Morgunblaðið - 01.09.2017, Síða 84
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þörfin fyrir Tjarnarbíó er meiri en
nokkru sinni áður, sem sýnir sig í því
að við náum ekki að hýsa allan þann
fjölda sýninga sem óskað er eftir að
fái hér inni,“ segir Friðrik Friðriks-
son, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós,
um komandi leikár sem hefst í kvöld
með frumsýningu á dansverkinu
Kæra manneskja eftir Valgerði Rún-
arsdóttur. Með henni á sviðinu verða
Ragnar Ísleifur Bragason, Snædís
Lilja Ingadóttir og Védís Kjartans-
dóttir. „Verkið fjallar um hringrás
lífsins,“ segir Friðrik og tekur fram
að markmið hópsins sé að fá áhorf-
endur til að sjá stöðu sína í hringrás
lífsins í nýju ljósi.
Alls verða þrjú dansverk frum-
sýnd á árinu. „Í mars er frumsýnt
Crescendo eftir Katrínu Gunnars-
dóttur, sem fékk Grímu-verðlaunin
sem dansari ársins á liðnu leikári
fyrir sólósýninguna Shades of
History. Hér leitar hún innblásturs í
vinnusöngva, hvernig það að raula
og syngja hefur verið notað í gegn-
um tíðina til að létta undir líkamlegri
vinnu og stilla saman strengi,“ segir
Friðrik. Dansarar verða Heba Eir
Kjeld, Snædís Lilja Ingadóttir og
Védís Kjartansdóttir.
„Um miðjan apríl er komið að
Vakúm – Poppóperu um lofttæm-
ingu eftir Melkorku Sigríði Magnús-
dóttur sem einnig semur tónlistina í
samstarfi við Árna Rúnar Hlöðvers-
son undir merkjum Milkywhale,“
segir Friðrik og tekur fram að í
tengslum við þá frumsýningu verði
slegið upp nokkurs konar danshátíð í
Tjarnarbíói þar sem öll þrjú dans-
verk leikársins verða sýnd eina og
sömu helgina. Flytjendur í Vakúm
eru auk Melkorku þau Auðunn Lúth-
ersson, Ásgeir Helgi Magnússon,
Elísa Lind Finnbogadóttir og Gunn-
ar Ragnarsson. „Melkorka hefur í
fyrri sviðsverkum leitast við að
varpa nýrri sýn á samband og mögu-
leika sönglistar og danslistar. Vak-
úm er þar engin undantekning,“ seg-
ir Friðrik og tekur fram að vakúm-
ryksugur muni leika lykilhlutverk í
sýningunni.
Langar í meira erlent samstarf
„A Thousand Tongues nefnist
gestasýning sem sýnd verður í sept-
ember. Um er að ræða sambland af
tónleikum og leiksýningu úr smiðju
bandarísku listakonunnar Samönthu
Shay sem rekur hópinn Source
Material, en um flutninginn sér
danska söng-, leik- og tónlistarkonan
Nini Julia Bang. Sýningin var frum-
sýnd á Ólympíumóti í leiklist sem
haldið var í pólsku borginni Wroclaw
fyrr á árinu. Þetta er í annað sinn
sem Source Material sýnir í Tjarnar-
bíói því hópurinn heimsfrumsýndi
óperuna Of Light hér sumarið 2016
við gríðargóðar viðtökur,“ segir
Friðrik og tekur fram að mikill fjöldi
fyrirspurna berist frá erlendum
sviðslistahópum sem óski eftir því að
sýna hérlendis. „Okkur langar í
meira erlent samstarf, en lúxusvand-
inn er að við önnum hreinlega ekki
eftirspurninni yfir vetrartímann.
Gaman væri hins vegar nýta húsið til
frekara sýningarhalds yfir sumar-
mánuðina. Við gætum þannig boðið
upp á residence-prógramm þar sem
erlendir hópar gætu komið hingað,
unnið og sýnt afraksturinn.“
Barnaleikrit nær allt leikárið
Íó nefnist nýtt barnaleikrit eftir
Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í leik-
stjórn Aude Busson sem frumsýnt
verður í október. „Verkið fjallar um
hrafninn Íó sem leitar ásjár hjá Haf-
rúnu, níu ára stelpu, og biður hana
að hjálpa sér við að bjarga heim-
kynnum sínum í undirheimum. Þetta
er þroskasaga um hugrekki, vináttu,
missi og leit að jafnvægi milli ljóss og
myrkurs,“ segir Friðrik. Hafrúnu
leikur Gríma Kristjánsdóttir, en
Aldís Davíðsdóttir stjórnar brúðum
sem hún hannar í samvinnu við
Sigríði Sunnu Reynisdóttur sem
einnig hannar leikmynd og búninga.
„Frá fyrra leikári snúa aftur í
september barnasýningarnar Á eig-
in fótum og Tröll en í desember er
svo komið að Ævintýrinu um Auga-
stein, en svo skemmtilega vill til að
bókin um Augastein verður endur-
útgefin í október. Í janúar frumsýnir
leikhópurinn Lotta Galdrakarlinn í
Oz í leikgerð Ármanns Guðmunds-
sonar og leikstjórn Ágústu Skúla-
dóttur. Við verðum því með barna-
sýningar í boði um nær hverja helgi í
allan vetur,“ segir Friðrik og tekur
fram að ánægjulegt sé að geta hýst
fyrstu innisýningu Lottu.
Fyrsta innisýning Lottu
„Leikhópurinn Lotta hefur getið
sér gott orð fyrir útisýningar sínar
sl. áratug. Þau hyggjast fara aftur í
ræturnar og endurvinna Galdrakarl-
inn í Oz sem þau frumsýndu í Elliða-
árdalnum sumarið 2008, en að þessu
sinni fyrir innisvið,“ segir Friðrik.
Höfundar tónlistar eru Ármann,
Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir
og Eggert Hilmarsson. Leikarar eru
Anna Bergljót Thorarensen, Baldur,
Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirs-
dóttir og Sigsteinn Sigurbergsson.
Ástarsaga úr samtímanum
„Við erum stolt af að hýsa stóran
hluta af alþjóðlegu sviðslistahátíð-
inni Everybody’s Spectacular sem
Lókal og Reykjavík Dance Festival
standa fyrir í nóvember,“ segir Frið-
rik, en nánari upplýsingar um hátíð-
ina verða kynntar þegar nær dregur.
Síðasta frumsýningin þetta árið er
Sol eftir Hilmi Jensson og Tryggva
Gunnarsson í leikstjórn þess síðar
nefnda í desember. „Leikritið
byggja þeir á raunverulegri ást-
arsögu úr samtímanum. Þarna er
verið að skoða skil og samspil tölvu-
heima og raunheima. Er hægt að
verða ástfanginn í tölvuheimi? Og er
það yfirfæranlegt yfir í raunheima?
Er hægt að lifa lífinu í tölvuheimi, en
ekki að fullu í raunheimum?“ segir
Friðrik og bendir á að Sveinn Ólafur
Lárusson, sem kenndur er við Nexus
aðstoði við búningahönnun. Sigríður
Soffía Níelsdóttir er hreyfihönnuður.
Valdimar Jóhannsson hannar leik-
mynd, ljós og hljóð í samvinnu við
leikstjórann og Hafliða Emil Barða-
son. Auk Hilmis leika í verkinu þau
Salóme Rannveig Gunnarsdóttir og
Kolbeinn Arinbjörnsson.
Uppistand með söng
Í desember verður þriðja árið í röð
boðið upp á jólasýningu spunahóps-
ins Svansins. „Þeir kynna spunasýn-
inguna með þeim orðum að þetta sé
alveg eins og Jólagestir Bó, nema
verri söngvarar,“ segir Friðrik kím-
inn. Svanurinn var stofnaður fyrir
fjórum árum og samanstendur af sjö
spunaleikurum úr röðum Improv Ís-
land. Þeirra á meðal eru Guðmundur
Felixson og Auðunn Lúthersson.
„Frá og með janúar verður Kári
Viðarsson síðan með tónleika-
uppistand að loknum sýningum und-
ir yfirskriftinni Frjáls framlög.
Hann bauð upp á þetta uppistands-
prógramm líka síðasta vetur sem féll
í afar góðan jarðveg,“ segir Friðrik.
Ljóðrænn kabarett um ástina
Leikhópurinn RaTaTam frum-
sýnir Ahhh í febrúar í leikstjórn
Charlotte Bøving. „RaTaTam, sem
valinn var listhópur Reykjavíkur-
borgar 2017, vann með skuggahliðar
mannlífsins í Suss! á liðnu leikári þar
sem heimilisofbeldi var til skoð-
unar,“ segir Friðrik og rifjar upp að
sýningin hafi verið sýnd á Copen-
hagen Stage Festival í sumar sem
leið við góðar viðtökur. „Nú hyggst
hópurinn fara úr myrkrinu í ljósið og
skoða ástina í fyndnum og ljóð-
rænum kabarett,“ segir Friðrik, en
sýningin verður unnin út frá ljóð-
heimi Elísabetar Kristínar Jökuls-
dóttur. Meðal leikara eru Halldóra
Rut Baldursdóttir, Hildur Magnús-
dóttir, Laufey Elíasdóttir og Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson.
Haturshátíð Hans Blæs
Hans Blær nefnist nýtt leikrit eft-
ir Eirík Örn Norðdahl í leikstjórn
Vignis Rafns Valþórssonar sem
Óskabörn ógæfunnar frumsýnir í
mars. Leikhópinn skipa Sveinn Ólaf-
ur Gunnarsson, Sólveig Guðmunds-
son, Jörundur Ragnarsson, Birna
Rún Eiríksdóttir og Kjartan Darri
Kristjánsson. „Óskabörn ógæfunnar
setti upp Illsku í Borgarleikhúsinu í
fyrra, en þar var um að ræða leik-
gerð á samnefndri skáldsögu Eiríks.
Að þessu sinni skrifar Eiríkur leik-
ritið fyrst og ætlar í framhaldinu að
skrifa bók um sama efni. Líkt og í
Illsku vinnur leikhópurinn áfram
með popúlismann, firringu nú-
tímans, nettröll og samfélagsmiðl-
ana. Þau lýsa sýningunni sem „tótal
hatefest“,“ segir Friðrik og bendir á
að titilpersóna verksins sé gjálífis-
tröll með egó í hjartastað.
Tíst áhorfenda í beinni
Bergmálsklefinn nefnist ný ópera
sem Alþýðuóperan frumsýnir í sam-
starfi við Aequitas Collective í maí.
Leikstjórn og textagerð er í höndum
Ingunnar Láru Kristjánsdóttur, en
höfundur tónlistar er Michael Bette-
ridge. Flytjendur eru Rosie Middle-
ton, Ísabella Leifsdóttir, Jónína
Björt Gunnarsdóttir og Ívar Helga-
son. „Bergmálsklefinn fjallar um
upplifanir fjögurra einstaklinga af
Twitter. Á sviðinu verður skjár með
Twitter feed í beinni þar sem áhorf-
endur geta tíst beint inn í atburða-
rásina,“ segir Friðrik og tekur fram
að um áhugaverða tilraun verði að
ræða.
Karlmenn í nútímanum
Them nefnist síðasta frumsýning
leikársins sem verður í maí, en hún
kemur úr smiðju Spindrift theatre.
Þar er um að ræða sviðslistaverk í
leikstjórn Önnu Korolainen, sem
leikur ásamt Marjo Lahti, Bergdísi
Júlíu Jóhannsdóttur, og Tinnu Þor-
valds Önnudóttur, en dramatúrg
verksins er Minerva Pietilä. „Kon-
urnar fjórar leggja upp í rannsókn-
arferðalag til að öðlast skilning á því
hvað það er að vera karlmaður í nú-
tímasamfélagi,“ segir Friðrik og
bendir á að handritið byggist á tug-
um viðtala sem aðstandendur hafa
tekið við karlmenn á Vesturlöndum.
Mikil gróska í Tjarnarbíói
Þess má að lokum geta að nokkrar
sýningar frá fyrra leikári snúa aftur
nú á haustmánuðum. Í síðustu viku
hófust að nýju sýningar á Í samhengi
við stjörnurnar eftir Nick Payne í
leikstjórn Árna Kristjánssonar. Í
september hefjast sýningar á Fyrir-
lestur um eitthvað fallegt, úr smiðju
SmartíLab-hópsins og leikstjórn
Söru Martí; Sóleyju Rós ræstitækni
eftir Maríu Reyndal og Sólveigu
Guðmundsdóttur í leikstjórn Maríu
og danssýningunni Fubar eftir Sig-
ríði Soffíu Níelsdóttur.
„Þessar sýningar, auk barnasýn-
inganna Á eigin fótum úr smiðju
Miðnættis og Lost Watch Theatre í
leikstjórn Agnesar Wild, Tröll úr
smiðju Handbendis brúðuleikhúss
undir stjórn Gretu Clough og Ævin-
týrið um Augastein eftir Felix
Bergsson í samvinnu við Kolbrúnu
Halldórsdóttur og Helgu Arnalds
eru allt sýningar sem hafa hætt fyrir
fullu húsi og eiga fullt inni,“ segir
Friðrik og tekur fram að sérstaklega
ánægjulegt sé að geta boðið Grímu-
verðlaunasýninguna Sóleyju Rós aft-
ur á svið, en sýningin var verðlaunuð
fyrir besta leikrit liðins leikárs og
Sólveig Guðmundsdóttir var valin
leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir
túlkun sína á titilhlutverkinu. Sól-
veig hlaut fyrir sama hlutverk og leik
sinn í Illsku einnig Menningar-
0verðlaun DV 2016.
„Leikárið verður þannig mjög fjöl-
breytt og einkennist af mikilli
grósku. Tvö verkanna fjalla um staf-
rænt líf andspænis lífi í raunheimum,
þ.e. Sol og Bergmálsklefinn. Kynja-
hlutverkin eru gegnumgangandi
þema í Ahhh, Them, Hans Blæ og
Bergmálsklefanum. Barnaleikhúsið
og dansinn verða fyrirferðarmikil á
leikárinu. Þetta eru þemu og við-
fangsefni sem birtast okkur eftir að
dagskráin er sett saman.“
„Þörfin meiri en nokkru sinni“
Boðið verður upp á þrjár nýjar danssýningar, óperu og tvö ný barnaleikrit í Tjarnarbíói í vetur
Óskabörn ógæfunnar efna til haturshátíðar meðan RaTaTam skoðar fallegar hliðar ástarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Gróska „Leikárið verður þannig mjög fjölbreytt og einkennist af mikilli grósku,“ segir Friðrik Friðriksson.
„Við val á verkefnum hingað í Tjarnarbíó, sem er heim-
ili sjálfstæðra sviðslista, horfum við til gæða þeirra.
Það snýst um listrænt innihald, bakgrunn og reynslu
listamannanna og hversu vel verkefnið er fjármagnað,
enda skiptir okkur máli að listamenn fái greitt fyrir
vinnu sína,“ segir Friðrik og bendir á að líkt og síðustu
ár sé meirihluti verkefna styrktur af menningar- og
menntamálaráðuneytinu í gegnum Leiklistarráð. Með
Friðriki í stjórn Tjarnarbíós sitja Ása Richardsdóttir,
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Hannes Óli Ágústsson og
Sveinn Óskar Ásbjörnsson.
„Meðal þess sem við horfum til er hvort nýmæli fel-
ist í verkefninu, þ.e. hvort það búi yfir eitthverju sem vanti í leikhúsflór-
una,“ segir Friðrik og bendir á að sökum þessa skori frumsköpun ávallt
hátt í verkefnavalinu. Alls verða frumsýndar tíu sýningar í Tjarnarbíói á
komandi leikári. Um er að ræða danssýningar, óperur, barnasýningar og
leikrit, en allar eiga sýningarnar það sammerkt að um nýsköpun er að
ræða. Meðal væntanlegra sýninga eru Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl,
Íó eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Sol eftir Hilmi Jensson og Tryggva
Gunnarsson og Crescendo eftir Katrínu Gunnarsdóttur.
„Hlutverk okkar er að styðja við sjálfstæðar sviðslistir og yfirleitt eru
sjálfstæðir sviðslistahópar að fást við viðfangsefni samtímans og þannig
með ferskasta sjónarhornið á samfélagið,“ segir Friðrik og bendir á að
styrkjakerfið geri það að verkum að erfitt sé að bregðast umsvifalaust við
hlutum í samtímanum í sviðsverkum. „Hugmynd sem kviknar núna getur
ekki orðið að veruleika fyrr en í fyrsta lagi næsta haust, eigi verkefnið að
vera sett upp með styrk frá Leiklistarráði,“ segir Friðrik og bendir á að
uppfærslur Sóma þjóðar á MP5 og Könnunarleiðangri til Koi hafi verið til-
raun til að skoða hversu hratt leikhúsformið geti brugðist við samfélags-
umræðu líðandi stundar, en þær sýningar voru settar upp án styrkja.
„Snýst um listrænt innihald“
FRUMSKÖPUN ÁBERANDI Í FRUMSÝNINGUM TJARNARBÍÓS
Katrín Gunnarsdóttir