Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
✝ GuðmundurSigurjónsson
fæddist á Hverf-
isgötu 57a, Reykja-
vík, 16. ágúst 1920.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Ísa-
fold 15. september
2017.
Foreldrar hans
voru Rannveig Ví-
dalín Guðmunds-
dóttir, f. 15.12.
1897, d. 22.3. 1985, og Sigurjón
Sigurðsson, f. 20.6. 1891, d.
20.6. 1971. Systkini Guðmundar
voru Sigurður, f. 23.2. 1922, d.
3.6. 1977. Kjartan, f. í maí
1924, d. 1924, Sigríður, f. 11.7.
1925, d. 28.7. 2009, Katrín, f.
3.6. 1927, d. 11.2. 2014, og
Kjartan, f. 7.4. 1929, d. 21.4.
2001.
Eiginkona Guðmundar var
Ellen Bjarnadóttir, f. 23. sept-
ember 1919, d. 3. júní 2013.
Foreldrar hennar voru Helga
Enea Andersen, f. 23.7. 1894, d.
18.4. 1986, og Bjarni Þorgeir
Magnússon, f. 10.8. 1891, d. 7.3.
1933.
Systkini Ellenar eru Agnar,
f. 2.3. 1921, Hallfríður, f. 20.4.
skyldan bjó til ársins 1962. Þá
flutti fjölskyldan í Nökkvavog
30 og Guðmundur hóf störf í
veðdeild Landsbankans á
Laugavegi 77. Árið 1968 var
Guðmundur gerður að aðalbók-
ara Landsbankans og fór þá
aftur í Austurstrætið, þar sem
hann vann til 31. mars 1986
þegar hann hætti störfum.
Í lok árs 1989 fluttu Ellen og
Guðmundur í Naustahlein 22,
þar sem Guðmundur bjó þar til
hann flutti á Ísafold 19. apríl sl.
Ellen og Guðmundur áttu
sumarbústaðinn Birkilaut í
Vatnsendalandi þar sem fjöl-
skyldan undi sér öll sumur til
ársins 1962 þegar hann var
seldur. Skíðaíþróttin var þeim
hjónum mjög hjartfólgin, en á
yngri árum stundaði Guð-
mundur líka frjálsar íþróttir og
var hann mjög virkur í fé-
lagstarfi Frjálsíþróttarsam-
bands Íslands. Guðmundur var
kjörinn heiðursfélagi Frjáls-
íþróttasambands Íslands árið
2012.. Einnig stunduðu þau fé-
lagsstörf og innan Oddfellow-
reglunnar gegndi Guðmundur
ýmsum trúnaðarstörfum. Á efri
árum ferðuðust þau hjón mjög
mikið, bæði innan lands og er-
lendis. Þegar Guðmundur hætti
að vinna fór hann að spila golf.
Útför Guðmundar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 22. sept-
ember 2017, og hefst athöfnin
kl. 13.
1922, og Jakob, f.
29.12. 1926, d.
15.1. 1989.
Ellen og Guð-
mundur (Lella og
Mummi) gengu í
hjónaband 8. júlí,
1944 og eignuðust
þau þrjár dætur.
Þær eru: Rann-
veig, f. 24.10. 1945,
gift Símoni Ægi
Gunnarssyni, f.
26.3. 1941. Þau eiga þrjú börn
og sjö barnabörn. Helga, f.
27.3. 1948, gift Jóni Guðmunds-
syni, f. 1.2. 1951. Þau eiga fjög-
ur börn og sjö barnabörn.
Alma, f. 14.12. 1951, gift Birni
Jóhanni Björnssyni, f. 8.5. 1950.
Þau eiga fjögur börn og átta
barnabörn.
Guðmundur útskrifaðist frá
Verslunarskóla Íslands vorið
1937 og fór þá í skóla í Eng-
landi. Hann hóf störf hjá
Landsbanka Íslands 24. desem-
ber 1940 og vann hann hjá
bankanum alla sína starfsævi. Í
Austurstrætinu var hann fyrstu
11 árin. Þá varð hann útibús-
stjóri Landsbankans á Lang-
holtsvegi 43, þar sem fjöl-
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Með þessum orðum vil ég
kveðja þig, elsku pabbi minn,
og þakka þér fyrir öll yndislegu
árin sem við höfum átt saman.
Traustari mann þekki ég ekki
og alltaf var hægt að leita til
þín. Ég er þakklát fyrir að hafa
alist upp með þig og mömmu
sem mína foreldra. Nú ylja ég
mér við góðar minningar. Guð
blessi þig.
Þín dóttir,
Alma.
Fallinn er frá Guðmundur
tengdafaðir minn, sá heiðurs-
maður, saddur lífdaga. Mummi
eins og hann var ætíð kallaður
af vinum og ættingjum, var
annar af tvíeykinu „Lella og
Mummi“ sem voru ævinlega
nefnd í sömu andrá.
Þeim heiðurshjónum kynnt-
ist ég fyrir hartnær hálfri öld
er ég ungur fór að stíga í
vænginn við dóttur þeirra.
Lella kvaddi þessa jarðvist
fyrir rúmum fjórum árum og
má með sanni segja að Mummi
hafi helst viljað fara fyrr á
hennar fund en hann gerði.
Margs er að minnast þegar
horft er yfir langan veg en upp
úr stendur traustið, væntum-
þykjan og þær mörgu ánægju-
stundir, sem við áttum saman.
Heimsókna þeirra hjóna austur
á land til okkar var ætíð beðið
með mikilli eftirvæntingu. Golf-
ferðir til hlýrri landa í góðum
félagsskap eru ljúfar minning-
ar, einnig þær mörgu ferðir á
Ljúfling þeirra Oddfellowa í
gegnum tíðina eftir að við
Helga fluttum suður.
Mummi hafði ákveðnar skoð-
anir á hlutunum, var fastur fyr-
ir en hlustaði á og tók rökum ef
svo bar undir.
Einarður stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins alla tíð.
Áttum við margar samræðurn-
ar um stjórnmál líðandi stund-
ar. Hann fylgdist vel með því,
sem var að gerast á stjórn-
arheimilinu, alveg klár í koll-
inum, fram á síðasta dag.
Ekki alltaf sáttur við stjórn-
arfarið en honum þótti helst til
mikill hringlandaháttur á hlut-
unum og það vantaði meiri
festu og skýrari framtíðarsýn.
Maður, sem hefur lifað í nærri
heila öld, hefur frá ýmsu að
segja og hafði ég einstaklega
gaman af því að hlusta á hann
lýsa staðháttum í henni gömlu
Reykjavík á millistríðsárunum,
þegar hann var gutti og tíð-
arandanum í seinna stríðinu og
á eftirstríðsárunum. Ég vil að
lokum þakka Mumma sam-
fylgdina, ég veit að það er vel
tekið á móti honum í efra.
Blessuð sé minning hans.
Jón Guðmundsson.
Elsku afi minn lést sl. föstu-
dag, þá orðinn rúmlega 97 ára
gamall. Hann var tilbúinn og
búinn að vera það í dágóðan
tíma. Saknaði ömmu minnar
mikið og hvað mest núna undir
það síðasta.
Ég sé þau fyrir mér saman á
ný og það er notalegt til þess
að hugsa. Amma mín og afi
gáfu mér svo margt. Margar
samverustundir sem ég er
þakklát fyrir og minningarnar
óteljandi. Sprengdar appelsín-
ur, skíðaferðir og berjamór, læ-
raskellir, píanóleikur, spil og
spjall. Rólegheit, kaffisopi,
klukkan slær, notalegt … þann-
ig var það og er gott að muna.
Ég er þakklát fyrir að hafa
átt þau bæði að svo lengi og afa
áfram síðustu árin. Ég er þakk-
lát fyrir að Guðjón fékk að
kynnast þeim báðum svo vel og
Edda honum. Amma mín og afi,
langamma og langafi …
„langafi-ís“ eins og hann var
eiginlega kallaður núna upp á
síðkastið hjá þeirri stuttu sem
gekk beint í frystiskápinn í
hverri heimsókn. Við vorum
lánsöm að eiga þau að í okkar
lífi. Takk fyrir allt afi minn og
góða ferð. Þín
Hildur.
Nú er amma búin að sækja
þig, elsku afi minn.
Þú kenndir mér á skíði, fórst
með okkur systkinin í fjall-
göngur og gönguferðir. Þið
amma voruð svo samrýnd og
góð saman. Áttuð endalausa ást
til að gefa öllum barnabörn-
unum og svo langömmu- og
langafabörnunum þegar þau
svo komu.
Afi var mjög tónelskur, hann
kenndi sér sjálfur á píanó.
Hann hafði mjög gaman af því
að spila fyrir okkur og þegar
ég var barn spilaði hann undir
jólalögin á aðfangadagskvöld
meðan við börnin gengum í
kringum jólatréð.
Ein af mörgum góðum minn-
ingum mínum um afa er þegar
ég fór ásamt honum og for-
eldrum mínum til Danmerkur í
útskrift Helgu systur. Þá vor-
um við afi herbergisfélagar.
Þegar ég svo kynntist mín-
um manni þá eignaðist hann
afa. Við áttum frábærar stundir
með afa, og þakka ég fyrir að
hafa haft hann hjá mér á
stærstu gleðistundum í mínu
lífi. Takk elsku afi fyrir að hafa
átt þig að.
Elsku mamma, pabbi, syst-
urnar og fjölskyldur – megi
Guð blessa okkur öll og
styrkja.
Ellen.
Það er sárt að kveðja þig,
elsku afi, en á þessari stundu
koma í huga okkar margar góð-
ar minningar. Stór partur af
æsku okkar var skíðaferðirnar
með ykkur ömmu í Bláfjöll og
ferðin okkar í Kerlingarfjöll
var alveg yndisleg. Mikið þótti
okkur gaman að fara á skíði
með ykkur þar sem við vorum í
brekkunum með þér og amma
fór á gönguskíði, dýrmætar
minningar. Svo í seinni tíð þeg-
ar þú varst hættur að fara á
skíði sjálfur þá hafðir þú gam-
an af því að heyra skíðasög-
urnar okkar og við munum allt-
af hugsa til þín þegar við
verðum að skíða í brekkunum
og þá sérstaklega ef við verðum
seinni partinn þar sem búið er
að kveikja ljósin og það er logn
í fjöllunum, það fannst þér
best.
Þú varst alltaf með allt á
hreinu og fylgdist með öllu í
þjóðfélaginu og hafðir mikinn
áhuga á því sem við krakkarnir
vorum að gera. Þú hvattir okk-
ur áfram að mennta okkur og
sýndir störfum okkar mikinn
áhuga. Við vorum mjög stolt af
þér afi, flottasti afinn í bænum
sögðum við oft.
Okkur þótti mjög vænt um
hvað þú sýndir börnunum okk-
ar mikinn áhuga og hvað þú
hafðir gaman af að fylgjast með
hvernig þeim gekk í skóla og
tómstundum. Það var sérstak-
lega gaman að fylgjast með
hvað það gaf þér mikið þegar
það bættust fjögur börn við í
stórfjölskylduna á stuttum tíma
– að fá að knúsast í þeim og að-
eins að gantast eins og þú sagð-
ir sjálfur. Alltaf pínu stríðinn
og alveg fram á síðasta dag.
Við munum sakna þín sárt,
elsku afi, og hugsa til þín. Við
vitum að þú ert kominn í faðm-
inn á ömmu og þar vilt þú vera
og nú getið þið haldið ykkar
vegferð áfram saman.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Takk fyrir allt, elsku afi, og
Guð veri með þér.
Knúsaðu ömmu frá okkur,
Erna og Davíð.
Það er gæfa að fá að um-
gangast góða menn. Guðmund-
ur Sigurjónsson var þannig
maður. Hann var afi konunnar
minnar sem ég kynntist fyrir
10 árum. Mikið er ég þakklátur
fyrir að hafa fengið að kynnast
Guðmundi og konunni hans,
henni Lellu. Stundirnar sem ég
átti með þeim voru einstaklega
gefandi og uppörvandi. Saman
voru þau fullkomið par, hvorki
meira né minna. Það er engin
furða þó að Guðmundur hafi
þráð að komast til hennar Lellu
sinnar.
Þegar Guðmundur var ungur
maður var hann leiðsögumaður
enskra veiðimanna við Laxá í
Leirársveit. Þá kom hann í
Vatnaskóg. Seinna var einn af
hans nánustu samstarfsmönn-
um í Landsbankanum Árni Sig-
urjónsson. Árni var formaður
stjórnar Vatnaskógar í 25 ár en
því hlutverki hef ég fengið að
gegna undanfarin ár. Skiljan-
lega ræddu þeir vinnufélagar
um Vatnaskóg og það gerðum
við Guðmundur einnig oft. Allt-
af var hann áhugasamur og
hvetjandi. Þetta voru mér dýr-
mætar stundir.
Í fyrstu ræddum við Guð-
mundur trúmál ekkert að ráði.
En eftir að Lella var farin
barst talið æ oftar að kristinni
trú og voninni sem hún gefur.
Guðmundur lifði og dó í þeirri
trú og núna er hann hjá Guði
með Lellu í Sumarlandinu.
Ólafur.
Guðmundur
Sigurjónsson ✝ Jón HannesHelgason hús-
gagnasmiður fædd-
ist í Reykjavík 28.
ágúst 1942. Hann
lést á Landspít-
alanum 4. sept-
ember 2017.
Foreldrar hans
voru Gíslína Þóra
Jónsdóttir, f. 24.
september 1912, d.
5. ágúst 2003, og
Helgi S. Hannesson blikk-
smíðameistari, f. 31. ágúst 1908,
d. 3. feb. 1960.
Eftirlifandi kona Jóns er
Sigurbjörg Haraldsdóttir, f. 11.
október 1944. Fyrri kona Jóns
var Steina Friðsteinsdóttir, f.
8.6. 1943, og synir þeirra eru: 1)
Arnar, f. 7.4. 1966, maki Anna
Sif Jónsdóttir, f. 23.10. 1971,
börn Anna Dögg, Jón Andri og
Sigrún Eva. 2) Snorri, f. 28.6.
1971, maki Anna Ólafsdóttir, f.
23.12. 1971, börn Sunneva, Ósk-
ar Orri og Katla Dís.
Systkini Jóns voru 1) Hörður
blikksmíðameistari,
f. 30. ágúst 1931, d.
16. sept. 2001, maki
María Gröndal, f. 2.
apríl 1931, d. 4.
nóvember 2009. 2)
Auðbjörg, f. 5. apríl
1934, maki 1) Hörð-
ur Sævaldsson, f. 7.
feb. 1934, d. 6. maí
2007. Þau skildu.
Maki 2) Sigurður
Runólfsson, f. 1931.
Jón var alinn upp í fjölskyldu-
húsinu í Sörlaskjóli 68 sem for-
eldrar hans byggðu þar sem
fjaran var leikvöllurinn. Hann
gekk í Melaskóla og Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar og lauk
sveinsprófi í húsgagnasmíði frá
Iðnskólanum í Reykjavík.
Jón var iðnnemi hjá Gamla
kompaníinu og vann þar lengi
eftir sveinspróf en lauk starfs-
ævinni sem umsjónarmaður í
Gerðubergi.
Útför Jóns fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 22. september
2017, kl. 15.
Fyrsta minningin er dillandi
djass í risíbúð í Vesturbænum,
sjórinn, fjaran og Bessastaðir.
Þeir sem búa í Sörlaskjóli hljóta
að búa beint á móti forsetanum,
er það ekki pabbi? Við áhyggj-
urnar laus sem nú og allt eins og
það á að vera. Á þessu árum seld-
ust hlutir gjarnan upp í búðum og
þá var gott að eiga pabba sem gat
breytt venjulegum ís í íspinna
með því að skera sneiðar og
stinga priki í þá, sannir töfrar.
Seinna gerðumst við nýbúar í
Breiðholti þar sem önnur ævin-
týraveröld æskunnar mætti mér.
Endalaus byggingarsvæði, kast-
alar, stríð milli bakka, ferðir á
slysadeild og lítill bróðir.
Svo skildi leiðir og við tók
þriðja og undraveröldin, Vest-
mannaeyjar, en án pabba.
Óðum steðjar að sá dagur,
afmælið þitt kemur senn.
Lítill drengur, ljós og fagur
lífsins skilning öðlast senn.
Vildi ég að alltaf yrðir
við áhyggjunar laus sem nú
en allt fer hér á eina veginn:
Í átt til foldar mjakast þú.
Eftir það urðu stundirnar með
pabba meira spari, kannski of
mikið spari. Páskafrí og sumarfrí
urðu okkar vettvangur en tvær
vikur á ári í 11 ár breyta taktinum
og dýptinni en auðvitað var þráð-
urinn til staðar. Regluleg símtöl á
sjónvarpslausum fimmtudags-
kvöldum gerðu sitt en þetta var á
tímum skrefatalningar þannig að
símtölin voru stundum í skeyta-
stíl. Stundum voru símtölin líka
yfirvarp til þess að þurfa ekki að
læra Gunnarshólma utan að fyrir
föstudagsmorgun í Barnaskóla
Vestmannaeyja.
Ég vildi geta verið hjá þér
veslings barnið mitt.
Umlukt þig með örmum mínum.
Unir hver með sitt.
Oft ég hugsa auðmjúkt til þín
einkum, þegar húmar að.
Eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað.
Sem fullorðnir menn samein-
uðumst við í djassinum og hitt-
umst iðulega á tónleikum auk af-
mæla barnanna og hefðbundnum
fjölskylduboðum og stærri stund-
um fjölskyldunnar. Þetta varð
samt aldrei eins og við sáum
þetta fyrir okkur í Sörlaskjólinu.
Man ég munað slíkan,
er morgun rann með daglegt stress,
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja,
höfgum pabba sínum hjá.
Kúra sig í kotið hálsa,
kærleiksorðið þurfti fá.
Hvernig má það vera að til var
lag og ljóð um okkur feðga sem
fangaði stöðuna, lýsti því sem við
aldrei ræddum og tók þannig ut-
anum allt sem ósagt var?
Einkar þér til eftirbreytni
alla betri menn en mig,
erfiðleikar að þó steðji,
alltaf skaltu vara þig
að færast ekki í fang svo mikið
að festu þinnar brotni tré.
Allt hið góða í heimi haldi
í hönd á þér og með þér sé.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Pabbi og Systa áttu góð 40 ár
saman en nú er þessum leik lokið.
Við spiluðum úr stöðunni eins og
hún var. Það er undarleg tilfinn-
ing að kveðja pabba, margs að
minnast, bæði góðra stunda en
líka erfiðra. Hann er nú komin í
draumalandið og ef að líkum læt-
ur sestur upp í djassdeildinni og
rennir þar í gegnum ópusa þar
sem víbrafónninn er í forgrunni,
helst Milt Jackson, nokkuð sem
hann kallaði kammerdjass.
Arnar Jónsson.
Í dag kveðjum við Jón tengda-
föður minn, eða afa með skeggið
eins og hann var nú oftar kallaður
heima hjá okkur. Hann var hæg-
látur maður sem ekki bar mikið á
en sýndi okkur fjölskyldu sinni
ávallt hlýju og ræktarsemi. Jón
og Systa hafa verið dugleg að
mæta þegar þau hafa verið kölluð
til í atburði í lífi krakkanna okkar,
mætt á ískrandi skólahljómsveit-
artónleika og setið á barnastólum
í kaffitímum í skólanum.
Þegar heilsan var betri var Jón
stundum kallaður til í smíðavinnu
á heimilinu og skildi alltaf eftir
sig gott handverk. Ég dáist
reglulega að vinnunni hans Jóns
hvort sem um er að ræða viðgerð
á parketinu eða hornborðið í stof-
unni sem var sveinsstykkið hans í
húsgagnasmíði. Hann var fróður
um íslensk húsgögn og umræður
fóru á flug þegar sagnfræði eða
djass bar á góma.
Jón hefði alveg mátt hugsa
betur um heilsuna og vissi það ef-
laust innst inni. Fyrir fjórum ár-
um veiktist hann af krabbameini
en náði bata þó svo að heilsan hafi
ekki orðið jafngóð og áður. Jón og
Systa voru einstaklega samhent
hjón og gerðu mikið saman og ég
held að þau hafi verið fyrstu gest-
ir í öll barnaafmæli og þannig
boðað upphaf afmælisgleðinnar
hjá börnunum okkar.
Hræddist ég, fákur, bleika brá,
er beizlislaus forðum gekkstu hjá.
Hljóður spurði ég hófspor þín:
Hvenær skyldi hann vitja mín?
Af flestu því sem ég hef fátt eitt gert
sem fólki hér þykir mest um vert,
en ef til vill sáð í einhvern barm
orði sem mildar kvöl og harm.
Loks þegar hlíðin fær hrím á kinn
Hneggjar þú á mig, fákur minn.
Stíg ég á bak og brott ég held,
beint inn í sólarlagsins eld.
(Ólafur Jóhann Sigurðsson.)
Anna Sif Jónsdóttir.
Jón Hannes Helgason
Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
LEIFUR ÁRSÆLSSON
útgerðarmaður,
Hraunbúðum,
áður Túngötu Vestmannaeyjum,
sem lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja
laugardaginn 16. september, verður jarðsunginn frá Landakirkju
Vestmannaeyjum laugardaginn 23. september klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn og
Kvenfélag Landakirkju.
Guðrún Birna Leifsdóttir Bjarni Guðjón Samúelsson
Jóna Björgvinsdóttir
Elín Laufey Leifsdóttir Jóhannes Óskar Grettisson
barnabörn og barnabarnabörn