Morgunblaðið - 01.09.2017, Side 71

Morgunblaðið - 01.09.2017, Side 71
Højskole á árunum 1965-1968 og maka þeirra. Guðrún Eyjólfsdótt- ir kvaddi eftir langvarandi veik- indi þann 22. ágúst síðastliðinn. Á Kaupmannahafnarárunum bund- umst við vináttuböndum, sem ekki rofna. Við komum úr ýmsum átt- um, eins og gerist og sum okkar voru þegar komin með börn. Öll vorum við ung og áttum margt sameiginlegt, svo sem börn, blankheit, vináttu og bjartsýni. Guðrún og Ingimar áttu þá tvo litla glókolla. Ein minning kemur upp í hugann frá Hafnarárunum: Guðrún og Ingimar á dansgólfinu, svo samstiga og flott par. Eftir að heim kom bættust nokkrir makar við og var þá hóp- urinn fullskipaður. Við munum Guðrúnu hægláta, prúða og ákveðna konu, sem gat verið kímin og stutt var í brosið. Hörkutól var hún og aldrei heyrð- ist hún kvarta. Á seinni árum gekk hún og gekk með stafinn sinn, eig- inlega löngu eftir að manni fannst hún ekki geta það. Skagfirðingur var hún, „skýr og hreinn“. Henni var afar annt um heimahagana fyrir norðan, mikill náttúruunnandi, göngu- garpur og naut mjög útiveru. Hópurinn allur hittist og heldur veislu árlega, einnig förum við í ferðalög, utanlands sem innan. Það er ekki svo ýkja langt síðan Guðrún leiddi okkur norður yfir heiðar, heim í Skagafjörðinn. Þar var okkar kona í essinu sínu og móttökurnar fyrir norðan hjá þeim Ingimar voru stórkostlegar. Ferðin er ógleymanleg. Við sendum Ingimar og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Guðrúnar Eyjólfsdóttur. DTH útskriftarhópurinn frá 1968: Emilía og Karl, Guðrún Br. og Guðjón Ingvi, Guðrún Sv. og Jón B., Herdís og Sigurður, Stefanía og Guðjón Torfi, Þorsteinn, Þórunn og Magnús. Á stuttum tíma hefur stórt skarð verið höggvið í litla badmin- tonklúbbinn okkar. Snemma á þessu ári kom hópurinn saman hjá þeim hjónum Guðrúnu og Ingi- mari. Þar var glatt á hjalla og Guðrún skemmti sér vel þrátt fyr- ir veikindi sín. Ekki hvarflaði að okkur þá, að við yrðum tveimur færri aðeins sjö mánuðum seinna. Þessi badmintonklúbbur er svolítið sérstakur. Badminton- spaðarnir hafa fyrir löngu verið lagðir til hliðar, en þá bundust fé- lagarnir og makar sterkari bönd- um með fundarhöldum og ferða- lögum. Það var alltaf tilhlökkunarefni að hittast á aðal- fundi Badmintonklúbbsins ár hvert. Dagskráin innihélt skoðun- arferð um nágrenni fundarstaðar- ins, matarveislu, dans og gleði frameftir nóttu. Guðrún naut sín vel í þessum félagsskap. Hún var skarpgáfuð og vel heima í sögu landsins og náttúru. Hún hafði skemmtilega kímnigáfu og gat gert grín að eig- in mistökum eins og þegar hún mætti í ósamstæðum sokkum á fundarstað. Hún var vel hagmælt þó að hún flíkaði því ekki. Guðrún og Ingimar voru mikið útivistar- fólk á meðan heilsan leyfði og Guðrún tók þátt í öllum okkar gönguferðum þó að annar fóturinn léti ekki alveg að stjórn síðustu ár- in. Margar bestu minningar okkar eru einmitt frá ferðum í boði þeirra hjóna, í Drangey, Málmey, á Mælifellshnjúk og á fleiri staði. Á kveðjustund er dýrmætt að eiga minningar frá þessum góðu stundum. Badmintonhópurinn verður ekki samur framar, en þá er gott að eiga í minningunni síðasta fundinn hjá þeim hjónum í Blásöl- unum. Við sendum Ingimari og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Badmintonhópsins, Gunnar Már Hauksson. MINNINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 ✝ Héðinn Stefáns-son fæddist á Húsavík 9. sept- ember 1950. Hann lést á Landakotsspít- ala 22. ágúst 2017. Foreldrar hans voru Kristbjörg Héðinsdóttir, f. 2.9. 1922, d. 5.9. 2012, og Stefán Pétur Sigur- jónsson, f. 16.12. 1918, d. 27.7. 1999, búsett á Húsavík. Systkini Héð- ins eru Helga Jónína, maki Að- alsteinn Guðmundur Hólmgeirs- son; Hjördís, maki Haukur Tryggvason; Sigurjón Pétur, maki Sigurlaug Sigurpálsdóttir. Eftirlifandi eiginkona Héðins er Hjördís Garðarsdóttir, f. 2.11. 1949, sjúkraliði, búsett í Garða- Magnús Loftsson og Halldóra Hjördís Loftsdóttir. Héðinn ólst upp á Húsavík og var mikill skíðamaður, keppti víða um land. Hann sat í sveit- arstjórn og var meðlimur í Lions í Aðaldal ásamt því að starfa með björgunarsveitinni. Héðinn var um tíma meðlimur í Odd- fellow í Reykjavík. Var áhuga- maður um tónlist og spilaði mik- ið á munnhörpu. Héðinn var vélfræðingur, starfaði lengst af í Laxárvirkjun og Kröfluvirkjun. Frá 1976 til 1982 starfaði hann sem vélfræð- ingur í Laxárvirkjun en tók svo við sem stöðvarstjóri í Laxár- og Kröfluvirkjun til ársins 1994, en þá fluttu þau hjónin í Garðabæ og Héðinn tók við sem stöðvar- stjóri Sogsvirkjana þar sem hann starfaði allt til ársins 2012. Útför Héðins fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 1. sept- ember 2017, klukkan 13. bæ. Héðinn og Hjördís gengu í hjónaband 12.11. 1971. Foreldrar Hjördísar voru Jó- hanna Sigurðar- dóttir, f. 7.10. 1923, d. 3.3. 2012, og Garðar Einarsson f. 4.7. 1919, d. 8.3. 1992. Börn Héðins og Hjördísar eru: 1) Garðar, eigin- kona hans er Jóhanna S. Krist- jánsdóttir, búsett á Húsavík. Börn þeirra eru Kristján Helgi, Héðinn Mari og Hjördís Inga. 2) Kristbjörg, búsett í Garðabæ, börn hennar eru Karítas Sól Viggósdóttir og Helen Hallveig Viggósdóttir. 3) Jóhanna, búsett í Garðabæ, börn hennar eru Í dag kveð ég tengdaföður minn hinstu kveðju. Það var stórt og hlýtt faðmlag sem um- vafði mig í hvert sinn er við hittumst. Það var ekki fyrr en á síðustu vikunum sem faðmur- inn varð rýrari, en hlýjan fór aldrei. Geislar þínir fylltu heilt herbergi og kölluðu mann til sín. Auð né heilsu ræður engi maður, þótt honum gangi greitt; margan það sækir, er minnst um varir, engi ræður sættum sjálfur. (Úr Sólarljóðum) Minningarnar eru margar og gott að ylja sér við þær þessa dagana. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Elsku Héðinn, með þakklæti og hlýju minnist ég þín. Far í friði, kæri vinur, þín tengda- dóttir, Jóhanna Sigríður. Það er með söknuði í hjarta sem við kveðjum afa í dag. Nú sefur þú í kyrrð og værð og hjá englunum þú nú ert. Umönnun og hlýju þú færð og veit ég að ánægður þú ert. Ég kvaddi þig í hinsta sinn Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Blessun drottins munt þú fá og fá að standa honum nær. Annan stað þú ferð nú á sem ávallt verður þér kær. Ég kvaddi þig í hinsta sinn Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Við munum hitta þig á ný áður en langt um líður. Sú stund verður ánægjuleg og hlý og eftir henni sérhvert okkar bíður. Við kveðjum þig í hinsta sinn Við kvöddum þig í hinsta sinn. (Þursi) Elsku afi, minningin lifir í hjörtum okkar. Kristján Helgi, Héðinn Mari og Hjördís Inga. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Þó að lífið sé fallegt, gefandi og gott, þá er það ekki alltaf sanngjarnt að okkur finnst. Við mætum ýmsu í lífinu sem er okkur erfitt og þungt. Þrátt fyrir að við spyrjum af hverju og hvers vegna, þá kemur ekk- ert svar. Það var erfitt að horfa upp á mann eins og Héðin bróður minn hverfa inn í heim heila- hrörnunar síðustu árin sem hann lifði. Hann hafði verið táknmynd hreysti og trausts. Fjölskyldu sinni var hann klett- urinn sem ekkert fékk bifað. Ég er óendanlega þakklát fyrir okkar síðustu samveru- stundir. Eftir að hann var lagð- ur inn á Landakotsspítala fann ég á mér að ég þyrfti að vera með honum einu sinni enn, meðan við gætum notið þess bæði. Ég var þrjá dagparta hjá honum í vikunni áður en hann dó. Hann vissi að ég var hjá honum og það var notalegt. Á föstudag kvaddi ég hann og hélt norður. Daginn eftir, laug- ardag, var orðin mikil breyting og ljóst að stutt væri eftir. Að morgni þriðjudags kvaddi hann í faðmi fjölskyldu sinnar, en þau höfðu öll verið hjá honum þessa síðustu sólarhringa. Hann naut ástúðar og um- hyggju Hjördísar konu sinnar, barna, fjölskyldu, systkina og vina, þar til yfir lauk. Síðustu daga hafa komið upp í huga minn svo margar góðar minningar frá okkar uppvaxt- arárum, sem aldrei bar skugga á. Einnig fjölmargar gleðilegar samverustundir á fullorðinsár- um. Tvær utanlandsferðir fór- um við í saman, fyrst í tilefni af fimmtugsafmæli mínu, þá lá leiðin til Orlando í Flórída. Það var einstaklega fróðleg og skemmtileg ferð. Seinni ferðin var farin í tilefni 50 ára afmæl- is Héðins. Þá fórum við til Hol- lands. Dvöldum í nokkra daga í Amsterdam og skoðuðum okk- ur um þar og áttum svo nokkra daga í sumarhúsi úti í sveit. Við hjónin minnumst með gleði og þakklæti þessara ferða og annarra samverustunda. Að leiðarlokum þökkum við Héðni bróður mínum samfylgd- ina og biðjum Guð að varðveita hann. Hjördísi mágkonu minni, börnum þeirra og allri fjöl- skyldunni sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng lifir. Hjördís, Haukur og fjölskylda. Góður vinur okkar, Héðinn Stefánsson, verður til grafar borinn í dag. Hann andaðist eftir erfiða baráttu við vágest, sem ekki sleppir tökum fyrr en yfir lýkur. Héðinn var bráðger og snemma atorkumikill og kapp- samur. Hann var um árabil í öflugum og sigursælum hópi skíðamanna á Húsavík og tók virkan þátt í uppbyggingu skíðasvæðis Húsvíkinga á þeim tíma. Í rökréttu samhengi við al- kunna mannkosti var honum falið ábyrgðarhlutverk hjá raf- orkufyrirtækjunum, þar sem hann vann sitt ævistarf. Héðinn var réttsýnn, skoðanafastur og hélt vel sínum hlut í orðræðu. Hann var afrendur að afli, en fór vel með. Hann gekk eitt sinn á hólm við vélmenni í dönskum skemmtigarði, fór í sjómann. Þar urðu átök mikil og vélmennið stundi. Hann var lífsglaður og tónelskur maður, sem kunni að njóta stundarinn- ar í góðra vina hópi. Héðinn var mikill fjölskyldu- maður, góður faðir og eigin- maður. Hann var lánsamur í einkalífi, kvæntist einstakri konu, sem var honum samstiga alla tíð. Þau eignuðust þrjú börn, sem öll gengu mennta- veginn. Í veikindum Héðins voru þau móður sinni stoð og stytta. Áratuga vinátta við þau hjónin var okkur mikils virði. Við minnumst margra ánægju- stunda með þeim, rausnarlegra heimboða í Háhæðina og ferða- laga áður fyrr. Heimili þeirra hjóna bar smekkvísi beggja fagurt vitni. Við kveðjum Héðin með þessum orðum um leið og við þökkum órofa vináttu og tryggð. Hjördísi og fjölskyldu vottum við okkar dýpstu sam- úð. Páll og Helga. Loks beygir þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð. Sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum) Ég man Héðin fyrst sem ungling á Húsavík, hann knýr dyra heima á Iðavöllum og er kominn til að verða bræðrum mínum samferða á skíðaæfingu út í Skálamel. Það er mikill snjóavetur og skíðin stunduð kappsamlega af þeim drengjum og með eftirminnilega góðum árangri. Hann er glaður, hress og kurteis, en ákveðinn og vill komast sem fyrst í fjallið til að æfa. Þannig var hann alla tíð ákveðinn og einbeittur til hvers sem hann ætlaði sér. Seinna, eða 1967, minnist ég hans á jarðýtu að grafa þrær fyrir Kísiliðjuna, sem þá var að koma sér fyrir í Bjarnarflagi. Það var ekki auðvelt að brjóta og grafa upp úfið hraunið með heldur veigalítilli jarðýtu, til þess þurfti lag og seiglu en einnig hörku. Héðinn hafði það sem þurfti. Það var síðan um áramót 1975-76 að ég hringdi í Héðin, sem þá vann í Reykjavík, ný- lega útskrifaður vélfræðingur og spurði hvort hann gæti kom- ið og leyst mig frá starfi við Laxárstöð a.m.k. í ár, ég vildi losna þar af vöktum til að geta farið í Kröflu. Héðinn tók sér tíma til að svara, en niðurstað- an varð sú að hann tók boðinu og þau Hjördís fluttu að Lax- árstöð um vorið. Eftir það leit hann ekki til baka. Héðinn átti frábæran starfsferil í orkugeir- anum, fyrst við Laxá og síðan eftir sameiningu fyrirtækja hjá Landsvirkjun, sem stöðvar- stjóri við Laxá og Kröflu, en síðast við Sogsstöðvar meðan heilsa hans leyfði. Héðinn var þeirrar gerðar að hann átti létt með að sýna fram á og sannfæra fjárhaldsmenn og aðra um þörfina til að lag- færa og endurbæta, hvort sem um var að ræða vélbúnað í orkuveri, eða mannvirki hvers- konar. Fundvís á góðar lausnir, gekk síðan einbeittur að verk- efninu. Fylgdi hverju verki til loka og sá til þess að allur viðskiln- aður væri til fyrirmyndar. Ákveðinn og fastur fyrir en þó glaðsinna, sanngjarn í sam- skiptum og ekki síst alltaf góð- ur félagi sinna starfsmanna. Þannig man ég hann. Góð er minningin. Birkir Fanndal. Héðinn Stefánsson Í gær, 31. ágúst, voru 35 ár síðan þú komst inn í líf okk- ar – þú varst okk- ur svo mikilvægur og kenndir okkur margt alla þína daga. Elsku bróðir minn – ég man eftir þér, rangeygum og sætum í ömmustólnum á Vildanden í Svíþjóð – ég man þegar þú fórst í aðgerð á auganu og augnleppunum sem þú þurftir að vera með á góða auganu til að styrkja veika augað. Mamma okkar teiknaði nýja mynd – að ég held á hverjum degi – á einnota leppana til að þú fengist til að hafa þá á þér. Oftast teiknaði mamma myndir af Einari Áskeli sem skreyttu augnleppana en Einar var í miklu uppáhaldi hjá þér á þess- um tíma og átti reyndar alla tíð sérstakan sess hjá þér. Ég man líka svo vel eftir uppáhalds- bangsanum þínum sem var með miða á ansi óþægilegum stað, mitt á milli lappanna, en mið- ann nuddaðir þú óspart til að róa þig – svona dæmigerður kækur sem börn oft fá – en þetta róaði svo sannarlega ekki taugar foreldra okkar sem höfðu miklar áhyggjur af því hvernig þetta kæmi meðvituð- um Svíum fyrir sjónir. Ég man svo vel hversu stolt ég var af þér þegar þú laukst stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík. Mér fannst og finnst þú enn vera mér og öðrum svo mikil fyrirmynd – þú varst ákveðinn í því að í þennan Ingibjörn Guðjónsson ✝ Ingibjörn Guð-jónsson fæddist 31. ágúst 1982. Hann lést 25. maí 2017. Útför Ingibjörns fór fram 8. júní 2017. skóla skyldirðu fara þegar þú varst bara fimm ára gamall – skóla- gangan gekk ekki þrautalaust fyrir sig því í tvígang féllstu á lokaprófi í einu fagi sökum mikils prófkvíða – féllst því á árinu og neyddist til að taka árið aftur – léstu það stoppa þig? Nei, aldeilis ekki! Þú varst ákveðinn og þetta var verkefni sem þú skyldir klára! Og það gerðir þú með sóma eins og annað sem þú tókst þér fyrir hendur. Erla tengdamóðir þín sagði okkur um daginn svo dásam- lega sögu af þér úr sveitinni – sögu sem er svo lýsandi fyrir þig. Þú hafðir verið að vinna á traktornum um daginn og eins og þín var von og vísa vandaðir þú til verka og varst lengi að. En þegar fór að líða á kvöld- ið fór fólkið að lengja eftir þér og Eydís fékk bróður sinn til að fara og líta eftir þér en ekki varstu úti á akri … nei, þú varst nefnilega kominn út á Hvolsvöll en þangað hafðir þú keyrt á traktornum á bíla- þvottastöð til að þrífa bless- aðan traktorinn því hann skyldi fá eðalmeðferð eins og önnur farartæki sem í þínar hendur komust. Frá fyrstu tíð varstu nefni- lega alltaf vandvirkur og hugs- aðir vel um allt sem í þínar hendur komst. Fínu bílarnir þínir og legódótið þitt kemur í heilu lagi upp úr kössum sínum og synir okkar beggja njóta góðs af og leika sér að dóttinu í hverri heimsókn sinni hjá ömmu Jórunni og Guðjóni afa. Ég veit að við rifumst heil- mikið sem börn – bara líkt og systkini gera – en ég man samt bara eftir góðum stundum, því fyrir mér vorum við alltaf góðir félagar og hjálpuðumst alltaf að í lífinu. Ég sakna þín alla daga og veit að söknuðurinn er nú fast- ur hluti af lífinu en minning- arnar fylgja mér líka alltaf og kalla fram bros þegar ég þarf á því að halda. Eins og segir í laginu – við sjáumst að nýju þegar minn tími kemur. Þín systir Auður. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KR. JÓNSSON, Flúðabakka 1, Blönduósi, sem lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 23. ágúst, verður jarðsunginn frá Blönduósskirkju laugardaginn 2. september klukkan 11. Guðrún J. Ingimarsdóttir Karlotta Sigurðardóttir Sverrir Valgarðsson Ingimar Sigurðsson Svetlana Björg Kostic Jóhann Sigurðsson Auðunn Steinn Sigurðsson Berglind Björnsdótir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.