Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 24

Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Kísill er okkur lífsnauðsynlegur og hefur oft verið kallaður hið gleymda næringarefni. Hann er eitt algengasta steinefni jarðar og gegnir mikilvægu hlutverki í myndun og styrkingu bandvefs. Bandvefur getur t.d. verið beinvefur, sinar, liðbönd og húð. Kísilsteinefni geoSilica er unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísli úr hreinu íslensku vatni og inniheldur því engin aukaefni. Recover Fyrir vöðva og taugar Kísilsteinefni styrkir allan bandvef líkamans t.d. brjósk, sinar og liðbönd. Þanig getur geoSilica Recover dregið úr tíðni meiðsla hjá íþróttafólki og þeim sem stunda reglulega hreyfingu. geoSilica Recover er magnesíumbætt, en magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem dregur úr þreytu, gefur aukna orku og styður við eðlilega starfsemi taugakerfisins. Renew Fyrir húð, hár og neglur Rannsóknir* sýna að kísilsteinefni stuðlar að skilvirkari myndun kollagens í líkamanum. Þannig getur geoSilica Renew styrkt húðina og gert hana stinnari. geoSilica Renew getur einnig grynnkað örhrukkur og lagað húðskemmdir af völdum of mikils sólarljóss. geoSilica Renew er sink- og koparbætt. Sink og kopar eru lífsnauðsynleg steinefni en rannsóknir* sýna að þau stuðla að styrkingu nagla og hárs auk þess að minnka hárlos og klofna enda. Repair Fyrir bein og liði geoSilica Repair getur aukið beinþéttni en rannsóknir* sýna að dagleg inntaka kísils getur dregið úr beinþynningu og jafnvel hægt á henni á byrjunarstigi, sérstaklega hjá konum. geoSilica Repair er manganbætt en það á ríkan þátt í að viðhalda eðlilegum beinvexti s.s. myndum brjósks og liðvökva og er nauðsynlegt heilbrigði tauga og ónæmiskerfis. *http://instituteofmineralresearch.org/mineral-elements Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við höfum reynt að hafa þann hátt- inn á að um 25% af öllum okkar flug- um eru æfingar, en það hefur hins vegar breyst mjög að undanförnu með síauknum útköllum. Hlutfall æf- inga hefur því minnkað nokkuð,“ sagði Sigurður Heiðar Wiium, yfir- flugstjóri hjá Landhelgisgæslu Ís- lands, í samtali við Morgunblaðið. Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa það sem af er ári verið kallaðar út um 190 sinnum, en á sama tíma í fyrra voru útköllin 175 talsins. Allt árið 2016 voru þyrluútköll Gæslunnar 251, árið 2015 voru útköllin 218 og 195 árið 2014. Í langflestum tilfellum var um að ræða leit og björgun eða sjúkraflutninga, en í nokkrum til- vikum tengdust útköll þyrlusveitar löggæsluverkefnum. Aðspurður sagði Sigurður Heiðar talsverða fjölgun vera nú í útköllum á landi. „Við erum að sjá mun fleiri út- köll inni á landi en áður vegna aukins Með lifandi mann í vírnum  Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfði björgun úr hafi við Grindavík  Tíð útköll hafa fækkað æfingaflugum Áhöfnin Sigurður Heiðar Wiium flugstjóri (t.v.), Daníel Hjaltason spilmaður, Gísli Valur Arnarson sigmaður og Tryggvi Steinn Helgason flugmaður tóku á móti Moggamönnum og leyfðu þeim að fylgjast með æfingunni. Æfingaflug með Landhelgisgæslu Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.