Fréttablaðið - 03.03.2018, Síða 4
stjórnsýsla „Það er mín skoðun að
almennt eigi að auglýsa stöður for-
stöðumanna ríkisins til að tryggja
faglegt mat, eðlilega endurnýjun
og gagnsæi í opinberri stjórnsýslu.
Þess vegna eru það vonbrigði að
við höfum ekki getað auglýst þetta
vegna þessara mistaka sem má
rekja allt til ársins 2007,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra.
Fréttablaðið greindi frá því hinn
24. janúar að hagsmunaaðilar í
kvikmyndaiðnaðinum hefðu skorað
á mennta- og menningarmálaráð-
herra að auglýsa starf forstöðu-
manns Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands laust til umsóknar áður en
skipunartími Laufeyjar Guðjóns-
dóttur rynni út. Ef auglýsa á starfið
þarf, samkvæmt 23. grein laga um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna, að tilkynna núverandi for-
stöðumanni það sex mánuðum
áður en skipunartíminn rennur út.
Vegna mistakanna sem Lilja vísar
til verður staðan ekki auglýst. Þau
felast í því að í bréfi menntamála-
ráðuneytisins sem dagsett var 8.
ágúst 2007 var skipunartími Lauf-
eyjar sagður framlengjast til 17.
ágúst 2013 í stað 17. febrúar 2013
eins og hefði átt að vera. Sú loka-
dagsetning var skráð í ráðuneytinu.
Endurskipan Laufeyjar árið 2013
var svo skráð 17. ágúst 2013 til 17.
ágúst 2018, en hefði átt að vera til
17. febrúar. Þetta þýðir að það hefði
átt að vera búið að auglýsa stöðuna
fyrir 17. ágúst á síðasta ári en ekki
17. febrúar síðastliðinn.
Ráðuneytið telur sig eiga að bera
hallann af mistökunum. Því fram-
lengist ráðningartími Laufeyjar
sjálfkrafa til ársins 2023. Ráðuneytið
fékk auk þess utanaðkomandi lög-
fræðiálit sem staðfesti þessa túlkun.
Lilja tekur fram að afstaða sín
um að auglýsa eigi stöður forstöðu-
manna sé grundvallarafstaða en
hafi ekkert með störf núverandi for-
stöðumanns að gera. Árleg framlög
ríkissjóðs til Kvikmyndamiðstöðvar
nema rétt rúmlega 1,1 milljarði
króna. „Mér finnst eðlilegt þegar
verið er að útdeila svona miklum
peningum inn í svona þröngan geira
að það sé skipt um mann í brúnni
reglulega,“ sagði Snorri Þórisson,
stjórnarformaður Pegasusar fram-
leiðslufyrirtækis, þegar Frétta-
blaðið ræddi við hann á dögunum.
Hann sagði líka að forstöðumaður
Kvikmynda miðstöðvar þyrfti að
berjast fyrir því að fá meiri fjár-
muni í sjóðinn til að hafa úr meiru
að moða. „Ég hef ekki orðið var við
að það hafi gerst,“ sagði Snorri.
jonhakon@frettabladid.is
Staða forstöðumanns ekki laus
vegna mistaka fyrir ellefu árum
Embætti forstöðumanns Kvikmyndasjóðs verður ekki auglýst. Ástæðan er mistök sem gerð voru í mennta-
málaráðuneytinu fyrir meira en áratug. Ráðherra segir niðurstöðuna valda vonbrigðum enda sé eðlilegt að
auglýsa. Hagsmunaaðilar vildu að staðan yrði auglýst en Laufey Guðjónsdóttir á nú rétt á henni til 2023.
Kristján Þór Júlíusson var menntamálaráðherra áður en Lilja Alfreðsdóttir tók við. Ef auglýsa hefði átt stöðu forstöðu-
manns Kvikmyndamiðstöðvar, þá hefði þurft að gera það á meðan Kristján var ráðherra. FréttAbLAðið/Ernir
Páll Winkel
forstjóri Fangelsis-
málastofnunar
sagði að skil-
greina þyrfti
heilbrigðisþjón-
ustu í fangels-
um, fjármagna
hana og veita.
Búið væri að gera
úttektir og skýrslur og fyrir lægi að
óháðir eftirlitsaðilar hefðu ítrekað
gert alvarlegar athugasemdir við
heilbrigðisþjónustu og sérstaklega
geðheilbrigðisþjónustu fanga.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
alþingismaður
sagði grafalvarlegt að
íslensk stjórnvöld
hefðu heimilað
flugfélaginu Air
Atlanta að flytja
vopn til Sádi-
Arabíu þaðan
sem þau gætu
borist til Sýrlands og
Jemen. Fráfarandi mannréttinda-
stjóri SÞ hefði lýst löndunum
sem sláturhúsum. Íslensk lög og
alþjóðasáttmálar hefðu lagt bann
við að vopn væru flutt til svæða
þar sem þau væru notuð gegn
almenningi.
Margrét Örnólfsdóttir
formaður Félags leikskálda og hand-
ritshöfunda
kvaðst telja það
óheilbrigt fyrir
kvikmyndagerð
að í Kvikmynda-
ráði sæti alltaf
sama fólkið og
stýrði því hvernig
myndir væru
gerðar, hvaða sögur væru sagðar
og hvernig þær væru sagðar. Hún
sagðist telja gott ef þak yrði sett á
lengd setu ráðgjafa.
Þrjú í fréttum
Fangelsi, vopn
og kvikmyndir
tölur vikunnar 25.02.2018 til 03.03.2018
47%
þeirra sem afstöðu
tóku í könnun
Fréttablaðsins og
frettabladid.is telja
að nýr Landspítali
eigi ekki að rísa við
Hringbraut. 39%
segja að spítalinn
eigi að rísa við Hring-
braut. 13% kváðust
vera hlutlaus.
31,5
milljónir
féllu í fyrra undir þá skilgreiningu að
vera með skaðlegt neyslumynstur
á áfengi. Sé hlutfallið heimfært upp
á þjóðina er um að ræða 40 þúsund
karla og 33 þúsund konur.
milljarð
króna rúmlega fengu lykilstjórn-
endur stóru viðskiptabankanna
þriggja samanlagt í laun, hlunnindi
og árangurstengdar greiðslur í fyrra. 520
þúsund krónur á mánuði voru
meðalneysluútgjöld á heimili árin
2013 til 2016. Á heimili búa á milli
2,7–2,9 einstaklingar að meðaltali.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilis
í rannsókninni voru 857 þúsund
krónur á mánuði (verðlag 2016).
285.200
króna var kostn-
aður við árshátíð
ríkisfyrirtækisins
Isavia. Rúmlega
1.400 manns starfa hjá fyrirtækinu
og dótturfyrirtækjum.
32% karla og 27%
kvenna
32%
karla
27%
kvenna
voru gistinætur á hótelum í janúar
síðastliðnum. Er það eins pró-
sents samdráttur frá sama mánuði
árið áður.
3 . m a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-A
9
B
8
1
F
1
D
-A
8
7
C
1
F
1
D
-A
7
4
0
1
F
1
D
-A
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K