Fréttablaðið - 02.11.2012, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
UAIVIAN A HKkKKJAVUKU HVItaDJOm-
inn Tatqiq skemmti sér hið besta við
að reyna að sökkva Frankenstein-
brúðu á hrekkjavöku nú í vikunni í
dýragarði í San Diego 1 Bandaríkj-
unum. NORDICPHOTOS/AFP i
655 sýni reyndust hrein:
Finnst aðeins á
tveimur bæjum
landbúnaður Sýnatökur vegna
smitandi barkabólgu benda til að
sjúkdómurinn sé bundinn við tvö
bú á Austurlandi.
Matvælastofnun hafa borist nið-
urstöður úr öllum mjólkurtank-
sýnum, alls 655 sýnum, frá Til-
raunastöðinni á Keldum og voru
þau öll neikvæð fyrir mótefnum
gegn herpesveirunni sem veldur
sjúkdómnum.
Sýnin voru tekin á öllum þeim
búum sem hafa lagt inn mjólk
í mjólkurstöð á undanförnum
dögum.
Enn er beðið niðurstaðna úr
sýnum sem voru send til rann-
sóknar í lok síðustu viku. Fyrir-
hugaðar eru frekari sýnatökur,
meðal annars á búunum tveim-
ur, til að kanna nánar útbreiðslu
innan þeirra.
- shá
UtanríkisráðherrarSvíþjóðarog Finnlands um loftrýmisgæslu við ísland:
Engin breyting á afstöðu til NATO
varnarmál Utanríkisráðherrar
Finnlands og Svíþjóðar segja vilja-
yfirlýsinguna um þátttöku í loft-
rýmisgæslu íslands í samstarfi
við Noreg ekki fela í sér breyt-
ingu á afstöðu til eða samstarfi við
NATO. Ríkin eru ekki meðlimir í
bandalaginu og hafa ekki tekið
þátt í viðlíka verkefnum áður.
„Við höfum gert það ljóst að loft-
rýmisgæsla Finnlands við ísland
er ekki til marks um breytt við-
horf eða samstarf við NATO.
Það er algerlega útilokað," hefur
Hufvudstadsbladet í Finnlandi
eftir Erkki Tuomioja, utanríkis-
ráðherra Finnlands.
Carl Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, tekur í sama streng og
segir verkefnið í líkingu við eftir-
lit sem flugherir ríkjanna sinna nú
þegar í sameiningu yfir Lapplandi,
Finnmörku og Norður-Svíþjóð. Það
eina sem breytist sé staðsetningin.
„Svíar og Finnar geta ekki og
munu ekki taka yfir verkefni
NATO á íslandi," sagði Bildt.
Sænskar og finnskar flugvél-
ar munu taka þátt í loftrýmis-
gæslunni þegar hún er á höndum
Norðmanna, en slíkt ber næst upp
á vorið 2014.
Komi til þess að óboðinn gest-
ur stefni til íslands mega Svíar
og Finnar einungis ljósmynda og
reyna að bera kennsl á viðkomandi
flugvél. Gerist frekari aðgerða
þörf verður það á könnu Norð-
manna að bregðast við.
Nánari útfærsla á verkefn-
um liggur ekki enn fyrir, enda á
NATO eftir að taka málið fyrir og
þjóðþing ríkjanna munu svo sam-
þykkja verkefnið að lokum.
-t>j
LOFTRÝMISGÆSLA Þátttaka Finnlands
og Svíþjóðar í loftrýmisgæslu Islands
heyrir til tíðinda, enda eru þau ekki í
NATO. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjölmargir miðará lceland Airwaves-hátíðina eru í endursölu á netinu:
Brask með hátíðarmiða vandamál
menning Mikið magn Iceland
Airwaves-tónleikamiða er í boði á
svörtum markaði fyrir hátíðina í
ár. Tugir miða eru í boði á vefsölu-
torginu Bland.is og kosta þeir frá
12 þúsund krónum upp í 30 þúsund.
Hátíðin hófst á miðvikudag og
stendur alla helgina. Miðar á há-
tíðina seldust upp um miðjan ágúst,
fyrr en nokkru sinni.
„Það er alltaf fólk sem kaupir
miða og fer í einhverja ævintýra-
leit með þá,“ segir Grímur Atla-
son, framkvæmdastjóri Iceland
Airwaves. Hann viðurkennir að
svartamarkaðsbrask sé vandamál.
„Fólk getur ekki vitað hvort það er
að kaupa ósvikna vöru.“
Hátíðarhaldarar Iceland Air-
waves heimila ekki endursölu á
miðunum en Grímur segir erfitt að
koma í veg fyrir það. Hann spyr sig
hvers vegna fólk kaupi ekki miða í
GRÍÐARLEG EFTIRSPURN Hátíðin er mjög eftirsótt ár hvert og fólk er tilbúið að borga
tugi þúsunda fyrir miða á hátíðina eftir að þeir seljast upp. fréttablaðið/arnpór
gesta á lceland Airwaves í ár eru
erlendir. Það er metfjöldi erlendra gesta.
5.000 voru (boði fyrir hátlðina (ár
MIÐARog seldust upp 10'águst'
'yy'T troða upp á hátíðinni
“ “ ér auk fjölmargra sem
NÖFN eru utan dagskrár.
forsölu mun ódýrar en miðinn býðst
í endursölu þegar hátíðin er hafin.
„Það eru ekki mörg armbönd sem
á eftir að ná í, við erum með það
allt á skrá. En það er alls konar fólk
sem langar að fara að skemmta sér
núna,“ segir Grímur.
Miðarnir sem verið er að selja á
vefnum og í endursölu eru ávísan-
ir á armböndin sem hátíðargestir
verða að bera til að komast inn á
tónleikastaði. - bþh