Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Qupperneq 38
Brot af því besta 9. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Heilbrigð hús ehf. – Sérfræðingar
í raka- og mygluvandamálum
Við vinnum mikið fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem þessi vandamál eru fyrir hendi
og stúkum þá verksvæðið vel af og
myndum undirþrýsting með blásur-
um, útbúnum Hepafilter, svo ekki
berist ryk frá framkvæmdasvæð-
inu. Þannig getur starfsemi haldið
áfram annars staðar í húsinu. Þetta
gerum við einnig þegar við tökum
að okkur almenn trésmíðaverk til að
takmarka þrif eftir aðgerðir,“ segir
Ágúst Bjarnason húsasmíðameistari
en hann hefur sérhæft sig í úrlausn á
raka- og mygluvandamálum í hús-
næði undanfarin ár.
Ágúst rekur fyrirtækið Heilbrigð
hús ehf. sem tekur að sér alla al-
menna smíðavinnu og sérhæfir sig í
viðgerðum á húsnæði með raka- og
mygluvandamál. Eins og Ágúst lýsir
hér að framan leggur fyrirtækið mikið
upp úr því að takmarka allt iðnaðar-
ryk og hefur mikið unnið í fyrirtækjum
og aðstæðum sem krefjast snyrti-
mennsku og góðrar umgengni.
Heilbrigð hús ehf. hefur starfað
í tvö ár en Ágúst Bjarnason tók að
sérhæfa sig í mygluvandamálum fyrir
um fjórum árum. Hann hefur verið
starfandi smiður í 12 ár. Hjá Heil-
brigðum húsum eru 4–6 smiðir hverju
sinni í fullu starfi.
Heilbrigð hús hafa yfir að ráða
mikilli þekkingu á raka- og myglu-
vandamálum í húsum og hafa allan
þann tækjabúnað sem þarf við
hreinsun á myglusveppi í stóru og
smáu húsnæði.
„Ég tel að mygluvandamál séu
ekki mikið meiri núna en hér áður
fyrr heldur er fólk orðið betur upplýst
um vandamálið og áhrifin sem það
getur haft á heilsu þess,“ segir Ágúst,
en ljóst er af umræðu undanfarið
að mjög mikil þörf er fyrir þjónustu
manna eins og hans, sem hafa sér-
hæft sig í þessum vanda. Auk myglu-
viðgerða sinnir Heilbrigð hús ehf.
almennu viðhaldi og trésmíði.
„Við sinnum almennu viðhaldi
húsnæðis, bæði fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Við erum hins vegar lítið
í nýbyggingum þótt það sé á lang-
tímaplaninu að byggja heilbrigð hús.
Mygluvandamál og almennt viðhald
tvinnast oft saman þar sem oft er
ákveðið að ráðast í viðhald vegna
leka, til dæmis leka frá gluggum, og
þakviðgerðir. Í slíkum tilvikum kemur
reynsla okkar að góðum notum,“ segir
Ágúst.
Heilbrigð hús ehf. sinnir meðal
annars eftirtöldum verkþáttum:
n Viðgerðir á húsnæði með raka- og
mygluvandamál
n Frágangur og úttekt á
rakavarnarlagi
n Timburhús
n Skjólveggir
n Uppsetning hurða
n Parketlögn
n Innréttingar
n Milliveggir
n Þakviðgerðir
n Utanhússklæðningar
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á
endurmenntun og hafa starfsmenn
þess sótt fjölmörg námskeið sem
snúa að betri byggingum og með-
höndlun mygluvandamála í húsum
hjá Iðunni fræðslusetri og Endur-
menntun Háskóla Íslands. Heilbrigð
hús ehf. er aðili að Meistarafélagi
iðnaðarmanna í Hafnarfirði, MIH.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið
veitir Ágúst Bjarnason húsasmíða-
meistari í tölvupósti
gustismidur@gmail.com.
Undirþrýstingur myndaður með Hepa-blásurum
sem hreinsa 99,997% af ögnum yfir 0,3 míkró-
metra að stærð áður en dælt er út um glugga.
Sorpgámar þrifnir
og innsiglaðir áður
en farið er með þá út
í gegnum sameign.
Við íslenskar aðstæður getur verið
nauðsynlegt að byggja yfir þök meðan á
framkvæmdum stendur.
Betra verð á skrifstofu- og skólavörum
PRENTVöRUR EHF. oPNAR NýjA VEFVERSLUN: www.SKRIFSToFUVoRUR.IS
Skrifstofuvörur.is selur ýms-ar skrifstofu- og skólavörur á betra verði en Íslendingar eiga
að venjast. Lágt listaverð fyrir alla er
stefnan og hagræðis gætt í hvívetna
við að bjóða viðskiptavinum gott verð.
Skrifstofuvörur bjóða upp á þekktar
vörur eins og Leitz, Bic, Pentel, 3M
og fleiri, en einnig er hægt að kaupa
minna þekktar vörur sem eru jafn-
framt talsvert ódýrari.
Gjörnýtum tæknina
„Með því að nýta okkur samkeyrslu
upplýsinga getum við leyft okkur
að hámarka veltuhraða og minnka
rekstrarkostnað,“ segir jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri. öll virðiskeðjan er
svo að segja sjálfvirk, allt frá því að
viðskiptavinurinn pantar þar til hann
fær vörurnar í hendurnar. „Skrifstofu-
og skólavörur eru hlutir sem okkur
vantar iðulega aldrei strax í gær, þetta
eru vörur sem við getum skipulagt inn-
kaup á,“ segir jón. „Þegar við seljendur
fáum svigrúm náum við að skipuleggja
innkaupin betur og getum þar af leið-
andi boðið betra verð.
Við opnuðum vefverslunina sl. nóv-
ember með um 2.000 vörum, nú eru
þær yfir 8.000 talsins. Þegar við tök-
um inn nýjar vörur þá kemur vöruheiti
og lýsing beint úr erlendum gagna-
grunni, það tekur einhvern tíma að
þýða öll vöruheiti en það klárast, þetta
er langhlaup hjá okkur,“ segir jón.
Ódýrara blek og tóner frá G&G
Skrifstofuvörur eru með einkaum-
boð hér á landi fyrir blek og tóner
frá Ninestar Image Tech Limited Ink
Factory. Allt frá árinu 2001 hefur
Ninestar sérhæft sig í framleiðslu á
hágæði bleki og á fjölda einkaleyfa í
blek- og tónerframleiðslu.
„Í júní 2016 prentuðum við út tvær
myndir með tveimur Canon IP7250
prenturum. önnur myndin var prent-
uð með bleki frá óþekktum fram-
leiðanda (t.v.) og hin með bleki frá
G&G Ninestar sem er samheitablekið
sem við seljum (t.h.). Blekið frá G&G
Ninestar dofnar ekki með tímanum.
„Það er mikilvægt að nota blek sem
dofnar ekki í prentarann þinn,“ segir
jón.
„Ríkiskaup vita hvar er hagstæðast
að versla. Í nóvember sl. skrifuðum
við undir rammasamning við Ríkis-
kaup varðandi skrifstofuvörur en
fyrir vorum við með rammasamning
varðandi samheita prenthylki,“ segir
jón. Rammasamningurinn gildir til
ársins 2020.
1.000 króna kynningarafsláttur í
mars
Vantar þig penna, strokleður, heft-
ara eða möppu? „Ef þú kaupir vörur
á netversluninni okkar í mars færðu
1.000 kr. í afslátt þegar þú notar
afsláttarkóðann B1000 og kaupir fyrir
5.000 krónur eða meira. Við meira
að segja bjóðum fría heimsendingu á
vörum þegar keypt er fyrir 5.000 kall
eða meira,“ segir jón enn fremur.
önnur
myndin var
prentuð með
bleki frá
óþekktum
framleið-
anda (tv) og
hin með bleki
frá G&G Ni-
nestar (th). Geymslubox í úrvali –
gott verð
Möppur í
miklu úrvali á
góðu verði
Jón Sigurðsson