Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. „Best að horfast í augu við þetta“ 2. Segir dómgreind Katrínar hafa brjálast 3. Íslandsdvölin tók óvænta stefnu 4. Skúrinn of hár fyrir brúna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndin Undir trénu í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar verður framlag Íslands til Óskars- verðlaunanna 2018. Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar (ÍKSA) kusu í rafrænni kosningu sem lauk á miðnætti að- faranótt fimmtudags. Undir trénu framlag Íslands til Óskarsins  Opinn fundur um sögu og framtíð íslensku stjórnarskrárinnar verður haldinn í Gerðarsafni í kvöld milli kl. 19.30 og 22, en fundurinn er hluti af Cycle-listahátíðinni. Meðal frummæl- enda eru Libia Castro, Ólafur Ólafsson, Andri Snær Magnason, Ragn- ar Aðalsteinsson, Birg- itta Jónsdóttir, Bryn- hildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Hörður Torfason. Opinn fundur um stjórnarskrána Á laugardag Austan- og suðaustanhvassviðri eða stormur og tals- verð rigning, en mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8-15 stig. Á sunnudag Allhvöss sunnanátt með rigningu og síðar skúrum, en léttskýjað norðaustantil. Fer að lægja síðdegis. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13 m/s og víða rigning, en úr- komulítið norðanlands. Hiti 6 til 13 stig. VEÐUR Í íþróttablaði Morgunblaðs- ins í dag er að finna kynn- ingu á karlaliði ÍR í hand- knattleik. ÍR-ingar eru nýliðar í Olís-deildinni í vetur en hafa styrkt leikmannahóp sinn verulega á milli tíma- bila. Breiðhyltingar virðast því vera nokkuð bjartsýnir á gott gengi í vetur. Ekki síst þar sem leikmaður ársins 2015, Björgvin Hólmgeirs- son, sneri aftur heim í sum- ar. »2-3 Breiðhyltingar styrktust í sumar Igor Jugovic tryggði Fjölni 2:1-sigur á FH í Grafarvogi í gær með tveimur mörkum, en sigurmarkið kom undir lok leiksins. Þetta var annar sigur Fjölnis á FH í Pepsi- deildinni í knatt- spyrnu í sumar. Úrslitin þýða að Skagamenn eru fallnir niður um deild. »1 & 4 Jugovic rak síðasta naglann í kistu ÍA Vonir standa til þess að Egill Magn- ússon verði orðinn gjaldgengur með handknattleiksliði Stjörnunnar áður en dagurinn í dag verður á enda. Þetta hefur Morgunblaðið eftir heim- ildum og að hann skrifi undir samn- ing við Garðabæjarfélagið sem gildir fram á næsta vor. Egill hefur verið samningsbundinn Team Tvis Holstebro í Danmörku frá 2015. »1 Egill aftur leikmaður Stjörnunnar í dag? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Vertu snjall undir stýri nefnist átak sem Slysavarnafélagið Lands- björg ýtti nýverið úr vör. Til- gangur þess er að vekja bílstjóra til umhugsunar um þá miklu ábyrgð sem fylgir því að vera úti í umferðinni og nota snjalltæki und- ir stýri með mögulegum lífshættu- legum afleiðingum. Slysatölur frá Evrópu og Ameríku sýna að 25% allra slysa í umferðinni megi rekja beint til notkunar snjalltækja und- ir stýri og er það sama hér á landi. „Þetta er áhyggjuefni alls staðar í heiminum og við verðum að trúa því að við getum breytt þessu. Samgöngustofa gerði viðhorfs- könnun á Íslandi í fyrra, þar sögðu 90% hættulegt að nota tækið undir stýri en af sama hópi sögðust 43% samt gera það, þau vita að þetta er hættulegt en stunda samt þessa áhættuhegðun. Ég held að þetta sé stærri ógnvaldur í okkar samfélagi en við gerum okkur grein fyrir,“ segir Svanfríður Anna Lárusdóttir, stjórnarmaður hjá Slysavarna- félaginu Landsbjörg og talsmaður átaksins Vertu snjall undir stýri. Höfum gert þetta áður Svanfríður segir viðhorfsbreyt- ingu þurfa að koma til hjá fólki og verkefnið sé liður í að vekja það til vitundar. „Nú er verið að skoða að þyngja mjög sektina við því að nota snjalltæki undir stýri, það gæti kostað í 40.000 kr. ef lög- reglan nær þér. Það hjálpast allt að; að breyta reglum og að breyta viðhorfi.“ Svanfríður bendir á að Íslend- ingar hafi áður tekið saman höndum og breytt viðhorfum í umferð- inni í sam- einingu, t.d. með barnabílstóla og öryggisbelti. „Við getum þetta al- veg en þurfum bara öll að vera vakandi.“ Átakið er til næstu fimm ára og beint að öllum hópum ökumanna. „Rannsóknir hafa sýnt að notkun snjalltækja undir stýri er ekki tengd við aldurshópa. Það eru allir að nota símann undir stýri en það er misjafnt hvað fólk er að gera. Elstu hóparnir eru mest að tala í hann en yngri hópar eru að gera ýmislegt annað eins og að senda textaskilaboð, horfa á „snöpp“ og á YouTube. Einhvern veginn er þessi tækni búin að læðast smátt og smátt þessa leið og við verðum að fara að spyrna við fótum,“ segir Svanfríður. Akstur krefst fullrar athygli  Átak hafið gegn snjallsímanotkun ökumanna Ljósmynd/Landsbjörg Áhættuhegðun K100-útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns var fenginn til að senda skilaboð undir stýri á aksturs- braut Ökuskóla 3. Það fór ekki vel eins og sjá má í myndbandi á Facebook-síðunni Svali&Svavar. Í tengslum við átakið „Vertu snjall undir stýri“ skrifuðu nokkur stór fyrirtæki sem eru með marga bíla í umferð undir samning um sam- félagslega ábyrgð og mun Sam- göngustofa standa fyrir fræðslu um hætturnar sem fylgja notkun snjall- tækja undir stýri í þeim fyrirtækjum. Fyrirtækin merkja svo bílana sína með slagorði verkefn- isins og miðla þannig boðskapnum til annarra ökumanna. Þá fékk Landsbjörg þrjá þekkta einstaklinga; Pál Óskar Hjálmtýs- son, Sólrúnu Diego og Sigvalda Kaldalóns til að gera tilraunir á akstursbraut. Þau fengu mismun- andi verkefni sem öll snúa að notk- un á snjalltæki undir stýri á meðan þau keyrðu. Óvæntir hlutir urðu á vegi þeirra með tilheyrandi afleið- ingum en myndbönd frá aksturs- tilraun þeirra má sjá á vefnum. Fengu fyrirtæki og fræga í liðið VERTU SNJALL UNDIR STÝRI  Að forðast nátt- úruna er yfirskrift þverfaglegrar ráð- stefnu sem fram fer í fyrirlestrar- sal myndlistar- deildar LHÍ á Laugarnesvegi 91 í dag milli kl. 9 og 13. Þar velta vís- indamenn, hugsuðir, listamenn og hönnuðir fyrir sér athöfnum fólks í náttúrunni og því afli sem býr í vist- fræðilegri nálgun. Fyrirlesarar eru Steven Campana, Ron Broglio, Shauna Laurel Jones, Xarene Esk- andar og Cary Wolfe. Að forðast náttúruna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.