Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 80

Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 80
VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst næstkomandi miðvikudag og stend- ur til 9. september. Á hátíðinni mun hátt á annan tug erlendra rithöf- unda og þrettán íslenskir ræða um eigin bækur og annarra og lesa upp, aðallega í Norræna húsinu og Iðnó, en einnig víða um bæ. Í ár verður þjófstartað í Hofi á Akureyri þriðju- daginn 5. september þar sem norð- lenskir höfundar og erlendir koma fram. Talað um bækur og lesendur hitta höfunda Stella Soffía Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri Bókmenntahá- tíðar og hefur reyndar stýrt lengi – þetta er fimmta hátíðin sem hún skipuleggur. Hún segir að Bók- menntahátíð sé fyrst og fremst há- tíð lesenda og höfunda. „Við tölum um bækur og lesendur hitta höf- unda. Hátíðin ýtir undir umræðu um bókmenntir. Við þurfum að tala meira um bækur og sérstaklega um þýddar bækur og hátíðin er einmitt vettvangurinn til þess. Íslenskir rit- höfundar taka líka þátt í hátíðinni og fá þá tækifæri til að spegla sig í erlendum rithöfundum og mynda tengsl, tala um bækurnar sína og setja þær í samhengi við það sem er að gerast úti í hinum stóra heimi.“ – Oft koma á Bókmenntahátíð er- lendir höfundar verka sem gefin hafa verið út á íslensku eða stendur til að gefa út, en svo koma líka höf- undar verka sem ekki eru til á ís- lensku. „Við reynum að bjóða spennandi og áhugaverðum erlendum höfund- um og verk margra þeirra koma út í íslenskum þýðingum. Hátíðin er haldin í góðu samstarfi við íslenska útgefendur, en jafnvel þegar verk höfundar kemur ekki út í íslenskri þýðingu getur heimsókn hans til Ís- lands opnað glugga út í heim, oft á málsvæði eða í menningarheim sem maður hefur ekki aðgang að ann- ars.“ – Hversu mikil áhersla er á því hjá ykkur að velja höfunda frá fram- andi málsvæðum? Hátíð lesenda og höfunda  Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst á miðvikudag  Þjófstartað á Akureyri á þriðjudag  Væntanlegur á annan tug erlendra rithöfunda 80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi Turnlyftur Sala og þjónusta Sérhæfum okkur í sölu og þjónustu á lyftum af öllum stærðum og gerðum 517 6000 Mörgum þykir eflaust mestur fengur að fá hingað erlenda höf- unda sem annars ekki sjást hér, en íslenskir rithöfundar verða líka í stóru hlutverki á bókmenntahátíð. Á miðvikudag fjalla Sjón, forseti PEN á Íslandi, og Ana Naila Zahin frá Bangladesh til að mynda um Avijit Roy og verk hans í Iðnó, en Roy var rithöfundur frá Bangla- desh sem myrtur var fyrir tveimur árum. Sama dag flytur Auður Ava Ólafsdóttir aðra opnunarræðu há- tíðarinnar í Iðnó og í framhaldi af því ræðir hún pólitík tungumálsins við Jonas Hassen Khemiri. Á fimmtudag sitja saman í pall- borði í Norræna húsinu Maja Lee Langvad og Eva Rún Snorradóttir og ræða ævisögulega ljóðlist og pólitík sjálfsins. Síðar sama dag og á sama stað verða pallborðs- umræður með Lone Theils, Jónínu Leósdóttur og Ragnari Jónassyni þar sem umræðuefnið er litróf nor- rænna glæpasagna. Í Stúdentakjallaranum verður Bókmenntabarsvar með Antoni Helga Jónssyni og Kristínu Svövu Tómasdóttur. Í Iðnó verður ljóða- upplestur með erlendum ljóð- skáldum og Bubba Morthens, Ant- oni Helga Jónssyni og Kött Grá Pje. Föstudaginn 8. september ræða Eka Kurniawan og Jón Kalman Stefánsson fegurð og ljótleika í Norræna húsinu. Um kvöldið lesa Hiromi Kawakami, Tapio Koivuk- ari, Etgar Keret, Arnaldur Ind- riðason og Sigrún Pálsdóttir upp í Iðnó. Þar verða einnig pallborðs- umræður Aase Berg, Han Kang og Kristínar Eiríksdóttur um holdið og valdið. Á laugardag ræða Etgar Keret og Sjón form og fantasíu í Nor- ræna húsinu og þar ræða líka Es- meralda Santiago og Guðrún Eva Mínervudóttir sögur, uppruna og sjálfsmyndir. Lokahóf Bókmenntahátíðar verður síðan í Iðnó á laugardags- kvöld, en á sunnudag verður dag- skrá um þýðingar í Veröld – Húsi Vigdísar og handhafar Orðstírs, heiðursverðlauna þýðenda, spjalla við höfunda sem þeir hafa þýtt í gegnum árin. Íslenskir rithöfundar áberandi Jónína Leósdóttir Kristín Svava Tómasdóttir Sigrún Pálsdóttir Auður Ava Ólafsdóttir Guðrún Eva Mínervudóttir Kristín Eiríksdóttir Atli Sigþórsson Eins og fram kemur hér til hliðar eru erlendu gestirnir vel á annan tuginn sem taka þátt í spallborði, sitja fyrir svörum eða lesa upp út verkum sínum. Aase Berg er sænskt ljóðskáld, en hún hefur einnig skrifað ritgerðir og bókmenntagagnrýni fyrir blöð á borð við Dagens Nyheter. Anne-Cathrine Riebnitzsky er danskur rithöfundur. Tvær bækur hennar hafa komið út á íslensku, Krakkaskrattar 2015 og Stormarnir og stillan nú nýverið. Christine De Luca er eitt helsta ljóðskáld Skota, sem sent hefur frá sér sex ljóðasöfn á ensku og hjalt- lensku. Ljóðasafn hennar Hjalt- landsljóð kom út á íslensku 2012. Eka Kurniawan er einn þekktasti höfundur Indónesíu sem sló í gegn með bókinni Beauty is a Wound sem væntanleg er á íslensku. Esmeralda Santiago fæddist á Puerto Rico og fluttist til Bandaríkj- anna með fjölskyldu sinni þegar hún var þrettán ára. Hún er þekktust fyrir endurminningabækur sínar, en tvær þeirra hafa komið út á íslensku, Stúlkan frá Púertó Ríkó og Næstum fullorðin. Etgar Keret er einn af vinsælustu rithöfundum Ísraels. Hann er sér- staklega þekktur fyrir smásögur sínar en hefur einnig sent frá sér myndasögur, barnabók og skrifað handrit fyrir kvikmyndir og sjón- varp. Á annan tug erlendra gesta Hiromi Kawakami Lone Theils Anne-Cathrine RiebnitzskyAase Berg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.