Morgunblaðið - 01.09.2017, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 01.09.2017, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Morgunblaðið/Ófeigur Eirberg á lóð Landspítalans Háskóli Íslands á Eirberg, þar sem hjúkrunarfræði er kennd. Ráðist var gegn myglunni og kostaði það HÍ um 66 milljónir. Morgunblaðið/Þorkell Héraðsdómur Reykjavíkur Mygla fannst í útveggjum á 3. og 5. hæð Héraðsdóms við Lækj- artorg. Framkvæmdir munu kosta um 34 milljónir króna. Morgunblaðið Ófeigur Geðdeild Landspítalans Gera þarf við geðdeildina að innan sem utan. Það mun kosta Landspítalann um 120 milljónir króna, miðað við áætlun. Morgunblaðið/Ófeigur Greniborg við LSH í Fossvogi Gömul skrifstofubygging spítalans í Fossvogi, Greniborg, verður rifin vegna mikilla mygluskemmda sem komu þar upp. Morgunbaðið/Júlíus Landspítalinn við Hringbraut Aðalbygging Landspítalans var illa farin af myglu og starfs- fólks veiktist. Viðgerð hefur kostað hundruð milljóna króna. Morgunblaðið/Ómar Barna og unglingageðdeild LSH Landspítalinn áætlar að viðgerð á BUGL við Dalbraut muni kosta um hálfan milljarð króna. Fjárveiting fékkst til þess í ár. Morgunblaðið/Ófeigur Rannsóknarhús LSH í sýklafræðum Það mun kosta Landspítalann 400-500 milljónir að rífa rann- sóknarhúsin í sýklafræðum við Barónsstíg og reisa þar ný. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fjármálaráðuneytið Musteri ríkisfjármálanna slapp ekki við myglu. Óværan kom upp 2014 þegar ráðist var í annað viðhald í Arnarhvoli. Morgunblaðið/Sverrir Listaháskólinn Sölvhólsgötu Mygla kom upp á tveimur stöðum í Listaháskólanum Sölvhóls- götu 13 en samkvæmt deiliskipulagi er húsið á niðurrifsreit Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Eftir 25 ára starf í húsi 7 er ég farin að glíma við alvarleg heilsu- farsvandamál sem sum og jafnvel öll má rekja beint til áhrifa myglu- svepps,“ segir Hildur Júlíusdóttir, lífeindafræðingur á litningarann- sókn Landspítalans, í bréfi sem hún sendi yfirstjórn Landspítalans og velferðaráðuneytinu í ágúst. Rannsóknastofur litningarann- sókna og sýklafræðideildar eru staðsettar í svokölluðum húsum 6 og 7 við Barónsstíg sem voru byggð til bráðabirgða á áttunda áratugn- um. Þau verða brátt rifin og ný byggð í staðinn en Hildur er ósátt við hvernig á að standa að því. „Þetta eru tvö hús og starfsmenn í húsi 6 eiga að vera áfram í því á meðan hús 7 er rifið og nýtt byggt. Þá flytja þeir yfir í það og hús 6 verður rifið og nýtt byggt, við kom- um síðan inn í það. Það er ótrúleg staðreynd að hluti starfsfólks eigi að vera í þessum húsum á meðan verið er að byggja,“ segir Hildur sem finnst með því lítið gert úr hættunni sem fylgir heilsuspillandi húsnæði. Úr myglu í myglu Verið er að skoða hvert á að flytja starfsemina úr húsi 7 á með- an nýtt er byggt og hefur yfirstjórn Landspítalans boðið starfsmönnum að flytjast í Ármúla 1a, í yfirlýst mygluhús. Það hús var ástands- skoðað í ársbyrjun og kom í ljós að myglu er að finna á öllum hæðum. „Það er ekki búið að taka endan- lega ákvörðun um að við förum í Ármúlann en við höfum verið að reyna að spyrna gegn því,“ segir Hildur. Henni finnst yfirstjórn spít- alans sýna lífi og heilsu starfs- manna sinna virðingarleysi. „Í mörg ár hefur þeim mátt vera fullljóst að vinnuaðstæður í húsi 7 væru alls ekki viðunandi, m.a. vegna myglu og ólofts vegna henn- ar. Afskipta- og aðgerðarleysi síð- astliðin ár fylgir ábyrgð og það er alveg ljóst, að Háskólasjúkrahús eins og Landspítali getur ekki borið fyrir sig vankunnáttu í þessum mál- um. Yfirstjórn Landspítala getur ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð, og ég spyr hvernig hún ætli að bæta mér og öðrum starfsmönnum upp heilsutap og þann kostnað sem því fylgir,“ spyr hún. Verkfræðistofan EFLA tók út hús 6 og 7 sem hýsa rannsóknastof- urnar og í skýrslu um málið, sem kom út í mars, kemur fram að bæði húsin eru gegnummygluð og að þeirra mati ónýt. „Skýrsla EFLU er það alvarleg að það er verulega ámælisvert af stjórn Landspítala að hafa ekki gripið strax til róttækra ráðstafana og lokað húsinu. Það er ekki með nokkru móti hægt að af- saka það að núna, sex mánuðum síðar, sé ennþá ætlast til þess að starfsmenn starfi við jafn heilsu- spillandi aðstæður og búið er að sýna fram á,“ segir Hildur. Ítrekuð veikindi komið upp Eins og áður segir hefur Hildur starfað í húsinu í 25 ár og á síðustu þremur árum hafa ítrekuð veikindi komið upp hjá henni. „Ég hef alltaf verið hraust og virðist þola þessar aðstæður vel en nú er eitthvað að láta undan hjá mér. Á síðustu þremur árum hef ég greinst með astma, sjúkdóm í skjaldkirtli, sjálfs- ofnæmissjúkdóm í munnholi, með of háan blóðþrýsting, er stöðugt með slím í öndunarfærum og hef endurtekið fengið slæmar kvefpest- ir. Þetta tengist allt öndunarfær- unum og því get ég ekki annað en grunað aðstæður í húsinu,“ segir Hildur. Hún hefur ekki þurft að vera mikið frá vinnu vegna veikinda en segir að nú séu tveir starfsmenn í húsi 7 og einn úr húsi 6 í veikinda- leyfi vegna aðstæðna á vinnustað. Hildur segir húsnæðið hægt og síg- andi hafa verið að draga úr heilsu starfsfólks. Á þessum orðum endar hún bréf- ið til yfirmanna sinna: „Ég hef alla mína tíð verið heilbrigð en upplifi mikið óöryggi eins og staðan er enda heilsa mín og lífsgæði í húfi. Það er þyngra en tárum taki að vinna mín og störf hjá fremstu heil- brigðisstofnun Íslands hafi valdið mér heilsutapi sem aldrei verður bætt, allt vegna hirðu- og afskipta- leysis þeirra sem ábyrgð bera á starfsemi spítalans og velferð starfsfólks.“ Húsin draga úr heilsu starfsfólks  Rannsóknarhús Landspítalans í sýklafræðum dæmd ónýt vegna myglu fyrir hálfu ári  Enn er full starfsemi í húsunum  „Ámælisvert,“ segir starfsmaður sem hefur glímt við veikindi í þrjú ár Morgunblaðið/Ófeigur Mygluhús Hildur Júlíusdóttir lífeindafræðingur við bakhliðina á rannsóknarhúsi 7 við Barónsstíg. Á þessari hlið þarf starfsfólkið að hafa gluggana opna vegna myglunnar. Húsið hefur verið dæmt ónýtt og verður brátt rifið. Barist við mygluna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.