Fréttatíminn - 17.03.2017, Qupperneq 54
10 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017BÍLAR
Bílaflutningar
Starfsmenn Króks eru þrautreyndir í bílaflutningum
enda er lítil starfsmannavelta hjá fyrirtækinu en mikil reynsla.
Mikil aukning
Sífellt meira er
að gera í því að
þjónusta erlenda
ferðamenn þegar
bílar þeirra bila hér
á landi.
Öflugur floti
Í flota Króks eru fimm
sérhæfðir bílaflutninga-
og björgunarbílar og
vélaflutningavagn.
Vinnuvélaflutningar
Flutningar á vinnuvélum
verða æ algengari hjá Króki.
Leiðandi í flutningum og björgun ökutækja
Krókur hefur í tæpa þrjá áratugi boðið upp á dráttarbílaþjónustu og nú rekur Krókur uppboðsvef þar sem seldir eru
bílar og sér um að þjónusta erlenda ferðamenn á eigin bílum.
Unnið í samstarfi við Krók.
Fyrirtækið var stofnað árið 1987 og ég er búinn að vera hérna síðan 1990. Velgengni okkar og lang-
lífi byggir mikið á því að við erum
með góðan hóp af starfsfólki. Hér
er lítil starfsmannavelta en mik-
il reynsla,“ segir Gísli Jónsson,
framkvæmdastjóri Króks.
Krókur er leiðandi aðili í flutn-
ingum og björgun ökutækja á
Íslandi auk þess sem félagið rek-
ur þjónustumiðstöð fyrir tjóna-
ökutæki. Þá rekur Krókur upp-
boðsvefinn www.bilauppbod.is
sem nýtur mikilla vinsælda og er
sífellt stærri hluti af starfseminni.
Krókur býður einnig upp á
ástands- og tjónaskoðun á bílum,
verðmat og vegaaðstoð. „Aðstoð
við erlenda ökumenn er vaxandi
þáttur í starfseminni. Stór hluti
af því eru ökumenn sem koma
með Norrænu á eigin bílum. Þá
erum við að vinna fyrir erlend
tryggingafélög og bílaklúbba. Það
er nefnilega ekki gott að sitja við
skrifborð úti í London og þurfa
að fást við bilaðan bíl á Kili eða
Sprengisandi. Þá er gott að eiga
hauk í horni á Íslandi.“
„Upphaflega var Krókur bara
dráttarbílaþjónusta en árið
1990 fórum við að vinna fyr-
ir tryggingafélögin og síðan þá
hefur starfsemin víkkað út á alla
kanta,“ segir Gísli.
Krókur hefur yfir að ráða öflug-
um bíla- og tækjakosti til flutn-
inga. Til að mynda eru í flota
Króks fimm sérhæfðir bílaflutn-
inga -og björgunarbílar og véla-
flutningavagn. Auk þess á Krókur
sérhæfðan dráttarbíl og tækja-
flutningabíl sem hentar tækjum
og stærri bílum. Þjónustan er í
boði allan sólarhringinn, allt árið
um kring og mikill metnaður er
lagður í stuttan viðbragðstíma.
Þjónustusími Króks er 522-4600.
Krókur tekur bæði að sér
flutning á ökutækjum sem lent
hafa í óhöppum á höfuðborgar-
svæðinu fyrir tryggingafélög en
einnig fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki. „Vinnuvélaflutningar hafa til
að mynda aukist talsvert hjá okk-
ur,“ segir Gísli.
Þjónustumiðstöð Króks er að
Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Sautján
starfsmenn vinna hjá Króki. „Við
erum með 3.300 fermetra hús-
næði og mikið útisvæði,“ segir
Gísli.
Gísli segir að bílauppboðið
sé alltaf að verða stærri þáttur
í starfsemi Króks. „Við erum að
selja bíla fyrir tryggingafélög og
kaupleigufyrirtæki en líka geysi-
lega mikið fyrir einstaklinga. Þetta
eru bílar af öllum stærðum og
gerðum, bæði skemmdir og heilir.
Það er alltaf eitthvað spennandi á
síðunni hjá okkur,“ segir Gísli.
Bílauppboð Króks fer fram á
www.bilauppbod.is en þar eru
bæði seldir tjónabílar og bílar sem
eru í góðu lagi. Einstaklingar geta
selt bíla sína þar og segir Gísli að
það geti oft verið skilvirkara en að
selja í gegnum bílasölur.
„Bílarnir eru kannski fimm daga
á uppboði og á þeim tíma fær sá
sem er að selja tilboð í bílinn sinn.
Það er allt staðgreitt og þú færð
á þessum fimm dögum að vita
hvað þú getur fengið í peningum
fyrir bílinn. Ef þú ferð með hann
á bílasölu getur hann þurft að
standa þar í hálft ár áður en hann
selst og þú veist ekki fyrr en þá
hvað þú færð fyrir bílinn. Þetta er
mjög skilvirkt.“
Nánari upplýsingar má
fá á heimasíðu Króks,
www.krokur.net,
og í síma 522-4600.