Fréttatíminn - 17.03.2017, Blaðsíða 45
BÍLAR
Föstudagur | 17. mars | 2017
AÐEINS KR.
ÞÚSUND
2.990
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
586 1414
stora@stora.is · stora.is
facebook.com/storabilasalan
Nýir Toyota Auris Hybrid
39 ÞÚS.
Á MÁNUÐI*
*M.v 20% útborgun til 84 mánaða
...og margt fleira
Bakkmyndavél
Álfelgur
Handfrjáls búnaður
Litað gler
VEL BÚINN BÍLL
Til afgreiðslu núna - Komdu og prófaðu - Allt að 90% lán - Skoðum með uppítöku á notuðum bílum
Mynd | Hari
Vilhelm Anton Jónsson hefur keyrt
um á Land Rover Defender síðustu
átta ár. Traktorinn, eins og hann
kallar hann, hentar vel í veiði og
til að smala fé fyrir norðan en Villi
mælir ekki með honum sem mið-
borgarbíl. Þeir sem keyra um á
Defender heilsast í umferðinni en
þeir sem keyra um á Discovery eða
Range Rover eru ekki virtir viðlits.
„Þegar ég keypti hann fannst mér
– og finnst enn – þetta vera falleg-
asti bíll sem hefur verið hannað-
ur,“ segir Villi sem viðurkennir að
eiga í ástar- og haturssambandi við
bílinn. „Land Roverinn minn hef-
ur aldrei bilað. En það hafa reynd-
ar bilað hlutir í honum. Land
Rover bilar aldrei.“
Hann segir að það sé skemmti-
legur hópur fólks sem keyrir
um á Defenderum Íslandi. „Við
heilsumst til dæmis í umferðinni
– það er vinkað á milli Defendera
– en ekki hinna tegundanna. Ef
einhver er á Discovery eða Range
Rover þá heldur maður báðum
höndum í stýrið þannig að það
sjáist að maður sé ekki að vinka
þeim,“ segir hann.
Villi segir reyndar að það trúi
þessu fáir því alltaf þegar hann er
með farþega í bílnum og mæt-
ir öðrum Defender, þá gleymi
viðkomandi að vinka. „En þetta
eru samt óskrifuð lög að þeir sem
eru á Defender og gömlum Land
Roverum vinka hver öðrum. Og ef
maður mætir einhverjum á göml-
um Series þá vinkar maður með
báðum og tekur ofan, það er mesta
þrautagangan. Maður hneigir sig í
lotningu og leggur út í kant þegar
maður mætir svoleiðis jörlum.“
Ævintýrabíll
sem bilar
aldrei