Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú mátt ekki láta starfið heltaka þig
svo að þú gleymir algerlega að sinna sjálfum
þér. Eina stjórnunin sem vit er í er sú þar sem
aldrei þarf að beita valdi.
20. apríl - 20. maí
Naut Það sem ruglar aðra í ríminu verður
ekki flókið fyrir þig ef þú fylgist vel með núna.
En gleymdu þó ekki að halda utan um þína
nánustu; það eru þeir sem gefa þér kraftinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það getur verið þreytandi þegar all-
ir vilja stjórna manni og skipanirnar ganga
sitt á hvað. Reyndu að gefa eftir og bíða með
mikilvægar ákvarðanir fram á þriðjudag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hafðu sanngirnina að leiðarljósi þeg-
ar þú ferð fyrir vinnufélögum þínum. Ef þú
talar við aðra verða þær samræður á alvar-
legum nótum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Stundum liggja réttu svörin í augum
uppi en stundum þarf að leita vandlega til að
finna réttu rökin til áframhalds. Hafðu þína
hluti á hreinu og láttu aðra vita um afstöðu
þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Rifrildi um fjármuni og eignir er lík-
legra en ekki í dag. Manneskja sem þú hittir í
fyrsta skipti hefur djúpstæð áhrif á þig, til
góðs eða ills. Líka á morgun.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert ekki í góðu jafnvægi og kemur
ekki auga á ástæðuna. Ekki berjast á móti
heldur láttu berast með straumnum með
bros á vör.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Tímanum er ætlað að breyta
ástandi. En lífið snýst ekki bara um öryggi
heldur líka óundirbúna skemmtun.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú skalt ekki bregða út af van-
anum nema þú hafir það á hreinu að slíkt sé
þér til framdráttar. Gefðu þér tíma til að
hugsa málið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú þarft að taka ákvörðun fyrir
fleiri en sjálfan þig verðurðu að hugsa um
allra hag en ekki bara þinn eigin. Fegurðar-
skyn þitt er vakið auk þess sem þú ert í skapi
til að eyða peningum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að þurfa að standa við allt sem þú
sagðir í gær og í síðustu viku jafngildir því að
vera lokaður inni. Ekki fara aftur á bak þegar
þú getur farið fram á við.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er meiriháttar áætlun í gangi í
vinnunni og þú þarft ekki að stjórna öllu svo
hún gangi upp. Taktu þér tíma í að gera hana
endanlega upp.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðiá Leir á þriðjudag að sér þætti
gaman að máta sig við hætti sem
ekki sæjust oft: „Hér er stakhenda
(blank verse) um einstæða móður
og örlög hennar: – Móðir“:
Svo einstæð er hún, sú hin mikla móðir
er myrkur gistir bjarta sumardaga
með bústinn kvið og ótal lítil augu
þótt ekki sjái neitt í þessu myrkri.
Frá henni liggja sterkir naflastrengir,
með stolti reynir kröfugerð að sinna;
að fjölga sér og fylla allan garðinn
því fæðu hungrað mannkyn sífellt þarfnast.
Hún kann þá list sem Bakkabræður reyndu
er birtu vildu safna og nýta í myrkri
því upp úr moldu grænar sólarsellur
hún sendir til að fanga geisla röðuls
og nýtir þá sem næring sínum börnum.
Ei neins hún þarfnast sjálf í myrku bóli.
Er haustar að og kuldi kveður dyra
er kyrkir grös svo þau að moldu falla
þá fara menn á stjá og stinga upp garðinn
í stígvélum þeir velta moldarkögglum
og uppskerunni kátir safna saman
því sumarið var vissulega gjöfult.
En rekist þeir á hráblautt hylki í moldu
þeir hrylla sig og sparka óðar frá sér.
Úr móðurinni mergur allur soginn
er mella nefnd og lendir beint í úrgang.
Viðbrögð urðu góð við þessu
snjalla og myndríka ljóði. Árni
Björnsson segir að „vestur í Dölum
var kartöflumóðirin, það sem eftir
var af henni þegar kartöflur voru
teknar upp á haustin, stundum köll-
uð mella“. – Sú merking er raunar
gefin í orðabókum.
Á Boðnarmiði brá Hólmfríður
Bjartmarsdóttir upp þessari fallegu
haustmynd:
Nú lýsa haustlitir, logandi rauðir
og lífið hvíslar: Ég dey.
Hnjúkarnir monta sig, hrjúfir og auðir
í heiðríkju og sunnan þey.
Mig langaði í gær til að lita bandið
úr litum sem jörðin gaf
og vefa úr bandinu ljóð um landið.
en lá bara heima og svaf.
Vel fer á því að þessi staka Sig-
rúnar Haraldsdóttur fylgi:
Á mínum leiðum margt eitt sé
er magnar glóð í æðum.
Hér regnvott stendur reynitré
á rauðum spariklæðum.
Þunglyndið var víða. Sigurbjörn
á Fótaskinni orti:
Líf mitt þreytir byrði böls,
brags er þögull strengur
hvorki víf né áhrif öls
andann vekja lengur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kartöflumóðir og
litir sem jörðin gaf
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ ÞARFT AÐ HNERRA GETURÐU GERT
ÞAÐ Í HÁDEGISHLÉNU ÞÍNU“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að heyra röddina
þína þegar ég get ekki
verið með þér.
TÍMI TIL ÞESS AÐ
KÍKJA Á NÁGRANNANA
ÞAÐ ER SAGA Á
BAK VIÐ ÞETTA
ÞESSI MAÐUR VILL GANGA
TIL LIÐS VIÐ ÁHÖFNINA! EN HANN
ER FJÁR-
HIRÐIR!!
HANN ER ENGINN VENJU-
LEGUR FJÁRHIRÐIR!
ÞÚ VAR
ST
AÐ
SA
NN
A
AÐ
AUG
-
LÝS
IN
GA
R
VIR
KA
Víkverji getur ekki betur séð enað Mathöllin á Hlemmi komi
vel út og að fólk sé að nýta sér
þjónustuna. Hefur Víkverji farið
þar framhjá mörgum sinnum og
stundum litið inn á leið sinni í
gula vagninn.
x x x
Yfirleitt hefur Víkverja virst semþar séu ferðamenn og heima-
menn í bland að fá sér að borða
eða ná sér í kaffi. Víkverji hefur
heyrt í nokkrum sem hafa komið
við á Hlemmi og láta vel af því
sem þar er í boði. Einhverjir eru
pirraðir á verðlaginu en það á þó
alls ekki við alla staðina sem þar
er að finna.
x x x
Mathöllin er opin til kl. 23 ákvöldin eftir því sem Vík-
verja skilst. Einn af kostunum við
höllina er sá að fólk sem þarf að
bíða eftir vagni getur þá skotist
inn fyrir og hlýjað sér á meðan
beðið er. Slíkt var ekki í boði
seinni part vetrar á meðan breyt-
ingarnar stóðu yfir á húsnæðinu
og var heldur nöturlegt fyrir við-
skiptavini Strætó. Sérstaklega þar
sem fólk hefur vanist því að bið-
stöð sé á þessum stað.
x x x
Víkverji hefur enn ekki prófaðað fá sér að borða í Mathöll-
inni. Hefur einfaldlega ekki gefið
sér tíma til þess að stoppa og
njóta veitinganna. En það mun
fljótlega breytast. Þar er að finna
nokkra staði sem áhugavert gæti
verið að prófa. Auk þess sér Vík-
verji fyrir sér að grípa annað slag-
ið með sér mat á leið heim úr
vinnu þegar hann þarf hvort sem
er að bíða eftir vagni.
x x x
Víkverji hefur ekki sett sig inn íhvar Strætó gæti verið með
aðstöðu eins og þá sem fyrirtækið
var með á Hlemmi. Varðandi upp-
lýsingar og sölu en einnig aðsetur
fyrir starfsfólk. En sjálfsagt er
BSÍ inni í myndinni. Þar er um-
ferðarmiðstöð hvort sem er auk
aðstöðunnar sem fyrirtækið hefur
í Mjóddinni. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, miskunn hans
varir að eilífu og trúfesti hans frá
kyni til kyns.
(Sálm. 100:5)