Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 72
Öflugt iðnnám í FB
Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eru stórar iðnnámsdeildir þar sem hægt er að læra húsasmíði, rafvirkjun
og snyrtifræði. Frábær aðstaða er í skólanum og afbragðs kennarar. Nemendur í FB láta vel af náminu.
Kom aldrei annað
en iðnnám til greina
Þorgeir Þorsteinsson er 18 ára
nemi á rafvirkjabraut. Hann er á
sinni fjórðu önn í náminu og er að
fara á samning í sumar hjá Arnari
rafvirkja í Borgarnesi.
Þorgeir er einmitt úr Borgarnesi en
býr hjá ömmu sinni í Reykjavík með-
an hann er í námi.
„Mig langaði að læra eitthvað
sem ég gæti farið að vinna við strax
eftir menntaskóla. Það kom aldrei
neitt annað en iðnnám til greina hjá
mér því ég vildi fara strax að vinna,“
segir Þorgeir.
„Mér leist vel á rafvirkjun því
maður heldur mörgu opnu með því
námi. Ég tek stúdentinn með til að
fjölga möguleikunum,“ segir hann.
Hvernig kanntu við námið í FB?
„Þetta er alger snilld hér í Fjölbraut.
Geggjað gaman. Aðstaðan er líka
hundrað prósent, það er ekki hægt
að kvarta undan því.“
Myndir | Hari
Unnið í samstarfi við FB
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er staðsettur miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er að fara í skól-
ann úr Kópavogi, Grafarvogi og
Breiðholtinu. Við hliðina á skólan-
um er stórt íþróttahús, sundlaug
og nýjasta og best búna heilsu-
ræktarstöð landsins. Félagslífið er
í mikilli sókn og námsúrval mjög
fjölbreytt, en alls eru 15 náms-
brautir í skólanum. Fjölbreytileik-
inn gefur nemendum einnig frelsi
til að raða náminu saman að eigin
vali.
Í skólanum eru stórar iðnnáms-
deildir. Þar er hægt að læra húsa-
smíði, rafvirkjun og snyrtifræði.
Aðstaða til kennslu í húsasmíði er
að margra mati sú besta á landinu,
stór verknámsskemma við Hraun-
berg. Rafvirkjadeildin er mjög stór
og öflug. Í FB er eina snyrtibraut
landsins. Auk þess að kenna húsa-
smíði og rafvirkjun í dagskóla,
er sama nám kennt fullorðnum í
Kvöldskóla FB. Í kvöldskólanum
stunda álíka margir nám og í dag-
skólanum í húsasmíði og rafvirkj-
un. Það hentar mörgum fullorðn-
um að vinna fullan vinnudag og
koma síðan á kvöldin og taka tíma
og vinna sér þannig smám saman
inn starfsréttindi í faginu.
Skólinn hefur yfir að ráða
afbragðs góðum kennurum.
Það ríkir mikil nánd í skólanum,
samskipti eru vingjarnleg og vel
haldið utan um nýnema. Það er
mikill sköpunarkraftur í skólan-
um, þar er Fablab Reykjavíkur og
kjörinn staður til að tengja saman
verknám og bóknám. Veittur er
góður námsstuðningur og þess
gætt að mæta nemendum þar sem
þeir eru staddir. Áhersla á símat og
verkefnavinnu frekar en lokapróf.
Verknámsnemendum FB gefst
kostur á að sækja um að taka
hluta af námi sínu erlendis með
styrk frá Erasmus+ menntaáætlun
ESB. Skólinn fékk nýlega vottun
fyrir náms- og þjálfunarverkefnum
í starfsmenntun.
„Ég hef alltaf haft áhuga á faginu.
Mér fannst tími kominn til að fara í
skóla aftur og ákvað að drífa mig.
Það var kominn tími á það,“ segir
Ragnheiður þegar hún er spurð af
hverju hún hóf nám á snyrtifræði-
braut FB.
Hvað tekur við eftir útskrift í vor?
„Ég er að vinna á Snyrtistofunni
Ágústu, er að taka samninginn þar,
og fer í fullt starf í vor. Það þarf að
taka tíu mánuði á snyrtistofu til að
geta tekið sveinspróf.“
Er sveinsprófið mikilvægur áfangi?
„Já, ég hugsaði með mér að fyrst ég
væri að vinna við þetta ætti ég að
taka það strax. Að taka þetta bara
alla leið og fá mín réttindi. Það get-
ur verið mikilvægt seinna meir. Það
yrði eflaust erfiðara að taka það eftir
einhvern tíma. Maður er líka ekki lög-
legur snyrtifræðingur nema að taka
sveinspróf. Mér finnst þetta mikil-
vægt,“ segir Ragnheiður sem kveðst
mögulega ætla að taka meistarapróf
síðar.
Hvernig hefur þér líkað námið í FB?
„Alveg rosalega vel. Við erum mjög
nánar allar stelpurnar í mínum bekk.
Við erum sér deild innan skólans og
höldum mikið hópinn. Kennararnir
hérna eru líka mjög flottir.“
„Ég hætti í menntaskóla árið 2012
og fór út á vinnumarkaðinn. Ég fór
að vinna við smíðar og fílaði mig
rosalega vel í byggingabransanum.
Þess vegna ákvað ég að gera þetta
„official“ hérna í FB,“ segir hann.
Darri er í fullu námi en kveðst
reyna að vinna um helgar í
byggingarvinnu til að hafa eitthvað
á milli handanna. Hann býst við að
ljúka náminu á fimm önnum og þá
lýkur hann einnig stúdentsprófi
enda fær hann eitthvað metið frá
námi sem hann hafði áður lokið.
„Í framtíðinni langar mig svolítið
að fara í verkfræði, það væri gott
að hafa hana líka. En svo vil ég líka
vinna við almenna uppstillingu húsa.“
Darri lætur vel af náminu í FB.
„Þetta er mjög skemmtilegt og
þægilegt hérna. Mjög kósí. Aðstað-
an er frábær og kennararnir allir
snillingar.“
Nú er sífellt verið að tala um að
allir fari í bóknám en of fáir stundi
iðnnám.
Hvernig horfir þetta við þér?
„Það virðast allir vera að læra
að verða viðskiptafræðingar eða
lögfræðingar. En ef þú lest leikinn
eru klárlega meiri atvinnutækifæri
í þessum bransa. Svo er ekkert
mál að flytja til útlanda ef þú ert
titlaður smiður. Það er eiginlega
allt of mikil atvinna hér og vantar
fleiri gæja. Það er alla vega mikið
framboð af vinnu og það er bara
snilld.“
Fannst mikilvægt að ná sér í sveinspróf
Ragnheiður Ólafsdóttir er 28 ára nemi á snyrtibraut.
Hún er á síðustu önn sinni í náminu og útskrifast í vor.
Mikil atvinnutækifæri í byggingabransanum
Darri Már Grétarsson er 23 ára nemi á húsasmíðabraut. Hann er á sinni þriðju önn í náminu og kann því afar vel.
24 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA