Morgunblaðið - 22.09.2017, Page 33

Morgunblaðið - 22.09.2017, Page 33
Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Garðstígur 1, Hafnarfjörður, fnr. 207-4934, þingl. eig. Hörður Bjarna- son og Hrönn Benediktsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 26. september nk. kl. 15:00. Skútahraun 13, Hafnarfjörður, fnr. 207-5817, þingl. eig. LX fasteignir ehf, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, þriðjudaginn 26. sept- ember nk. kl. 13:30. Vesturgata 10, Hafnarfjörður, fnr. 229-3440, þingl. eig.Thelma Björk Árnadóttir og Júlíus Þór Gunnarsson, gerðarbeiðendur Hafnarfjarð- arkaupstaður, Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 26. september nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 21. september 2017 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Dagurinn byrjar á opinni vinnustofu kl. 9 og endar á okkar vinsæla bingói kl. 13.30. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! Árskógum 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 9.30. Bíó kl. 14-15. Sýndar verða Stiklur. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir inni- pútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könn- unni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9. Línudans kl. 15.15. Vöflukaffi byrjar kl. 14.30 Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Lífssögur kl. 10.40-11.10, allir velkomnir í lífssöguhópinn. Leik- fimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.30. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl.13.45. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Handaband í dag frá kl. 13-16. Opin vinnustofa í handverki með ungum hönnuðum. Vinnustofan er öllum opin og ókeypis aðgangur. BINGÓ í sal alla föstudaga kl. 13.30-14.30. Spjaldið kostar 250 krónur og eru góðir vinningar í boði. Verið vel- komin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411-9450. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 13 tréskurður, kl. 13.30 léttgönguhópur - frjáls mæting. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi /ganga kl. 10. Ljósmyndaklúbb- ur kl. 13. Bingó kl. 13,30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10-11. Hádegis- matur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Avonkynning frá kl. 11.30- 15. Brids kl. 13, spilað bingó kl. 13.15, kaffisala í hléi, allir velkomnir og nú dagskrá liggur frammi. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan kl. 8.50-11, thai chi kl. 9, botsía kl. 10.15, myndlistar- námskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, kvikmyndasýning kl. 13. síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri, nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, BRIDS hópur Korp- úlfa kl. 12.30 í Borgum. Hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og sundleikfimi í Grafar- vogssundlaug kl. 13.30 í dag. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Sléttuvegur Selið er opið frá 10-14. Upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs- ingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Góða helgi. Stangarhylur 4 Íslendingasögur – Sögur úr Eyjafirði og nágrenni, námskeið kl. 13, kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23, hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Skapandi skrif; námskeið hefst 2. október, leiðbeinandi Þórður Helgason. Vesturgata 7 Laus pláss í ensku sem hefst 22. september, leiðbein- andi Peter R. K. Vosicky. Sungið við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnars- son. Kaffiveitingar kl. 14-14,30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is VAÐNES-sumarbústaðalóðir Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með aðgangi að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafnings- hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár. Allar nánari upplýsingar gefur Jón í síma 896-1864 og á facebook síðu okkar vaðnes-lóðir til sölu. Rafvirkjun Tökum að okkur raflagnir og smíðavinnu Löggiltir verktakar - Áratuga reynsla. Smíðar og rafmagn ehf. Sími. 848-6904, smidarografmagn@vortex.is Bílar Nissan Leaf útsala! 2015 bílar, eknir milli 20 og 35 þús. Nokkrir litir. Allir með hraðhleðslu. Verð aðeins 1.990.000 staðgreitt eða lánað. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? Færir þér fréttirnar mbl.is Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 ✝ Guðríður Elías-dóttir fæddist á Drangsnesi í Strandasýslu 17. september 1942. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 9. sept- ember 2017. Foreldrar henn- ar voru Vigdís Gísladóttir, f. 27.8. 1924, d. 12.8. 2003, frá Gjögri í Árneshreppi, og Elí- as Benediktsson, f. 29.7. 1921, d. 18.5. 1970, frá Brúará í Kaldrananeshreppi. Systur Guð- ríðar eru Steinunn, f. 1945, Sig- ríður, f. 1956, og Signý, f. 1964. Guðríður giftist 17. ágúst 1963 Sigvarði Halldórssyni, f. 27.6. 1940, d. 20.3. 1917, frá Bæjum á Snæfjallaströnd. For- eldar hans voru Svava Guð- mundsdóttir, f. 2.4. 1903, d. 25.5. 1944, og Halldór Ingimundur Borgarsson, f. 9.4. 1891, d. 10.8. 1971, fósturforeldrar Sigvarðar voru Marsibil Guðmunda Helga- dóttir og Jens Guðmundsson. Dóttir Guðríðar og Björns Árna- sonar, f. 20.7. 1942, er Ellý, f. 23.2. 1960, gift Magnúsi Þorgeirs- syni, f. 3.11. 1957, þau eiga fjögur börn. Börn Guð- ríðar og Sigvarðs eru Halldóra Svava, f. 27.4. 1962, gift Viðari Ólafs- syni, f. 10.4. 1958, hún á sex börn, Vigdís, f. 18.9. 1963, gift Sigurði Tryggvasyni, f. 18.7. 1961, þau eiga þrjú börn, Jens Snævar, f. 11.1. 1968, hann á tvo syni, Elí- as, f. 19.3. 1973, kvæntur Krist- jönu Magnúsdóttur, f. 16.7. 1980, þau eiga fimm börn, Bjarni, f. 19.3. 1973, d. 14.9. 1973, Guðmundur, f. 20.8. 1979, hann á tvö börn. Guðríður stundaði nám við Barnaskólann á Drangsnesi, Barna- og unglingaskólann í Sandgerði og Héraðsskólann í Reykholti. Útför Guðríðar fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag, 22. september 2017, og hefst athöfnin kl. 13. Jarðsett verður í Hvalsneskirkjugarði. Það er með þakklæti, söknuði og sorg í hjarta sem við kveðjum Gauju systur okkar, hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9. september síðastliðinn eftir erfið veikindi. Gauja fæddist á Drangsnesi í Strandasýslu og ólst þar upp til 13 ára aldurs, þá flutti fjölskyldan suður og settist að í Sandgerði. Eins og hún sagði sjálf frá þá átti hún góða og gleðiríka æsku við leik og störf á Drangsnesi og í Sandgerði. Hún giftist ung að árum Sigvarði Halldórssyni, hann lést í mars á þessu ári. Gauja okkar eignaðist sjö börn sem í aldursröð eru; Ellý, Hall- dóra Svava, Vigdís, Jens Snævar, Bjarni, d. 1973, Elías og Guð- mundur, heimilið var stórt en alltaf var nóg pláss og hjarta- hlýja þó að húsakynnin væru ekki alltaf stór. Gauja var félagslynd og vina- mörg og leið best þegar hún hafði allt fólkið sitt hjá sér, og oftar en ekki var glatt að hjalla þegar við systur komum saman hvort sem það var af einhverju tilefni eða ekki. Það kom snemma í ljós að Strandastelpan var ofurdugleg. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur hún gerði allt með miklum krafti, samviskusöm og vandvirk með eindæmum. Hún var þúsund- þjalasmiður í höndunum, hafði gaman af allri handavinnu og prjónaði hverja flíkina á fætur annarri á meðan heilsan leyfði. Hún saltaði síld á Siglufirði og Raufarhöfn á sínum yngri árum, og vann við fiskvinnslu í Sand- gerði. Þegar fjölskyldan bjó í Mosfellssveit starfaði hún í Ála- fossverksmiðjunni, síðustu starfsárin vann hún í þvottahúsi á Keflavíkurflugvelli. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við biðjum algóðan Guð að styrkja börnin hennar og fjöl- skyldur þeirra. Steinunn, Sigríður og Signý. Elsku amma mín, nú hefur þú kvatt þennan heim. Orð fá því varla lýst hversu mikið mér þyk- ir vænt um þig og hversu mikil áhrif þú hefur haft á mig. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Takk fyrir allt, elsku amma. Guðríður Elísabet (Gauja). Guðríður Elíasdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.