum, gestum okkar
til heiðurs. Nú stendur einmitt yfir
Vetrarhátíð svo því meiri lýsing, því
skemmtilegra,“ segir Elsa.
Erlendu gestirnir sem Elsa nefndi
eru kollegar frá Norðurlöndunum
sem hingað eru komnir í tilefni af-
mælisins.
„Á þessum tímamótum er
ánægjulegt að norrænu systrafélög-
in, gömlu gildin eins og þau kölluð-
ust áður, senda formenn og stjórnir
sínar til landins. Við héldum for-
mannafund í vikunni, en slíkir
fundir eru haldnir einu sinni á ári.
Þar eru rædd allskonar mál. bæði
sem tengjast félögunum og borgun-
um – Kaupmannahöfn, Stokkhólmi,
Osló, Helsinki og Reykjavík. Öll
hafa þessi félög komið mjög sterkt
að borgarmálum í gegnum tíðina.
Okkar félag tengist mest danska
félaginu því að í upphafi voru svo
margir héðan sem sóttu vinnu til
Danmerkur. Þeir sem komu til baka
stofnuðu svo félagið hér,“ segir
hún.
Heiðra 23 nýsveina
Á morgun, laugardag, fer fram ár-
leg nýsveinahátíð í Ráðhúsi Reykja-
víkur en þar eru framúrskarandi
sveinar verðlaunaðir. „Nýsveina-
hátíðin er eitt aðalverkefni okkar.
Félagið er ekki pólitískt og það er
ekki hagsmunafélag fyrir einstaka
iðngreinar heldur styrkir það og
styður við menntun og menningu
iðnaðarmanna. Á nýsveinahátíð-
inni á morgun ætlum við að heiðra
23 nýsveina sem luku framúrskar-
andi sveinsprófsverki árið 2016.
Bæði sveinarnir og meistarar
þeirra fá viðurkenningu í silfri eða
bronsi,“ segir Elsa en þetta er í ell-
efta sinn sem nýsveinahátíðin er
haldin.
„Hún spyrst alltaf betur og betur
út enda er svona árangur feikilega
mikilvægur í ferilsskrá viðkomandi
sveina. Þar tala ég af reynslu því ég
man sjálf sem ungur nýsveinn að
ég átti mér þann draum að vinna í
útlöndum. Ég leitaði víða að styrk
til þess en slíkt var ekki til þá. Nú
höfum við fengið nokkur fyrirtæki
með okkur í lið og getum styrkt
nokkra unga sveina til framhalds-
náms. Við leggjum mikla vinnu í og
fylgjumst vel með að þessir styrkir
fari til réttra aðila.“
Forseti Íslands er verndari ný-
sveinahátíðarinnar og Guðni Th.
Jóhannesson mun bæði flytja
hátíðarávarp og veita nýsveinum
viðurkenningar, ásamt formanni fé-
lagsins og stjórn. Auk forseta verða
bæði iðnaðarráðherra og mennta-
málaráðherra viðstaddir og Dagur
B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykja-
vík, flytur lokaávarpið.
Síðustu átta ár hafa verið veitt
heiðursverðlaun Iðnaðarmannafé-
lagsins í Reykjavík við þetta tilefni
og engin breyting verður þar á.
Að þessu sinni hljóta tveir menn
heiðursverðlaunin en þeir hafa lagt
sitt af mörkum til mat- og fram-
reiðsluiðnar á Íslandi í gegnum
tíðina. Þeir eru Trausti Víglunds-
son framreiðslumeistari, sem hefur
verið formaður sveinsprófsnefndar
í framreiðslu síðan 1986, og Hilmar
B. Jónsson matreiðslumeistari sem
stofnaði Klúbb matreiðslumeistara,
stofnaði Gestgjafann og eldaði fyrir
tugi þjóðhöfðingja í forsetatíð Vig-
dísar Finnbogadóttur, svo fátt eitt
sé nefnt.
„Ég vil meina að báðir þessir
herramenn hafi lagt hornstein að
þessu gífurlega aðdráttarafli sem
landið okkar hefur í gegnum mat-
armenninguna. Sjálf hef ég tekið á
móti fjölda erlendra gesta og það
er ánægjulegast að fara með þeim
út að borða. Þessar iðngreinar eru
að mínu mati fyrirmynd allra iðn-
greina. Við höfum séð það hvernig
þeir standa að baki sínu fólki í
kokkalandsliðinu til að mynda. Og
þessir tveir herramenn, Trausti og
Hilmar, eru fremstir meðal jafn-
ingja.“
Heimildarmynd um félagið
Á hundrað ára afmæli Iðnaðar-
mannafélagsins var gefin út saga fé-
lagsins. Í tilefni 150 ára afmælisins
hefur verið ráðist í gerð heimildar-
myndar.
„Þetta er eina félagið sem hefur
starfað óslitið á Íslandi allan þann
tíma og við vildum geta sýnt fram
á söguna frá upphafi. Það hef-
ur ekki verið auðvelt að nálgast
gömul myndbönd en Halldór Árni
Sveinsson hefur gert þetta vel og
sett saman heilsteypta sögu fram
til dagsins í dag. Myndin er ekki
fullkláruð enda ætlum við að bæta
við myndefni frá nýsveinahátíðinni
í ár og hátíðarhöldunum öllum. Við
höfum fengið styrki frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
og Samtökum iðnaðarins og Guð-
jón Friðriksson sagnfræðingur hef-
ur aðstoðað okkur, en hann þekkir
borgina okkar svo vel. Í myndinni
verða viðtöl við eldri félaga, til að
mynda einn sem var nemandi í
gamla Iðnskólanum í Vonarstræti.
Við viljum sýna frá fortíðinni eins
og hægt er.“
Annað kvöld, að lokinni ný-
sveinahátíðinni, verður hátíðar-
kvöldverður á Hilton Hótel Nordica.
Þar verður í boði fjögurra rétta
matseðill sem settur er saman af
meðlimum í IMFR. „Allir kokkar og
framreiðslumenn á Hilton munu
sjá til þess að þessi stund verður
ógleymanleg. Ég hvet alla félags-
menn og aðra velunnara iðnaðarins
til að vera með okkur þetta kvöld,“
segir Elsa.
Nokkra athygli á eflaust eftir að
vekja að í hátíðarkvöldverðinum
verður endurvakin sú hefð að veita
gullorðu Iðnaðarmannafélagsins.
„Síðasta orða var veitt þegar félag-
ið var 100 ára en við fundum mót
orðunnar og munum endurvekja
þennan sið. Fyrsti maðurinn til að
hljóta gullorðu félagsins var Einar
Gíslason en hann var fæddur árið
1889. Hann tók sveinspróf í málara-
iðn í Kaupmannahöfn og lét mikið
að sér kveða í málefnum iðnaðar-
manna. Núna munum við verð-
launa einstaklinga sem héldu um
þetta félag áður fyrr, verndara þess
sem héldu hjartanu gangandi.“
Elsa Haraldsdóttir, formaður Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík, segir að
félagið eigi sér fallega og góða sögu.
Iðnaðarmannafélagið fagnar 150 ára
afmæli um þessar mundir. Mynd | Hari
Íslenska ullin er einstök
Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem
náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár.