Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 82

Morgunblaðið - 01.09.2017, Page 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Undir trénu, þriðja kvikmynd leik- stjórans Hafsteins Gunnars Sig- urðssonar í fullri lengd, verður frumsýnd hér á landi 6. september en eins og komið hefur fram stóð til að frumsýna hana 23. ágúst sl. en frumsýningunni var frestað þegar myndin var valin til keppni á Al- þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum, í flokknum Orizzonti, fyrst íslenskra kvikmynda í fullri lengd. Þar var hún heimfrumsýnd í gær, 31. ágúst. Fyrri myndir Hafsteins, Á annan veg og París norðursins, voru gam- anmyndir með dramatísku ívafi en að þessu sinni tekst hann á við hreinræktað drama með örlitlum skammti af bleksvörtu spaugi. Í myndinni eru sagðar tvær sögur, annars vegar af skilnaði ungra hjóna og forræðisdeilu og hins vegar af hatrammri deilu út af stóru og fal- legu tré í garði eldri hjóna. Tréð skyggir á garð nágrannanna sem orðnir eru langþreyttir á sólar- leysinu sem það veldur á pallinum þeirra. Með aðalhlutverk fara Stein- þór Hróar Steinþórsson, Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson, Þorsteinn Bachmann, Selma Björnsdóttir og Lára Jó- hanna Jónsdóttir. Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn skrifuðu handrit myndarinnar í sam- einingu en þeir hafa áður unnið sam- an því Huldar skrifaði handritið að París norðursins. „Þetta er hug- mynd sem við byrjuðum að ræða um fyrir tíu árum og hann skrifaði fyrstu drögin að handritinu en ég tók svo við því og hélt áfram að þróa það og klára,“ segir Hafsteinn um söguþráð myndarinnar. Hann er spurður að því hvort handritið sé byggt á sannsögulegum atburðum og segir hann svo ekki vera, þó vissulega séu til margar sögur af deilum nágranna út af trjám hér á landi. Gömul saga og ný „Það eiga allir nágranna og það hafa allir einhverjar sögur af þeim að segja. Við búum í samfélagi og því fylgja ákveðnar málamiðlanir, bæði innan veggja heimilisins og gagnvart fólkinu sem býr í næsta húsi. Ég hef áhuga á þessum ná- grannaerjum því þar á yfirleitt í hlut venjulegt fólk sem er vant að sinni virðingu en þessi mál geta orðið svo ofboðslega heit og heiftarleg að fólk getur jafnvel farið að beita ofbeldi og sýna af sér mjög geggjaða hegð- un. Heimilið er staður sem við ráð- um yfir og ég held að fólk sé ofboðs- lega viðkvæmt fyrir því þegar einhver annar fer að segja því hvernig það eigi að haga sínu heim- ilislífi,“ segir Hafsteinn um umfjöll- unarefni myndarinnar. „Svo er þetta miklu stærri saga en bara af einhverjum nágrönnum því við getum lesið hana sem átök milli ólíkra trúarhópa eða þjóða. Eru ekki stríð mjög oft nágrannadeilur á stærri skala? Það er hugmyndin, að segja stærri sögu í gegnum þennan litla heim sem við sköpum í mynd- inni.“ Hversdagsleikinn áhugaverður – Þú hefur lengi haft áhuga á þessum málum, heyrist mér? „Ja, mér finnst þetta bara heillandi mál og þau eru mjög hvers- dagsleg. Ég hef áhuga á hversdags- leikanum því líf okkar eru að stærst- um hluta byggð upp af honum, í raun og veru en ekki stórum, drama- tískum atburðum. Ég sæki inn- blástur þangað.“  Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sig- urðsson tekst á við dramatík og harm- leik í fyrsta sinn í þriðju kvikmynd sinni, Undir trénu  Hatrammur hjónaskilnaður og deilur nágranna út af tré  Heimsfrumsýnd í Feneyjum Þjáð Edda Björgvinsdóttir í hlutverki hinnar þjáðu Ingu, í dramatísku atriði þar sem garðdvergar koma við sögu. Sólbað Selma Björnsdóttir fer með hlutverk Eybjargar sem er ósátt við skuggann af tré nágrannanna. Alvara Steindi er þekktur af gamanleik en sýnir á sér nýja og mun alvarlegri hlið í kvikmynd Hafsteins. „Ég vil koma fólki á óvart“ Einbeittur Hafsteinn Gunnar við tökur á Undir trénu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.