Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Alexander G. Alexandersson, fram-
kvæmdastjóri Steypustöðvarinnar,
segir að framleiðslumagn steypu sé
orðið sambærilegt og árið 2005. „Við
erum að komast í það sem kalla má
eðlilegt árferði,“ segir hann í samtali
við Morgunblaðið.
Lárus Dagur Pálsson, stjórnar-
formaður BM Vallár, segir að þrátt
fyrir töluverða aukningu sé fram-
leiðsla úr sementi nú langtum minni
en var í aðdraganda hrunsins en þá
voru m.a. stórframkvæmdir á borð
við Karahnjúka og uppbygging stór-
iðju á Austurlandi í gangi.
Góður vöxtur
Hann segir að góður vöxtur hafi
verið á byggingar- og steypumark-
aðnum undanfarin ár sem m.a. megi
greina í innflutningstölum á sem-
enti. Steypusala og sala á tengdri
vöru og þjónustu hefur þar af leið-
andi aukist jafnt og þétt einnig. Í
fyrra jókst innflutningur á sementi
um rúmlega 26% á milli ára, þegar
innflutningurinn nam um 142 þús-
und tonnum. Á fyrstu sex mánuðum
ársins er aukningin rúmlega 13%
þar sem innflutt magn er um 8.500
tonnum meira en á sama tíma í
fyrra.
Að sögn Alexanders jókst fram-
leiðslumagn fyrirtækisins um 30%
eða svo á milli ára frá 2013. En hann
vekur athygli á því að framleiðslu-
magnið hafi verið lítið árið 2012 sem
rekja má til fjármálakreppunnar
2008. „Árið 2012 var það eflaust ¼ af
því sem við framleiðum í dag,“ segir
hann. Á fyrri helmingi ársins hefur
hægt á vexti fyrirtækisins og nemur
hann um 20% á milli ára.
Lárus Dagur segir meginskýr-
inguna á vextinum um þessar mund-
ir aukningu á byggingarmagni á höf-
uðborgarsvæðinu. Einnig sé nokkuð
kröftug uppbygging hjá nærliggj-
andi sveitarfélögum, eins og t.d. Sel-
fossi, Reykjanesbæ og Akranesi, en
auk þess hafa framkvæmdir úti á
landi, m.a. við jarðgöng, virkjanir og
tengd verkefni, mikið að segja á
þessum markaði. Hótelbyggingar og
aukning gistirýmis um allt land og á
Reykjavíkursvæðinu hafi einnig
aukið mjög á eftirspurn á sl. árum,
t.d. í forsteyptum húseiningum.
Hann væntir þess að einhver vöxtur
verði áfram á næstu misserum þótt
mögulega dragi úr byggingu hótela.
„Ég tel að íbúðabyggingar á höfuð-
borgarsvæðinu muni halda áfram að
vaxa vegna skorts á framboði, eins
og mikið er rætt um þessar mundir,“
segir Lárus Dagur. Víða virðist und-
irbúningur á lokastigi og fram-
kvæmdir á svokölluðum þéttingar-
reitum muni halda áfram með meiri
þunga.
Alexander bætir við að uppsöfnuð
þörf sé hjá hinu opinbera til að fjár-
festa í innviðum, svo sem sam-
göngum.
Aukinn hagnaður
Rekstur fyrirtækjanna beggja
gekk vel á síðasta ári. Hagnaður BM
Vallár jókst um 87% á milli ára og
nam 521 milljón króna. Tekjur juk-
ust um 26% á milli ára og voru tæp-
lega fimm milljarðar króna. Arðsemi
eiginfjár var 50% og eiginfjárhlut-
fallið 48%.
Hagnaður Steypustöðvarinnar
jókst um 124% á milli ára og var 376
milljónir króna árið 2016. Tekjur
jukust um 36% og voru 4,5 millj-
arðar króna. Arðemi eigin fjár var
70% á árinu en eiginfjárhlutallið
36%.
Landslagið hjá steypu-
stöðvum minnir á 2005
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdir Þrátt fyrir töluverða aukningu er framleiðsla úr sementi nú langtum minni en var í aðdraganda
hrunsins, en þá voru m.a. stórframkvæmdir á borð við Karahnjúka og uppbygging stóriðju á Austurlandi í gangi.
Framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar segir árferðið að komast í eðlilegt horf
Hagnaður vex
» Hagnaður BM Vallár jókst
um 87% á milli ára og var 521
milljón króna árið 2016. Tekjur
jukust um 26% á milli ára og
voru tæplega fimm milljarðar
króna.
» Hagnaður Steypustöðvar-
innar jókst um 124% á milli ára
og var 376 milljónir króna.
Tekjur jukust um 36% og voru
4,5 milljarðar króna.
● Á árinu 2016 voru einungis 515 eins
og tveggja ára íbúðir seldar og það
sem af er árinu hafa einungis verið
seldar um 250 nýjar íbúðir, samkvæmt
þinglýsingargögnum. Þetta kemur fram
í Hagsjá Landsbankans.
Talið er að í venjulegu árferði þurfi
um 1.800 til 2.000 nýjar íbúðir inn á
íbúðamarkaðinn á höfuðborgarsvæð-
inu, að því er fram kemur í Hagsjánni.
Vegna uppsafnaðrar þarfar er þörfin
talsvert meiri um þessar mundir. Ekki
er haldið utan um opinberar tölur um
umfang nýrra íbúða í byggingu og segir
Landsbankinn tölurnar um umfangið
því óáreiðanlegar en á árinu 2007 var
mun meira selt af nýjum íbúðum en nú.
Þá kemur fram að hlutfallið sé mjög
misjafnt eftir sveitarfélögum. Þannig
voru um það bil 40% seldra íbúða í
Garðarbæ ný en hlutfallið í Reykjavík er
aftur á móti 5%. Í því samhengi þarf þó
að hafa í huga aðstöðumun sveitarfé-
laganna, þannig hefur engri sölu á nýrri
íbúð verið þinglýst á Seltjarnarnesi í ár,
enda sveitarfélagið nánast fullbyggt.
Nýbyggðar íbúðir sjást
ekki mikið í sölutölum
1. september 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.13 104.63 104.38
Sterlingspund 134.91 135.57 135.24
Kanadadalur 83.56 84.04 83.8
Dönsk króna 16.847 16.945 16.896
Norsk króna 13.493 13.573 13.533
Sænsk króna 13.127 13.203 13.165
Svissn. franki 110.3 110.92 110.61
Japanskt jen 0.9594 0.965 0.9622
SDR 148.15 149.03 148.59
Evra 125.35 126.05 125.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 154.4798
Hrávöruverð
Gull 1305.8 ($/únsa)
Ál 2066.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.97 ($/fatið) Brent Halli á vöru-
viðskiptum við út-
lönd fyrstu sjö
mánuði ársins
nam tæpum 108,9
milljörðum króna.
Á sama tíma árið
áður voru vöru-
viðskipti óhag-
stæð um 73,9
milljarða á gengi
hvors árs. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá Hag-
stofunni.
Verðmæti vöruútflutnings á tíma-
bilinu var 38,9 milljörðum króna
lægra, eða 12,2% á gengi hvors árs,
en á sama tíma árið áður. Verðmæti
vöruinnflutnings var aftur á móti 3,9
milljörðum króna hærra, eða 1% á
gengi hvors árs, en á sama tímabili
árið áður.
Mestur samdráttur var í útflutn-
ingi á ferskum fiski og frystum flök-
um en sjávarafurðir voru 37,7% alls
útflutnings. Verðmæti þeirra var
23,9% lægra en á sama tími árið áður.
Innflutningur á hrá- og rekstrar-
vörum, skipum, eldsneyti og fólks-
bílum jókst en á móti dróst innflutn-
ingur á flugvélum og neysluvörum
saman.
Vöruskipta-
halli eykst
Vöruskipti 109
milljarða halli.
● Gistinóttum á
hótelum fjölgaði
um 2% í júlí miðað
við sama mánuð í
fyrra, samkvæmt
nýjum bráðabirgða-
tölum frá Hagstofu
Íslands. Alls voru
gistinæturnar
466.100 í mánuð-
inum. Herbergja-
nýting í júlí var
89,7%, sem er lækkun um tvö prósentu-
stig frá júlí í fyrra. Flestar gistinætur í
mánuðinum áttu Bandaríkjamenn.
Á tólf mánaða tímabili fram til júlí
2017 var heildarfjöldi gistinátta tæplega
4,2 milljónir. Það er 24% aukning mið-
að við tólf mánuði þar á undan.
Herbergjanýting hótela
í júlí lakari en í fyrra
Ferð Gistinóttum
fjölgaði milli ára.
STUTT
Hagnaður Eikar fasteignafélags var
839 milljónir króna á öðrum ársfjórð-
ungi, en til samanburðar var hagn-
aður 189 milljónir króna á sama
fjórðungi síðasta árs. Rekstrarhagn-
aður fyrir matsbreytingar og fjár-
magnsliði nam 1.244 milljónum
króna, samanborið við 1.106 milljónir
á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Mats-
breyting fjárfestingareigna nam hins
vegar 756 milljónum króna á síðasta
ársfjórðungi, en sá liður hljóðaði upp
á 28 milljónir króna á sama tímabili í
fyrra.
Hagnaður Eikar á fyrstu sex mán-
uðum ársins nam 1.606 milljónum
króna, en hagnaðurinn var 1.428
milljónir á fyrri helmingi síðasta árs.
Restrartekjur námu 3.628 milljónum
króna á fyrri árshelmingi og þar af
námu leigutekjur 3.039 milljónum og
tekjur Hótels 1919 voru 381 milljón
króna. Til samanburður námu rekstr-
artekjur félagsins 3.160 milljónum
króna á fyrri helmingi síðasta árs.
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreyt-
ingar og afskriftir var 2.365 milljónir
króna, samanborið við 2.125 milljónir
á sama tímabili í fyrra.
Heildareignir Eikar námu 88,0
milljörðum króna í lok júní. Þar af
námu fjárfestingareignir 81,7 millj-
örðum króna og eignir til eigin nota
3,7 milljörðum króna. Eigið fé Eikar
nam 27,0 milljörðum króna í lok júní
og var eiginfjárhlutfall 30,7%.
Fram kemur í uppgjöri að tekjur á
herbergi og nýtingarhlutfall Hótels
1919 hefur verið undir væntingum
það sem af er ári en félagið telji góð
tækifæri í rekstri hótelsins í framtíð-
inni.
Hagnaður Eikar
839 milljónir
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fasteign Hótel 1919 er í eigu Eikar
en félagið á samtals um 100 eignir.