Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
Smár en knár Smyrill á staur í Norðurfirði á Ströndum. Smyrill er minnstur fálka, harðfylginn veiðifugl og lifir á smáfuglum. Karlinn er blágrár á baki og minni en kvenfuglinn sem er brúnn.
Golli
Danski þjóðarflokk-
urinn (Dansk Folkep-
arti, DF) varð fyrstur
stjórnmálaflokka í
Evrópu til að afla sér
mikils fylgis með
stefnu í útlendinga-
málum. Í upphafi ald-
arinnar tók flokkurinn
höndum saman með
forystumönnum
Venstre (mið-hægri)
og Íhaldsflokksins og mótaði stranga
útlendingastefnu Dana. Þegar litið
var til annarra þjóða þótti þetta
óvenjulegt.
DF varð annar stærsti flokkur
Danmerkur árið 2015 með 21% at-
kvæða. Flokkurinn stendur nú að
baki ríkisstjórninni undir forystu
Venstre en hann hefur aldrei átt ráð-
herra í ríkisstjórn. Enn á ný hefur
Danski þjóðarflokkurinn gert „bylt-
ingu“ í dönskum stjórnmálum. Hann
hefur tekið upp samstarf við danska
Jafnaðarmannaflokkinn. Slíkt sam-
starf er án fordæma í Vestur-
Evrópu.
Kristian Thulesen Dahl, formaður
DF, hefur styrkt eigin stöðu með
þessu. Ný könnun sýnir að 48% að-
spurðra telja að hann sé mesti áhrifa-
maðurinn í dönskum stjórnmálum.
Lars Løkke Rasmussen, forsætis-
ráðherra og formaður Venstre, er í
öðru sæti með stuðning 26% að-
spurðra.
Samstarf DF við Jafnaðarmenn
má rekja til þess að Jafnaðarmenn
hafa breytt um stefnu í útlendinga-
málum og taka nú undir svipuð sjón-
armið og DF boðar. Þetta þótti
óhugsandi fyrir nokkrum árum og er
einsdæmi meðal jafn-
aðarmannaflokka í
Vestur-Evrópu.
DF og Jafnaðar-
mannaflokkurinn hafa
nálgast svo greinilega
að kjósendur telja að
minnst bil sé á milli
þessara flokka – 48%
segja að DF standi
Jafnaðarmannaflokkn-
um næst, 30% segja að
DF standi Venstre
næst.
Fjárlagafrumvarpið
og hælisleitendur
Í greinargerð með fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið 2018 sem lagt
var fram á alþingi 12. september seg-
ir að kostnaður vegna þjónustu við
hælisleitendur hafi farið fram úr fjár-
heimildum ársins 2017 vegna áfram-
haldandi fjölgunar hælisumsókna frá
fordæmalausri fjölgun á síðari hluta
ársins 2016. Mikil óvissa sé um fjölda
hælisleitenda en gera megi ráð fyrir
fjölgun bæði tilhæfulausra hælis-
umsókna og einnig umsókna þar sem
tilvik séu flóknari. Sveiflum í mála-
flokknum fylgi tilheyrandi ófyrir-
sjáanleiki varðandi kostnað. Stefnt
sé að lækkun kostnaðar við þjónustu
með hraðari málsmeðferð. Hins veg-
ar geti hraðari málsmeðferð haft í för
með sér meiri kostnað í byrjun sem
lækki til lengri tíma litið.
Heildarfjárheimild til málaflokks-
ins fyrir árið 2018 er áætluð 3.673
m.kr. og hækkar um 1.600,9 m.kr. frá
gildandi fjárlögum, það er um 109%.
Framlag til hælismála er aukið um
1.573,9 m.kr. til að mæta viðvarandi
fjölgun hælisumsókna. Með viðbót-
arframlaginu verða heildarframlög
til fjárlagaliðarins 2.688,3 m.kr.
Þetta eru miklar fjárhæðir. Þær
eru eitt en það sem kallað er „ófyrir-
sjáanleiki“ í greinargerðinni annað. Í
orðinu felst að hér er í raun um
stjórnlausan fjárlagalið að ræða.
Fyrr á árinu kallaði Sigríður Á.
Andersen dómsmálaráðherra þetta
„áhlaup“.
Stjórnmálaþögn rofin
Með hliðsjón af því hve miklu af
skattfé almennings er varið til hæl-
ismála er stórundarlegt að umræðan
sé ekki meiri um útlendingamálin á
stjórnmálavettvangi. Það er engu lík-
ara en íslenskir stjórnmálamenn
forðist málaflokkinn og vilji helst að
um hann ríki pólitísk þögn.
Stjórnmálaþögnin hér var þó rofin
á áhrifamikinn hátt miðvikudaginn
13. september þegar Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra flutti
ræðu og svaraði fyrirspurnum á
fundi Samtaka eldri sjálfstæðis-
manna. Ítarleg frásögn af þessum
þætti fundarins birtist á mbl.is sama
dag og fundurinn var haldinn.
Bjarni ræddi um „ófyrirsjáanleik-
ann“ í útlendingamálunum. Hann
sagði: „Það sem við höfum lært er að
það borgar sig að stórefla stjórn-
sýsluna, þannig að niðurstaða fáist í
þau mál sem allra fyrst. Það er
mannréttindamál að fá svar strax.
[…] Mér finnst erfitt að horfa á [eft-
ir] þessum miklu fjármunum sem
fara í þetta mál.“
Hitt er einnig mikilvægt að efla
landamæravörsluna. Með því ætti að
stíga markviss skref til að stemma
stigu við komu þeirra sem leggja
fram „tilhæfulausar“ hælisumsóknir.
Þeir eiga ekkert erindi hingað og
ætti að gera skipulegt átak í sam-
vinnu við flugfélög til að spara þeim
tilgangslausa ferð til Íslands í von
um hæli. Þetta fólk mætti kalla fé-
lagslegt farandfólk því að tilgangur
þess er oft einkum sá að nýta sér fé-
lagslegt kerfi á meðan hælisumsókn
er til meðferðar.
Á fundinum sagði forsætisráð-
herra að lögregla hefði ekki farið
óvopnuð í Víðines þegar hælisleit-
endur dvöldust þar. Að þessi ummæli
vektu ekki umræður stangast á við
uppnámið sem varð snemma í júní
þegar vopnaðir sérsveitarmenn sáust
við vörslu á fjölmennri samkomu í
Reykjavík. Ef til vill fellur það ekki
að staðalímynd frétta af hælisleit-
endum að lögreglumenn vopnist séu
þeir sendir til eftirlits meðal þeirra í
Víðinesi.
Slæm ráðstöfun
Fyrir fáeinum árum veikti alþingi
tiltrú til útlendingastofnunar þegar
þingmenn samþykktu að albanskar
fjölskyldur fengju hér ríkisborgara-
rétt þótt stofnunin teldi útlendinga-
lög ekki standa til þess. Forsætisráð-
herra sagði á fundinum í Valhöll að
það hefði verið „slæm ráðstöfun að
fara ríkisborgaraleiðina í Albaníu-
málinu. Það má kannski segja að við
höfum með einhverjum hætti misst
stjórn á því máli sem endaði svona“.
Bjarni sagði: „Ég er þeirrar skoð-
unar að við þurfum að vera með mjög
strangar reglur og skýr svör, ella
munum við kalla yfir okkur bylgjur
af nýjum flóttamönnum.“
Um þá ákvörðun stjórnvalda að
taka við 100 flóttamönnum á ári fyrir
utan hælisleitendur næstu fimm árin
sagði Bjarni Benediktsson: „Þetta er
tímabundin ákvörðun.“ Í þessu tilviki
hefðu stjórnvöld stjórn á hverju ein-
asta tilfelli. Fólk sem færi eftir þess-
ari leið ætti möguleika á að skjóta
rótum á Íslandi.
Söguleg umræða
Það er í raun sögulegt að umræða
af þessu tagi fari fram á stjórnmála-
vettvangi og líklega er Sjálfstæðis-
flokkurinn eini íslenski stjórnmála-
flokkurinn sem hefur þrek til að taka
þessi mál til umræðu á málefnalegan
hátt og á svipuðum grunni og gert er
í forystuflokkum í öðrum löndum.
Þegar rætt er um útlendingamál
verður að gæta þess, eins og Bjarni
Benediktsson gerði, að setja ekki alla
undir sama hatt. Innflytjendum sem
koma hingað eftir lögmætum leiðum
er ekki unnt að skipa með farand- og
flóttafólki.
Hér að ofan var Danmörk nefnd til
sögunnar. Þar hafa stjórnvöld ákveð-
ið að rjúfa þá hefð að taka á móti 500
kvótaflóttamönnum á ári af því að
danskt samfélag anni því ekki að laga
þá sem áður hafa komið að dönskum
háttum. Það verði að gera hlé til að
vinna heimavinnuna betur ef svo má
að orði komast.
Stutt en væntanlega snörp kosn-
ingabarátta er hafin vegna þingkosn-
inganna 28. október. Óhjákvæmilegt
er að frambjóðendur og flokkar geri
kjósendum grein fyrir stefnu sinni í
þessum mikilvægu málum.
Eftir Björn
Bjarnason »Með hliðsjón af
miklu skattfé al-
mennings til hælismála
er stórundarlegt að um-
ræðan sé ekki meiri um
útlendingamálin á
stjórnmálavettvangi.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Útlendingamálin verður að ræða fyrir kosningar