Feykir - 26.11.2015, Side 18
2 01 51 8
að gefa það út að ég ætla koma hingað,“
segir Sigurður og brosir.
„Ef blessaða útlendingana
langar að kaupa lunda, er ekki
í lagi að selja þeim lunda?“
Sigurður segist eiga sér stóra drauma
með Selasetrið og að þar hafi verið
unnið stórkostlegt starf. Safnið verði
sífellt betra, verslunin í kring um það
og önnur umgjörð til fyrirmyndar. „Ef
maður horfir á fjölda gesta þá hefur
verið stígandi í því, ekki bara sá meðbyr
sem fæst með því hve mikið hefur verið
að fjölga ferðamönnum, heldur höfum
við verið að standa okkur umfram
það,“ segir hann. Hvað ferðaþjónustu
á landsvísu varðar telur hann þjóðina
standa á krossgötum og að umræðan
í samfélaginu endurspegli það. Hann
telur hluta vandamálsins liggja í því að
fjármagnið endi alltaf hjá ríkinu þegar
það ætti að enda þar sem kúnninn er
að koma. Þá segir hann Íslendinga hafi
fátt að bjóða kúnnunum með mestu
kröfurnar. „Við þurfum að hugsa um
að við verðum aldrei ódýr áfangastaður
og ef við ætlum ekki alltaf bara að
auka magnið af fólki þá verðum við
að fá fólk sem á meiri pening. Hvaða
fólk er það, hvað þarf það og hvernig
náum við til þeirra?“ útskýrir hann.
Sigurður segist þakklátur fyrir þann
hóp fólks sem kemur hingað í auknu
mæli, Vesturlandabúa á aldrinum 25-
45 ára, sem ferðast á eigin vegum. „Við
megum alveg vera þakklát fyrir þessa
breytingu því hún skilar fleira ferðafólki
út á land. Þá spyr maður sig: „Hvað er
það sem þetta fólk hefur gaman af, hvað
vill það í mat og drykk. Eru þetta allt
hipsterar og eigum við að bjóða þeim
upp á hipsteraupplifun? Þá skulum við
endilega gera það,“ segir Sigurður. Í því
hverfi varðar segist hann ánægður með
þá góðu kjarnamyndun sem hefur átt sér
stað við höfnina á Hvammstanga. Hann
segir að því meira er í boði því meira aur
sé skilinn eftir í samfélaginu.
Vill kynna íbúum
samfélagsins leikbrúðuleik
Hjónin komu til landsins, ásamt 15
mánaða dóttur sinni Elínu Rannveigu,
þann 26. september og fluttu inn í
einbýlishúsið, sem þau keyptu án þess
að hafa nokkurn tímann komið þar
inn áður, þann 27. september. Greta
er að koma sér upp vinnuaðstöðu í
bílskúrnum en þar ætlar hún að útbúa
brúðurnar sínar. Einn daginn segist hún
vilja bjóða fólki til að koma og sjá. „Eitt
af því sem mér fannst spennandi við að
flytja hingað er að hafa tíma og rúm til
að skapa og ég vil hafa eitthvað fram að
færa til samfélagsins, í stað þess að þiggja
bara.“ Þá sér Greta fyrir sér að hún muni
sýna það sem hún vinnur að hverju sinni
fyrst á Hvammstanga áður en hún fer
með sýningarnar til Bretlands. Einnig
vilji hún gjarnan kenna bæði börnum
og fullorðnum brúðuleik og brúðugerð.
„Þegar ég hugsa um uppvaxtarár mín
og hvernig það að hafa brúðuleikhúsin
í kringum mig mótaði mig og hafði
djúpstæð áhrif, langar mig að geta veitt
börnunum hér það sama,“ segir hún að
lokum.
samhengi ræðir hann um svokallaðar
lundabúðir, sem sumir eru ekki hrifnir
af. „Ef blessaða útlendingana langar að
kaupa lunda, er ekki bara í lagi að selja
þeim lunda? Er það eitthvað siðferðis-
lega gölluð hugmyndafræði, að selja
fólki það sem það langar að kaupa?“
Hvað ferðaþjónustu í hans nærum-
Greta, Sigurður og Elín Rannveig í Selasetrinu. MYND: BÞ
Sérsmíði innréttinga
og faglegur metnaður
hefur verið aðalsmerki
okkar um árabil.
Vandaðar skúffubrautir, lamir og þykkar
kantlímingar eru aðeins nokkur af einkennum okkar.
Við framleiðum gæðainnréttingar þar sem sígilt útlit og
vönduð vinnubrögð fagmanna eru höfð í fyrirrúmi.
sígilt útlit
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Trésmiðjan Borg ehf
Borgarmýri 1 550 Sauðárkrókur
Sími 453 5170 tborg@tborg.is
Leitin að réttu lausninni
hefst hjá okkur...
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.