Fréttablaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
www.dacia.is
Dacia Duster
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Kr. 3.990 þús.
Dísil 53L/100 km
QQH
entertainment
Stephen Fry fer á kostum
í skemmtilegum þáttum
BBC ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Grískt samfélag að
komast á ystu nöf
Langvarandi niðurskurður hefur haft mikil áhrif á daglegt líf í Grikklandi.
Á hverjum degi missa þúsundir manna vinnuna og þeir sem fá laun greidd á
réttum tíma telja sig heppna. Mótmæli eru nánast daglegur viðburður.
STUND MILLI STRÍÐA Tveir mótmælendur tylltu sér stundarkorn meðan lögreglan
beið átekta. nordicphotos/afp
grikkland, ap Á sjúkrahúsi einu í
Aþenu hefur verið sett upp skilti
á vegg þar sem sjúklingar og ætt-
ingjar þeirra eru beðnir um að
haga sér sómasamlega: „Læknar á
vakt hafa ekki fengið greidd laun
síðan í maí,“ stendur á skiltinu.
„Vinsamlega sýnið störfum þeirra
virðingu."
Skilti af þessu tagi sjást orðið
víða í Grikklandi, enda missa um
þúsund manns vinnuna þar í landi
daglega og þeir sem fá greidd laun
sín á réttum tíma telja sig vera
heppna.
Við fyrstu sýn virðist lífið ganga
sinn vanagang í Aþenu. Mótmæli
stór eða smá eru samt nánast dag-
legur viðburður og reglulega má
sjá hópa þjóðernisöfgamanna berja
á útlendingum, en hópar stjórn-
leysingja sjást líka berja þjóðernis-
öfgamenn.
„Þjóðfélagið okkar er á heljar-
þröm,“ sagði Nikos Dendias, ráð-
herra í grísku stjórninni, stuttu
eftir að skipasmíðamenn í verk-
falli réðust inn á lóð varnarmáía-
ráðuneytisins. „Ef okkur tekst ekki
að halda okkur í skefjum, ef okkur
tekst ekki að halda í samstöðuna,
ef okkur tekst ekki að halda okkur
innan ramma laganna, þá óttast ég
að við endum í frumskóginum.“
Þrjú ár eru liðin síðan gríska
stjórnin upplýsti hin evruríkin um
að fjárlagahalli Grikklands væri
mun hærri en áður hefði verið full-
yrt. Þetta varð upphafið að kreppu
evrusvæðisins, sem enn íþyngir
nokkrum ríkjum þess verulega.
Ótal fundir hafa verið haldnir, þar
sem bæði Evrópusambandið og
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa
reynt að finna leiðir til að halda
vandanum í skefjum.
Grikkland hefur þurft að skera
harkalega niður í ríkisfjármálum,
meðal annars með því að lækka
laun og hækka skatta, í skiptum
fyrir lán úr neyðarsjóði ESB og
frá AGS upp á samtals 240 millj-
arða evra, eða nærri 40.000 millj-
arða króna.
Niðurskurðurinn hefur komið
harkalega niður á almenningi í
Grikklandi, sem sér ekki fram á
annað en djúpa kreppu næstu árin.
Þúsundir fyrirtækja hafa farið á
hausinn, atvinnuleysi er komið yfir
25 prósent og meira en helmingur
yngri kynslóðarinnar er atvinnu-
laus.
Stjórnvöld hafa síðustu vikurn-
ar þurft að lofa enn frekari niður-
skurði til að uppfylla þau skilyrði
sem ESB og AGS setja fyrir næstu
innborgun úr neyðarsjóðnum. Á
leiðtogafundi ESB síðar í þessum
mánuði ræðst hvort nýjustu loforð
grísku stjórnarinnar verða látin
duga.
gudsteinn@frettabladid.is
VARA SEM
ÁHEIMA
ÍÞÍNU ELDHÚSI
bCnus HAGKAUP
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus