Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Frábært til að bæta hormónajafnvægi fyrir konur á öllum aldri Heilbrigðari og grennri Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Mulin hörfræ - rík af Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum CC FLAX • Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd • Omega 3- ALA • Fjölbreyttar trefjar NÝJAR UMBÚÐIR SLEGIÐ Í GEGN Í VINSÆLDUM - FRÁBÆR -ÁRANGUR PREN TU N .IS Eftirheman Orginalinn& láta gamminn geysa Nánari upplýsingar hjá Palla í síma 665 0901 Miðasala á Tix.is og við innganginn Sunnudaginn 24. sept. kl. 20.00 Sunnudaginn 1. okt. kl. 20.00 Sunnudaginn 8. okt. kl. 20.00 Jóhannes Kristjánsson og Guðni Ágústsson koma fram og skemmta Magnað sunnudagskvöld með þjóðsögum og eftirhermum í Bæjarbíó Hafnarfirði Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ (M-lista) hefur óskað eftir því að bæjarráð leggi til við bæjarstjórn að óformleg afsögn Jóns Jósefs Bjarnasonar, 1. varabæjar- fulltrúa M-listans, verði tekin til greina. Í erindi bæjarfulltrúa Íbúa- hreyfingarinnar til bæjarráðs Mos- fellsbæjar kemur m.a. fram að ekki fari á milli mála að Jón sé hættur störfum, hann sinni ekki fundarboð- um en þiggi samt laun úr bæjarsjóði sem varabæjarfulltrúi. Jón tilkynnti tvisvar í sumar að hann sæi sér ekki lengur fært að starfa fyrir hönd bæjarbúa. Fyrst í aðsendri grein í bæjarblaðinu Mos- fellingi 29. júní síðastliðinn og síðan í opnu bréfi til bæjarstjórnar sem hann birti í umræðuhópnum Íbúar í Mosfellsbæ á Facebook 10. júlí. Þar sagði Jón m.a. að sér hefði verið meinað að leggja fram bókun á bæjarráðsfundi 22. júní í sumar. „Þetta er lögbrot, brot á samþykkt- um Mosfellsbæjar og aðför að lýð- ræðinu,“ skrifaði Jón og lauk færsl- unni á þessum orðum: „Ég segi mig frá varabæjarstjórnarembættinu af þessum sökum enda er það er heilsu- spillandi að umgangast það óheiðar- lega og siðlausa fólk sem hefur greinilega villt á sér heimildir gagn- vart kjósendum. Ég hef skömm á ykkur.“ Jón sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann hefði sagt af sér starfi varabæjarfulltrúa með opnu bréfi til bæjarstjórnarinnar. Það megi nota það opinberlega. Hann kvaðst ekki hafa sent aðra afsögn til bæjar- stjórnar. Bæjarráðið leitaði álits lögfræð- ings vegna tillögu Íbúahreyfingar- innar. Mat lögfræðingsins er að „á meðan umræddur bæjarfulltrúi hef- ur ekki beint formlegu erindi til bæj- arstjórnar þar sem hann óskar eftir því að fá lausn frá störfum, og ekki liggur fyrir að hann hafi misst kjör- gengi, er bæjarstjórn ekki heimilt að veita umræddum bæjarfulltrúa lausn frá störfum“. Sagði af sér í opnu bréfi  Varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ sendi ekki formlega afsögn til bæjarstjórnar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mosfellsbær Varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar sagði af sér. Marka á heildstæða málstefnu fyrir Reykjavíkurborg samkvæmt tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem samþykkt var í borgarráði í gær. Þar er lagt til að ráðinn verði starfsmaður í 30% starf í eitt ár til þess að sinna formennsku í sérstakri nefnd sem móta á umrædda stefnu. Í greinargerð borgarstjóra segir að vandað, skýrt og auðskilið mál – ritað sem talað – sé lykilatriði í þjón- ustu og stjórnsýslu Reykjavíkur- borgar. „Þar er íslenska í öndvegi og skal hún vera til fyrirmyndar,“ segir í greinargerðinni. Eigi málfarið að vera í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var árið 2009 um ís- lenska málstefnu og lög um íslenska tungu og táknmál. Þessu eigi ríki og sveitarfélög að bera ábyrgð á. – Það var í byrjun líðandi árs sem settur var á laggirnar starfshópur um mót- un málstefnu Reykjavíkurborgar og er tillagan um starfandi nefndar- formann framhald af því. Áætlaður kostnaður við starfið í eitt ár er 1,7 milljónir króna. Þjóðtungan sameini áfram Sú málstefna sem Alþingi ályktaði um á sínum tíma byggist meðal ann- ars á línum sem lagðar voru af Ís- lenskri málnefnd. Þar segir að tryggja verði lagalega stöðu ís- lensku sem þjóðtunga Íslendinga til þess að hún megi áfram sameina fólkið í landinu óháð uppruna þess. Því verði að tryggja rétt íslenskra ríkisborgara af erlendum uppruna og erlendra ríkisborgara, er hér fá dvalar- eða atvinnuleyfi, til kennslu í íslensku svo að þeir geti tekið fullan þátt í íslensku samfélagi á íslensku. Um leið og Íslendingar hafa rétt til að vernda menningarleg verð- mæti sín sé skylt að virða rétt þeirra er ekki tala íslensku. Þá verði líka að tyggja stöðu táknmáls. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mál Á íslensku má alltaf finna svar. Borgarstjóri á fjölmenningardegi. Málstefnu skal móta í Reykjavík  Íslenska er skýrt og auðskilið mál Alþjóðlegi bíllausi dagurinn er í dag, föstudaginn 22. september. Af því tilefni er frítt í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu allan daginn. Bíllausi dagurinn markar lok evr- ópsku samgönguvikunnar en til- gangur hennar er að kynna fólki samgöngukosti sem þykja vera vist- vænir, hagkvæmir og heilsueflandi. Bryddað hefur verið upp á ýmsu í tilefni samgönguvikunnar og í dag verður haldin í Bæjarbíói í Hafnar- firði ráðstefnan Hjólum til fram- tíðar – ánægja og öryggi. Ráð- stefnan verður sett kl. 10 og þar munu ýmsir – leikir og lærðir – sem þekkja vel til hjólreiða sem sam- göngukostar leggja orð í belg. Með- al annars verður sagt frá ýmsum þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til á höfuðborgarsvæðinu sem greiða eiga leið hjólreiðafólks og nýir kostir í því sambandi kynntir, svo sem hjólreiðahraðbraut sem verkfræðingar hafa hugmyndir um. Fjallað um hjólreiðar á bíllausa deginum í dag Morgunblaðið/Ómar Hjólað Margir munu væntanlega velja annan farkost en bílinn í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.