Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. S E P T E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 223. tölublað 105. árgangur
VERKIÐ SNÝST UM
ÞAÐ AÐ VERA
MANNESKJA
AMMA OG AFI
VAKA YFIR
HEIMABARNUM
BULLUM, GERUM
GRÍN OG STRÍÐUM
HVERT ÖÐRU
HEIMILI & HÖNNUN VIÐ EIGUM SAMLEIÐ 12ÓVINUR FÓLKSINS 38
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Seðlabankinn vissi ekki hverjum
hann seldi 6% hlut í Kaupþingi í
október í fyrra, að því er Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri upplýsir
í skriflegu svari til Morgunblaðsins.
Hæsta tilboði hafi verið tekið.
Bankinn var fyrir söluna sjötti
stærsti eigandi Kaupþings.
Fram kom í ViðskiptaMogganum
í gær að Seðlabankinn hefði ekki
vitað fyrir söluna að þá þegar hefði
Deutsche Bank fallist á að greiða
Kaupþingi um 400 milljónir evra,
eða um 52 milljarða króna á núver-
andi gengi, í formi sáttagreiðslu.
Þegar upplýst var um viðskiptin
hækkuðu bréfin um liðlega 30% á
eftirmarkaði. Hins vegar hafði
Kaupþing, í opinberum gögnum,
gert grein fyrir því að ágreinings-
mál við Deutsche Bank, er varðaði
mikilsverða fjárhagslega hagsmuni,
biði úrlausnar.
Bréf Seðlabankans voru seld í
opnu söluferli fyrir milligöngu fjár-
málafyrirtækisins Morgan Stanley
og allir sem uppfylltu almenn skil-
yrði gátu gert kauptilboð, að sögn
Más.
Vissu ekki um viðskiptin
Morgunblaðið spurði hvort Kaup-
þing hefði vitað að Seðlabankinn
hygðist selja sinn hlut. Í svari frá
félaginu segir: „Nei. Kaupþing hef-
ur þar að auki enga aðkomu að við-
skiptum með skuldabréf eða hluta-
bréf félagsins.“
Þegar forsvarsmenn Kaupþings
voru spurðir hvers vegna svo stór
eigandi hefði ekki verið upplýstur
um samninginn, var svarið að
stefna félagsins væri sú að tilkynna
öllum hluthöfum á sama tíma um
öll meiriháttar viðskipti eins fljótt
og mögulegt er eftir að þau eru
fullkláruð.
Vissi ekki hver keypti
Seðlabankinn vissi ekki hverjum hann seldi 6% hlut í Kaupþingi í opnu söluferli
fyrir tæpu ári Kaupþing vissi ekki að Seðlabankinn hygðist selja hlut sinn
MSátt Kaupþings við DB »16
Verði ekki snúið af braut núverandi
stefnumörkunar stjórnvalda og
hagsmunasamtaka atvinnulífsins í
málefnum iðnmenntunar mun sam-
félagið allt bíða af því tjón. Þetta
fullyrða iðnmeistararnir Helgi
Steinar Karlsson og Sigurður Már
Guðjónsson í viðtali við Morg-
unblaðið í dag.
Þeir segja að ástandið í málefnum
iðnmenntunar hafi vernsnað eftir að
hagsmunasamtök atvinnulífsins
náðu yfirráðum yfir báðum iðnskól-
unum á höfðuðborgarsvæðinu og
hófu að breyta námsskipulaginu
undir hatti Tækniskóla atvinnulífs-
ins án samráðs við iðnmeistara. Þeir
vara við þeirri stefnu í starfs-
menntun sem boðuð er í Hvítbók
menntamálaráðuneytisins frá 2014,
sérstaklega hugmyndinni um þrepa-
skipt starfsnám í stað hefðbundins
iðnnáms. Þeir telja að það eigi illa
við hér á landi. Einnig deila þeir á
tillögu Samtaka iðnaðarins um að
svokallaðir „iðnmentorar“ geti kom-
ið í stað iðnmeistara.
Þeir gagnrýna ennfremur hvernig
Viðskiptaráð vinni markvisst að því
að grafa undan lögverndun starfs-
réttinda iðnaðarmanna. Lögvernd-
unin sé kjölfesta allra handiðn-
aðargreina og tryggi fagleg
vinnubrögð og hindri fúsk. »14
gudmundur@mbl.is
Snúa
þarf við
blaðinu
Deila Iðnnám er í endurskoðun.
Iðnmeistarar deila
hart á stefnumörkun
Kona myrt á Hagamel í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Íslendingar hafa gegnt mikil-
vægu hlutverki við byggingu nýrr-
ar stórskipahafnar í Nuuk, höfuð-
stað Grænlands, sem vígð verður
við hátíðlega athöfn í dag. Heildar-
kostnaður við þessa framkvæmd er
rösklega 11 milljarðar íslenskra
króna. Tryggt hefur verið að allir
gámaflutningar til og frá landinu
fari um Sikuki Nuuk-höfnina nýju.
Grænlenska skipafélagið Royal
Arctic Line er stórt í flutningum til
og frá landinu. Þá er Eimskip að
hasla sér völl á þessum markaði, en
allt er þetta hluti af áherslubreyt-
ingum í flutningastarfsemi. Skipa-
félögin tvö hafa nú með sér töluvert
samstarf. »10
Ný höfn í Nuuk og
flutningar breytast
Margar tegundir sjófugla eru á
nýjum válista Náttúrufræðistofn-
unar Íslands yfir fugla sem hætta
steðjar að. Langvía, teista, lundi,
toppskarfur, fýll, skúmur, hvít-
mávur, rita, og kría eru þarna á
meðal. Einnig sílamávur, en stofn
hans hrundi líkt og fleiri sem lifa
á sílum gerðu á árunum 2004-
2005. Æðarfugl, rjúpa og kjói eru
fuglategundir sem eru nærri því
að komast á válistann en þar eru
tjaldur og stelkur sem færast ofar.
Þá eru vísbendingar um að snjó-
tittlingurinn eigi nokkuð í vök að
verjast.
Breyttar aðferðir við mat á
styrk fuglategunda ráða nokkru
um breytingar á válistanum, þar
sem einnig eru góðar fréttir.
Þannig er íslenski helsingjastofn-
inn úr hættu, brandandarstofninn
braggast vel og sama má segja um
stormmávinn. »11
Langvía, teista, lundi og fýll meðal nýrra
tegunda á válista yfir fugla í hættu
Umboðsmaður Alþingis upplýsti
á fundi stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis í gær að hann
teldi að Sigríður Andersen hefði
haft tvær ríkar ástæður til að ræða
við Bjarna Benediktsson um um-
sögn sem faðir hans skrifaði fyrir
dæmdan barnaníðing.
Annars vegar til að kanna hvort
um vanhæfi Bjarna gæti verið að
ræða. Hins vegar vegna þess að
Bjarni er samræmingarráðherra
ríkisstjórnarinnar en eftir banka-
hrunið hefði forsætisráðherra
fengið aukið hlutverk sem sam-
ræmingarráðherra.
Þau Sigríður og Bjarni hefðu
ekki brotið trúnað og umboðs-
maður teldi því ekki tilefni til að
hefja frumkvæðisathugun á emb-
ættisfærslum þeirra vegna málsins.
Athygli vakti að Björt framtíð
sendi ekki áheyrnarfulltrúa á fund-
inn. »4
Umboðsmaður Alþingis telur ráðherra ekki
hafa brotið trúnað og ræðst ekki í athugun
Tveir menn eru í haldi lögreglu eftir
að tilkynnt var að kona hefði látist í
húsi á Hagamel í Vesturbæ Reykja-
víkur í gærkvöldi. Grímur Grímsson
yfirlögregluþjónn sagði aðspurður að
mennirnir hefðu verið handteknir eft-
ir „alvarlegt atvik“ og að rannsókn
málsins væri á algjöru frumstigi.
Lögregla og sérsveit voru kallaðar
að umræddu húsi rétt fyrir klukkan
tíu í gærkvöldi og stóðu aðgerðir lög-
reglu á vettvangi enn yfir þegar
Morgunblaðið fór í prentun um kl. 1 í
nótt. Vörðust lögreglumenn á vett-
vangi allra frétta þegar blaðamann og
ljósmyndara blaðsins bar að garði.