Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
Hljómsveitin Moses Hightower
heldur útgáfutónleika í Háskólabíói
í kvöld vegna þriðju breiðskífu
sinnar, Fjallalofts, sem kom út 9.
júní sl. Á henni má finna 11 lög og
hafa nokkur þeirra hlotið þónokkra
spilun í útvarpi, m.a. titillag plöt-
unnar.
Moses Hightower mun flytja nýju
plötuna á tónleikunum í kvöld í
bland við eldra efni og fá til liðs við
sig blásarasveit og aðra sparihjálp-
arkokka, eins og því er lýst á face-
booksíðu viðburðarins. Þar segir að
hljómsveitin komi sjaldan fram sök-
um dreifðrar búsetu.
Moses Hightower fagnar Fjallalofti
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fögnuður Moses Hightower heldur útgáfutónleika í Háskólabíói í kvöld kl. 20.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Vestur-Íslendingurinn og trúba-
dorinn Lindy Vopnfjörð kemur
fram með hljómsveitinni Nýdönsk
á tvennum tónleikum hennar í Eld-
borgarsal Hörpu á laugardaginn og
mun Nýdönsk leika nokkur lög eft-
ir hann á tónleikunum, í bland við
lög af nýrri hljómplötu sinni, Á
plánetunni jörð, og eldri smelli.
Lindy er af íslenskum ættum og
spyr blaðamaður því hvort hann
vilji að viðtalið fram á íslensku.
„Ég tala ekki íslensku þannig að þú
myndir ekki fá mikið að moða úr,“
svarar Lindy og hlær. Hann hafi þó
lært hrafl í íslensku á tveggja vikna
tónleikaferðalagi með Snorra
Helgasyni, Ylju og Mr. Silla fyrir
fáeinum árum. „Þau töluðu íslensku
allan tímann og undir lokin var ég
farinn að átta mig á því um hvað
þau voru að tala,“ segir hann.
Lindy á langan feril að baki, hef-
ur gefið út sex hljómplötur og kom-
ið fram víða hér á landi, m.a. á tón-
listarhátíðunum Iceland Airwaves
og Reykjavík Folk Festival. „Þið
getið ekki haldið mér í burtu,“ seg-
ir hann kíminn.
Finnur fyrir skyldleika
Lindy heitir í raun Lindon Valdi-
mar Vopnfjörð en segist hafa verið
kallaður Lindy frá blautu barns-
beini. Hann fæddist og ólst upp í
Manitoba en býr nú í Toronto.
Langafi og langamma Lindy voru
meðal þeirra Íslendinga sem flutt-
ust búferlum til Kanada í upphafi
síðustu aldar og ættarnafnið er frá
langafa hans komið en hann var frá
Vopnafirði. Foreldrar Lindy voru
þjóðlagatónlistarmenn, ferðuðust
um Kanada og komu fram á hátíð-
um þegar Lindy og bróðir hans
voru börn að aldri. Þeir tróðu oft
upp með foreldrum sínum og sungu
m.a. íslensk lög en textana lærðu
þeir einfaldlega utan að þar sem
þeir töluðu ekki íslensku. Það er
því engin furða að Lindy hafi kosið
sér þetta starf, starf söngvaskálds-
ins.
Lindy er spurður að því hvort
það sé honum mikilvægt að halda
tónleika á Íslandi með íslenskum
tónlistarmönnum og hann er fljótur
stil svars: „Algjörlega. Það er mér
mjög dýrmætt. Gæði íslenskrar
tónlistar eru mikil og fólkið er líka
vandað. Það er eitthvað afar sér-
stakt við það, ég veit ekki hvernig
ég á að lýsa því. Þegar ég var að
alast upp reyndum við fjölskyldan
að varðveita arfleifðina og ég hef
alltaf verið mjög meðvitaður um ís-
lenskar rætur mínar. Ég finn alltaf
til skyldleika með íslenskum
tónlistarmönnum þegar ég fer til
Íslands að spila, finn fyrir því að
þetta sé mitt fólk.“
Tvö lög um Yeonmi Park
Lindy stofnaði hljómsveit með
bróður sínum þegar þeir voru tán-
ingar en hóf sólóferil á þrítugsaldri
þegar bróðir hans var orðinn of
önnum kafinn til að sinna hljóm-
sveitinni. Hann segist þó ekki hafa
lifað á tónlist einni og sér framan af
ferlinum, hanni hafi þurft að sinna
öðrum störfum til að eiga fyrir salti
í grautinn. Síðustu ár hafi þó orðið
bót þar á.
Lindy segist ferðast mikið sem
trúbador, söngvaskáld, og kunna
því vel. En hvernig lög semur
hann? „Þetta eru ástarlög og mót-
mælasöngvar. Ég er mikill áhuga-
maður og baráttumaður fyrir frelsi
og hef sankað að mér sögum af
fólki sem hefur upplifað harðstjórn
og einræði. Á nýju plötunni minni,
Frozen in Time, eru t.d. tvö lög um
Yeonmi Park. Við þekkjumst, ég
hitti hana í New York og var við-
staddur fyrsta fyrirlestur hennar í
Norður-Ameríku. Ég beið í biðröð
eftir því að fá að hitta hana og
sagði henni að ég myndi semja um
hana lag. Ég samdi tvö og hún var
hæstánægð með þau,“ segir Lindy
en Park flúði Norður-Kóreu 13 ára
gömul, skrifaði síðar bók um ævi
sína, Lífið að veði og hefur haldið
fjölda fyrirlestra víða um heim sem
varpað hafa frekara ljósi á hvernig
lífið er í Norður-Kóreu.
Lindy segist hafa samið fleiri lög
og texta um fórnarlömb harðstjórn-
ar og kúgunar en þó megi einnig
finna lög um ástina á plötunni nýju.
Hann segir lögin á henni full vonar,
þó yrkisefnin virðist ekki í fyrstu
bjóða upp það.
Fjögurra ára að syngja
um kjarnorkuvá
–Á vefsíðunni þinni stendur að
þú hafir aðeins fjögurra ára sungið
um ógnir kjarnorkuvopna, á tón-
leikum með foreldrum þínum. Þú
varst strax þá farinn að hafa
áhyggjur af heimsfriði og ýmsum
ógnum sem steðja að mannkyninu?
Lindy hlær. „Þetta var reyndar á
Íslendingahátíð í Manitoba og lag
sem pabbi minn valdi fyrir okkur
að syngja saman. Hann söng einn
kafla og ég þann næsta og þetta lag
fjallaði um heiminn að lokinni
kjarnorkustyrjöld. Ég var barn að
leika mér í moldinni og fann minjar
um fyrri menningarsamfélög en
hann söng á móti að ég ætti að
koma mér í burtu og vera ekki að
eiga við þær. Ég get ekki ímyndað
mér hvað hátíðargestum þótti um
þetta,“ segir Lindy og hlær inni-
lega.
Mikil tilhlökkun
Talið berst að Nýdönskum og
segist Lindy hafa kynnst Daníel
Ágústi Haraldssyni á bar hér á
landi fyrir nokkrum árum. Þeir hafi
verið í sambandi síðan af og til og
Daníel svo boðið honum í hljóðver
þegar hljómsveitin var við upp-
tökur á nýútkominni plötu sinni, Á
plánetunni jörð, í Toronto fyrr á
þessu ári.
„Það var frábært að hitta þá og
viku seinna sendi Daníel mér tölvu-
póst og spurði hvort ég hefði áhuga
á að vera með þeim á tónleikunum.
Ég var að sjálfsögðu til í það, hopp-
aði hreinlega af kæti! Ég hlakka
ákaflega mikið til tónleikanna,“
segir þessi viðkunnanlegi Vestur-
Íslendingur að lokum.
Víðförull Lindy Vopnfjörð hefur farið víða. Hér á hann leið hjá fagurgulum, tveggja hæða strætisvagni.
Heldur fast í ræturnar
Vesturíslenski trúbadorinn Lindy Vopnfjörð kemur
fram með Nýdönskum á tvennum tónleikum í Eldborg
á laugardaginn Frelsisbarátta er honum hugleikin
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8, 10.50 SÝND KL. 4, 6 SÝND KL. 4
SÝND KL. 6, 8, 10.20SÝND KL. 8, 10
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 6. október
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna haust / vetur 2017 í förðun,
snyrtingu og fatnaði, fylgihlutum auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 2. október
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur