Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 6
Enn eru tveir fatlaðir 16 ára dreng- ir ekki komnir með skólavist í fram- haldsskóla nú í haust. Eins og kom- ið hefur fram í fréttum var þeim báðum synjað um skólavist vegna plássleysis. Bryndís Snæbjörnsdóttir, for- maður Þroskahjálpar, segir að þau hafi átt fund með Kristjáni Þór Júl- íussyni menntamálaráðherra um daginn ásamt Átaki, félagi fólks með þroskahömlun. Þar hafi því verið borið við að allar starfsbrautir væru fullar. „Við gagnrýndum harð- lega að það væri ekki gert ráð fyrir öllum, það er búið að vera vitað alla þeirra ævi að þeir þyrftu skóla- vist þegar þeir yrðu 16 ára eins og aðrir,“ segir Bryndís. „Í ráðu- neytinu var talað um að það væri verið að leita leiða að einhverri lausn í samstarfi við Ás styrkt- arfélag. Við bentum á að það væri ekki skólastofnun heldur dagvistun sem þeir væru ekki að sækjast eftir. Þeir eru að sækjast eftir að komast í framhaldsskóla. Eftir þann fund hafði ég samband bæði við Ás og Reykjavíkurborg, því ráðuneytið vísaði svolítið á ábyrgð borgarinnar, sem ég átta mig ekki á því þeir bera ábyrgð á þjónustunni við þá en ekki skólaúrræði, og þá kom í ljós að það er ekkert að gerast. Ás er ekki að taka við þeim og það hefur ekki borist formlegt erindi um að þeir geri það. Þannig að ég held að það sé ósköp lítið að gerast.“ Bryndís segir þetta mjög gagn- rýnivert og ekkert 16 ára gamalt barn, fatlað sem ófatlað, eigi að þurfa að bíða í eitt ár eftir því að komast inn í framhaldsskóla, en sagt er að drengirnir fái skólavist næsta haust. „Þessir drengir eru ekkert flóknari en mörg önnur fötl- uð ungmenni. Þeir eiga að geta not- ið þess að stunda framhaldsskóla og vera innan um jafnaldra eins og hver annar.“ ingveldur@mbl.is Drengirnir ekki komnir inn í framhaldsskóla  Lítið að gerast í þeirra málum Bryndís Snæbjörnsdóttir 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 og svo margt, margt fleira! Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Aukahlutir fyrir fjórhjól Aukahlutir á fjórhjól á hagstæðu verði Áhaldafestingar SkyggniFarangurskassar Hauströkkrið fer nú að hellast yfir, en meðan góðrar dagsbirtu nýtur er um að gera að lifa og njóta eins og þessi ungi hjólreiðamaður gerði í gær. Vel viðraði til útiveru á landinu í gær, en í dag má búast við rigningu og golu svo laufblöðin sem nú eru komin í haustlitina munu feykjast af trjánum. Þannig er náttúran síbreytileg frá degi til dags, rétt eins og mannlífið og fólkið sem er eins ólíkt og það er margt. Morgunblaðið/Golli Ungur hjólreiðamaður á haustjafndægri Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Það er með ólíkindum hvað koma mörg mál til okkar,“ segir Helga Þór- isdóttir, forstjóri Persónuverndar en mjög mikil fjölgun hefur orðið á er- indum og verkefnum sem koma inn á borð Persónuverndar. Hún segir að ákveðin vitundarvakning sé að eiga sér stað um málefni persónuverndar, ekki bara á Íslandi heldur í Evrópu, ekki síst vegna þeirra miklu breyt- inga sem eru í vændum með nýju Evrópulöggjöfinni um persónuvernd en hún kemur til framkvæmda í Evr- ópu 25. maí 2018. Það sem af er ári hafa vel á annað þúsund mál verið skráð hjá stofnun- inni. Síðasta ár fékk Persónuvernd 1.865 mál og í dag bíða 404 erindi af- greiðslu hjá stofnuninni. „Okkur tókst fyrir sumarleyfin að vinna okkur niður í 200 opin mál en það komu rúmlega 200 mál til við bót- ar í sumar þannig að við erum aftur með rúmlega 400 mál í vinnslu,“ segir Helga. Þurfa að forgangsraða Í tilkynningu sem Persónuvernd birti fyrr í mánuðinum sagði að búast mætti við að tafir yrðu á afgreiðslu flestra mála en reynt yrði að for- gangsraða málum eftir mikilvægi þeirra. Mörg þessara erinda væru brýn og þörfnuðust skjótra svara og mörg mál vörðuðu einnig beiðnir um kynningar eða ráðgjöf á nýju evr- ópsku persónuverndarlöggjöfinni. Helga segir í samtali að burtséð fá nýju persónuverndarlögunum virðist meðvitund fólks um persónuvernd og gagnavernd hafa aukist. Erindin eru margbreytileg enda vísa um eitt hundrað lagabálkar í íslenskri löggjöf í persónuverndarlögin. Tæknibylting- in og tækniframfarir hafa mikið að segja og útbreiðsla snjalltækja gerir að verkum að unnt er að rekja gögn af öllu tagi til einstaklinga. Persónuvernd hefur fjárheimild fyrir um sjö starfsmenn og standa vonir til að hægt verði að fjölga þeim um nær helming, ekki síst vegna þeirra viðamiklu skuldbindinga sem fylgja innleiðingu evrópsku persónu- verndarlaganna í íslenskan rétt. Þeg- ar fjallað var um ríkisfjármálaáætlun til næstu fimm ára á Alþingi færði Persónuvernd ítarleg rök fyrir því að ef stofnunin þurfi áfram að eiga við al- varlega undirmönnun að stríða þýði það að ekki verði unnt að tryggja mannréttindi og persónuvernd ein- staklinga með sómasamlegum hætti hérlendis. Rekstur gæti stöðvast Staðan geti líka orðið mjög alvarleg hjá fyrirtækjum og stofnunum vegna þeirra afdráttarlausu skuldbindinga sem felast í nýju Evrópulöggjöfinni sem þarf að innleiða í lög hér. Fyr- irtæki og stofnanir þurfa t.d. að upp- fylla kröfur um viðbrögð við örygg- isbrestum innan 72 klst. og ef tilteknar vinnsluaðferðir skapa mikla hættu fyrir friðhelgi einstaklinga verður ábyrgðaraðili að gera grein fyrir þeirri hættu og mögulegum af- leiðingum hennar. Ef þá verður ljóst að hættan sé mikil og að honum sé sjálfum ekki fært að draga úr henni verður að leita forálits Persónuvernd- ar á vinnslunni. „Ef við höfum ekki mannafla til að sinna því þá getum við horft fram á rekstrartap og jafnvel rekstrarstöðv- un fyrirtækja en það verður algerlega óheimilt að fara af stað með slíka vinnslu án þess að hafa fengið grænt ljós frá Persónuvernd,“ segir hún. Ef taka á í notkun nýjan hugbúnað verð- ur hann að vera með svokallaða inn- byggða og sjálfgefna persónuvernd. Fjölgun mála með ólíkindum  404 erindi bíða afgreiðslu hjá Persónuvernd í dag  Forstjóri stofnunarinnar segir vitundarvakningu eiga sér stað um málefni persónuverndar  Vonast til að starfsmönnum fjölgi um nær helming Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júní sl. þess efnis að Icelandair ehf. beri að greiða dánarbúi fyrr- verandi flugmanns félagsins 68,8 milljónir króna auk dráttarvaxta vegna ólögmætrar uppsagnar árið 2010. Flugmaðurinn lést 7. mars sl. og tók þá dánarbúið við aðild að dómsmálinu. Dánarbúi dæmdar tæpar 70 milljónir Dr. Sæmundur Sveinsson var í gær skipaður í stöðu rektor Landbúnaðarhá- skóla Íslands til eins árs frá og með 1. október nk. Sæmundur er fæddur 1984 í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Hann útskrifaðist með BS-próf frá líffræðideild Háskóla Íslands 2007 og með masterspróf frá sömu deild 2009. Eftir það fór hann í dokt- orsnám við grasafræðideild háskól- ans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að Sæmundur lauk dokt- orsnámi hefur hann starfað sem sérfræðingur við auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands - og sinnt bæði kennslu og rannsóknum. Sæmundur Sveins- son nýr rektor LBHÍ Sæmundur Sveinsson Að sögn Helgu Þórisdóttur kveð- ur við nýjan tón í nýja fjárlaga- frumvarpinu fyrir 2018 því nú hafi verið hlustað að einhverju leyti á neyðarbeiðni stofnunar- innar um að fá meira fé til rekstr- arins. Í frumvarpinu sé gert ráð fyrir 80% aukningu útgjalda til Persónuverndar en nú sé ríkis- stjórnin fallin og óvissa um hvernig endanleg fjárlög munu líta út eftir kosningar. Herferð til kynningar á Evrópureglunum heldur áfram, m.a. á tveimur málþingum fyrir allt skólasamfélagið og heil- brigðisgeirann í nóvember. 80% aukning ÞARF MEIRI FJÁRMUNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.