Myndmál - 01.07.1983, Síða 5

Myndmál - 01.07.1983, Síða 5
Fjársjöður Chaplins Þökk sé sjónvarpsmönnun- um, Kevin Brownlow og David Gill, að nú geta sjón- varpsáhorfendur víðsvegar um heim kynnst fleiri hliðum á einum mesta snillingi kvik- myndasögunnar Charlie Chaplin. Þeir félagar voru að vinna að sjónvarpsþætti fyrir Thames TV, um Hollywood, þegar þeir fengu leyfi ekkju Chaplins til að róta í gömlum kompum og hirslum sem geymdu ýmsa muni hans. Það sem þeir fundu fór langt fram úr björtustu vonum. Þarna lágu fullbúnar útgáfur að myndum sem þeir höfðu aldrei heyrt um áður, tökur sem ekki voru notaðar í Borgarljósum og Nútímanum, klippikópíur frá Sirkusnum og myndir af heimsókn þekktra gesta í stúdíóið. í safni Raymond Rohauer fundu þeir síðan efni sem aldrei var notað frá þögla tímabilinu 1916—17. Þessu öllu komu þeir saman í 3 sérþætti, Hinn óþekkti Chaplin, sem breskir sjónvarpsáhorfendur fengu að berja augum nýlega, við já- kvæðar undirtektir. Og hver veit nema við hér á hjara veraldar fáum að líta augum þennan fjársjóð meistarans innan tíðar . . . 48HRS Sé eitthvað að marka gagn- rýnanda breska kvikmynda- blaðsins Fiims, Simon Button, ættu þeir sem unna góðum spennumyndum að eiga ánægjulega stund yfir nýjustu mynd Walter Hill, 48 hrs. Myndin hefur fengið góðar viðtökur vestra og hlotið góða dóma. í aðalhlutverkunum eru Nick Nolte, sem lögreglumað- urinn Jack Cates og Eddie Murphy, sem ,,debúterar“ í hlutverki atvinnubófan Reggie Hammond. Tveir morðingjar sem dæmdir hafa verið í lífstíðar- fangelsi eru sloppnir út og Hammond samþykkir að aðstoða Cates við að hafa uppá þessum gömlu félögum sínum. En lögga og bófi eru ósamstæður félagsskapur og samskiptin eru stirð til að byrja með. Þegar Cates fær Hammond lausan til 48 klst. vill hann hafa allt á hreinu. ,,Við erum ekki félagar, við erum ekki bræður og við erum ekki vinir. Ef þeir sleppa muntu iðrast þess að hafa nokkurntíma hitt mig“. Hammond lætur sér hvergi bregða og svarar: „Ég iðrast þess nú þegar“. En þrátt fyrir kuldann í byrjun þróast með þeim gagnkvæm virðing og um leið og vináttan styrkist. Nolte og Murphy þykja sýna stórgóðan samleik og í öðrum helstu hlutverkum eru Annette O’Toole („Cat People“), James Remar og David Patrick. Látum Simon Button hafa síðustu orðin um myndina. „Ég stóð sjálfan mig að því að skella uppúr, klappa saman lófunum, ná varla andanum og heillast algjörlega. 48 hrs. er hvorki risavaxin né dýr framleiðsla en sem skemmti- mynd er hún í sérflokki". Rohmer meó kómedíu: „PALINAA STRÖNDINNI Fulltrúi Frakklands á kvik- myndahátiðinni i Cannes sem haldin var nýlega, var mynd Eric Rohmer, Pauline á la Plage („Pálína á ströndinni"). Þetta er létt og skemmtilegt tilbrigði við mest notaða við- fangsefni kvikmyndagerðar: ástarsöguna, sem sögð er með hinum gráglettna og lipra húmor Rohmers. Marion er nýfráskilin og hefur ákveðið að eyða síðustu sumardögunum á heimili fjöl- skyldu sinnar ásamt ungri frænku sinni, Pauline. Sögu- sviðið er ströndin þar sem sitt- hvað áhugavert er að finna . . . Engin stórmynd en lipur samtöl og hugljúfar stemningar gera myndina skemmtilega á að horfa. íkjölfarE.T. Nú þegar Steven Spielberg hefur fært sönnur á ómót- stæðilegt aðdráttarafl vina- legra geimbúa /sbr. E.T.) má búast við að slíkar fígúrur taki að herja á kvikmyndahús inn- an tíðar. Fyrstu vísbendingar eru nýjustu myndir leikstjór- anna Blake Edwards (10, Victor/Victoria) og Richard Donner (Superman, The Guys from Max-Bar). Edwards, sem nú er að leggja síðustu hönd á tvær myndir um Bleika Pardusinn, hefur nýhafið tökur á mynd sem hann kallar Geimsaga (A Space Story). Handritið, sem hann skrifaðu sjálfur ásamt syni sínum, Geoff, leggur að hans sögn meiri áherslu á hinn ,,mannlega“ þátt en tækni- brellur. Donner vinnur nú að mynd byggðri á skáldsögu hins víð- kunna stjörnufræðings Carl Sagan (Cosmos), sem ber heit- ið Snerting (Contact). Sagan greinir frá fyrstu kynnum jarðarbúa af, jú þú gast rétt, verum frá öðrum plánetum. Þessa dagana gefur að líta framleiðendur myndarinnar með dollaramerkið í augunum því þeir þykjast vissir um að nafn Sagan muni tryggja þeim vænar fúlgur, auk þess sem áhorfendur fái eitthvað fyrir peninga sína. Væntanleg er á markaðinn bók með kvikmynda og sjón- varpstækniorðum á ensku og fimm norðurlandamálum. NFTU (Nordic Film/TV Association) stendur að útgáf- unni í samvinnu við Proprius útgáfufyrirtækið. Fyrirkomulag bókarinnar er þannig að tækniorðin eru birt á ensku og síðan er merking þeirra útskýrð á sama tungu- máli. Á eftir fylgja svo þýð- ingar orðsins á öllum fimm Norðurlandatungumálunum. Það er óhætt að fullyrða að þessi bók er góður fengur til handa kvikmyndagerðarmönn- um af öllum stærðargráðum sem eignast þarna handhægt uppsláttarrit, jafnframt því sem íslensk fagorð eru nú fyrir hendi í fyrsta skipti. Þórarinn Guðnason og Þrándur Thoroddsen sátu í út- .gáfunefnd bókarinnar fyrir hönd íslands. MYNDMÁL5

x

Myndmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.