Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 54

Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 54
Umhyggja, virðing og gleði Hjá Bláa Lóninu eru um 500 starfsmenn í dag sem sinna fjölbreyttum störfum og eru með ólíkan bakgrunn og menntun. Mörg starfanna eru framlínustörf þar sem starfs- fólk er í beinum samskiptum við gesti – eins og t.d. á Lava, veitingastað Bláa Lónsins. Á Lava eru 17 matreiðslunemar, 14 framreiðslunemar, 16 sveinar og meistarar í matreiðslu og 15 sveinar og meistarar í fram- reiðslu. Gestir á Lava hafa oft góðan tíma og vilja því fræð- ast bæði um íslenskan mat og menningu. Við erum í raun öll gestgjafar og markmið hvers dags er að hámarka upplifun gesta okkar. Starfsfólk Bláa lónsins starfar eftir gildum sem þeir hafa sett sér; gildin felast í umhyggju, virðingu og gleði. Þessi gildi eru höfð að leiðarljósi bæði í samskiptum við hvert annað og í samskiptum við gesti. Á degi hverjum eru skapaðar minn- ingar fyrir gesti, minningar sem byggja á góðri upplifun sem stóðst væntingar þeirra sem hingað koma. Markmiðið að hámarka upplifun gestanna Umhyggja, virðing og gleði. Unnið í samstarfi við Bláa Lónið Ég var við nám á grunndeild í Menntaskólanum í Kópavogi. Þá bauðst mér að fara í starfsnám á veitingastað í eina viku. Ég valdi Lava vegna þeirra breytinga sem ég vissi að voru fyrirhugaðar í tengslum við uppbyggingu Bláa Lónsins,“ segir Leó Snæfeld Páls- son sem fljótt fann sig vel í starfi þjónsins. „Ég fann strax að þetta var eitthvað sem ég vildi starfa við og sá fyrir mér sem skemmti- legt framtíðarstarf. Ég hef alltaf haft gaman af leiklist og því að koma fram og kynna. Góður þjónn þarf að búa yfir þessum eiginleikum þ.e. eiga auðvelt með samskipti og framkomu.“ Viku eftir að Leó hóf störf hjá Lava skall á verkfall hjá fram- haldsskólakennurum og bauðst honum þá að koma og vinna sem þjónanemi í fullu starfi. Það boð þáði hann og ekki var aftur snúið; nú er Leó orðinn lærð- ur þjónn, með þeim fremstu í faginu. Námið gekk með mikl- um ágætum, árið 2015 varð hann Íslandsmeistari þjónanema og tók þátt í Norðurlandakeppni í framreiðslu árið 2016. „Þátttaka í þeirri keppni mótaði það sem mig langaði að verða og halda áfram að ná árangri. Í gegnum Norðurlandakeppnina kynntist ég flottu fólki og náði einnig að efla tengslanetið mitt,“ segir Leó og bætir við að námið hafi opnað marga möguleika enda opni flott- ir veitingastaðir um allan heim á degi hverjum. Við útskrift í des- ember sl. fékk Leó viðurkenn- ingu fyrir góðan námsárangur og fær viðurkenningu fyrir gott sveinspróf frá Samtökum iðnað- arins. Leó segir Lava einstaklega góðan vinnustað. „Ég á marga samstarfsfélaga og við erum öll góðir vinir. Við erum öll misjöfn en vinnum vel saman sem teymi þar sem styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín. Minn styrkleiki og áhugi felst t.d. í því að para saman góða drykki með mat. Vegna stærðar Lava og Bláa Lónsins fæ ég tækifæri, ekki eingöngu til að prófa mig áfram heldur einnig til að læra af öðr- um,“ segir Leó. Benedikt Fannar hefur unnið á Lava frá árinu 2013 en dvelur nú í London í starfs- námi á Michelinstaðnum Texture. Flottur og samstilltur hópur sem vinnur einstaklega vel saman. Leó fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur við útskrift í desember sl. Benedikt Fannar Gylfason hefur unnið á Lava frá ársbyrjun 2013. „Mér finnst góður starfsandi og hópurinn mjög samstilltur. Ver- kefnin eru mjög fjölbreytt enda fjölbreyttur rekstur og mikil tækifæri til að vaxa í starfi. Við vinnum með ferskt og gott hrá- efni og allt er unnið frá grunni.“ Nú er Benedikt Fannar hins vegar staddur í starfsnámi í London þar sem hann fær að spreyta sig á Michelin-veitinga- staðnum Texture. „Eftir góða frammistöðu í námi og starfi síð- ustu 4 ár veitti Bláa Lónið mér þetta frábæra tækifæri. Það er alveg einstakt að yfirmenn mínir hafi það góð sambönd að koma mér, ásamt félögum mínum, til útlanda á flottan Michelin stað í London. Texture er Michelin staður og skemmir ekki fyrir að hann er í eigu Íslendings þannig að það er unnið mikið með ís- lenskt hráefni sem mun nýtast mér gríðarlega vel þegar ég kem aftur til baka. Þetta er í mínum huga alveg einstakt tækifæri og frábær reynsla,“ segir Benedikt. Nú þegar hefur Benedikt Fann- ar hafið störf á Texture og segir það töluvert frábrugðið því sem hann á að venjast á Lava. „Vakt- irnar mun lengri og töluvert meiri agi en heima á Íslandi. Engu að síður líst mér mjög vel á það sem af er og hlakka til næstu vikna,“ segir Benedikt Fannar sem mun dveljast í fjóra mánuði í London en snúa aftur, reynslunni ríkari, tilbúinn að taka þátt í að þróa þau spennandi verkefni sem eru framundan í Bláa Lóninu. Tækifæri til að læra af öðrum Fær að spreyta sig á Texture 6 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.