Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 VINNINGASKRÁ 21. útdráttur 21. september 2017 96 10195 21262 31964 40386 49026 59113 71339 409 10524 21529 32131 40563 49428 59115 71842 659 11034 21672 32724 40597 49589 61011 71858 1627 11234 21805 32728 40656 49839 61109 72002 1850 11894 22057 32980 40889 49859 61340 72811 2216 11954 22112 33161 41075 49970 61885 73810 2319 12360 22171 33490 41222 50023 62353 73813 2743 13342 22368 33533 41759 51002 63530 73848 3124 13427 22587 33577 41960 51599 63792 73938 3173 13552 22640 33618 42356 51663 64284 73956 3526 13570 22952 33624 42501 51711 65161 74266 3592 14878 23311 33795 42665 52264 65197 74493 4059 14929 23333 33871 42703 52447 65236 74543 4104 15092 23536 33996 42895 52531 65243 74582 4870 15130 23586 34518 42911 52856 65759 74758 4932 15308 23595 34708 43096 53829 66167 74899 5275 15573 24262 34729 43107 54177 66681 75114 6207 15693 24263 35058 43533 54318 66767 75192 6591 15872 24501 36015 43843 54875 66863 75401 6610 16287 24710 36251 43927 55348 66880 75595 6690 16438 25185 36410 44016 55710 67289 75932 6707 16534 26159 36536 44663 55785 67587 76697 6745 16618 26463 36626 44697 55966 67956 76817 6857 16625 26887 36659 45297 55995 67998 76870 6900 16962 27161 36697 46006 56106 68224 77577 7012 18302 27216 37050 46040 56119 68988 77697 7220 18836 27517 37214 46236 56138 69156 78251 7297 19123 27679 37430 46482 56213 69685 78640 8097 19283 28543 37438 47355 56491 70127 78753 8146 19725 29119 37834 47359 56645 70134 78856 8879 19803 29255 38374 47437 56827 70137 79633 9043 19874 29591 39338 47516 56896 70287 9364 20077 29929 39429 47599 57117 70378 9478 20486 30102 39651 47823 57323 70450 9488 20614 30320 39798 48100 57360 70691 9503 20747 30539 40118 48162 58731 70768 9774 21003 30906 40218 48673 58809 70912 897 10687 23979 35635 47172 58090 65393 71877 1012 10955 24300 35641 47631 59342 65552 72343 1650 11349 25832 36540 50141 59547 65730 74555 2379 13673 26916 36562 50337 60445 67434 75208 3219 16865 27006 39435 51882 61759 68558 75538 5802 17373 27305 40110 53062 62421 68861 75605 5885 19618 27982 42286 54005 63255 69025 75734 6316 21063 29357 42690 55393 63427 69226 76432 6931 21411 29379 43028 55415 63624 69680 79884 7463 21459 32669 43140 55573 64180 70347 7755 21474 34819 43699 55669 64338 71127 8079 23356 34895 46350 56844 64951 71270 10589 23793 35040 46945 57542 65058 71539 Næsti útdráttur fer fram 28. september 2017 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 7871 47494 65886 75409 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1377 18551 34857 52056 68049 76778 5867 25054 40257 59996 70998 78281 10732 28802 42492 60946 71149 78405 11877 32128 43407 63613 72227 79173 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 7 2 6 Að veikjast af sjúk- dómi sem viðkomandi þarf að lifa með ævilangt er erfitt. Að veikjast af sjúkdómi sem ekki er hægt að sanna með nægilega vísindalegum hætti er erfitt. Að veikj- ast af sjúkdómi sem for- dómar ríkja gegn og tal- inn hefur verið ímyndun ein er erfitt. Að veikjast af sjúkdómi sem vísindasamfélagið getur ekki komið sér saman um hvernig á að flokka og hvað á að nefna er erfitt. Það var því töluvert áfall fyrir mig að fá síþreytu- eða ME-greiningu (myalgic encephalomyelitis) árið 2015, eftir margra ára veikindagöngu. Þrátt fyrir ágætisbakgrunn vissi ég lítið um sjúkdóminn. Ég hóf leit að svörum og sá fljótt að milljónir manna þjást um allan heim. Um er að ræða flókinn sjúkdóm með margar birting- armyndir og ekki er vitað hver or- sakavaldurinn er. Án þess að fara nánar út í einkenni sá ég að þeir veik- ustu eru alveg ósjálfbjarga og komast ekki fram úr rúminu. Það vakti furðu hvað lítill áhugi hefur verið á rannsóknum, bæði á or- sökum sjúkdómsins og meðferð- arúrræðum. Það gladdi mig þó að sjá að áhuginn virðist vera að glæðast. Ég sá fljótlega að vísindamenn hafa átt erfitt með að koma sér saman um bæði heiti og greiningarviðmið. Í dag er ME (myalgic encephalomyelitis) mest notað. Í sumum löndum er CFS (chronic fatigue syndrom) einnig not- að. Nýlega var lögð fram tillaga um SEID (systemic exertion intolerance disease), en það heiti virðist ekki ætla að ná fótfestu. Hvað greiningarviðmið varðar þá var Holmes-greiningin sett fram árið 1988, Oxford-greiningin 1991, London-greiningin 1994, Fu- kuda-greiningin 1994 og kanadíska greiningin 2003. Sérstök greiningar- viðmið voru sett fram fyrir börn og unglinga árið 2006 og loks ICC (inter- national consensus criteria) árið 2011. Frá árinu 1969 hefur ICD-flokkur hjá WHO (Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni) verið G 93,3. Akureyrarveikin Mér þótti sérlega áhugavert þegar ég sá að Akureyrarveikin var skráð á spjöld sögunnar yfir þekkta ME-faraldra. Þessi faraldur gekk um miðja síðustu öld og veiktust flestir á Ak- ureyri og nágrenni. Veikin lagðist á ungt fólk og veiktust margir á heimavist menntaskólans. Alls veiktust tæp- lega 500 einstaklingar, sem voru 7% Akureyringa á þeim tíma. Í alþjóð- legum læknaritum gengur farald- urinn undir heitinu Akureyri disease eða morbus akureyriensis, en stund- um líka undir nafninu Iceland di- sease eða Íslandsveikin. Hvað varðar vísindarannsóknir hér heima þá fann ég nokkrar vís- indagreinar. Nokkuð var skrifað um Akureyrarveikina þegar hún gekk og árin þar á eftir. Ég fann nokkrar rannsóknir tengdar síþreytu fyrir og um síðustu aldamót, en það starf lagðist niður við fráfall lækna sem voru leiðandi á sviðinu á þeim tíma. ME-félag Íslands Í þekkingarleit minni fann ég fljót- lega ME-félagið. Félagið fylgist vel með því sem er að gerast í alþjóða- samfélaginu og fann ég margs konar efni á heimasíðunni sem nýttist mér vel. Fljótlega fór ég að hitta aðra sjúklinga og taka þátt í starfi félags- ins, sem hefur verið bæði gagnlegt og gefandi. Ánægjulegt var að koma að vitundarvakningarátakinu #milli- onsmissing í maí sl. Um er að ræða alþjóðlegt átak ME-félaga um allan heim. Saman minna þau á að millj- ónir manna eru óvirkar í samfélaginu vegna ME-sjúkdómsins. Við það tækifæri afhenti ME-félagið heil- brigðisráðherra áskorun um að koma upp ME-miðstöð á Íslandi í sam- vinnu við félagið. Sá draumur verður vonandi að veruleika. ME-ráðstefna á Íslandi 28. september Þetta greinarkorn er sett saman á þessum tímapunkti til að vekja at- hygli á alþjóðlegri ráðstefnu sem ME-félagið stendur fyrir 28. sept- ember á Grand hóteli. Ráðstefnan er sú fyrsta hér á landi og er tilgangur hennar að auka þekkingu Íslendinga á ME-sjúkdómnum og ekki síður að vekja áhuga vísindasamfélagsins. Á ráðstefnunni munu virtir erlend- ir vísindamenn og sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í ME- málum í heiminum. Kynntar verða niðurstöður nýrra rannsókna og reynsluboltar segja frá áratuga reynslu af meðferð ME-sjúklinga. Akureyrarveikin verður einnig til umfjöllunar á ráðstefnunni. Margrét Guðnadóttir, læknir og veirusér- fræðingur, mun fjalla um Akur- eyrarveikina. Margrét þekkir vel til og tók m.a. þátt í rannsóknarvinn- unni á þeim tíma sem faraldurinn geisaði. Fáir yngri en fimm ára veiktust, en ein þeirra mun segja sögu sína á ráðstefnunni. Hún mun líka segja frá nýlegri leit og sam- tölum við aðra sem einnig fengu Akureyrarveikina fyrir tæpum sjötíu árum. Það er von okkar sem að ráðstefn- unni stöndum að sem flestir læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálf- arar, iðjuþjálfar, sálfræðingar og aðrir meðferðaraðilar, ME-sjúkl- ingar og aðstandendur, stjórnmála- menn, blaðamenn og vísindamenn nýti þetta einstaka tækifæri til að fræðast um „þúsund nafna sjúkdóm- inn“ eins og hann er oft nefndur, en ME og síþreyta á Íslandi. Nánari upplýsingar og skráning á ráðstefnuna á www.mefelag.is. Akureyrarveikin, ME eða síþreyta Eftir Herdísi Sigurjónsdóttur »Veikin lagðist á ungt fólk og veiktust marg- ir á heimavist mennta- skólans. Alls veiktust tæplega 500 einstakling- ar, sem voru 7% Akureyr- inga á þeim tíma. Herdís Sigurjónsdóttir Höfundur er vísindakona og varaformaður ME-félags Íslands. herdis@mefelag.is Þegar sumarblómin standa prýdd sínum lit- fagra skrúða á fallegum lygnum degi, eru þau hljóð og meinlaus í til- veru sinni, augnayndi undir sólbjörtum ljós- bláum himni. Aldrei kvarta þau undan stuttu sumri og komu haustsins, þegar fer að kula og hríma í byggð. Fegurstu blómin fölna þá í þögn og auðmýkt, án umkvartana og verða að mjúkri nærandi gróðurmold fyrir ný blóm næstu sumur. Hringrásin eilífa rennur endalaust skeið sitt, eins og jörðin á ferð sinni kringum sólu og heldur áfram um eilífð. Aðeins maðurinn virðist kvíða endi kroppsins, þeirri tímanlegu verund, sem nokkrir tugir hringferða jarðar um sólu færa nær hausti líftímans í myndbirtingu manns. Engum vörn- um fær hann við komið, því að eilíft sumar er einfaldlega ekki til. Nýtt líf bíður þess að fæðast og það verður eingöngu til í mold, sem áður var blómanna litadýrð og drakk í sig dögg og birtu himinsins ljóss. Þannig endurnýjast lífið, maðurinn og blómið í nýjum afkomendum, úr lifandi mold til moldar og aftur upp af moldu á nýjan leik, í skinið frá himinsins ljósi, sem öllu gefur líf. Ekkert líf án dauða og enginn dauði án lífs, eins og hið fornkveðna segir ein- hversstaðar. Allt er í ei- lífu jafnvægi, ævintýrin hér og þar, líkt og vaka og svefn, dagur og nótt, flóð og fjara, innöndun og útöndun, slagæða- og bláæðablóð. Annað hinu háð í full- komnu jafnvægi, heil- agri samvist lífs og dauða. Mennirnir lifa að vetri í dauðaveröld blómanna og vita með vissu, að þau vakna til lífsins að nýju, þegar ,og blómstra að sumri. Það er eins víst og allt sem er til og lýtur lög- máli alheimsins. Þannig er einnig með tilveru mannsins. Aðrir sjá dauðaveröld hans og vita fyrir víst, að hann mun vakna til lífsins aftur í nýju holdi af útsæði þúsund ára gamalla arfbera, í frjósamri lífsandans mold og fær að líta ljós himinsins á nýjan leik. Hold og mold Eftir Einar Ingvi Magnússon »Hringrásin eilífa renn- ur endalaust skeið sitt, eins og jörðin á ferð sinni kringum sólu og heldur áfram um eilífð. Einar Ingvi Magnússon Höfundur er áhugamaður um tilveruna. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferl- inu. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.