Fréttablaðið - 02.11.2012, Page 30
30
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
krossgáta
lArétt
2. drjúpa, 6. nudd, 8. er með, 9. rölt,
11. tveir, 12. rými, 14. að baki, 16.
tvíhljóði, 17. bar, 18. suss, 20. stöðug
hreyfing, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. betl, 3. eftir hádegi, 4. yfirkon-
ungur, 5. ái, 7. niðurstaða, 10. þukl,
13. stykki, 15. komst, 16. umfram, 19.
gyltu.
LAUSN
•ns ‘61 '>|ne -gi 'jppu
•SL '>|}s -£i 'j?>| "OL 'usnepn ■£ '|je •£
'ues!a>| -fr 'qa •£ 'deus -j :i iq>iom
•snu>) it 'Q! -OL 'ssn -81 '?J>|
Ll 'ne ‘9i 'ueye 'trL 'ss?|d u 'n ‘n
'>|je -6 'jarj ‘8 'nu -9 'e>|3| t rii^Myi
Listskautasýning
í Egilshöll
- Opið hús - aðgangur ókeypis
Landsliðsstúlkur Bjarnarins sýna ótrúlegar listir á
ísnum í Egilshöll laugardaginn 3. nóv. kl: 13:50
Svellið er opið, tónlist, fjör og diskóljós og allir fá
leiðsögn á skautum.
Að lokinni sýningu svara stúlkurnar og leiðbeinendur
þeirra spurningum varðandi listskautaíþróttina en
stúlkurnar okkar keppa reglulega við þær bestu í Evrópu
og hafa lent í verðlaunasætum.
Notið tækifærið og kynnist glæsilegri íþrótt
Samtímis lýkur skráningu á listskautanámskeið fyrir
6-12 ára stelpur og stráka sem hefst sama dag og stendur
til 8. desember og lýkur með glæsilegri jólasýningu fyrir
aðstandendur krakkanna.
Námsleiðið kostar 10.000 krónur og hægt er að fá skauta
lánaða.
Nánari upplýsingar:
Berglind Rós sími 899-3058 / Erlendína sími 694 3990
Hreysti - Gleði - Vellíðan - Hreyfing - Styrkur - Samhæfing
Rok og rokk í Reykjavík og
draumar miðaldra manns
BAKÞANKAR
Björns Þórs
Sigbjörns-
sonar
Þótt veðrið sé leiðinlegt er ekki sami
gráminn yfir haustinu nú þegar Reykja-
vík hefur tekið við árlegu tímabundnu hlut-
verki sínu sem rokkhöfuðborg heimsins. Ice-
land Airwaves-hátíðin er hafin með öllum
sínum mögnuðu viðburðum og fólk klæðir
bara af sér rokið en er samt smart, þökk sé
tískuhönnuðum.
ICELAND Airwaves er öðrum þræði við-
skiptahugmynd sem snýst um að laða
útlendinga til landsins utan háannatímans.
Hún hefur svínvirkað, því árlega koma
nokkur þúsund erlendir ævintýraþyrstir
tónlistaráhugamenn á hátíðina og eyða
hér fullt af peningum. í hina röndina
er þetta gluggi fyrir íslenskt tónlistar-
fólk, sem gefst tækifæri til að spila
fyrir erlenda útgefendur, umboðsmenn
og blaðamenn og vinna lönd í framhaldinu.
Við vitum hvernig það hefur gengið.
VELGENGNI íslenskra tónlistar-
manna í útlöndum er náttúrulega
rannsóknarefni. Ótrúlega
margir hafa slegið í gegn og
eru reglulega á tónleika-
ferðalögum vítt og breitt
um heiminn. En það
þarf ekki útlönd til.
íslendingar eru sjálfir sólgnir í íslenska
tónlist og taka hverju nýju tónlistarundrinu
opnum örmum. Það magnaða er að fjöldi
íslenskra tónlistarmanna getur lifað góðu
lífi á list sinni.
ÍSLENSKU hljómsveitirnar eru eiginlega
aldrei flottari en á Iceland Airwaves. Þær
gefa allt í þetta enda aldrei að vita nema
að í salnum leynist útgefandi með milljón
dollara samning. Hann væri þá innan um
alls konar fólk á öllum aldri, en ekki síst fólk
sem einu sinni taldist miðaldra. Það lítur
hins vegar ekki á sig sem miðaldra. Þetta
er fyrsta heila kynslóðin sem ætlar að vera
hipp og kúl fram í rauðan dauðann. Þessi
kynslóð klæðist eins og tuttugu árum yngra
fólk, talar eins og það og hlustar á sömu tón-
list og það. Flestir láta þar við sitja en sumir
láta sig dreyma um að vera enn tvítugir.
ÞEIR draumar kunna líka að snúast um
gamlar vonir sem aldrei urðu. Eins og til
dæmis að vera bassaleikari í frægri hljóm-
sveit og standa á sviði fyrir framan fullan
sal af fólki og spila rokk. Og þar sem hæfi-
leikarnir voru engir og því nauðsynlegt að
feta aðrar slóðir í lífinu mæta hinir sömu á
Iceland Airwaves, horfa á bassaleikarann og
hugsa; bara að ég væri hann.
myndasögur
Pondus Eftir Frode 0verli
Þessar dömur
sem þú varst
með á undan
mér Jói, voru
það fyrirsætur
upp til hópa?
Nei... ein var
reyndar fyrir-
sæta! Mjög
sæt reyndar!
En hún lenti í
vinnuslysi!
Vinnuslysi?
Hún
getur ekki
gengið, Jói!
Já.. það
var tíma-
bundin
gleði!
Hvar passa
ég inn
í pessa
mynd, Jói?
Þú er sko
á topp
tíu. Ekki
spurning!
Nei, nei! Numero uno!!
UNO!!
“ÍUNOO'
Gelgjan
Síðan Palli fór eru húsverkin
leikur einn, ég þarf ekki að
keyra neitt og mér hefur tekist
að skrira smávegis.
Handan við hornið
EftirTony Lopes