Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 38
starfskona mín var í annarri vinnu
með samfleytt í átta ár og skúraði.
Hún vann í átta tíma, svo skúraði
hún. Svo tók hún strætó heim til
sín. Þetta gerði hún í átta ár bara til
að komast af. Önnur vinkona mín,
fráskilin, vann á hóteli í veitinga-
sölu eftir sinn vinnudag. Meira að
segja aðstoðarleikskólastjórinn á
leikskólanum sem ég starfa á er í
aukavinnu. Einstæð móðir og getur
ekki annað. Hún vinnur næturvinnu
á vistheimili líka til að geta séð fyrir
sér og börnunum sínum.
Vinna í sumarfríinu
Hver er lausnin á þessu?
Barbara: Lausnin er bara svona.
Skattakerfið, lagið það! Launin, lagið
þau! Ég er ein manneskja í tveimur
störfum. Af hverju borga ég fullan
skatt af seinni vinnunni? Hvers
vegna er fólki refsað svona? Hvernig
á maður að eignast eitthvað. Það er
ekki hægt? Ef við búum við svona
kerfi, hvernig samfélag er það? Það
er samfélag þar sem fólk slítur sér út
á vinnu. Án þess að komast áfram,
án þess að eignast eitthvað. Og
börnin þeirra munu gera það líka
því keðjan heldur áfram. Því þau
alast upp í fátækt og íslenskt sam-
félag virkar ekki án þess að foreldrar
greiði fyrir líf barna sinna. Nám,
fasteignir og annað. Fólk fer ekki
einu sinni í sumarfrí. Það vinnur í
fríinu sínu. Þetta er grátlegt.
Sólveig: Ég hef unnið inn í sumar-
fríið mitt. Ég er með svo lágar tekjur
að ég verð að gera það.
Daníel: Ég var að vinna á leikskóla
og var ekki menntaður leikskóla-
kennari. Ég varð að hætta og fór á
atvinnuleysisbætur. Það breyttist
ekki neitt. Þetta voru um það bil
sömu laun. Ég væri til í styttri vinnu-
dag eins og er í Skandinavíu.
Sólveig: En þá þarf að tryggja að
fólk geti lifað af dagvinnulaunum
sínum og geti séð fyrir fjölskyldu
sinni. Þá er tímabært að tala um
styttingu vinnudagsins og vikunnar.
Má ekki vera bara trix fyrir pólitík-
usa til að gera þetta áferðarfallegt.
Við þurfum að tryggja undirstöð-
urnar.
Fólk í láglaunastöðum getur ekki
leyft sér neitt. Nú er fermingartím-
inn að nálgast og láglaunafólk sem
á börn á fermingaraldri kvíðið. Því
það getur ekki veitt börnum sínum
það sem er viðmiðið í þessu sam-
félagi. Án þess að skuldsetja sig.
Það er ömurlegt að horfa upp á
þetta. Ekki aðeins erum við með lág
laun heldur er fólk að skuldsetja sig
til að vera með í samfélaginu.
Fátæktargildran og kynslóðir
Guðmundur: Það er gríðarlegt álag á
fjölskylduna. Og svona haldast fjöl-
skyldur lengi í fátæktargildrunni.
Kynslóð eftir kynslóð.
Barbara: Þegar barnabarnið mitt
fæddist átti dóttir mín ekkert. Ekki
einu sinni samfesting til að klæða
barnið sitt í. Hún fékk gefins föt frá
tengdafjölskyldu sinni eftir strák.
Þetta varð stelpa en það þurfti að
duga. Því það var ekkert til. Ekki
fyrir fæði, ekki fyrir klæðum og ekki
fyrir húsaskjóli.
Guðmundur: Við erum alin upp
við þá hugsun að við ættum helst
aldrei að taka lán. Að við eigum bara
að kaupa okkur það sem við höfum
safnað okkur fyrir. Það sé á okkar
ábyrgð ef við skuldsetjum okkur
mikið. En það er ekki hægt í dag að
lifa án þess að skuldsetja sig fyrir því
sem er nauðsynlegt.
Græðgi og forréttindablinda
Sólveig: Þetta eru gildi sem ég og fólk
af minni kynslóð erum líka alin upp
við. Það var bara ekki keypt úlpa ef
það var ekki til fyrir henni. En þegar
fólk segir þetta í dag, að svona verði
fólk bara að haga sínum málum,
þá lýsir það rosalegri forréttinda-
blindu. Þá þekkir það ekki hvernig
það er að vera vinnandi manneskja
í láglaunastöðu.
Guðmundur: Ég er á með á milli
1.700 og 1.800 krónur á tímann. Ég
var einu sinni að keyra og kom við á
ferðamannastað á Suðurlandi. Ætl-
aði að kaupa mér rúnnstykki. Það
var svo dýrt að ég hefði verið hálf-
tíma að vinna mér fyrir því. Það er
svo mikil græðgi í þessu samfélagi.
Allt er svo dýrt, en launin í botni.
Sólveig: Svo er svona ákveðið
taktleysi. Björt umhverfisráðherra
fór í kjól sem kostaði 250 þúsund.
Mér fannst það lýsandi dæmi um
stéttaskiptingu á Íslandi. Launin
mín voru svipuð. Og þegar borgin
hélt veislu af því að kona var að
skipta um vinnu, Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, þá voru keypt blóm og
veitingar fyrir fjögur hundruð þús-
und. Ég upplifi þetta sem persónu-
lega móðgun við mig.
Og svo eru það alvarlegir brestir.
Ég hef í gegnum tíðina talið mér
trú um að ég borgi skatta með glöðu
geði. En ég er komin með efasemdir
um það á meðan íslensk auðstétt
flytur peninga úr landi til þess að
byggja upp sín fjölskylduveldi, svo
börnin þeirra hafi aðgang að ein-
hverjum auðæfum. Ég er einmitt
alin upp við þetta. Þú borgar skatta
og ert stolt af því að taka þátt í að
reka samfélagið.
Flest verkafólk sem ég þekki
er brjálæðislega duglegt en þetta
svíður.
Dýr dagmamma
Daníel: Nú er ég tiltölulega ungur.
Ég hafði ekki efni á að leigja. Við
konan mín vorum svo ótrúlega
„heppin“ að við lentum í bílslysi
og gátum keypt okkur íbúð fyrir
bæturnar.
Sólveig: Þið hefðuð getað dáið!
Daníel: Já, ég veit þetta er fárán-
legt. Það er bara fyrir einhverja ótrú-
lega skrýtna hendingu sem fólk á
borð við mig getur keypt sér íbúð.
Við fengum bætur.
Nú er ég líka með barn hjá dag-
mömmu. Það kostar 86 þúsund á
mánuði. Og dagmömmur taka sex
vikna sumarfrí. Þetta er bara sturl-
un. Og bara ekki hægt eins og hver
maður sér!
Barbara: Ég vildi að ég gæti notað
tímann betur í þessu lífi. Til dæmis
með barnabarninu. En það er ekki
hægt. Og mér svíður hvernig dóttir
mín býr. Hún getur ekki framfleytt
sér.
Þessu viljið þið breyta. Hvað ætlið
þið að gera?
Sögð handbendi karla út í bæ
Sólveig: Það þarf að herða barátt-
una verulega. Og það þarf beinar
aðgerðir. Við viljum standa með
okkar fólki.
Guðmundur: Það þarf að setja
hömlur á græðgina.
Sólveig: Við gerum það ekki fyrr
en við stígum fram og segjumst vilja
leggja á okkur til að berjast fyrir
betri kjörum.
Guðmundur: Við eigum líka
að nota hugmyndafræði beinna
aðgerða. Við erum svo mörg, ef
að við stöndum saman þá neyðist
fólk til að koma til móts við kröfur
okkar.
Finnið þið fyrir titringi? Mótstöðu?
Sólveig: Já, við erum búin að fá
þessa ótrúlega sorglegu gagnrýni
að við séum ekki í þessu af hug-
sjón og okkar raunverulegu djúpu
löngun til að breyta. Heldur séum
við handbendi einhverra karla
úti í bæ. Til dæmis Vilhjálms eða
Gunnars Smára eða Ragnars. Það er
niðurlægjandi og sárlega móðgandi
fyrir konu eins og mig. Fyrir okkur
öll. Ástæðan fyrir því að við erum í
þessari baráttu er að við lifum öll og
störfum sem láglaunafólk á Íslandi.
Við höfum reynslu af því hvernig
það er að funkera í þessu samfélagi.
Við eigum okkar eigin rödd. Það
er ekki hægt að horfa framan í eitt
einasta okkar og segja okkur vera að
ljúga. Það er ekki hægt.
Daníel: Það er ótrúlegt að hlýða á
fólk halda þessu fram. Það er ómak-
legt. Við erum hér, fólk á öllum aldri
og með mismunandi bakgrunn.
Sólveig: En við eigum það sam-
eiginlegt að vinna láglaunastörf. Við
erum ósátt, og af hverju er félaginu
ekki beitt frekar í okkar þágu?
Guðmundur: Ég fór á dögunum í
hús Eflingar. Og ég átti ekki eitt ein-
asta orð yfir íburðinum, skrifstofun-
um. Þetta fólk á að vera í vinnu fyrir
okkur og virðist ekki hafa minnsta
áhuga á því.
Daníel: Það þarf að lýðræðisvæða
Eflingu.
Sólveig: Við gerðum allt rétt. Við
fylgdum öllum reglum. Söfnuðum
600 undirskriftum. Þetta er svo
ómakleg gagnrýni sem við höfum
fengið. Hún lýsir málefnaþurrð og
mikilli örvæntingu. Ég hlustaði á
viðtal við eina stjórnarkonu nýverið
í morgunútvarpinu. Hún ræddi um
laun á leikskóla. Hún var spurð: Er
hægt að lifa á þessum launum? En
hún neitaði að svara. Og sagði: Það
fer bara eftir því í hvaða stöðu fólk
er! Í alvöru, ef það er ekki pólitískur
tilgangur í að neita að svara þá veit
ég ekki hvað það er. Það er pólitík
þegar þú ert farinn að snúa út úr
eins og ekkert sé, gegn hagsmunum
félagsmanna þinna. Neita að svara
heiðarlega. Ég átti ekki orð yfir
þessu. En finnst það lýsandi fyrir
viðhorfin sem við mætum og viljum
breyta.
Eruð þið full baráttugleði?
Daníel: Við ætlum að vinna þetta.
Sólveig: Við finnum fyrir ótrúleg-
um stuðningi. Fólk vill breytingar.
Raunsæismanneskja
Barbara: Einhver sagði við mig, já
þú ert kommúnisti. Ég svaraði. Nei,
ég er það ekki, ég er raunsæismann-
eskja. Ég horfist bara í augu við stöð-
una og geri eitthvað í því.
Sólveig: Þetta finnst mér vel sagt
hjá Barböru. Því þegar þú ert orðin
fullorðin og fattar hversu viðbjóðs-
lega ósanngjarnt kerfið er, að þú
ert fórnarlamb í grimmu kerfi sem
ætlar bara að mjólka þig þangað til
þú deyrð, þá viltu berjast. Og við
ætlum að gera það, vinna og svo að
nota þetta risastóra stéttarfélag sem
hamarinn sem það er og virkja sam-
takamáttinn.
Daníel segist spyrja sig æ oftar til hvers þetta allt saman sé. Hann sé að missa af börnunum sínum. FRéttablaðið/ERniR
þegar þú ert orðin
fullorðin og fattar
hversu viðbjóðslega
ósanngjarnt kerfið er,
að þú ert fórnarlamb
í grimmu kerfi sem
ætlar bara að mjólka
þig þangað til þú deyrð,
þá viltu berjast.
Sólveig
þegar hún var
nýbökuð móðir var
ekkert til. bara ekk-
ert! og enga aðstoð að
fá. þegar hún reyndi
að leita eftir aðstoð
félagsyfirvalda þá
var hún spurð: áttu
ekki foreldra sem geta
hjálpað þér?
Barbara
við eigum líka að nota
hugmyndafræði beinna
aðgerða. við erum svo
mörg, ef við stöndum
saman þá neyðist
fólk til að mæta
kröfum okkar.
Guðmundur
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-0
C
7
8
1
F
1
E
-0
B
3
C
1
F
1
E
-0
A
0
0
1
F
1
E
-0
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K