Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 10

Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Nýjar haustvörur Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 LITEFIELD Frístundarstígvél Sérhönnuð fyrir göngufólk Fislétt – Sterk – Stöm Stærðir: 37–46 Verð 15.947 DEMAR Barnastígvél ÓTRÚLEGA létt og lipur (280 g parið) EINANGRUNARGILDI HÁTT Fóðruð með ekta lambsull, sem hægt er að fjarlægja. Stærðir: 24/25–34/35 Verð 7.434 JÓN BERGSSON EHF Kletthálsi 15, 110 Reykjavík, sími 588 8881 Stígvél fyrir stóra sem smáa Magnús Heimir Jónasson Andri Steinn Hilmarsson Heidi Laubert Andersen, bóndi í Örnólfsdal, vakti mikla athygli á opnum umræðufundi sauðfjárbænda á Blönduósi á miðvikudagskvöldið þegar hún tók með sér súpukjöts- poka í pontu og gagnrýndi harðlega framsetningu íslensks lambakjöts á innlendum mörkuðum. Slæm staða blasir við sauðfjár- bændum þar sem fyrirhuguð 35% skerðing á afurðaverði er líkleg til að leiða af sér allt að 56% launalækkun hjá bændum og var þungt hljóð í bændum á fundinum. Heidi steig í pontu og dró hvern lambakjötsbitann á fætur öðrum upp úr pokanum og flokkaði í hundamat og mannamat. Markmiðið með því var að hennar sögn að sýna fram á að fullt af kjötbitum sem finna mætti á innlendum markaði væru ekki nægj- anlega góðir til að eiga heima á mat- arborði Íslendinga. Hún benti á að framsetning og markaðsstarf hefði að mestu leyti farið fram á erlendum mörkuðum og sagði að innanlands- markaður væri ekki nýttur sem skyldi. Heidi hlaut gríðarlega mikið lófa- tak fyrir í salnum en húsfyllir var á fundinum. Heidi, sem ólst upp á mjólkurbúi í Danmörku, hefur búið á Íslandi í 19 ár og verið bóndi í Örn- ólfsdal í 17 ár. Á býlinu eru 540 vetr- arfóðraðar ær. Í samtali við Morg- unblaðið, segir hún að það hafi endalaust verið talað um að innan- landsmarkaður sé stopp en hún telur að það sé hægt að bæta söluna ef lögð er svipuð vinna í markaðsstarf á Íslandi og erlendis. „Það hefur verið talað um það síðustu tvö ár að það sé ekki hægt að koma meira kjöti inn á markaðinn. Þetta er það sem maður hefur heyrt á fundum hjá sláturhús- um. Ég hef verið að sækja þessa fundi og spyrja af hverju það hafi ekki verið að koma neinar nýjungar inn í verslanir hvað varðar framsetn- ingu á kjötinu og það var í raun það sem ég vildi sýna fram á með þessum súpukjötspoka,“ segir Heidi en súpukjötið er selt í glærum pokum með engum öðrum merkingum en að það stendur súpukjöt og hvar slátrað var. Heidi dró einnig upp á fundinum hundamat þar sem stóð á „free range“ sem þýðir að dýrin sem nýtt eru í hundamatinn séu í lausagöngu og benti Heidi á að hundamatur væri betur merktur en íslenskt lamba- kjöt. Hún benti einnig á að fóðrið fyrir ærnar er merkt með „no gmo“ eða án erfðabreyttra matvæla og segir að íslenska lambakjötið sé það einnig en slíkt sé ekki merkt. „Að það sé ekki hægt að selja þessa vöru á markaði með góðu verði skil ég ekki,“ segir Heidi. Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa, var á fundinum og sagði að þróun á nýj- um umbúðum væri í gangi hjá slát- urhúsum en Heidi segir að bændur hefðu mátt fá að heyra af þeim hug- myndum fyrr. Neytendur vita ekki um gæðin Heidi segir að neytendur geri sér ekki grein fyrir því hversu góð mat- vara íslenskt lambakjöt er og þar eigi markaðssetning og framsetning kjötsins mikinn þátt. „Það er einmitt framsetningin sem skiptir máli. Það var gerð könnun á facebook-hópnum matartips þar sem sauðfjárbóndi spurði hver ástæðan væri fyrir því að fólk velur eða velur ekki lambakjöt og þá kom fram aftur og aftur að pakkningarnar væru svo stórar, kjötið væri illa framsett eða það væri búið að marínera þetta í einhverju sem það vildi ekki.“ Hún hafði ekki mikla trú á að fundurinn myndi breyta miklu enda september að ganga í garð og margir bændur byrjaðir að slátra. „Ég fór á fundinn til að koma mínu áliti á framfæri og heyra í öðrum.“ Hún segist alls ekki ósátt með for- ystu bænda og bændasamtaka í mál- inu eins og einhverjir væru enda mikil vinna farið fram. „Maður sá bara á þeim hversu gjörsamlega þau eru búin á því. Búin að vera að fara á þessa fundi fram og tilbaka og fá ekkert út úr þeim.“ Hún tekur fram undir lokin að ís- lenskt lambakjöt sé góð vara og að Íslendingar ættu að gera sér betur grein fyrir því. „Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað það er með í höndunum, allra síst sauðfjárbænd- ur og þá sérstaklega ef maður horfir á kjötframleiðslu erlendis.“ Innlendur markaður illa nýttur  Bændur funduðu á Blönduósi  Sauðfjárbóndi gagnrýndi harðlega framsetningu á íslensku lamba- kjöti á innlendum markaði  Segir íslenskt lambakjöt góða vöru sem þurfi betri merkingar í verslunum Morgunblaðið/Eggert Súpukjötið Heidi hlaut lófaklapp þegar hún dró upp hvern kjötbitann á fætur öðrum á fundinum og gagnrýndi framsetningu súpukjöts á Íslandi. ólfs hafa orðið verulegar breytingar á eftirliti með flugrekstri. Slíkt eft- irlit hafi í auknum mæli færst yfir á flugrekendurna sjálfa og nú sé því þannig háttað víða að hlutverk eft- irlitsstofnana á borð við Samgöngu- stofu sé að gera úttektir á slíku innra eftirliti. Fundinn sækja yfir 70 erlendir gestir víðsvegar frá Evrópu og þar eru einnig æðstu stjórnendur frá m.a. Alþjóðaflugmálastofnuninni og Flugöryggisstofnun Evrópu. Meðal þess sem rætt er á fundinum er tölvu- og netöryggi. „Hver einasta flugvél er búin tugum tölvukerfa og hægt væri að valda miklum skaða með því að brjótast inn í eitthvert þeirra. Það sama á við um flugleið- sögukerfi. Á hverjum einasta degi gerist það einhvers staðar í Evrópu að vart verður við að tölvuþrjótar reyni slík innbrot,“ segir Þórólfur. Hefur það tekist? „Ég veit um a.m.k. eitt tilvik þar sem tókst að komast inn í gæðahandbók sem fylgdi flugvél, en það varð strax vart við það og tókst að koma í veg fyrir að hætta skapaðist,“ svarar Þórólf- ur og segir að vegna öryggisreglna Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Verkefnum Samgöngustofu hefur fjölgað mikið í takt við aukna flug- umferð til og frá landinu. Um ís- lenska flugumferðarsvæðið fer nú um fjórðungur flugumferðar yfir Norður-Atlantshaf og meðal þeirra verkefna sem helst brenna á flug- málayfirvöldum í Evrópu er tölvu- öryggi og umferð dróna. Þetta segir Þórólfur Árnason, for- stjóri Samgöngustofu, en nú stend- ur yfir hér á landi samráðsfundur Samtaka evrópskra flugmálayfir- valda, ECAC. Í erindi sínu á fund- inum í gær ræddi hann m.a. mik- ilvægi staðsetningar Íslands fyrir flugsamgöngur og mikilvægi flug- samgangna fyrir efnahag landsins. Íslenska flugumferðarsvæðið er eitt hið stærsta í heimi, um 5,4 millj- ón ferkílómetrar að stærð. Um stjórn þess sjá um 350 manns hér á og umsjá svæðisins færir þjóðar- búinu um 6 milljarða tekjur á ári hverju. Flug um svæðið er undir aþjóðlegu eftirliti systurstofnanna Samgöngustofu, stofan hefur eftirlit með Isavia sem fer með flugleiðsögu á svæðinu. Á þeim erlendu vélum sem lenda á Íslandi gerir Sam- göngustofa skyndiskoðanir og með aukinni flugumferð hefur sá þáttur starfseminnar vaxið gríðarlega, eða um 30-40% á milli ára undanfarin ár. Þá kalla aukin umsvif íslensku flugfélaganna sömuleiðis á aukin eftirlitsverkefni Samgöngustofu. Slást fyrir fjárveitingum Þórólfur segir að „því miður hafi þurft að slást fyrir því“ að fá auknar fjárveitingar í takt við þessa fjölgun verkefna. „Ég hef lagt mikla áherslu á mikilvægi reglubundins eftirlits við samgönguráðherra og fjárveitingavaldið. Það er til hags- bóta fyrir flugrekendurna og at- vinnuveginn í heild. En það hefur satt best að segja verið varnarbar- átta,“ segir Þórólfur. Að sögn Þór- sé sér ekki heimilt að veita upplýs- ingar um hvort tölvuþrjótar herji á íslenska flugumferðarstjórnarkerfið eða tölvukerfi íslenskra flugvéla. Geðheilbrigði til umræðu Annað, sem að sögn Þórólfs er til umræðu á fundinum, er umferð dróna. „Þegar óvant fólk er að stýra þeim nálægt flugumferð getur skap- ast heilmikil hætta.“ Þá er geðheil- brigði þeirra sem stýra flugvélum og starfa um borð í þeim eitt af því sem brennur á forsvarsmönnum flugöryggis í heiminum „Þetta hefur verið talsvert í umræðunni eftir at- vikið hjá Germanwings,“ segir hann og á þar við atvik frá árinu 2015 þegar flugmaður þýska flugfélags- ins Germanwings grandaði farþega- þotu vísvitandi með því að fljúga henni á fjall í frönsku Ölpunum. Í kjölfarið kom í ljós að flugmaðurinn hafði glímt við alvarlegt þunglyndi. „Heilbrigðiskröfum og hvernig þeim er framfylgt var breytt í kjölfarið,“ segir Þórólfur. „Aðstæðurnar í flug- öryggisheiminum eru síbreytilegar og alltaf eitthvað nýtt sem þarf að bregðast við.“ Sífellt verið að bregðast við nýjum aðstæðum  Tölvuöryggi og umferð dróna brenna á flugmálayfirvöldum Morgunblaðið/Árni Sæberg Á fundi ECAC í gær F. v : Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu, dr. Fang Liu, framkvæmdastjóri Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og Patrick Gandil, varaforseti ECAC ræddu flugöryggismál.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.