Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Guðmundur Tyrfingsson, stjórn-arformaður samnefnds rútu-
fyrirtækis, svaraði nokkrum spurn-
ingum ViðskiptaMoggans í gær.
Hann var meðalannars spurð-
ur um kosti og galla
við rekstrar-
umhverfið og svar-
aði: „Kostir eru tví-
mælalaust bættar
samgöngur almennt
frá því sem var.
Sem betur fer hefur mikið lagast þó
enn vanti talsvert uppá að það sé
boðlegt, þá aðallega hálendisveg-
irnir. Helstu gallar eru óhófleg
skattheimta og allskyns gjöld sem
eru á fyrirtækjum sem hamla vexti
og góðu rekstrarumhverfi.“
Þetta eru gagnlegar ábendingarog þar sem þær koma frá
manni með áratuga reynslu af eigin
rekstri ættu stjórnvöld að leggja
við hlustir.
Óhófleg skattheimta og allskynsgjöld eru atvinnulífinu til traf-
ala og eru þar með til þess fallin að
rýra kjör almennings.
Hið sama gildir um óhóflegarreglur og eftirlit sem gera
fyrirtækjunum erfitt fyrir að ná
fram hagkvæmni í rekstri, en vax-
andi hagkvæmni er ein helsta for-
senda þess að hægt sé að gera betur
við starfsmenn.
Það er rík tilhneiging til þess hjáhinu opinbera að flækja starfs-
umhverfi fyrirtækja og auka álög-
ur.
Þetta kemur sér sérstaklega illafyrir minni og meðalstór fyrir-
tæki, vaxtarbroddana í atvinnulíf-
inu.
Guðmundur
Tyrfingsson
Óhófleg skattheimta
og alls kyns gjöld
STAKSTEINAR
Heimsbikarmótið í skák fer fram í
Tbilisi í Georgíu dagana 3.-27. sept-
ember. Meðal keppenda á mótinu er
Jóhann Hjartarson. Hann ávann sér
keppnisrétt þegar hann sigraði á
Norðurlandamótinu í skák fyrir
skemmstu.
„Það vekur nokkra athygli að Jó-
hann er elsti keppandi mótsins, að-
eins 54 ára gamall,“ segir í frétta-
bréfi Skáksambandsins.
Í fyrstu umferð (128 manna úrslit-
um) fær Jóhann ögrandi verkefni en
þá mætir hann tékkneska stórmeist-
aranum David Navara (2.737 Elo-
stig) sem lagði Garry Kasparov að
velli nýlega í St. Louis í Bandaríkj-
unum. Jóhann er með 2.556 Elo-stig.
Navara er fæddur árið 1985, sama
ár og Jóhann varð stórmeistari.
Á Heimsbikarmótinu er teflt eftir
útsláttarfyrirkomulagi. Tefldar eru
tvær skákir. Sé jafnt er teflt til
þrautar með styttri umhugsunar-
tíma þar til úrslit fást.
Nánast allir sterkustu skákmenn
heims taka þátt í mótinu og þar á
meðal er heimsmeistarinn Magnus
Carlsen. Fara þarf alla leið niður í
sextánda sæti heims-stigalistans
(Veselin Topalov) til að finna ein-
hvern sem ekki teflir í Tbilisi.
sisi@mbl.is
Jóhann er
elsti kepp-
andinn
Heimsbikarmótið
hefst á sunnudaginn
Morgunblaðið/Ómar
Jóhann Hjartarson Mætir sterkum
andstæðingum á HM í Tblisi.
Matur
Veður víða um heim 31.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 alskýjað
Bolungarvík 14 heiðskírt
Akureyri 17 skýjað
Nuuk 5 rigning
Þórshöfn 12 heiðskírt
Ósló 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 15 þoka
Helsinki 17 rigning
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 13 skúrir
Glasgow 16 skýjað
London 18 skúrir
París 19 skúrir
Amsterdam 17 súld
Hamborg 16 skúrir
Berlín 19 alskýjað
Vín 30 heiðskírt
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 27 léttskýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 22 súld
Mallorca 27 rigning
Róm 29 heiðskírt
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 16 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 21 skýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:12 20:45
ÍSAFJÖRÐUR 6:09 20:57
SIGLUFJÖRÐUR 5:52 20:40
DJÚPIVOGUR 5:39 20:16
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykja-
víkurborgar fyrir fyrstu sex mánuði
ársins var jákvæð um ríflega 3,6
milljarða króna, en áætlun gerði ráð
fyrir að hún yrði jákvæð um rúmlega
1,1 milljarð. Niðurstaða B-hluta sam-
stæðunnar var einnig jákvæðari en
búist var við.
Í tilkynningu frá borgaryfir-
völdum segir að niðurstaða A-hluta
skýrist einkum af hærri tekjum af
sölu byggingarréttar og söluhagnaði
fasteigna, auk hærri skatttekna og
framlaga Jöfnunarsjóðs, sem voru
900 milljónum hærri en áætlun gerði
ráð fyrir. Þá hafi fagsvið borgarinnar
haldið vel utan um reksturinn og
staðist fjárhagsáætlanir.
„Kostnaður er á áætlun en tekjur
styrkjast, auk þess sem hreinar
skuldir lækka umtalsvert,“ er haft
eftir Degi B. Eggertssyni borgar-
stjóra í tilkynningu. Hann segir þetta
gera borginni kleift að auka fjár-
framlög til skóla, velferðar- og hús-
næðismála.
Kemur ekki á óvart
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borginni, segir í
samtali við Morgunblaðið að jákvæð
niðurstaða komi ekki á óvart í því
góða efnahagsástandi sem nú sé.
„Ég sagði það í fyrra að það væri
ekki hægt að reka borgina með halla
í þessu góðæri sem ríkti. Þetta er
bara í samræmi við það sem er að
gerast hjá öðrum sveitarfélögum,
það er betri rekstur, hjá flestum alla-
vega,“ segir Halldór. athi@mbl.is
Jákvæðar tölur
Hálfsársuppgjör Reykjavíkurborgar
staðfest á fundi borgarráðs í gær
BRATISLAVA
15. september í 4 nætur
Netverð á mann frá kr. 49.995 m.v. 2 í herbergi.Crowne PlazaBratislava
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Frá kr.
49.995
m/morgunmat
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1