Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 69
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Íslendingum finnst sumarið besti tími ársins – það er
allt best á sumrin – en pælingin með laginu er að við
höldum gleðinni áfram fram á næsta sumar. Ekki sökkva
í einhvern vetrarleiða heldur halda bara gleðinni áfram,“
segir Hildur um nýja lagið sitt. Hún vann lagið með einu
vinsælasta höfundateymi landsins, StopWaitGo, en þeir
eru mennirnir á bak við mörg af vinsælustu popplögum
landsins sl. ár. „Ég var mjög spennt að vinna með þeim,
þeir hafa gefið út marga flotta slagara. Mér finnst gam-
an hvernig þeir horfa á poppið og greina það niður í
minnstu smáatriði sem skipta máli, það er mjög gaman
að vinna þannig,“ segir Hildur og bætir við að þau hafi
unnið lagið saman frá upphafi. „Við sömdum lagið í sam-
einingu ég og Ásgeir í StopWaitGo. Uppleggið var að
semja lag sem væri gleðisprengja með dassi af drama-
tískum undirtóni,“ segir Hildur sem segir að samstarfið
hafi gengið vel og lagið hafi ekki verið lengi að fæðast.
„Ég fékk meira að segja hugmyndina að viðlaginu í bíln-
um á leiðinni í stúdíóið til þeirra.“
Hildur semur ekki aðeins tónlist fyrir sig sjálfa heldur
er hún iðin við að búa til smelli fyrir aðra tónlistarmenn.
„Ég er að fara til Þýskalands í lagahöfundabúðir þar sem
ég verð að semja lög ásamt evrópskum lagahöfundum.
Þá semjum við lög fyrir aðra tónlistarmenn eftir pönt-
unum. Það getur t.d. einhver komið og sagt að hann langi
í kántrílag og þá gerum við svoleiðis,“ segir Hildur um
búðirnar. „Það kemur oft eitthvað fallegt út úr svona
búðum. Núna í næstu viku koma til landsins finnskir tón-
listarmenn til þess að taka upp lag sem við sömdum í
svipuðum búðum fyrr á árinu,“ segir Hildur sem hefur
tónlistina að aðalstarfi. „Þetta er náttúrlega smá hark,
maður verður að vera duglegur að spila, taka giggin sem
koma, þannig að það er ekki mikið frí. En þetta er það
sem mig langar mest að gera þannig að ég er þakklát
fyrir að geta það,“ segir Hildur, sem þarf ekki að kvarta
undan verkefnaleysi á næstunni. Nýja lagið er hægt að
finna á Spotify og YouTube.
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarkona Hildur hefur
tónlistina að aðalstarfi.
Gefur út „haustsmell“
Hildur Kristín Stefánsdóttir eða bara Hildur hefur verið áberandi á poppsen-
unni hér á landi undanfarið. Hún sló í gegn með lagið Bambaramm í Söngva-
keppninni fyrr á árinu og má segja að lagið hafi verið lag ársins hjá börnum
þessa lands. Nú er Hildur mætt með nýtt lag, Næsta sumar, sem hún vonast
til að gefi hlustendum smá birtu nú þegar sól tekur að lækka á lofti.
69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Óskum eftir bílum á söluskrá,
höfum laus sölustæði, kíktu við!
Ari verður tónlistarstjóri á tón-
leikum Friðriks Dórs sem haldnir
verða í Hörpu 9. september nk. en
hann hefur útsett alla hans helstu
smelli fyrir stórhljómsveit sem mun
leika með Friðriki þetta kvöld. En
Ari lætur ekki nægja að hasla sér
völl í tónlist og íþróttum því hann
mun taka sér stöðu dómara í nýjum
þáttum sem hefja göngu sína á Stöð
2 í haust. Þættirnir heita „Kórar Ís-
lands“ og eru, eins og nafnið gefur til
kynna, hæfileikakeppni fyrir kóra.
„Það er rosalega gaman að sjá við-
brögðin við þessu. Það er verið að
taka þennan glamúr sem hefur loðað
við þessa tónlistarþætti undanfarin
ár. Núna er bara farið í íslenska
sándið,“ segir Ari um þættina. Þætt-
irnir verða sendir út á Stöð 2 á
sunnudagskvöldum í vetur og verða í
beinni útsendingu.
Ari Bragi
í sjónvarpið
Trompetleikarinn Ari Bragi Kárason hefur vakið
athygli fyrir mikla hæfileika, bæði á sviði tónlistar
en ekki síður sem spretthlaupari sl. ár.
Morgunblaðið/Þórður
Fjölhæfur Ara er margt til lista lagt og nú er hann á leið í sjónvarpið.