Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 10

Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Sjáðu þetta! Centro Style 56212 umgjörð kr. 16.800,- BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í dag má gera ráð fyrir því að nokkur hátíðarbragur verði á samfélaginu í Nuuk á Grænlandi, höfuðstað lands- ins þar sem ríflega 17 þúsund af 57 þúsund íbúum landsins búa. Tilefnið er sú staðreynd að í dag verður ný stórskipahöfn vígð, Sikuki Nuuk- höfnin eins og hún nefnist, en hún stendur suðaustur af bænum og nokkru austar en gamla höfnin sem um áratugaskeið hefur þjónað sem dyrnar að út- og innflutningi lands- ins. Uppbygging hafnarmannvirkj- anna er stærsta fjárfesting í sögu landsins og markar tímamót því hún opnar möguleika fyrir Grænlendinga til að tengjast inn á ný markaðs- svæði. Þá losnar einnig um mik- ilvægt athafnasvæði við gömlu höfn- ina sem stendur nær mannlífinu í Nuuk. Hafist handa í árslok 2013 Haukur Óskarsson, tæknifræð- ingur og eigandi ráðgjafarfyrirtæk- isins Refskeggs, hefur setið í stjórn verkefnisins allt frá því að því var komið á laggirnar af grænlensku landsstjórninni árið 2013. Hann segir opnun hafnarinnar mikil tímamót. „Það var lengi búið að ræða mikil- vægi þess að byggja upp almennilega höfn í Nuuk og samfélagið gerði sér grein fyrir því að það gæti haft mikil áhrif á framgang samfélagsins. Þessi umræða var búin að standa alla vega frá aldamótum en það var svo í des- ember árið 2013 sem landsstjórnin kom á laggirnar fyrirtækinu Sikuki Nuuk harbour.“ Gríðarleg fjárfesting Haukur segir fjárfestinguna í höfninni gríðarlega á grænlenskan mælikvarða. „Þetta er verkefni upp á 650 milljónir danskra króna, [jafn- virði ríflega 11 milljarða íslenskra króna]. Landsstjórnin lagði gömlu hafnirnar inn í fyrirtækið, ásamt hlutafé og þá veitti hún einnig víkj- andi lán til framkvæmdarinnar.“ Haukur segir að um leið og ákveð- ið hafi verið að ráðast í þessa miklu framkvæmd hafi vinna farið af stað við að móta lagaumgjörð um málefni hafnanna í Grænlandi en mjög hafi skort á skýrar línur í þeim efnum. Þá hafi einnig reynst nauðsynlegt að gera ráðstafanir sem tryggi höfninni viðskipti á komandi árum. „Landsstjórnin tók ákvörðun um að allir gámar sem fluttir eru út úr landinu og til þess næsta tuttugu og eina og hálfa árið muni fara í gegnum þessa höfn. Þá er hugsunin sú að bú- ið verði að greiða upp fjárfest- inguna.“ Hann segir að stjórn verkefnisins hafi strax fengið skýr skilaboð um að verkefnið þyrfti að standa undir sér og að fyrirtækið utan um hafnirnar þyrfti að skila ákveðnum arði til rík- isins. „Það er alveg skýr krafa um að fyrirtæki undir forræði landsstjórn- arinnar þurfa að skila tiltekinni arð- semi og frá því hefur ekki verið hvik- að í þessu verkefni,“ segir Haukur. Flókið á marga mælikvarða Það er ekki einfalt mál að ráðast í umfangsmiklar hafnarframkvæmdir á borð við þær sem nú eru orðnar að veruleika í Nuuk. Hvað þá þegar slíkar framkvæmdir eiga sér stað á norðurheimskautssvæðinu, í órafjar- lægð frá stórborgum þar sem sam- göngum er hægt að taka sem sjálf- sögðum hlut. „Ákveðið var að reisa höfnina á eyjum sem liggja suðaustur af bæn- um og það þurfti að vinna niður mik- ið grágrýti til að slétta land og sækja efni í fyllingar. En það var fleira sem gerði verkið flókið. Það þarf mikinn sand í framkvæmd sem þessa og hann er ekki auðfáanlegur þarna á svæðinu. Það varð því að búa til hluta af sandinum úr granítinu og það er ekki létt verk,“ segir Haukur. Margir Íslendingar komu að Hann bendir einnig á þá skemmti- legu staðreynd að fjöldi Íslendinga og íslenskra fyrirtækja hefur átt að- komu að framkvæmdinni. Danska verktakafyrirtækið Per Aarsleff varð hlutskarpast í útboði en Ístak er í eigu þess. Ístak hefur því haft mjög virka aðkomu að verkefninu. „En það eru fleiri fyrirtæki sem þarna komu að. Mann- virkin eru til dæmis hönnuð af Eflu og þá hefur Mannvit haft menn í eft- irlitsteyminu með fram- kvæmdinni ásamt Orbicon allan tímann,“ seg- ir Haukur. Hrein bylting fyrir Grænland  Ný stórskipahöfn verður vígð í Nuuk í dag  Íslenskir sérfræðingar lykilmenn við uppbygginguna  Breytir miklu fyrir samfélagið á Grænlandi  Tækifæri að skapast vegna siglinga skemmtiskipa Bylting Höfnin er mikið mannvirki, reist á eyjum rétt utan við Nuuk. Þar geta stór flutningaskip lagst við bryggju án nokkurra vandkvæða og athafnað sig. Búnaður Ásamt mannvirkjum státar höfnin af tveimur nýjum og mjög öflugum krönum sem notaðir eru til að ferma og afferma flutningaskipin. Með tilkomu nýju hafnarinnar losnar um stórt athafnasvæði á gömlu höfninni sem þjónað hefur Nuuk síðustu áratugi. Haukur Óskarsson segir að Si- kuki Nuuk Harbour A/S, eig- andi hafnarmannvirkjanna, muni leita leiða til að hámarka nýtingu gömlu hafnarinnar. „Hún er vel staðsett og nærri bænum þannig að það er mikilvægt að fjárfestingin sem liggur í henni nýtist fyr- irtækinu og samfélaginu sem best. Eitt af því sem við sjáum gerast er að komur skemmti- ferðaskipa hafa færst mjög í aukana á síðustu árum og það er flest sem bendir til að það sé þróun sem muni halda áfram. Gamla höfnin hentar mjög vel til að þjónusta þessi skip.“ Nýta gömlu höfnina áfram ÝMIS TÆKIFÆRI Grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line er umsvifamikið í flutningum til og frá landinu. Þá hafa umsvif Eimskips einnig auk- ist til muna. Fyrirtækin tvö hafa einnig efnt til samstarfs sem m.a. felst í samnýtingu skipa en nú standa þau fyrir smíði þriggja nýrra flutningaskipa í Kína. Er þar um að ræða 180 m löng skip og er kostnaður við hvert þeirra áætlaður um 3,7 milljarðar króna. Til að setja stærð skipanna í sam- hengi eru þau mæld í 2.150 gáma- einingum og munu það vera lang- stærstu flutningaskip sem þjónustað hafa Ísland og Græn- land. Þá munu flutningar frá Grænlandi í gegnum Ísland aukast til muna. Haukur Ósk- arsson segir að samstarf fyrir- tækjanna skipti miklu máli og að það gefi ákveðið fyrirheit um nýt- ingu Sikuk-hafnarinnar í Nuuk. „Þetta eru öflug fyrirtæki sem hafa efnt til samstarfs og manni finnst líklegt að þetta verði báðum þjóðum til hagsbóta.“ Hingað til hafa allir skipaflutn- ingar til og frá Grænlandi farið í gegnum Álaborg en allt stefnir nú, samkvæmt yfirlýsingum flutninga- fyrirtækjanna, í að breyting verði þar á. Með tilkomu nýju hafn- arinnar verður siglt á stórar hafn- ir í Århus og Rotterdam. Fjölga mun möguleikum Grænlendinga til að tengja inn á erlenda markaði og m.a. er þar rætt um skipaleiðir til Asíu. Í fyrra sagði Gylfi Sigfús- son í viðtali við ViðskiptaMoggann að þessar breyttu áherslur myndu breyta bæði „kaup- og sölu- mynstri“ Grænlendinga. ses@mbl.is Opnar nýja markaði og nýjar viðskiptatengingar  Stefnt á siglingar á hafnirnar í Rotterdam og Århus Haukur Óskarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.