Morgunblaðið - 22.09.2017, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.09.2017, Qupperneq 38
VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér hefur í langan tíma fundist þetta verk mjög viðeigandi – held reyndar að það sé afar viðeigandi á mjög mörgum tímum,“ segir Una Þorleifsdóttir leikstjóri um Óvin fólksins eftir Henrik Ibsen sem frum- sýndur er á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins í kvöld. „Það er áhugavert hvernig Ibsen tekst á við spurningarnar um sann- leikann, hvort og hvernig lýðræðið virki, eðli stjórnmála, hlutverk fjöl- miðla, náttúruvernd, eðli siðferðis og hvernig persónulegir hagsmunir og samfélagslegir takast á. Hann nær í 130 ára gömlu verki að draga fram spurningar sem virðast alltaf eiga við,“ segir Una sem þýddi verkið í samvinnu við Grétu Kristínu Ómars- dóttur, dramatúrg sýningarinnar, og saman unnu þær nýja leikgerð. Óvinur fólksins fjallar um Tómas Stokkmann sem er læknir heilsubaða í smábæ nokkrum. Böðin eru hin nýja lífæð bæjarins og eiga að koma hon- um á kortið. Þegar Tómas uppgötvar heilsuspillandi mengun í böðunum krefst hann úrbóta. Í upphafi standa fjölmiðlar við hlið hans en þegar Petra Stokkmann, systir hans og bæjarstjóri, gerir íbúum ljóst hver fórnarkostnaður slíkra aðgerða væri fyrir bæjarfélagið fara að renna tvær grímur á fólk. Vildu breyta kyni persóna Spurðar hvers vegna þær hafi valið að vinna eigin leikgerð á leikritinu segja Una og Gréta nokkrar ástæður fyrir því. „Aðalástæðan var sú að okk- ur langaði að breyta kyni persóna. Okkur fannst ekki boðlegt að í verki sem fjallar um samfélagsleg málefni standi sjö karlmenn og tvær konur á sviðinu, því konur eru líka þátttak- endur í stjórnmálum og valdhafar. Ef sýning á að gefa raunsanna mynd af samfélagi samtímans sem við getum speglað okkur í verður auðvitað að breyta því,“ segir Gréta. Í stað Péturs Stokkmanns bæjarstjóra er því kom- in Petra auk þess sem Ásláksen, með- eigandi Blaðsins og formaður félags atvinnurekenda, og Billing blaðamað- ur eru orðnir að konum. Eins og fram hefur komið leika Björn Hlynur Har- aldsson og Sólveig Arnarsdóttir Stokkmann-systkinin Tómas og Petru. Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikur Katrínu, eiginkonu Tómasar, og Snæfríður Ingvarsdóttir dóttur þeirra. Sigurður Sigurjónsson er Marteinn Kíl, verksmiðjueigandi og fósturfaðir Katrínar; Guðrún S. Gísladóttir er Ásláksen; Snorri Eng- ilbertsson leikur Hofstad, ritstjóra Blaðsins; Lára Jóhanna Jónsdóttir er Billing og Baldur Trausti Hreins- son skipstjórinn Jóhann Horster. Skerpa á kjarna verksins „Jafnframt langaði okkur að upp- færa tungumálið inn í þá pólitísku orðræðu sem við þekkjum og heyr- um dagsdaglega. Til þess þarf að þýða upp á nýtt og endurskrifa. Síð- ast en ekki síst langaði okkur að þétta textann og skerpa á kjarna hans til að ná utan um stóru spurn- ingar verksins,“ segir Una og bendir á að seinni hluti leikritsins hafi þann- ig verið styttur töluvert. „Að mínu mati verður samband Tómasar og Petru miklu dýnam- ískara við kynjabreytinguna á sama tíma og það verður tragískara. Með breytingunni tökum við stöðu kvenna í stjórnmálum og kynjavídd- ina inn í umræðuna. Staða stjórn- málamannsins verður meira marg- laga ef hann er kona, sem er meira spennandi,“ segir Gréta. „Ibsen skrifar inn í verkið Petru, dóttur Stokkmann-hjónanna, sem er kennslukona. Í samhengi verksins hefur hún frekar róttækar skoðanir. Hann er því að skrifa inn í verkið, eins og hann getur miðað við rit- unartímann, konu sem berst fyrir frelsi. Við erum báðar sannfærðar um að hefði hann verið að skrifa þetta verk í dag hefðu kynjahlutföll persóna verið jöfn, því verkið snýst ekki á þann hátt um samskipti kynjanna. Verkið snýst um það að vera manneskja, um siðferði, pólitík og mannleg samskipti,“ segir Una og bendir á að Tómas minni ótvírætt á uppljóstrara í samtímanum á borð við Edward Snowden, Chelsea Manning, vísindamenn sem rann- saka loftlagsmál og þá sem börðust gegn Kárahnjúkavirkjun. Lifum á tímum síðsannleika „Við teljum okkur hafa ógrynni af upplýsingum, en erum ekki fær um að greina hvað er satt. Hvernig get- um við tekið upplýsta ákvörðun um mikilvæg og knýjandi málefni ef um- ræðan einkennist af hávaða? Ég er sjálf stundum ekki fær um að greina milli raunveruleikans og lyga í sam- hengi við stór málefni. Maður nær ekki að hugsa,“ segir Una. „Við lifum á tímum síðsannleika,“ bætir Gréta við. „Við erum hætt að treysta sér- fræðingum og teljum álit þeirra ekki vega meira en álit næsta manns. All- ar skoðanir eru jafnréttháar,“ segir Una og bendir á að um alþjóðlega þróun sé að ræða sem rekja megi a.m.k. þrjá áratugi aftur. „Þetta er mjög áberandi í allri umræðu um loftslagsmálin,“ segir Una og bendir á að barátta feli alltaf í sér fórnar- kostnað. „Þá vaknar óhjákvæmilega spurningin hvort sé mikilvægara; sannleikurinn og siðferðið eða eig- inhagsmunir,“ segir Una. „Á tímum samfélagsmiðla er auðveldara að fyrirgera æru sinni og mannorði op- inberlega,“ segir Gréta og bendir á að sé baráttufólk jaðarsett geti það leitt til róttækari viðbragða eins og hryðjuverka. „Markmið okkar er að lyfta öllum til jafns. Allir hafa eitthvað til síns máls í okkar uppsetningu. Það eru allir óvinir fólksins á einhverjum tímapunkti,“ segir Gréta. „Okkar pólitísku skoðanir skipta ekki máli og eiga ekki að vera í forgrunni. Við Gréta erum mjög góðir pennar fyrir okkar andstæðinga í verkinu. Okkur finnst mikilvægt að öll sjónarmið fái að heyrast og áhorfendur geti tekið afstöðu,“ segir Una og tekur fram að sér finnist tilfinnanlegur skortur á samræðu í samfélaginu um ýmis málefni. „Mér finnst við alltof fljót að reyna að banna fólki sem er ósammála okkur að hafa skoðanir. Einhvern veginn verðum við að geta talað saman og reynt að hafa samúð með þeim sem eru ósammála okkur. Einungis þannig komust við út úr því að hata hvert annað,“ segir Una. Átök hins náttúrulega og manngerða Í leikmynd Evu Signýjar Berger er náttúrunni stillt upp á móti yfir- gnæfandi manngerðu byggingavirki sem minnir á rafmagnsmöstur eða byggingarkrana, en er að sögn að- standenda hvorugt. Innt eftir hvað stýrt hafi útliti sýningarinnar bendir Una á að hún hafi lagt upp með það að allir leikararnir væru inni á svið- inu alla sýninguna og væru ávallt sýnilegir. „Verkið gerist í litlum bæ þar sem allir vita allt um alla og mik- il nánd og tengingar eru milli fólks. Með leikmyndinni reynum við að undirstrika þetta og skapa tilbúinn heim sem bindur okkur ekki ákveðnum stað en skapar ýmis hug- renningatengsl. Verkið er skrifað við upphaf iðnbyltingarinnar og þar fara átök hins náttúrulega og mann- gerða að magnast í þjóðfélaginu,“ segir Una og bendir á að málmvirkið á sviðinu vísi þannig beint til iðnbylt- ingarinnar. „Í búningum sínum vinnur Eva meira með tímaleysi. Verkið á sér langa uppsetningarsögu og okkur langaði að vísa í fortíðina og þessa sögu. Persónur verksins klæðast nú- tímafatnaði en með því að nota ákveðin minni úr tísku fyrri tíma, ásamt einfaldri litapallettu, skapast heildarmynd sem fjarlægir mann samtímanum. Þannig verða persón- urnar nánast eins og draugar for- tíðar í leikmyndinni,“ segir Una. Að semja inn í stærri ramma Á liðnu leikári unnu Una og Gréta saman við uppfærslu Góðs fólks. Spurðar hvort mikill munur sé á því að setja upp nýtt leikverk eða klass- ík segist Una ekki velta því mikið fyrir sér. „Fólk mætir með sínar eig- in hugmyndir um hvernig sýning eigi að vera hvort heldur verið er að setja upp leikgerðir á skáldsögum eða klassískum verkum. Ég lít alltaf svo á að þegar ég fæ handrit í hend- urnar þá sé það upphafspunktur að einhverju ferðalagi. Hvort sem ég er sjálf höfundur leikgerðarinnar eða ekki er ég alveg óhrædd við að strika, henda og byrja upp á nýtt ef nálgunin krefst þess,“ segir Una. Óvinur fólksins er fyrsta sýningin sem Una vinnur fyrir Stóra sviðið, en hún hefur unnið fimm sýningar í Kassanum. Aðspurð segir hún spennandi að vinna sýningu fyrir mun stærra rými. „Hér fæ ég tæki- færi til að gera hluti sem ég hef ekki getað gert áður, bæði tæknilega og leikmyndarlega séð. Að sama skapi, af því að sviðið er svo stórt þá er auðveldara að búa til fleiri lög og leika sér með það. Sjónrænt og í sviðslegu samhengi er maður að semja inn í miklu stærri ramma. Ef við hugsum okkur sviðið sem lifandi málverk eða sjónræna upplifun er- um við hér að vinna á miklu stærri skala en í Kassanum, sem mér finnst mjög spennandi og ögrandi fyrir mig,“ segir Una að lokum. „Snýst um það að vera manneskja“  Una Þorleifs- dóttir leikstýrir Óvini fólksins eftir Ibsen Ljósmynd/Hörður Sveinsson Morgunblaðið/RAX Teymi Una Þor- leifsdóttir og Gréta Kristín Ómarsdóttir. Átök Snorri Engilbertsson, Björn Hlyn- ur Haraldsson og Sólveig Arnarsdóttir í hlutverkum sínum í Óvini fólksins. 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á k júklinginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.