Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 58

Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 58
Rúmlega 150 námskeið á hverri önn Öflug náms- og starfsráðgjöf og fjölbreytt námskeið hjá IÐUNNI fræðslusetri. Unnið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur IÐAN fræðslusetur varð til fyrir ellefu árum við samruna fimm fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu. Kjarnastarfsemi IÐUNNAR er símenntun í bíliðn- greinum, bygginga- og mannvirkja- greinum, málm- og véltæknigrein- um, upplýsinga-, prent- og fjölmiðlagreinum og mat- væla- og veitingagreinum. Auk símenntunar veitir IÐAN fjölbreytta aðra þjónustu. Eigendur IÐUNN- AR eru Samtök iðnað- arins, Samiðn, Matvís, Grafía, FIT, VM, Bílgreina- sambandið, Samtök ferða- þjónustunnar og Meistarafélag húsasmiða. „Við höldum rúmlega 150 námskeið á hverri önn og eru þátttakendur um 3.500 á hverju ári. Framboð námskeiða auglýsum við á vefnum okkar www.idan.is auk þess að gefa út veglegan námsvísi sem borinn er út til félagsmanna tvisvar á ári,“ segir Hildur Elín Vignir, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. „IÐAN fræðslusetur býður fyrir- tækjum jafnframt upp á sérsniðin námskeið og fyrirtækjastyrki til þeirra sem greiða endurmenntun- argjöld til IÐUNNAR. Fyrirtækj- um í iðnaði stendur einnig til boða þátttaka í verkefninu Fræðslustjóri að láni með milligöngu IÐUNNAR, en í því felst að ráðgjafi vinnur náið með fyrirtæki að greiningu fræðslu- þarfa og mótar fræðsluáætlun sem er sérsniðin að þörfum þess.“ Hafa fjölmörg fyrirtæki nýtt sér þennan kost til að efla starfsemina. Öflug náms- og starfsráðgjöf „Hjá IÐUNNI starfa fjórir náms- og starfsráðgjafar og má sækja til þeirra margvíslega ráðgjöf, svo sem einstaklingsviðtöl og aðstoð við ferilskráagerð. Náms- og starfs- ráðgjafar IÐUNNAR hafa einnig umsjón með raunfærnimati fyrir fjölda iðngreina. Raunfærnimat er viðurkennd aðferð til að meta færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði og getur þátttaka í raunfærnimati mögulega stytt nám og reynist oft hvatn- ing til að ljúka námi. Þá sér IÐAN um mat á erlendri starfsmenntun og starfsreynslu í löggild- um iðngreinum öðrum en rafiðngreinum samkvæmt samningi við mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið.“ Námskeið af öllum stærðum og gerðum „Námskeið IÐUNNAR fræðslu- seturs eru af öllum stærðum og gerðum allt eftir eðli og aðstæðum hverju sinni. Námskeiðahaldið og framboð námskeiða þróast í takt við tímann enda verðum við að sjálfsögðu bregðast við þegar ný tækni eða nýjar aðferðar ryðja sér til rúms. Undanfarið höfum við til að mynda lagt áherslu á frekari þróun á námskeiðahaldinu með áherslu á rafrænt námsefni, myndskeið, upp- lýsingatækni í námi og kennslu og fjarnám.“ Ásamt fræðslustarfsemi er IÐAN með stór verkefni í gangi. „Við höldum utan um framkvæmd sveinsprófa í fjölmörgum iðngrein- um og sjáum um verkefnastjórn á löggildingarmati í mörgum iðn- greinum. Þessi verkefni eru unnin í tengslum við þjónustusamninga við mennta- og menningarmálaráðu- neytið. IÐAN tekur einnig þátt í fjöl- breyttum innlendum og erlendum þróunarverkefnum og hefur gert í gegnum tíðina,“ segir Hildur Elín. „IÐAN fræðslusetur er til húsa að Vatnagörðum 20 þar sem við höfum upp á að bjóða framúrskarandi að- stöðu til námskeiðahalds, fullbú- ið bifreiðaverkstæði og sérstaka aðstöðu til kennslu og þjálfunar í málmsuðu. Við höfum einnig full- búna kennslustofu í tölvugreinum.“ IÐAN er vottaður kennsluaðili fyrir Autodesk-hugbúnað og hefur hlotið EQM gæðavottunina, sem er staðfesting á því að námskeið IÐUNNAR fræðsluseturs standast evrópskar kröfur um gæði fræðslu- aðila. IÐAN fræðslusetur býður upp á námskeið af öllum stærðum og gerðum. Um 3.500 manns taka þátt á ári hverju. Hildur Elín Vignir 10 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.