Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Sycamore Tree hafði langan að-
draganda þrátt fyrir að hlutirnir
hafi gerst hratt eftir að við fórum
af stað. Ég hafði í nokkurn tíma
verið að vinna að því að búa til tón-
list eftir ákveðinni stemningu og að
leita eftir ákveðnum hljóðheimi.
Eftir að ég byrjaði að starfa með
Ómari Guðjónssyni sem útsetur
tónlistina fórum við að hugsa um
hvaða rödd og persóna passaði og
nafn Ágústu Evu var efst á lista.
Eftir það hafa hlutirnir gerst
hratt,“ segir Gunnar þegar hann er
spurður um tilurð sveitarinnar en
hún var stofnuð fyrir rúmu ári,
sumarið 2016. „Gunni er vel skipu-
lagður og sjóaður í að láta hlutina
gerast hratt og vel og af þeim sök-
um erum við nú hér stödd, í þann
mund að gefa út plötu í fullri lengd
með öllu tilheyrandi og eins og gef-
ur augaleið er umgjörðinni vel
stýrt af hönnuði og hugsmiði
hljómsveitarinnar,“ segir Ágústa
um samstarf sitt við Gunnar frá því
að hún kom að verkefninu í fyrra.
„Tónlistin er samin og flutt frá
hjartanu. Hún er falleg og aðgengi-
leg en krefst þess samt af hlust-
andanum að hann taki sér stund og
hlusti og njóti. Vonandi gefa sem
flestir sér þann tíma í þessum
hraða heimi sem við lifum í. Hún
hefur fengið frábærar viðtökur í út-
varpi og sjónvarpi svo hún virðist
vera vel til þess fallin þrátt fyrir að
við séum ekki að skapa út frá þeim
forsendum. Hvað kemur frá okkur
tveimur er bara það sem kemur.
Það sem okkur liggur á hjarta
hverju sinni,“ segir Gunnar um
hljóm sveitarinnar.
Ástin útgangspunktur
Ágústa segir útgangspunktinn í
tónsmíðunum vera ástina sem
stjórnar svo miklu í lífi okkar.
„Tónsmíðarnar sjálfar eru mest-
megnis einfaldar, beinskeyttar en
ljúfar í senn, lítið af stælum en á
tíðum nístandi ástríða, söknuður og
þrá. Tónheimurinn sjálfur spannar
allt frá einföldum gítartónum sem
standa einir með söng upp í öldu-
gang drifinn áfram af dramatískum
fiðlum, rifnum trommutakti og raf-
magnsgítar, allt innsiglað með ljúf-
sárum söng. Þannig að fólk má
vænta þess að vera rifið með í
ferðalag um ýmsar víddir ástar-
innar með ýmsum tilbrigðum og
birtingarmyndum hennar,“ segir
Ágúst og er ljóst að hlustendur
fyrstu plötu sveitarinnar eiga gott í
vændum.
Fyrsta platan kemur
út í lok mánaðarins
Hinn 24. september næstkom-
andi sendir sveitin frá sér sína
fyrstu plötu og er greinilegt að
mikil hugsun er á bak við útgáfu
hennar. „Platan er fyrsti kaflinn
hjá Sycamore Tree. Við hugsum
hana sem heild og veljum lögin á
hana þannig að við viljum sýna
dýpt hljóðheims okkar á plötunni.
Við eigum okkur nokkrar hliðar og
viljum leyfa hlustandanum að
kynnast þeim með tíð og tíma. Við
munum samt sem áður skilja nóg
eftir á næstu plötur,“ segir Gunnar
og bætir við að listinn sé langur yf-
ir hluti sem þau langi til að gera á
næstu plötum.
Klárar plötu og heldur tón-
leika komin sjö mánuði á leið
Það er mikil vinna að klára heila
plötu og skipuleggja tónleika.
Ágústa Eva lætur þá staðreynd
ekki stoppa sig að hún er komin sjö
mánuði á leið. „Ég gæti ekki
ímyndað mér ljúfara starf í þessum
sporum. En að sjálfsögðu er mik-
ilvægt að hlusta á líkamann og fara
ekki fram úr orkunni sinni en sú
litla er alls ekkert ósátt við tónlist-
ina og því hagnast allir á þessu,“
segir Ágústa brosandi. Hún er sett
sömu helgi og Iceland Airwaves--
tónlistarhátíðin fer fram en engu
að síður ætla þau sér að spila á há-
tíðinni.
Útgáfutónleikarnir fara fram í
Hörpu, sama dag og platan kemur
út, 24. september. Munu þau njóta
krafta fjölda frábærra hljóðfæra-
leikara sem endurskapa stóran og
flottan hljóðheim plötunnar. For-
sala miða hefst á þriðjudaginn í
næstu viku inni á harpa.is.
Þau Gunnar Hilmarsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir
skipa hljómsveitina Sycamore Tree. Hljómsveitin
stefnir á útgáfu sinnar fyrstu plötu núna í september
og mun af því tilefni halda tónleika á sama tíma.
Góð saman Þau Gunnar
Hilmarsson og Ágústa
Eva skipa hljómsveitina
Sycamore Tree.
Plata, tónleikar og barn á leiðinni
Flestir Íslendingar lifa fyrir sum-
arið, það er tíminn, eins og segir í
laginu. Á sumrin eiga allir að vera
í góðu skapi, þá eru hressu lögin
gefin út eða svokallaðir sumar-
smellir, við klæðum okkur í föt í
björtum litum o.s.frv. Svo fer sól
að lækka á lofti og við byrjum um-
svifalaust að bölva því að nú fari
að dimma og kólna. En af hverju
ekki að ákveða að hafa bara gam-
an í vetur líka. Hver segir að það
megi ekki klæða sig í hawaii-
skyrtu og rauðar buxur á vet-
urna? Hver segir að það megi
ekki gefa út hressu sólskinslögin
á veturna? Það eru nefnilega eng-
ar reglur sem banna það. Því
skora ég á þig, kæri lesandi, að
fara inn í veturinn með það hug-
arfar að láta gleðina endast fram
á næsta sumar. Klæddu þig í litrík
föt, hlustaðu á Walking on Sun-
shine og settu upp stráhatt. Því
þegar upp er staðið er það hugar-
farið sem skiptir öllu máli og það
getur komið okkur í gegnum vet-
urinn. siggi@mbl.is
Hugarfarið skiptir öllu