Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Við kveðjum vin okkar, Erlend Guðmundsson, eða Linda eins og við kölluðum hann alltaf, allt of fljótt. Það eru ekki nema átta vik- ur frá því að við þeystum með honum og félaginu okkar, Félagi framfarasinna, um hálfan Sprengisand og síðan allan Kjöl á sama degi en daginn eftir fórum við í Fjörður. Þá var greinilegt að Lindi gekk ekki heill til skógar en engan grunaði að svona stutt væri eftir. Að vanda var hann kjörinn formaður félagsins en að- alfundur var haldinn 21. júlí síð- astliðinn og þar fékk Lindi end- urnýjað umboð til formanns því eins og stendur í lögum félagsins skal formaður endurkjörinn á hverju ári. Auðvitað datt engum í hug að breyta út af þessum félagslögum enda Lindi leiðtogi í öllu sem viðkom félaginu. Hann skipulagði allt í þaula en Ingunn, hans góða kona, var svo í sam- bandi við hópinn. Þessar sam- verustundir í sumar fara í minn- ingabankann en þar er af nægu að taka þegar Lindi var annars vegar. Hann gerði lífið einfald- lega svo miklu skemmtilegra – hvort sem það voru nágranna- börnin sem nutu þess eða þeir fullorðnu. Fyrri kona Linda var Kristín Katrín Gunnlaugsdóttir, eða Krissý, og voru þau nágrannar okkar á Markarflötinni í Garða- bæ þar sem þau bjuggu um ára- bil. Yndisleg kona sem lést langt fyrir aldur fram. Við minnumst ótal skemmtilegra stunda með þeim og börnunum þeirra, Tínu, Gumma og Gulla, bæði á Mark- arflötinni og á ferðalögum – skíðaferðir í Kerlingarfjöllum voru frábærar svo dæmi sé tekið. Það eru ótal minningar um uppá- tæki sem hann stóð fyrir með börnunum, smalaði t.d. öllum í skottið á bílnum og fór með þau í Hafnarfjörðinn til að bera út blöð og gerði vel við þau á eftir eða hit- aði grillið í bílskúrnum um hávet- ur og bauð þeim í pylsupartí. Nú, eða faldi sælgæti úti um allt við götuna og öll börnin í hverfinu máttu eiga það sem þau fundu. Við þau eldri vorum í veislum hjá þeim þar sem við urðum að kunna okkur og segja: Yðar hátign (á ensku) því þarna voru konung- legir gestir í boði þeirra en við gættum þess að vera í okkar fín- asta pússi til að vera við hæfi. Það var lán Linda að kynnast Ingunni og dásamlegt að fá að vera viðstödd brúðkaup þeirra. Ekki var síðra að vera með þeim á skútu við Tyrklandsstrendur og heimsækja þau í Króatíu. Þess- ara og margra annarra ógleym- anlegra stunda þökkum við fyrir að hafa notið. Félagsskapurinn í kringum skútuna Mílu hefur líka styrkt vinaböndin. Með innilegu þakklæti kveðj- um við vin okkar sem við getum því miður ekki fylgt síðasta spöl- inn. Við vottum Ingunni, Tínu, Gumma, Gulla, Stefáni, Höllu, Auði, Deddý og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Linda. Stefanía Magnúsdóttir og Guðjón Torfi Guðmundsson (Níní og Torfi). Hann Erlendur vinur minn er látinn, borinn ofurliði af erfiðum sjúkdómi í stuttri og ójafnri bar- áttu þar sem úrslitin gátu ekki orðið önnur en raunin varð. Þótt hann vonaðist eftir hagstæðari úrslitum varð honum fljótlega ljóst hvert stefndi og mætti ör- lögum sínum af æðruleysi og ró- semi umvafinn ást og hlýju nán- ustu fjölskyldu og vina. Við Erlendur kynntumst rúm- lega tvítugir og mér fannst hann sérlega áhugaverður í alla staði. Hann hafði valið sér flugið sem starfsvettvang en það veitti hon- um frelsi og tækifæri til að kanna hinar fjölþættu víddir heims- byggðarinnar, ekki sízt þær sem voru hrjáðar af stríðsátökum og kúgun. Áður en hann varð fastráðinn flugstjóri hjá Loftleiðum, og raunar einnig síðar, hafði hann flogið til landa þar sem stríð og örbirgð voru ráðandi, oft við hættulegar aðstæður drifinn af mannúð og löngun til að veita hjálp, þar sem hennar var mest þörf. Þótt hann kæmist stundum í hann krappan þá komst hann ólaskaður frá þessum erfiðu verkefnum en reynslunni ríkari og fróðari um hrikalegt ástand og misrétti, sem margir jarðarbúar mega þola. Áhugi Erlendar á umhverfinu beindist einnig að landinu okkar og honum tókst að hrífa með sér stóran hóp vina og kunningja og til varð hópur fólks, sem hann kallaði Félag framfarasinna og hafði það á stefnuskrá sinni að ferðast á hverju sumri um Ísland og kynnast til nokkurrar hlítar áhugaverðum landsvæðum, iðu- lega með leiðsögn vel kunnugra leiðsögumanna. Þannig hefur hópurinn fræðst allítarlega um landið sitt, sem annars hefði ekki orðið. Erlendur var frá upphafi formaður félagsins og það sem meira var óumdeildur leiðtogi og skipuleggjandi. Í einkalífi var Erlendur gæfu- maður. Með fyrri konu sinni, Kristínu Gunnlaugsdóttur, eign- aðist hann þrjú börn, mikla gleði- gjafa þeim báðum. Þau bjuggu hvort öðru falleg heimili full af birtu og gleði, þangað var gott að koma. Kristín lézt rétt rúmlega fimmtug. Seinni eiginkona Erlendar er Ingunn Stefánsdóttir. Hún færði honum aftur tilgang og hamingju og hafa þau verið einstaklega samrýnd og tryggir vinir vina sinna. Missir hennar er mikill svo og barnanna og fjölskyldna þeirra. Öllum þeim sendum við Rakel innilegar samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng veita þeim huggun í sorginni. Sigurður Björnsson. Lindi, okkar kæri vinur og fé- lagi til fjölmargra ára, hefur nú kvatt okkur. Hann var heims- borgari í alla staði, höfðingi heim að sækja, traustur vinnufélagi og sannur vinur. Í minningunni er hann hrókur alls fagnaðar, bjart- sýni einkenndi allar gjörðir hans og stundum var félagsskapur við hann ævintýri líkastur. Við og strákarnir okkar áttum með hon- um og fjölskyldu hans eftir- minnilegar og dýrmætar stundir og hann þreyttist sjaldan á því að skipuleggja alls konar lautarferð- ir, tjaldtúra, utanlandsferðir, kvöldverði, partí, heilu dansleik- ina o.fl. Fyrir tæpum 20 árum stigu Lindi og fjölskylda hans þung spor þegar þau misstu Krissý sína, ástkæra eiginkonu og móð- ur. Hann tók því með einstöku æðruleysi og reyndist börnunum þeirra bæði góður faðir og móðir. En hamingjan bankaði aftur upp á hjá Linda þegar Ingunn steig inn í líf hans og þau héldu saman á vit ævintýra og einstakrar sam- heldni. Flugið átti stóran þátt í lífi hans og átti flugmannsstarfið einkar vel við persónuleika hans því þá gat hann flogið um alla heima og geima. Við og fjölskylda okkar kveðj- um hjartkæran vin, þökkum hon- um samfylgdina og biðjum góðan Guð að passa hann og varðveita og vottum Ingunni, Tínu, Gulla og Guðmundi og allri fjölskyld- unni innilega samúð og biðjum Guð að styrkja þau og blessa á erfiðum tímum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Harald, Þórunn og fjölskylda. Fallinn er frá eftir alvarlegan sjúkdóm kær vinur og félagi, Er- lendur Guðmundsson flugstjóri, sem ávallt var nefndur Lindi. Við kynntumst Linda fyrst fyrir rúmum ellefu árum þegar við keyptum með honum og þremur öðrum góðum vinum seglskútuna Mílu. Okkur varð gott til vina. Hann var stór maður og reisulegur sem sópaði að en ljúfur, glaðlyndur og spaugsam- ur. Það var alltaf lifandi stemmn- ing kringum Linda. Hann var ávallt reiðubúinn að taka að sér hin ýmsu verkefni og kappkost- aði að því að finna lausnir og hringdi þá gjarna í einhvern af öllum þeim sem hann þekkti og málin voru leyst. Við áttum margar góðar stundir saman á sjó við siglingar og dorg, en ófá ýsan, þyrsklingurinn og þorskur- inn voru dregin um borð. Hann var alltaf stórhuga og því varð enginn hissa þegar Lindi mætti einn daginn með stóran stamp sem honum hafði áskotnast og innihélt heilmikið lúðubjóð. Það komst þó aldrei svo langt að því væri kastað í sjó enda lúðuveiði ekki leyfð í dag. Þær voru heldur ekki leiðin- legar næturvaktirnar sem við skiptum með okkur við höfnina í Snarfara. Þá var spjallað um ým- islegt og Lindi mætti alltaf ne- staður með harðfisk og fleira góð- gæti. Við Lindi reyndum einnig nokkrum sinnum fyrir okkur í rjúpnaveiði með misjöfnum ár- angri eins og gengur en það var alltaf gaman. Kynni okkar af Linda voru ekki eingöngu bundin við Míluna því við erum einnig meðlimir í ferðahóp sem nefndur er „Fram- farafélagið“ og varð til að upplagi Linda og höfum við farið margar ferðir með þeim víðsvegar um landið. Hann var alltaf mjög virk- ur í allri skipulagningu og und- irbúningi ferðanna enda út- sjónarsamur og fylginn sér. Allar tókust þær eins og best var á kos- ið og eru margar kvöldstundir í þeim ferðum minnisstæðar, sagð- ar sögur, mikið sungið og borð- aður góður matur með tilheyr- andi. Alltaf var Lindi hrókur alls fagnaðar og þungamiðja í hópn- um. Hann var einnig starfandi Lionsmaður til fjölda ára með Lionsklúbbnum Nirði. Við áttum þar einnig góða samleið þótt í sitthvorum klúbbnum væri. Góðir vinir eru gulls ígildi og það má með sanni segja um hann Linda. Við minnumst góðs vinar með hlýhug og söknuði en vináttunnar verður ekki lengur notið nema í minningunni og sjáum við Linda fyrir okkur siglandi um önnur höf inn í eilífðina. Elsku Ingunn og fjölskylda, megi minning um góðan dreng styrkja ykkur í sorginni. Rannveig Þorvarðardóttir og Þórarinn Arnórsson Rótarýfélagi okkar Erlendur Guðmundsson er fallinn frá eftir stutt veikindi. Erlendur gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 8. október 2009 og var alla tíð virk- ur félagi. Kynni hans og klúbbs- ins eru þó lengri, en hann flaug með klúbbinn til Vesturheims ár- ið 2002. Hann var góður sögumaður og hafði gaman af að segja frá því sem á daga hans hafði drifið í starfi sínu sem flugmaður og flugstjóri. Voru þriggja mínútna erindi hans á klúbbfundum ávallt mjög skemmtileg og áhugaverð. Erlendur kom óvenjulega leið í klúbbinn, kom inn þegar hann hafði lokið sínu fasta ævistarfi, en hann hafði greinilega nóg fyrir stafni, við útgáfu á Iceland In- formation Guide sem hann gaf út í 33 ár og hafði nýlokið útgáfu á þegar hann dó. Klúbbfélagar flytja eftirlifandi eiginkonu, Ingunni Ernu Stef- ánsdóttur, og fjölskyldunni allri samúðaróskir og þakka fyrir ánægjulega samveru. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar, Gylfi Sigurðsson forseti. ✝ Sigrún Guð-mundsdóttir fæddist á Ísafirði 26. júní 1929. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 14. septem- ber 2017. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur G. Kristjánsson frá Meiri-Garði í Dýrafirði, f. 23. janúar 1893, d. 4. nóvember 1975, og Lára Ingibjörg Magn- úsdóttir frá Sauðárkróki, f. 19. júlí 1894, d. 15. júlí 1990. Sigrún var eina stúlkan í hópi sjö bræðra: Magnús, 1916- 1918, Ólafur, 1918-1982, Magn- ús, 1920-1941, Kristján Sig- urður, 1922-2003, Páll Steinar, 1926-2015, Haraldur, 1928- 1935, og Lárus Þorvaldur, f. Hugi og Hildur; b) Hallgrímur, f. 1988, búsettur í Austurríki. Dóttir Árna og Unnar Ágústs- dóttur, f. 1955, er c) Katrín, f. 2000. 2) Lára Ingibjörg, f. 14. apríl 1957, gift Símoni Reyni Unndórssyni, f. 1956. Þeirra börn: a) Ásdís Eir, f. 1984, sam- býlismaður Sigurður Páll Guð- bjartsson, f. 1979, þau eiga tvo syni: Styrmi Frey og Kára Hrafn; b) Óttar, f. 1993. 3) Rósa Sigríður, f. 6. júlí 1959, d. 21. júlí 1961. Sigrún útskrifaðist 1949 sem fóstra frá Uppeldisskóla Sumar- gjafar í Reykjavík og vann á leikskólum í Reykjavík allt þar til hún giftist 1954. Hún tók upp þráðinn á ný árið 1972 og vann sem leikskólakennari við leik- skóla í Garðabæ og Reykjavík. Hún var leikskólastjóri í Hlíða- borg við Eskihlíð í Reykjavík frá 1974 þar til hún lét af störf- um af heilsufarsástæðum árið 1982. Útför Sigrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 22. september 2017, og hefst at- höfnin klukkan 15. 1933, sem einn lifir systur sína. Sigrún giftist Hallgrími F. Árna- syni bifreiðastjóra, f. 12. september 1918, d. 18. desem- ber 2001. Sigrún og Hallgrímur gengu í hjónaband 30. október 1954. Þau bjuggu í Hafnarfirði allan sinn búskap en Sigrún fluttist til Reykjavíkur árið 2003 eftir lát Hallgríms. Sigrún og Hallgrímur eign- uðust þrjú börn: 1) Árni, f. 2. apríl 1956. Hans börn með Em- ilíu G. Magnúsdóttur, f. 1957: a) Védís, f. 1977, eiginmaður Gunnar Jóhannesson, f. 1977, búsett í Noregi, þau eiga fjögur börn, þau eru Sölvi, Snorri, Sigrún tengdamóðir mín var góð kona. Hún var ein af þessum fallegu eldri konum, falleg að ut- an sem innan, og vakti athygli hvar sem hún kom, alltaf vel til- höfð og snyrtileg. Hún tilheyrði þeirri kynslóð sem ekki hafði allt- af úr miklu að moða en einhvern veginn tókst henni að gera allt í kringum sig fallegt, hlýlegt og smekklegt. Sigrún giftist Hallgrími Árna- syni, bifreiðastjóra frá Hafnar- firði, árið 1954 og eignuðust þau þrjú börn í röð á árunum 1956- 1959; Árna, Láru Ingibjörgu og Rósu Sigríði. Rósa, sem var yngst þeirra systkina, lést sviplega úr botnlangabólgu árið 1961, þá að- eins tveggja ára gömul. Það áfall varð þeim hjónum mjög þungt og setti mark á líf þeirra æ síðan. Sigrún og Hallgrímur bjuggu saman alla tíð í Hafnarfirði en stuttu eftir fráfall Hallgríms árið 2001 flutti Sigrún til Reykjavíkur og bjó þar til dauðadags. Þó svo að Sigrún tilheyrði „gömlu kynslóðinni“ var hún nú- tímaleg, bæði í hugsun og athöfn- um. Hún átti til að mynda iPad, snjallsíma og borðtölvu og var virk á samfélagsmiðlum, bæði Facebook og Instagram. Þegar hún sá barnabörnin sín með ein- hverjar tækninýjungar vildi hún ólm vita hvað þetta apparat gæti og hvernig það virkaði. Einnig keyrði hún bíl fram til dauðadags. Sigrún var menntuð sem leik- skólakennari og var það hennar aðalstarf utan heimilis. Síðast starfaði hún sem leikskólastjóri í Hlíðaborg. Sigrún hafði einstak- lega gott lag á börnum, gaf þeim nauðsynlegan tíma, hlustaði á þau og bar virðingu fyrir þeim. Sér- staklega tók ég eftir hversu fljót hún var að koma á friði þegar börn voru að rífast um eitthvað. Hún gat hreinlega fengið börnin til að skipta um umræðuefni á svipstundu og allt féll í dúnalogn. Ég er ekki frá því að hún hafi not- að eitthvað af þessum hæfileikum með börn á fullorðna líka. Sigrún var fyrst og fremst mikil fjölskyldukona – fjölskyld- an, vinirnir, hundurinn og trúin á Guð var það sem hennar líf sner- ist um hin síðari ár. Ég er tengda- móður minni ævinlega þakklátur fyrir þá ást og umhyggju sem hún ávallt sýndi börnum mínum og dóttursonum. Þau elskuðu ömmu og langömmu og munu minnast hennar með mikilli hlýju. Ég veit að Sigrún skilur við þennan heim sátt við Guð og menn. Blessuð sé minning Sigrúnar tengdamömmu minnar. Símon R. Unndórsson. Sigrún systir mín var orðvör og hógvær kona. Ég minnist ekki að hún hafi hnjóðað í nokkurn mann eða lagt til illt orð, aðeins stundi hún við, leit svo upp á við og því næst niður, ef aðstæður kröfðu hana álits á einhverjum, sem henni fannst miður til um. Hún ól mig upp frá frum- bernsku, því við vorum yngst í stórum bræðrahópi og móðir okk- ar hafði í mörg horn að líta á fjöl- mennu og gestgjöfulu heimili. Margs er að minnast frá róstu- sömum og ærslafullum æskuár- um. Þjóðfélagsmál og pólitík bar oft á góma innan veggja á hinum ýmsu þroskastigum þeirra er þar áttu skjól og „hygge“. Fljótt blöstu við stórum augum og litlum kollum ýmsar spurning- ar; m.a. um rétt og rangt og hvers vegna allir hefðu ekki nóg að borða eða nytu réttlætis og jafn- réttis. – Lítil hjörtu hafa næma og óspjallaða réttlætiskennd og vilja jafnframt vita um stöðu sína og öryggi í heimi, sem sinnir ekki þeim þörfum sem skyldi. Sigrún hafði nýlokið við að lesa fyrir mig rammpólitíska ævintýr- ið um litlu stúlkuna með eldspýt- urnar. Lítill snáði sat hnugginn og sorgbitinn og spurði „alviskuna“, stóru systur: Erum við fátæk? Lítill hlýr lófi var lagður á þáver- andi ljóshærðan koll: „Nei, Lilli minn, við höfum að minnsta kosti nóg fyrir okkur.“ Árin liðu, enn í dag minnist ég hlýjunnar og öryggisins, sem þessi litli hlýi lófi þrýsti inn í áhyggjufullt hjarta. Bernskan leið og dó vegna ald- urs, eins og eðli hennar er. Önnur þroskastig tóku við og önnur heilabrot, önnur vandamál. Þroskinn jókst með árunum. Fram á fullorðinsár átti ég því láni að fagna að eiga athvarf og pláss í stóru hjarta systur minnar fyrir vandamál mín og spurning- ar. Síðar, er fram liðu stundir, leystum við svo vanda, tap og sigra hvort annars í sameiningu. Slík manneskja var Sigrún, ekki bara mér heldur þeim, sem henni var annt um og lét sig varða. Fjölmörg eru þau börn, sem nutu elsku hennar og um- hyggju á löngum og farsælum leikskólastjórnarferli hennar í Reykjavík. Framtíð þeirra, far- sæld og hamingja var henni hug- stæð og ræddi gjarnan, nafnlaust. Húsnæðislaus eitt haustið í skóla hér fyrir sunnan rýmdu hún og Hallgrímur, maður hennar, eitt herbergi íbúðar sinnar og léðu mér heilan vetur. Hjá þeim var gott að búa og munurinn mik- ill frá leigukjöllurum og heima- vistum. Síðustu ár aldraðrar móður okkar hugsaði Sigrún um hana eins og ungbarn og að leiðarlok- um hennar lukti aftur augum hennar af sömu hlýju og nær- færni og henni var tamast. Sigrún og Halli hennar voru trúaðar og samhentar manneskj- ur og öllum góð fyrirmynd, en eins og gengur slapp hún ekki við að á henni skyllu áföll, sum of- urþung eins og að missa yngstu dóttur sína í bernsku úr venju- legri botnlangabólu er virtist í fyrstu. Fleira ekki hér um að sinni. Sigrún átti góð efri ár full hlýju, trúnaðartrausts og bjart- sýni, ferðaðist bæði innanlands og utan og ætíð í góðu yfirlæti og umhyggju ástvina sinna. Góður Guð geymi hana um tíma og í eilífð í náðarfaðmi sínum og blessi afkomendur þessa heims og annars. Lárus Þorvaldur Guðmundsson. Sigrún Guðmundsdóttir Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR HALLGRÍMSSON fiskifræðingur, er látinn. Helga Guðmundsdóttir Brynhildur Ingvarsdóttir Ósk Ingvarsdóttir Elísabet V. Ingvarsdóttir tengdasynir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.