Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Eggert Gaman saman Jogvan, Guðrún og Sigga hittust í hádeginu í gær til að rifja upp brandarana fyrir kvöldið í kvöld. á land með þetta prógramm og það eru yndislegar ferðir sem tengja okkur þrjú enn frekar saman sem manneskjur. Við náum vel saman þetta þríeyki, við erum öll alltaf svo spennt þegar við erum að fara að halda þessa tónleika, okkur finnst þetta svo gaman. Það er alltaf gaman að syngja á tón- leikum, en það er alveg extra skemmtilegt með þeim tveim, þau eru bara svo yndisleg bæði tvö, Guðrún og Jogvan.“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Superb skarar fram úr á mörgum sviðum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda með stærsta innanrýmið og skottið í sínum flokki. Byltingarkennd hönnun, hámarksþægindi og tæknimöguleikar auka enn á styrkleika hans. Komdu og prófaðu nýjan Superb. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is SUPERB KEMUR STERKUR INN Í EFSTU DEILD SUPERB. FLAGGSKIPIÐ Í ŠKODA FJÖLSKYLDUNNI. ŠKODA SUPERB frá: 4.440.000 kr. Kaupauki að verðmæti fylgir Superb í september. 300.000 kr. Jogvan Hansen, Sigga Beinteins og Guðrún Gunnarsdóttir halda tón- leika í kvöld, föstudaginn 22. sept., í Salnum í Kópavogi kl. 20. Söngdagskráin þeirra, Við eigum samleið, hefur gengið fyrir fullu húsi í á þriðja ár og nú hafa þau endurnýjað stærstan hluta dag- skrárinnar og bætt við mörgum lögum sem ekki heyrast oft í lifandi flutningi, t.d lög eins og: Í Rökkurró, Fjórir kátir þrestir, Án þín, Enn birtist mér í draumi o.fl. Ekki aðeins fá gestir að njóta þess að hlusta á þau syngja skemmtileg og falleg lög, heldur segja þau líka sögur sem tengjast lögunum sem og sögur úr eigin ranni. Með þeim Jogvani, Guðrúnu og Siggu leikur hljómsveit undir stjórn Karls Olgeirssonar. Miðasala er á salurinn.is Við eigum samleið LÖGIN SEM ALLIR ELSKA Jógvan Hansen Í Skálholti er boðið upp á pílagríma- daga núna í haust, nánar tiltekið um helgina 6.-8. október nk. Í tilkynningu kemur fram að píla- grímadagar séu stef við kyrrðardaga eins og þeir hafa verið iðkaðir í Skál- holti, utan þess að ekki er gengið inn í þögn nema á ákveðnum tímum. Á þessum dögum pílagrímsins í október verður lögð áhersla á útivist og göngur út frá Skálholtsstað, holl- ustu í mataræði, slökun og kyrrðar- stundir, sem sagt að ganga með sjálf- um sér og að ganga með öðrum. Þau sem ætla að sjá um að leiða pílagrímadagana eru sr. Elínborg Sturludóttir, sr. Halldór Reynisson og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, spænskufræðingur og eigandi ferða- skrifstofunnar Mundo, en hún hefur leitt pílagrímagöngur til Santiago de Compostela undanfarin ár. Á dagskránni má m.a. finna slökun og jóga, fræðslu um það hvað píla- grímur er, Gregorsöng, sem er leiðslumúsík í kirkju, kvöldtíðir í kirkju, samveru við arin þar sem spjallað verður um það hver við erum, pílagrímamessu og íhugun pílagríma- stefsins. Dagskráin er tilboð en engin skylda er að mæta á alla dagskrárliði. Nánar um dagskrána og skráning er á vefsíðunni www.skalholt.is Pílagrímadagar í Skálholti í október Morgunblaðið/Eggert Margrét Jónsdóttir Njarðvík Hún er ein þeirra sem leiða pílagrímadaga. Að ganga með sjálfum sér og að ganga með öðrum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.