Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 77
ÍSLENDINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 90 ára Jón Halldór Gunnarsson Kristján Oddsson 85 ára Guðrún B. Frímannsdóttir Katrín Georgsdóttir Kristján Gunnarsson Sveinfríður Sigmarsdóttir Unnur Jóhannsdóttir Vilborg Einarsdóttir 80 ára Hilmar Andrésson Sveinn Jónsson 75 ára Arnar Jóhannsson Edda G. Snorradóttir Edward Obara Heiðrún Guðmundsdóttir Hörður Kristinsson Jónas Blöndal Norma Haraldsdóttir 70 ára Birgir Ólafsson Brynjar M. Valdimarsson Hallgrímur Valdemarsson Kristín Kristinsdóttir Lárus Lárusson 60 ára Arnbjörg Eiðsdóttir Elías Arnar Þorsteinsson Helgi Hilmar Hansson Hólmfríður Sigurðardóttir Hrafnhildur Ágústsdóttir Jódís Ólafsdóttir Jónína S. Jónasdóttir Katrín Sigurðardóttir Kristinn Þór Ásgeirsson Lilja Kristófersdóttir Ríkharður Sverrisson 50 ára Bergþóra Huld Birgisdóttir Bryndís M. Bjarnadóttir Camelia Rotariuc Guðrún Ingvadóttir Haraldur R. Aðalbjörnsson Ingvar Þór Guðjónsson Kristrún Sigurjónsdóttir Sigríður Konráðsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir Sólveig Sigríður Ólafsdóttir Svava Sigurðardóttir Sævaldur Jens Gunnarsson Unnur A. Kristjánsdóttir Zuzana Palicková 40 ára Dagur Óskarsson Einar Karl Eyvindsson Guðjón Bergur Jakobsson Guðmundur G. Sigurðsson Hrólfur Sigurðsson Hrönn Valdimarsdóttir Inga Maja Gísladóttir Kristbjörg Kristjánsdóttir Kristófer Marinósson Najima Ouachi Nikolay Petrov Nikolov Ólafur Magnús Ólafsson Óskar Freyr Níelsson Robert Karol Zadorozny Sigurður Torfi Sigurjónsson Valtýr Örn Gunnlaugsson 30 ára Bartlomiej J. Jesiolowski Birgir Ingvar Jóhannesson Emnet Kiflai Tsegay Hafsteinn Már Heimisson Halla Vignisdóttir Haraldur Haraldsson Hlífar Ólafsson Ján Zatko Lucélia P. Almeida De Brito Sara Lind Brynjólfsdóttir Sunna Jónsdóttir Valgerður Jónsdóttir Víðir Sveinsson Til hamingju með daginn stundaði síðan framhaldsnám í Sví- þjóð hjá Karin Langebo, í Washing- ton hjá Judith Bauden og í Verona á Ítalíu. Að loknu framhaldsnámi starfaði Katrín um árabil sem píanóleikari og söngkennari við Söngskólann í Reykjavík. Katrín hefur sungið ýmis óperu- hlutverk í uppfærslum hjá Íslensku óperunni og í Þjóðleikhúsinu. Má þar nefna Moniku í Miðlinum, Oscar í Grímudansleik og Frasquitu í Car- men. Auk þess að halda sjálfstæða tónleika hefur hún sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsum kórum, hér heima og erlendis. Einnig hefur hún komið fram í út- varpi og sjónvarpi sem söngvari og pí- anóleikari. Eiginmaður Katrínar, Stefán Guð- mundsson, er einnig söngkennari frá Söngskólanum í Reykjavík, auk fram- haldsnáms á Ítalíu. Hann er úr Gnúp- verjahreppi og því stefndi hugur þeirra beggja úr borgarysnum. Árið 1996 fluttu þau austur í Ásaskóla, gamla skólahúsið í Gnúpverjahreppi, ásamt sonum sínum þremur. Þar réðust þau í minkarækt, hófu búskapinn í leiguhúsnæði með 325 líf- læður og ári síðar reistu þau nýjan minkaskála og stofnuðu þar með minkabúið Mön. Frá þeim tíma hefur búið verið að stækka og mest þegar þau festu kaup á býlinu Hraunbúi í sömu sveit árið 2003. Nú búa þau með 5.500 læður og reka þar með stærsta loðdýrabú landsins. Þau náðu líka fljótt að skipa sér í efstu sæti á skinnasýningum. Þau hafa ætíð haft það að leiðarljósi að fagleg þekking, markvisst ræktunar- starf og samvinna bænda væri það eina sem dygði í búskapnum. Þessi at- riði hafa líka skilað greininni fram á veginn. Í því eiga þau Katrín og Stef- án drjúgan hlut. Ræktunarstarfið hefur borið góðan ávöxt og skinnin frá Mön sóma sér vel á erlendum mörkuðum sem hluti bestu íslensku framleiðslunnar. Þau hjónin hafa sinnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir greinina, hafa t.d. bæði setið í stjórn Sambands ís- lenskra loðdýrabænda, verið í stjórn Loðdýraræktarfélags Suðurlands og í stjórn Fóðurstöðvar Suðurlands. Þau hlutu landbúnaðarverðlaunin árið 2007. Þegar óbilandi áhuga Katrínar á tónlist og loðdýrarækt sleppir er hún á fullu í alls konar handavinnu og garðrækt. Auk þess vinnur hún skart- gripi úr skinnunum eins og sjá má á fésbókarsíðu hennar. Hún hefur einn- ig lúmskt gaman af því að hreinsa ill- gresið frá rósunum sínum. Fjölskylda Eiginmaður Katrínar er Stefán Guðmundsson, f. 21.5. 1956, loð- dýrabóndi og söngvari. Sonur Katrínar frá fyrra hjóna- bandi er Sigurður Hallmar Magnús- son, f. 15.9. 1976, kvikmyndagerðar- maður í Frakklandi, en kona hans er Armande Chollat-Namy kvikmynda- gerðarmaður og sonur þeirra er Emil Max. Synir Katrínar og Stefáns eru Við- ar Stefánsson, f. 3.10. 1989, prestur í Vestmannaeyjum, en kona hans er Sóley Linda Egilsdóttir leikstjóri; Guðmundur Stefánsson, f. 26.8. 1992, tölvunarfræðingur, og Birgir Stefáns- son, f. 6.10. 1995, nemi við Söngskól- ann í Reykjavík. Börn Stefáns frá fyrra hjónabandi eru: Halla Steinunn, f. 16.9. 1975, fiðluleikari í doktorsnámi í Malmö, og Hrafn, f. 25.4. 1982, viðskiptastjóri í Mosfellsbæ, en kona hans er Rakel Sveinsdóttir vaktstjóri og eiga þau tvö börn, Bjarka og Veru. Systkini Katrínar: Hallmar Sig- urðsson, f. 21.5. 1952, d. 30.1. 2016, leikstjóri og leikhússtjóri Borarleik- hússins, og Aðalbjörg Sigurðardóttir, f. 23.2. 1964, læknaritari á Húsavík. Foreldrar Katrínar voru Sigurður Hallmarsson, f. 24.11. 1929, d. 23.11. 2014, skólastjóri Grunnskólans á Húsavík og leikari, og k.h., Herdís Kristín Birgisdóttir, f. 15.7. 1926, d. 16.10. 2014, húsfreyja á Húsavík. Katrín Sigurðardóttir Herdís Benediktsdóttir húsfr. á Húsavík Jón Helgason smiður og verkam. á Húsavík Aðalbjörg Jónsdóttir húsfr. á Húsavík Birgir Steingrímsson bókhaldari á Húsavík Herdís Kristín Birgisdóttir húsfr. á Húsavík Kristín Sigríður Þuríður Jónsdóttir húsfr. á Húsavík Steingrímur Hallgrímsson sjóm. á Húsavík Ragnar Ágúst Sigurðsson loftskeytam., hafnarstj., sparisjóðsstj. og bæjar- fulltrúi í Neskaupstað Kristjana Hólmfríður Helga- dóttir húsfr. á Húsavík Kristrún Helgadóttir húsfr. í Neskaup- stað Sigurður G. Flosa- son kennari og skólastj. á Oddeyri Anna Kristjana Ásmundsdóttir b. í Stóru-Mástungu Ásmundur Bjarna- son spretthlaupari og Olympíufari Flosi Sigurðsson b. á Hrafnsstöðum Ásgeir Hermann Steingrímsson trompetleikari í Sinfóníuhljóm- sveit Íslands Sigurður Rún- ar Ragnarsson sóknarprestur í Neskaupstað Katrín Sig- urðar- dóttir söng- kona Steingrímur Birgisson hús- gagnasmiður á Húsavík Guðrún Marteinsdóttir húsfr. á Hrafnsstöðum Sigurður Jónsson b. á Hrafnsstöðum í KinnJónína Katrín Sigurðardóttir húsfr. á Húsavík Hallmar Helgason sjóm. á Húsavík Jóhanna Petrína Jóhannsdóttir húsfr. á Húsavík Helgi Flóventsson sjóm. á Húsavík Úr frændgarði Katrínar Sigurðardóttur Sigurður Hallmarsson skólastj. á Húsavík Geir Stefán Sæmundssonfæddist í Hraungerði íHraungerðishreppi 1.9. 1867. Foreldrar hans voru Sæmund- ur Jónsson, prófastur í Hraungerði, og k.h., Stefanía Siggeirsdóttir hús- freyja. Sæmundur var sonur Jóns Hall- dórssonar, prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð, og k.h. Kristínar Vigfús- dóttur Thorarensen, systur Bjarna Thorarensen, skálds og amtmanns, en Stefanía var dóttir Siggeirs Páls- sonar, prests og skálds á Skeggja- stöðum í Norður-Múlasýslu, og Önnu Ólafsdóttur húsfreyju. Bræður Geirs voru Ólafur, prest- ur í Hraungerði, og Páll, skrifstofu- stjóri í fjármálaráðuneytinu. Eiginkona Geirs var Sigríður hús- freyja, dóttir Jóns Péturssonar, há- yfirdómara og alþingismanns í Reykjavík, bróður Péturs biskups og Brynjólfs Fjölnismanns, og s.k.h., Sigþrúður Friðriksdóttir Eggerz, systir Péturs Eggerz, kaupmanns í Akureyjum, föður Sigurðar Eggerz ráðherra. Meðal þriggja barna Geirs og Sigríðar var Jón Pétursson Geirs- son, læknir á Akureyri. Geir lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavík 1887, cand.phil.-prófi og prófi í hebresku frá Kaupmannahafnarháskóla 1888, prófi í kirkjufeðrafræði 1890 og embættisprófi í guðfræði 1894. Geir kenndi við Barnaskólann í Reykjavík 1894-96, við Mennta- skólann í Reykjavík 1895-96, við Barnaskólann á Seyðisfirði 1896-97, var sóknarprestur á Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá 1897-1900, sókn- arprestur á Akureyri frá 1900 og þjónaði þar til æviloka. Hann varð prófastur í Eyjafjarðarprófasts- dæmi 1905 og vígður vígslubiskup Hólabiskupsdæmis árið 1910. Hann kenndi við Gagnfræðaskólann á Ak- ureyri, sat í sýslunefnd Norður- Múlasýslu og var formaður skóla- nefndar Barnaskólans á Akureyri. Geir var orðlagður söngmaður og söng stundum opinberlega, einkum á sínum yngri árum. Geir lést 9.8. 1927. Merkir Íslendingar Geir S. Sæmundson 30 ára Kristbjörn ólst upp í Reykjavík, er nú bú- settur á Reyðarfirði og er flutningabílstjóri hjá Sam- skipum. Maki: Ína Katrín Walter, f. 1989, starfsmaður við leikskólann á Reyðarfirði. Börn: Helena, f. 2010, og Mattías, f. 2015. Foreldrar: Lena Krist- björg Poulsen, f. 1954, húsfreyja, og Magnús Ingi Ingason, f. 1957, bóndi á Hofsá í Svarfaðardal. Kristbjörn Poulsen 30 ára Karl ólst upp í Kópavogi, býr í Hafnar- firði, lauk MSc-prófi í raf- magnsverkfræði frá DTU og er verkfræðingur hjá Icewind. Maki: Hrefna Rós Matt- híasdóttir, f. 1988, mark- aðs- og fjáröflunarstjóri Sonur: Sigfús Óli Karls- son, f. 2015. Foreldrar: Sigfús Óli Mo- ritz Sigurðsson, f. 1962, og Sigrún Hauksdóttir, f. 1962. Karl Sigurður Sigfússon 30 ára Inga Kristín ólst upp á Grenivík, býr í Reykjavík, lauk prófi sem tamningamaður frá Hól- um í Hjaltadal og stundar nám í tanntækni. Maki: Andri Freyr Magn- ússon, f. 1984, tæknimað- ur hjá Eirberg. Foreldrar: Sigurgeir Harðarson, f. 1955, sjó- maður og útgerðarmaður á Grenivík, og Helga Sig- ríður Helgadóttir, f. 1961, rekur Seglið á Akureyri.. Inga Kristín Sigurgeirsdóttir LLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is MOSFE Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.