Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 73

Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 73
MINNINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 ✝ Höskuldur Ey-fjörð Guð- mannsson var fæddur á Tungu- felli í Svarfaðar- dalshreppi í Eyja- firði 18. desember 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík, 24. ágúst 2017. Foreldrar Höskuldar voru Þóra Sigurrós Þorvaldsdóttir, f. 8. mars 1902, d. 12. júní 1965, og Guðmann Kristinn Þorgrímsson, f. 12. desember 1898, d. 27. nóvember 1984. Systkini Höskuldar eru: Salbjörg Helga Guðmannsdótt- ir, f. 18. apríl 1928, Þorgrímur Árelíus Guðmannsson, f. 6. september 1930, Þorvaldur Sig- urður Guðmannsson, f. 30. sept- ember 1931, d. 4. júlí 1951, Kristín Guðrún Guðmannsdótt- ir, f. 10. apríl 1934, Hartmann Guðmundur Guðmannsson, f. 26. maí 1935, Hallgrímur Sig- urvin Guðmannsson, f. 7. júlí 1939, Rósa Sigríður Guðmanns- dóttir, f. 15. ágúst 1941 og Guð- mann Þór Skagfjörð Guð- mannsson, f. 9. september 1945. Höskuldur ólst upp á Tungu- felli. Höskuldur og Lilja Guð- hans er María Mjöll Sigurðar- dóttir. Höskuldur gekk einnig í föðurstað Elínu Björku Hart- mannsdóttur, f. 3. mars 1955, dóttur Lilju Guðlaugsdóttur. Maki Elínar er Viðar Sigurðs- son. Sonur Elínar er Ásmundur Gíslason, f. 8. janúar 1979, maki María Birgisdóttir. Dætur Ás- mundar og Maríu eru Sunna Móey, f. 17. ágúst 2002, Inga Dís, f. 18. janúar 2006 og Eldey Lilja, f. 16. febrúar 2013. Synir Viðars eru: Hákon, f. 5. desem- ber 1967, Sigurður, f. 5. desem- ber 1969 og Elmar, f. 20. nóv- ember 1973. Synir Elínar og Viðars eru: 1) Bjartur Viðars- son, f. 18. apríl 1988, sambýlis- kona hans er Jónína Rut Matt- híasdóttir. 2) Elvar Viðarsson, f. 2. október 1991, sambýlis- kona hans er Viktoría Arnar- dóttir. Höskuldur vann lengst af sem verkamaður hjá Almenna byggingafélaginu og bygging- arfyrirtækinu Ístaki við ýmsar byggingar og gerð jarðganga og virkjana víða um land. Áhugamál hans sneru að íþrótt- um, ferðalögum og útivist. Hann bjó mestalla ævi í Reykja- vík en fluttist til Húsavíkur árið 2004 þegar hann var kominn á eftirlaun og hélt þar sitt heim- ili. Þar naut hann þess að fylgj- ast með fjölskyldu sinni og barnabörnum. Útför Höskuldar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 1. sept- ember 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. laugsdóttur, f. 21. júlí 1937, d. 6. júní 2008, gengu í hjónaband 18. jan- úar 1958. Þau slitu samvistir árið 1966. Sonur þeirra er Már Eyfjörð, f. 14. maí 1957, maki Erla Vilborg Hreiðarsdóttir. Dóttir Erlu er Linda Arnardóttir, f. 16. júlí 1974, maki Ölver Þrá- insson, sonur Ölvers er Alex, f. 20. desember 1996, börn Lindu og Ölvers eru: Fannar Goði, f. 19. júní 2002, Sóley Erla, f. 21. september 2010 og Dagný Eva, f. 13. desember 2013. Börn Más og Erlu eru: 1) Hreiðar Másson, f. 17. febrúar 1977, kvæntur Guðnýju Reykjalín Magnús- dóttur, synir þeirra eru: Daníel Már, f. 25. september 2000 og Ellert Örn, f. 24. janúar 2003. 2) Lilja Hrund Másdóttir, sam- býlismaður Fannar Magnússon, slitu samvistum, þeirra sonur er Magnús Atli, f. 10. júlí 2008. 3) Þóra Bryndís Másdóttir, f. 8. apríl 1990, sambýlismaður Kristinn Lúðvíksson, sonur þeirra er Hafþór Darri, f. 14. desember 2016. 4) Hilmar Más- son, f. 29. júlí 1995, unnusta Elsku pabbi. Nú er þrautum þínum lokið og þú kominn á betri stað. Síðustu vikur voru þér erfiðar og dimmar. Það er svo margs að minnast þegar lit- ið er til baka. Þótt leiðir okkar hafi skilið að hluta í bernsku okkar varstu alltaf með okkur í hjarta þér. Í sendibréfunum þínum var alltaf kærleikur og hlýja og alltaf vildirðu fylgjast með okkur og vita hvernig okk- ur vegnaði á leið okkar til full- orðinsáranna. Þú vildir fylgjast með skóla- göngunni okkar og gerðir það sem þú gast til þess að vera með okkur, þótt fjarlægðir væru miklar og erfiðara um öll ferðalög en nú er. Síðar þegar við stofnuðum okkur heimili komstu til okkar á hverju sumri og dvaldir hjá okkur. Við tókum okkur góða göngutúra og bíltúra, sem enn eru í minni hafðir. Þú varst léttur sem hind og við máttum hafa okkur öll við til að hafa við þér. Þú varst svo sannarlega góð fyrirmynd. Það gladdi okkur systkinin og fjölskyldur okkar, þegar þú ákvaðst að kaupa þér íbúð og flytjast hingað til Húsavíkur. Þá fjölgaði samverustundunum og margt var spjallað á góðum stundum. Það var yndislegt að geta haft þig svo nálægt okkur þín síðustu ár. Oft tókum við í spil og kappið var mikið í spila- mennskunni. Við dáðumst að hve duglegur þú varst ævin- lega, skokkaðir og gekkst þús- undir kílómetra á ári hverju og þú varst alltaf svo hress, þegar þú komst í kaffið til okkar. Síð- ustu mánuðir voru þér erfiðir. Það var ekki þinn stíll að láta í minni pokann. Við erum þakk- lát fyrir að hafa fengið að vera með þér allt til enda. Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir þinn skilyrðislausa kær- leika og hlýju sem þú ævinlega auðsýndir okkur og börnum okkar og allar samverustund- irnar sem við áttum saman. Við byðjum algóðan guð að geyma þig. Elín Björk Hartmanns- dóttir,Már Eyfjörð Höskuldsson. Elsku afi Höskuldur hefur kvatt þennan heim. Heilbrigði og hreysti einkenndu allt hans líf og því finnst manni það skjóta skökku við hve skamman tíma hann fékk eftir að heilsu hans fór að hraka fyrr á þessu ári. Afi bjó lengst af í Reykjavík en rúmlega sjötugur ákvað hann að flytja norður til Húsa- víkur. Það var gæfuspor fyrir hann og ánægjulegt fyrir ætt- ingja hans á Húsavík. Afi var mikill íþrótta- og útivistarmað- ur og einstök fyrirmynd sem slíkur. Hann var hlaupari góður og á hann marga góða keppnis- tíma í þeirri grein, sérstaklega í eldri aldursflokkum. Með aldrinum tók hann að einbeita sér meira að göngum og hafa margir Húsvíkingar eflaust séð hann á ferðinni við þá iðju. Hann sagði mér fyrir ekki svo löngu að hann hefði gengið að meðaltali 9 km hvern einasta dag síðasta árs. Geri aðrir bet- ur. Áður fyrr stundaði hann einnig vetraríþróttir og sagði hann mér að hann hefði eitt sinn meira að segja æft skíða- stökk. Frjálsum íþróttum fylgdist hann vel með en heims- meistaramótið í þeirri grein fór einmitt fram í sumar. Ég hvísl- aði að honum, þar sem hann lá milli svefns og vöku á spítalan- um, hvernig úrslitin í 100 m hlaupi karla hefðu farið, að Usain Bolt hefði ekki sigrað, heldur hefði hinn umdeildi Justin Gatlin farið með sigur af hólmi. Afi brosti örlítið út í annað, eins og hann vildi segja: „Jæja, fór það þannig, já“. Ég held að Bolt hafi verið hans maður. Við afi náðum alltaf vel sam- an og þær voru góðar stund- irnar í Brúnagerðinu sem við áttum þegar ég var fyrir norð- an. Þá var ýmislegt rætt. Í mínum huga var afi nærgætinn og blíður maður sem tók alltaf brosandi á móti manni. Lítillát- ur, ljúfur og kátur. Þannig man ég afa. Hvíldu í friði elskulegur og takk fyrir allt. Ásmundur Gíslason. Höskuldur Eyfjörð Guðmannsson ✝ Gunnhildur Ás-geirsdóttir fæddist á Norðfirði 14. janúar árið 1948. Hún lést á Landspítalanum 25. ágúst 2017. Foreldrar henn- ar voru Ásgeir Þ. Sigurðsson, f. 1923, d. 1989, og Guðrún J. Ármannsdóttir, f. 1925, d. 2006. Systir Gunnhildar er Sigurbjörg Ás- geirsdóttir, f. 6. júlí 1950, gift Herði Helgasyni, f. 1950, d. 2012. Þeirra synir eru 1:) Helgi Einar, f. 1973, dóttir hans er Sigur- björg Brynja, f. 2009. 2) Ármann Ásgeir, f. 1976, giftur Ólafíu f. 23.10. 1968, giftur Guðrúnu Brynjólfsdóttur, f. 20. júlí.1972. Synir þeirra eru Ragnar Þór, f. 1990, Ingi Þór, f. 1997, Gunnar Þór, f. 2000. 2) Guðrún Jóhanna, f. 3. maí 1972, gift Hjörleifi Þ. Hannessyni, f. 12. ágúst 1970, dætur þeirra eru Gunnhildur, f. 2004 og Sólveig, f. 2006. Gunnhildur fluttist með for- eldrum sínum til Keflavíkur árið 1950 og bjó þar alla tíð. Hún lauk hefðbundnu námi í barna- og gagnfræðaskóla í Keflavík og út- skrifaðist sem hárgreiðslumeist- ari frá Iðnskólanum árið 1974. Árin 1979-1991 voru Gunnhildur og Halldór umboðsmenn fyrir Tryggingamiðstöðina á Suður- nesjum. Eftir það starfaði Gunn- hildur á Leikskólanum Garðaseli til ársins 2010, eða þar til heilsa hennar brást. Útför Gunnhildar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 1. sept- ember 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. Helgu Arnardóttur, f. 1978. Þeirra börn eru Katrín Lilja, f. 2002, Ásgeir Bjarni, f. 2010, Jóhann Helgi, f. 2015, Hörður Logi, f. 2016. Þann 22. júlí 1967 giftist Gunn- hildur eftirlifandi eiginmanni sínum Halldóri Vilhjálms- syni, f. 22. júní 1947, syni hjónanna Vilhjálms Halldórs- sonar, f. 1913, d. 1996 og Stein- unnar Sigurðardóttur, f. 1917 d. 2013. Gunnhildur og Halldór eign- uðust tvö börn: 1) Ásgeir Þórður, Elsku besta mamma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Það er mér mikil huggun að þú hafir kvatt þennan heim á afmæl- isdegi hennar ömmu Gunnu af öll- um dögum. Ég sé þig fyrir mér heilsuhrausta í afmælisveislu með ömmu og afa og er sannfærð um að þú hafir fengið góðar móttökur þarna hinum megin. Ég er endalaust þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig hjá mér í þessi 45 ár og mun halda minn- ingu þinni á lofti hjá dætrum mín- um sem nú syrgja ömmu sína sárt. Hvíl í friði, mamma mín, Þín Guðrún. Elsku besta amma. Takk fyrir allt sem þú hefur gert með okkur og fyrir okkur, elsku amma. Við vitum að þér líð- ur betur núna og ert ekki lengur veik. Þú ert besta amma í heim- inum og við munum sakna þín al- veg rosalega mikið. Það verður skrítið að koma í Vallartúnið og sjá enga ömmu sem bað alltaf um krakkaknús og átti alltaf eitthvað gott að borða handa okkur. Þú varst alltaf að gera eitthvað fyrir okkur og sem betur fer eigum við fullt af myndum sem við getum alltaf skoðað í framtíðinni. Saknaðarkveðjur frá ömmu- stelpunum þínum, Gunnhildur og Sólveig. Elsku Gunnhildur, það er sárt að þurfa að kveðja. Kveðja elsku frænku sem hefur verið svo stór partur af lífi mínu frá því ég fædd- ist. Allt frá því að ég var neyddur í stólinn og þú látin klippa mig í Ás- garðinum og allt til dagsins í dag. Minningarnar eru margar, eins og tíminn í London þar sem þú stóðst eins og stytta við bakið á okkur fjölskyldunni og gerðir dvölina þar fulla af góðum minn- ingum með húmor þínum og létt- leika. Einnig jólin sem að ég var hjá ykkur í Ásgarðinum og stund- irnar með ömmu og afa í bústaðn- um að spila Manna. Einnig þeg- arþið Halli voruð með okkur í Knarrarnesi ásamt mörgum öðr- um, en mínar uppáhaldsstundir með þér voru alltaf jóladagur í Vallartúninu. Fyrir mér þá varst þú alltaf frænka númer eitt, frænka sem var góður vinur, hjálpsöm, umhyggjusöm og sterk og alltaf boðin og búin til að hjálpa. Frænka sem mætti alltaf í öll boð og afmæli. Þú varst alltaf til staðar, þú varst með réttu gildin og vissir hvað skiptir máli. Þá var aðdáunarvert að sjá samband þitt og mömmu. Þið töluðuð daglega saman, nánast alveg frá því að ég man eftir mér og aldrei sló á milli, virðingin og vináttan var slík og fann ég aldrei neitt annað frá þér en hreinan kærleika. Það er því stórt skarð sem höggvið hefur verið í fjölskylduna mína sem aldrei verður fyllt en minningar um þig mun ég varðveita í hjarta mínu alla ævi. Elsku frænka, guð geymi þig og varðveiti. Þinn frændi, Ármann Ásgeir Harðarson Gunnhildur mágkona mín kom ung inn í fjölskylduna okkar. Hún var góð kona, traust, hjálpsöm og velviljuð. Gunnhildur hafði mikla ánægju af að hafa barnabörnin nálægt sér og vildi allt fyrir þau gera. Síðustu árin hafa verið Gunn- hildi erfið vegna veikindanna, en hún gerði eins og hún gat til að gleyma þeim um stund í samvist- um við fjölskylduna og góða vini. Hún gerði sérlega fallega handa- vinnu og stytti sér stundir við hannyrðirnar. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til Gunnhildar, hún hafði góða nærveru og mun ég sakna þeirra stunda sem við átt- um saman því þær voru mér mik- ils virði. Ég kveð Gunnhildi með þökk fyrir allt gott og bið Guð að blessa Halla, Ásgeir, Guðrúnu, barna- börnin og aðra ástvini Gunnhild- ar. Kristjana Vilhjálmsdóttir. Elskuleg Gunnhildur frænka mín er búin að kveðja. Mig langar með þessari minn- ingargrein að koma því frá mér sem ég á ósagt við Gunnhildi, sem var á örlagaríkum köflum í lífi mínu hin mamma mín. Elsku Gunnhildur. Mér er efst í huga þegar ég skrifa þetta bæði húmorinn þinn og fórnfýsin fyrir mig og okkur öll í fjölskyldunni. Við fyrst, svo þú. Þannig varst þú. Þegar þú hringdir í mig byrjaði það oft svona: „Hvað segir þú? Hvað ertu búin að gera af þér í dag? Eru þið Grindjánar þá bara til friðs?“ Svo kom: „Jæja, elskan mín.“ Hversdaglegir frasar sem ég á eftir að sakna. Það var alltaf svo gott að heyra í þér. Skrítið að eiga ekki von á því aftur. Ég get ekki komist hjá því að tala um hvað þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu, en einkum mömmu – systur þína. Tvisvar sinnum flaugst þú með mér utan í tengslum við alvarleg veikindi, stóðst eins og klettur við hlið syst- ur þinnar og vaktir yfir mér svo sólarhringum skipti. Það litla sem ég man af fyrri ferðinni, 1989 á Brompton-sjúkrahúsinu í Lond- on, var að þegar ég var að kafna eða við það að gefast upp varst þú komin að hjálpa mér og róa mig niður, tala mig til og já það virk- aði. Við hefðum ekki getað þetta án þín. Rúmum 10 árum seinna stóð ég aftur frammi fyrir því að fara utan á spítala. Ég kom til þín, sagði þér fréttirnar og spurði þig: „Ertu til í þetta aftur?“ … og svarið kom án umhugsunar: „Já, það er ég“! Halli var sammála því að ekkert annað kæmi til greina en að þú færir með í þessa ferð líka. Þarna fann ég þetta sterka bakland sem þarf í svona verkefni. Í rúm tvö ár beiðst þú eins og ég eftir kallinu mínu og á innan við klukkustund varst þú mætt með Halla þínum út á Reykjavíkurflugvöll. Ég get aldrei þakkað þér að fullu, elsku Gunnhildur mín, allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég veit að þú hefðir bara viljað fá knús, allt og sumt. Já, svona varst þú allt þitt líf. Ég er sannfærður um að vel hefur verið tekið á móti þér þar sem þú ert nú. Þú sagðir oft við mig: „Hvíldu þig nú, Helgi minn.“ Ég segi því núna: Takk fyrir mig og hvíldu þig, elsku Gunn- hildur mín. Helgi. Mig langar að minnast vinkonu minnar í fáum orðum. Gunnhildi kynntist ég þegar við byggðum í Ásgarði og vorum nágrannar í fjölda ára. Áttum við margar frá- bærar stundir með þeim hjónum, þar sem lóðir okkar lágu saman var stutt að fara í kaffi, oft var glatt á hjalla og margs að minn- ast. Ef mig vantaði klippingu var hlaupið yfir í næsta hús eða hún kom til mín bara til að spjalla. Árin liðu eins og gengur og börnin uppkomin. Svo kom að því að við fluttum úr hverfinu, fyrst Halli og Gunnhildur, síðan við. Eins og oft vill verða urðu sam- verustundirnar allt of fáar seinni árin, en vissum hefðum héldum við alla tíð, við komum alltaf sam- an á afmælisdögum okkar, vita- skuld tertur og fínerí og skemmt- um við okkur konunglega. Gunnhildur átti við veikindi að stríða seinni árin, aldrei heyrði ég hana kvarta, hún tók því með æðruleysi og yfirvegun. Gunnhildur var glæsileg kona, há og grönn, bar sig vel svo eftir var tekið, hún var fáguð og frá- bær, oft var stutt í hláturinn. Ég kveð að sinni kæra vinkona og þakka samfylgdina, sjáumst síð- ar. Elsku Halli, Ásgeir, Guðrún, Sigurbjörg og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Gréta Ingólfs. og fjölskylda. Gunnhildur Ásgeirsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SOFFÍA JÓNSDÓTTIR, Hólavegi 29, Sauðárkróki, lést laugardaginn 19. ágúst. Útförin fer fram í Sauðárkrókskirkju laugardaginn 2. september klukkan 14. Jósep Reykdal Þóroddsson Ólöf Jósepsdóttir Sigurgísli E. Kolbeinsson Jón Þór Jósepsson Matthildur Ingólfsdóttir Birgir Heiðar Jósepsson Halla Kristín Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, BJARNI MAGNÚS JÓHANNESSON, Svölutjörn 67, lést á sjúkrahúsinu í Keflavík 12. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Þuríður Sveinsdóttir Elín Rós Bjarnadóttir Hreiðar Sigurjónsson Jóhannes Bjarni Bjarnason Rósella Billeskov Pétursdóttir Ljósbrá Mist Bjarnadóttir Adam Þórðarson og barnabörn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.