Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 52

Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vöxtur nýrragreina, svosem í iðnaði og ferðaþjónustu, hefur verið ákaf- lega jákvæður fyr- ir íslenskt efna- hagslíf. Þessi viðbót við undirstöðuatvinnugrein þjóð- arinnar, sjávarútveginn, er mikilvæg og hefur, ásamt sjálfstæðum gjaldmiðli, átt þátt í því að lífskjör hér á landi eru með þeim bestu í heimi og að Ísland náði sér fyrr upp úr efnahagsvandanum, sem skall á heiminn fyrir áratug síðan, en flest önnur lönd. En þó að aðrar greinar séu góð viðbót þá er það enn svo að sjávarútvegur er grunn- atvinnuvegur þjóðarinnar. Í viðtali við Fiskifréttir í vik- unni ræðir Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi al- þingismaður, um mikilvægi sjávarútvegsins og segir eng- an vafa leika á að greinin sé enn mikilvægasta atvinnu- grein þjóðarinnar. Hefð- bundnar veiðar og vinnsla „standi undir 9 til 11 prósent- um af landsframleiðslunni, en þegar sjávarútvegurinn er skoðaður í heild þá skilar hann okkur ríflega 20 prósentum. Því sjávarútvegurinn hér á landi er svo miklu meira en bara veiðar og vinnsla. Til hans verður líka að telja til dæmis veiðarfæragerð og vél- smíði í tengslum við sjávar- útveg, en þar erum við með stórfyrirtæki á heimsmæli- kvarða eins og Hampiðjuna og Marel og mörg önnur fyrir- tæki. Þarna hefur orðið bylt- ing. Og þetta gerir sjávar- útveginn að mikilvægustu atvinnugrein landsmanna.“ Ágúst ræðir líka um kvóta- kerfið og segist sannfærður um að framseljanleiki veiði- heimilda hafi verið lykilatriði í því að ná fram hagkvæmni í rekstrinum, þó að það fyrir- komulag hafi sætt gagnrýni. Hann leggur mikla áherslu á hagkvæmnina í greininni og segir að vilji menn fara að breyta kerfinu verði að gæta þess að gera það ekki á kostn- að hagkvæmninnar, enda myndi það rýra lífskjör: „Menn hafa sagt að hægt sé að taka peninga út úr grein- inni með skattlagningu eða veiðileyfagjaldi og nota þá peninga í annað sem talið er nauðsynlegt, til að að efla inn- viði til dæmis eða styrkja veik- ari byggðir. Þetta er auðvitað hægt, en verra er ef menn fara að gera þetta á kostnað hag- kvæmninnar í greininni.“ Viku fyrr ræddu Fiskifréttir við Daða Má Kristófersson prófessor sem er sammála Ágústi um að kvótakerfið hafi skilað árangri. Mjög áreiðanlegar tölur séu til sem sýni þetta: „Þann- ig að í dag myndi ég segja að það er enginn sjávarútvegur í heiminum sem er betri í að skapa verðmæti úr hráefni en íslenskur sjávarútvegur,“ seg- ir Daði Már. Athygli vekur að þegar hann er spurður út í veiðigjöld telur hann „hugmyndir manna um umfang rentu í sjávarútvegi á Íslandi oft vera skringilega bjartsýnar. Það þarf ekki ann- að en að skoða hagtölur til að átta sig á að veiðigjöld verða aldrei neinn meiri háttar tekjustofn fyrir ríkið. Þau leysa aldrei af hólmi til dæmis tekjuskatta. Og þetta hefur pínulítið litað umræðuna, menn hafa séð að einhverju leyti töluverðum ofsjónum yfir hagnaði í sjávarútvegi.“ Daði Már bendir einnig á að í sjávarútvegi sé mikil stærð- arhagkvæmni, sem feli í sér að veiðigjald leggist þyngra á minni fyrirtæki en þau sem stærri eru. „Þess vegna finnst manni stundum ákveðin þver- sögn í því að ákveðnir aðilar í umræðunni tala bæði fyrir mjög háu gjaldi en líka gjaldi sem engin áhrif hefur á strúkt- úr sjávarútvegsins. Þetta tvennt er ósamrýmanlegt,“ segir hann. Það vekur athygli að þessir tveir menn skuli tjá sig með þessum hætti, nú þegar vinna stendur yfir við að endurskoða gjaldtöku á sjávarútveginn. Veiðigjald á sjávarútveginn var tekið upp snemma á þess- ari öld en hluti af skattastefnu vinstri stjórnarinnar á árunum 2009 til 2013 var að hækka það gríðarlega með alvarlegum af- leiðingum fyrir minni fyrir- tæki í greininni. Ekki hefur enn verið fallið frá þessari miklu hækkun og enn eru til stjórnmálamenn sem hafa ekk- ert lært af mistökum síðustu ára og tala á þann veg að sjáv- arútvegurinn sé óplægður ak- ur fyrir ofurskattheimtu. Ábyrgðarlaust tal af því tagi á ekkert erindi í stefnumörkun fyrir undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Lífskjör lands- manna eru aðalatriðið þegar rætt er um atvinnulífið. Til að bæta þau þarf öflugt atvinnulíf og þar með hóflega og sann- gjarna skattheimtu. Og lífs- kjör landsmanna verða síst bætt með sérstakri ofurskatt- heimtu sem ógnar stöðugleika helstu undirstöðu þjóðarbús- ins. Ábendingar Daða Más og Ágústs Einarssonar eru eftirtektarverðar} Undirstaðan þarf hagfellt umhverfi Í gær fór undirrituð með sérstakan bolla í vinnuna sem einungis er notaður við há- tíðleg tækifæri, eins og t.d. konunglega viðburði og slíkt fínerí. Téður bolli er prýddur myndum af Karli Bretaprinsi og Díönu prinsessu og var framleiddur í tilefni af brúðkaupi þeirra árið 1981. Bollinn er ljósbrúnn á litinn („Hann er ræpugulur,“ sagði ófyrirleitinn vinnufélagi) með ferlega skrýtnum svarthvítum myndum af brúðhjónunum (já, já, sumir eru svo- lítið veikir fyrir hallærislegum hlutum). Tilefni þess að þessi dýrgripur var dreginn fram í gær var reyndar ekkert sérstaklega gleðilegt, en það var að þá voru 20 ár liðin frá ótímabæru andláti Díönu. „Dońt do it Di“ (Ekki gera það Díana). Sagan segir að þetta hafi hópur femínista hrópað að Díönu þegar hún var á leið í eigið brúðkaup í von um að hróp þeirra myndu fá jarlsdótturina ungu til að hætta við að giftast prinsinum af Wales.En eins og flestir vita lét Díana þessi hróp sem vind um eyrun þjóta, giftist sínum prinsi og varð prinsessa. Afganginn af sögunni þekkja lík- lega flestir; þau lifðu ekki hamingjusöm til æviloka. Undanfarið hefur mikið verið skrifað og fjallað um Díönu prinsessu vegna dánarafmælis hennar. Meðal annars hafa dálkahöfundar velt því fyrir sér hvort hún hafi verið fem- ínisti. Á sínum tíma var Díana þekkt fyrir að vera ein glæsileg- asta kona heims. Klæðaburður hennar og útlit var stöðugt umfjöllunarefni og gjarnan var sú mynd dregin upp af henni að hún hefði ekki áhuga á neinu nema fínum fötum, frægu fólki og flottum partí- um. Eins og vel klætt glæsikvendi geti ekki líka verið femínisti? Af og til heyrist jarmað um að femínistar séu upp til hópa bæði ljótir og hallær- islegir. Það er hrein og klár vitleysa; a.m.k. eru allir femínistar sem ég þekki, bæði karlar og konur, með endemum glæsilegt fólk. Díönu er líklega einna mest minnst fyrir það að eftir nokkur ár í prinsessuhlutverkinu neitaði hún að láta ráðskast með sig. Hún tók málin í eigin hendur og skilgreindi hlutverkið upp á nýtt þar sem hæfileikar hennar fengu að njóta sín. Er það ekki að vera femínisti? Og þegar hún komst að því að eiginmaður hennar ætti sér ást- konu neitaði hún að láta það yfir sig ganga, held- ur steig fram opinberlega og sagðist ekki sætta sig við slíka framkomu. Það sem meira var: hún sagði skilið við manninn sem kom svona fram við hana. Slíkt var nánast fordæma- laust fyrir konu í hennar stöðu á þeim tíma. Hún ræddi einnig opinskátt um baráttu sína við átröskun og vakti þannig athygli á að sú útlitslega pressa sem konur verða linnulaust fyrir úr ýmsum áttum getur haft alvarlegar afleiðingar. Díana bjó sér til sitt eigið líf, neitaði að sætta sig við kúg- un og gaf karlaveldinu risastórt fokkmerki. Er hægt að vera meiri femínisti? Ég held ekki. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Femínistaprinsessan fagra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ófremdarástand ríkir ídvalarmálum aldraðra áSuðurlandi. Engin hjúkr-unarrými hafa bæst við í Árnessýslu síðan Kumbaravogi var lokað fyrr á árinu og biðlistar eru langir. Unnur Þormóðsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og formaður færni- og heilsumatsnefndar Heilbrigð- isumdæmis Suðurlands, segir 55 umsóknir um varanlega vistun og hvíldarinnlagnir liggja fyrir á Suðurlandi, í Árnessýslu einni séu 25 til 30 manns á biðlista eftir var- anlegum rýmum, listinn hafi lengst síðan Kumbaravogi var lokað enda fækkaði rýmunum þá. „Flestir sem bíða eftir plássum eru orðnir mjög veikir og þörfin er brýn. Það er ófremdarástand í þess- um málum, fólk er fast inni á sjúkra- húsum og í biðplássum langt frá heimabyggð. Þá er heimaþjónusta á Suðurlandi ekki eins ríkuleg og í Reykjavík. Við höfum ekki mögu- leika á að veita þjónustu á kvöldin og um helgar á mörgum stöðum og ef keyra þarf langar leiðir er ódýr- ara að hafa fólkið inni á hjúkrunar- heimilum. Þá er mjög erfitt að fá starfsfólk í heimaþjónustuna,“ segir Unnur. Vilja stærra heimili Um 80 hjúkrunarrými eru í Ár- nessýslu núna og þau nýtast ekki öll fyrir veikasta fólkið því húsakostur er misjafn. Á Suðurlandi búa hátt í 28 þúsund manns en hvíldarrými þar eru aðeins fimm. Þegar Kumbaravogi var lokað var stefnan að nýtt hjúkrunarheim- ili yrði tekið í notkun í Árborg vorið 2019, en nú lítur allt út fyrir að það muni tefjast. Unnur segir að sig sé farið að lengja eftir að heyra hver staðan sé á byggingu heimilisins. „Miðað við framgang er maður far- inn að hafa áhyggjur af því að það gerist ekki 2019, sem er ótækt í þessu ástandi.“ Stefnt er að því að rýmin á nýja heimilinu verði 50 en Unnur berst fyrir því að þau verði a.m.k. 60. „Við viljum fá stærra heimili til að geta haft hvíldarrými og endurhæfingu. Það er of lítið að ætla að opna 50 rými 2019, 35 rýmum hefur verið lokað á svæðinu og að bæta við 15 í viðbót á þremur árum, með engum hvíldarrýmum, er of smátt. Við myndum vilja fá 60 rými með stækkunarmöguleika upp á 80 til 90 rými.“ Í fyrsta lagi í ársbyrjun 2020 Samkvæmt upplýsingum frá velferðarráðuneytinu stendur nú yf- ir hönnunarsamkeppni um byggingu 50 rýma hjúkrunarheimilis og eiga þátttakendur að skila tillögum sín- um 5. september. „Stefnt er að því að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir um miðjan október og gera áætlanir ráð fyrir að unnt verði að hefja framkvæmdir haustið 2018. Áætlanir gera ráð fyr- ir að hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2020,“ segir í svari ráðuneytisins við fyr- irspurn Morgunblaðsins, þá sé tekið mið af áætlun um uppbyggingu eins og hún getur verið hröð- ust. „Fyrirliggjandi ákvörðun miðast við 50 hjúkrunarrými en verði ákvörðun tekin um að hafa heimilið stærra er sá möguleiki fyrir hendi á síðari stig- um hönnunar,“ segir í svari frá velferðarráðu- neytinu. Mikill skortur á hjúkrunarrými Morgunblaðið/Ómar Eldri borgari 25 til 30 manns eru á biðlista eftir varanlegum hjúkrunar- rýmum í Árnessýslu. Rýmum mun ekki fjölga fyrr en 2020. Tveimur hjúkrunarheimilum hefur verið lokað í Árnessýslu á undanförnum tólf mánuðum. Heimilinu að Blesastöðum á Skeiðum var lokað að ósk eig- enda síðasta haust og Kumb- aravogur á Stokkseyri hætti starfsemi í febrúar vegna lélegs húsakosts. Unnur segir að það hefði ekki verið skynsamlegt að halda Krumbaravogi opnum lengur, þar til nýtt heimili yrði tilbúið. „Fólkið sem var þar komst að lokum allt á þá staði sem það óskaði eftir, það gekk vel en þýddi að þeir sem voru að bíða eftir plássi komust ekki eins fljótt að og maður hefði viljað og sumir eru ekki ennþá komnir að.“ Síðast fjölgaði um rými í Árnessýslu árið 2008 þeg- ar Ljósheimar fluttust á HSU, en síðan hefur hjúkrunarrýmum fækkað um 35 og dvalarrýmum um 10. Plássum bara fækkað HJÚKRUNARHEIMILI Unnur Þormóðsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.