Morgunblaðið - 01.09.2017, Qupperneq 79

Morgunblaðið - 01.09.2017, Qupperneq 79
DÆGRADVÖL 79 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef samskipti þín við fólk snúast um viðskipti, segðu það þá strax. Leyfðu öðrum að gera slíkt hið sama. Ef þú skipuleggur um of verður þú líklega fyrir vonbrigðum. 20. apríl - 20. maí  Naut Finndu út hvar þú best getur komið skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að hlustað sé á þig. Reyndu að skemmta þér með fjölskyldunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur unun að fallegum hlutum en ættir þó að bíða með að kaupa nokkuð. Allt það litla sem einhver myndi hugsanlega láta slá sig út af laginu hefur engin áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að þú ert dæmdur af verk- um þínum og það þýðir ekki að slá ryki í augu fólks með einhverjum látalátum. Ekki setja þig upp á móti þeim sem kunna að vera ósammála þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú vilt skipuleggja umhverfi þitt en um leið kannt þú að fá félaga þinn eða einhvern nákominn upp á móti þér. Leggðu hunds- hausinn til hliðar og vertu glaður og gef- andi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú stendur fast við skoðanir þínar í dag. Finnist þér þú vera að bogna skaltu fá aðra til liðs við þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Forðastu alla árekstra við vinnufélaga þína. Utanaðkomandi álit eða blóðþrýstings- mælir er besti vitnisburðurinn um heilsufar- ið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Hafi fólk áhuga á því sem það er að gera vinnur það miklu betur en ella. Kynntu þér vandlega þá kosti sem í boði eru og láttu öll gylliboð lönd og leið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér finnst þú hafa verið að- kreppt/ur í nokkurn tíma og langar til þess að varpa af þér okinu. Skiptir þá engu hvort um lítinn hlut er að ræða eða stóran. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur átt í ákveðnum erf- iðleikum sem nú eru að baki. En reyndar er það bæði dýrt og tímafrekt að finna upp allt sem maður þarf. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú nýtur þeirra stunda sem þú getur átt með sjálfri/um þér til fullnustu um þessar mundir. Sinntu sjálfri/um þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur lent upp á kant við mann- eskju sem þú vilt umfram allt hafa góð samskipti við. Ykkur líkar við hvort annað og það er bara upphafið að þið sættist. Gunnar Benediktsson segir fráþví í Rauðum pennum að Sig- urður Grímsson (stúdent 1917) hafi um þriggja ára skeið verið aðal- ljóðskáld Menntaskólans í Reykja- vík og bætir við: „Þrátt fyrir óum- deilanlega prýðilega hagmælsku og formfegurð, sem þegar einkenndi ljóð hans í skóla og kom þó fram í enn hreinni mynd í ljóðabók hans „Við langelda“, þá heyrir maður hvergi eina einustu vísu eftir hann af vörum þjóðarinnar, hærri né lægri. Aðeins ein hending: „Mér fannst ég finna til“, hefur náð mik- illi frægð.“ Faðir minn sagði mér, að menn hefðu mjög hent gaman að þessari hendingu og skeytt aftan við hana: „Mér fannst ég finna til skáldskapar,“ sem Sigurður tók nærri sér og drap í honum skáldið. Þetta rifja ég upp vegna lítillar vísu á Boðnarmiði eftir Anton Helga Jónsson: Á einni kennd loks kann ég skil sem kalla mætti lensku; ef finnst mér að ég finni til þá finnst mér það á ensku. Svo að öllu sé til skila haldið er hér ljóð Sigurðar „Gestur“: Þú komst til mín sem gestur, er kunni á strengjum skil. Þú komst til míns sem gestur, með kvæði og yl. Og fagur var þinn bragur; er féll þinn „tröllaslagur“, mér fannst ég finna til. – Þú kvaddir mig sem vinur og kufli þínum brást. Og bjartur var sá heimur, er bak við sást. Vorið unga og bjarta þú barst þér innst við hjarta, og líf og ljóð – og ást. En að öðru. Hallmundur Krist- insson yrkir á Boðnarmiði: Í pylsuendann prófa má að pota einni rúsínu. En hverjir bera ábyrgð á Orkuveituhúsinu? Hjörvar Pétursson er á svipuðum nótum „vegna fréttar um væntan- lega vöru á tryggingamarkaði“: Morknar og bilaðar byggingar eru búnar að vera til hryggingar En brátt verða í boði svo burtu sé voði byggingagallatryggingar. Jón S. Bergmann orti: Eg hef marga öldu séð ægilega rísa, síðast brýtur siglutréð sú – er ég á vísa. Gömul vísa í lokin: Nafni minn í neyðinni nú á koppnum situr. Hest á ’ann á heiðinni, hans er rauður litur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Við langelda og Orkuveituhúsið Í klípu „VIÐ TELJUM SAKBORNINGINN VERA SÝKNAN SAKA, OG BIÐJUM UM AÐ LÖG- MAÐURINN HANS VERÐI KÆRÐUR FYRIR AÐ HINDRA FRAMGANG RÉTTVÍSINNAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐ SVO SEM GERIST, ÞÁ ÆTTIRÐU AÐ HALDA FAST Í ÞESSAR SAMLOKUR!“ TIL TUNGLS- INS Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að þurfa minnst átta tíma svefn til þess að dreyma um hann. ÉG Á SEM SAGT BARA AÐ SNERTA ÞETTA Á SKJÁNUM, RÉTT? JÁ SÍS! ARF MJÁ ÓKEI, ALLIR SEGJA “SÍS”! KLIKK! NEI, ÉG PAKKAÐI EKKI SUNDKÚTUNUM ÞÍNUM! EÐA HEIM Víkverji hefur mikið velt fyrir sérrafbílum upp á síðkastið og verður að viðurkenna að hann er nokkuð heillaður af þeirri þróun, sem orðið hefur á slíkum farar- tækjum upp á síðkastið. Hann hefur lengi verið þeirrar hyggju að Íslend- ingar ættu að leggja áherslu á að skipta úr bensíni (og dísil) yfir í raf- magn. Hér er rafmagnið búið til með sjálfbærum hætti, en bensínið er flutt inn með ærnum tilkostnaði og gjaldeyrisútlátum. x x x Ekki er þó enn komin sú staða aðhentugt sé að fara á rafbíl allra sinna ferða á Íslandi. Drægni bílanna er takmörkuð og það getur ært óstöðugan að þurfa að bíða lengi á hleðslustöð. Rafbílarnir eru hins vegar tilvaldir í hversdagslegt snatt. Hinir svokölluðu tvinnbílar, sem ganga bæði fyrir rafmagni og olíu, virðast vera hentugasti kosturinn fyrir þá, sem vilja geta bæði haldið og sleppt. Víkverji heyrði mann segja í heita pottinum að á einu ári hefði hann aðeins þurft að setja bensín á bílinn tvisvar. x x x Víkverji er ekki einn um að horfatil rafbílsins. Víða er farið að horfa til þess að leggja sprengi- hreyflinum. Bretar og Frakkar hafa lýst yfir að eftir 2040 verði bannað að selja nýja bensín- og dísilbíla. Sennilega mun þessi bylting ekki halda innreið sína í flugi og sigl- ingum í bráð. Engu að síður mun hún hafa gríðarleg áhrif á olíuiðn- aðinn og um leið valdajafnvægið í heiminum. Hvernig munu olíuveldi bregðast við? Munu þau reyna að ná upp sem mestri olíu til að nýta tím- ann fram að umskiptunum? Munu þau nýta tímann til að auka fjöl- breytni í atvinnulífi þannig að þau geti tekist á við breytinguna? Eða munu valdastéttirnar í sumum þeirra kappkosta að hlaða sem mest undir sig svo að þær verði ekki á flæðiskeri staddar þegar þar að kemur? x x x En nú er Víkverji kominn fram úrsjálfum sér í spuna, sem hófst með sakleysislegum vangaveltum um kosti rafbíla. vikverji@mbl.is Víkverji Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla hann í lofsöng. (Sálm 69:31) Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.