Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 2
Veður
Í dag verður hvasst í öllum lands-
hlutum og þá sýnu hvassast á
suðvesturhorninu. Þurrt verður að
mestu á Norðurlandi, en í öðrum
landshlutum verður dagurinn frekar
blautur og má reikna með úrhellis-
rigningu á Suðausturlandi um tíma.
sjá síðu 44
Blautt hanami í Hljómskálagarðinum
Á vorin, þegar kirsuberjatré eru í blóma, er japanskur siður að safnast saman í almenningsgörðum og dást að fallegu, bleiku blómunum blómstra.
Siðurinn kallast hanami á japönsku. Undanfarin ár hefur íslensk-japanska félagið haldið árlegan hitting í Hljómskálagarðinum, svokallaðan hanami-
hitting, til að dást að kirsuberjatrjánum sem gróðursett voru þar 2011. Í ár voru regnhlífar og hlífðarfatnaður staðalbúnaður. Fréttablaðið/sigtryggur
suðurland „Mér finnst þetta van-
virðing við þessar eldri konur,“ segir
Anna Kr. Ásmundsdóttir, gjaldkeri
orlofsnefndar húsmæðra í Árnes- og
Rangárvallasýslu, um afstöðu bæjar-
ráðs Hveragerðis og bæjaryfirvalda í
Vestmannaeyjum til greiðslu sveitar-
félaganna í orlofssjóð húsmæðra.
Sveitarfélög eiga að greiða vissa
upphæð á hvern íbúa til orlofs-
nefnda húsmæðra. Upphæðin er nú
um 111 krónur á íbúa. Tólf sveitar-
félög er á starfssvæði orlofsnefndar-
innar í Árnes- og Rangárvallasýslu
og greiða þau öll til nefndarinnar að
Vestmannaeyjabæ undanskildum.
Samtals nam greiðslan rúmlega 2,1
milljón króna í fyrra.
Að venju sendi orlofsnefndin
nýlega sveitarfélögunum skýrslu um
starfsemina á liðnu ári. Þar er sagt
frá ferð 53 kvenna sem vörðu fimm
dögum á Hótel Vestmannaeyjum
í september. Og eins og jafnan er
bæjarráði Hveragerðis ekki skemmt:
„Bæjarráð þakkar orlofsnefnd
skilmerkilega skýrslu um greini-
lega góð og skemmtileg ferðalög
kvenna. Um leið er ekki annað hægt
en að ítreka fyrri bókanir bæjarráðs
um þá undarlegu tímaskekkju sem
orlofsferðir sem þessar eru.“
Aðspurð um þessi viðhorf segir
Anna þau vera vanvirðingu.
„Við erum með konur sem eru á
áttæðis-, níræðis- og tíræðisaldri
og hafa unnið alla sína starfsævi án
þess að hafa fengið greidd laun fyrir
vinnu sínu og án þess að geta greitt
í orlofssjóð. Á meðan þær eru á lífi
þá eigum við ekkert að breyta þessu.
Þetta var sett í lög einmitt af því að
þessar konur höfðu ekki tök á því að
fara eitt eða neitt,“ segir hún.
Það setti sinn svip á Vestmanna-
eyjaferðina að vegna veðurs og
sjólags þurfti að fljúga með allan
hópinn í fimm manna skömmtum
frá Landeyjum. Þessar flugferðir
voru skipulagðar á síðustu stundu,
meðal annars með dyggri aðstoð
hótelstjórans á Hótel Vestmanna-
eyjum sem á miklar þakkir skildar
að sögn Önnu.
„Þetta var algjört ævintýri. Ég
hitti eina konu bara í síðustu viku
sem knúsaði mig og sagði að þetta
hefði verið skemmtilegasta ferð sem
hún hefði farið í,“ segir Anna. Margt
var brallað í Eyjum. „Þær eru svo
þakklátar en svo eru þær með bull-
andi samviskubit vegna þessarar
umræðu – finnst þeim þær kannski
ekkert eiga þetta inni. Mér finnst
þetta ömurleg framkoma.“
Bæjarráð Hveragerðis segir að
tregða Alþingis til að afnema orlof
húsmæðra sé algjörlega óskiljanleg.
„Slík mismunun á milli kynja og án
nokkurrar skoðunar á fjárhagslegri
stöðu þiggjenda er í undarlegri
mótsögn við rekstur sveitarfélaga
almennt og þær lagaskyldur sem á
þau eru lagðar.“ gar@frettabladid.is
Húsmæður þakklátar
en sakbitnar í orlofinu
Bæjarráð Hveragerðis gagnrýnir enn að sveitarfélög séu skylduð til að greiða til
húsmæðraorlofs. Gjaldkeri orlofsnefndar í Árnes- og Rangárvallasýslu segir féð
renna til orlofs kynslóða kvenna sem ekki hafi fengið greitt fyrir sína vinnu.
Fimm klukkutíma tók að selflytja hópinn til Eyja með flugi frá bakkaflugvelli
þar sem beðið var í rólegheitum í flugstöðinni. Mynd/anna Kr. ÁsMundsdóttir
Þær eru svo þakk-
látar en svo er þær
með bullandi samviskubit
vegna þessarar umræðu –
finnst þeim þær kannski
ekkert eiga þetta inni.
Anna Kr. Ásmundsdóttir, gjaldkeri
orlofsnefndar húsmæðra í Árnes- og
Rangárvallasýslu
Nánari upplýsingar á www.bsv.is eða bsv@bsv.is og í síma 571 4000
· Tengist símanum með Bluetooth.
· HQ voice hljómgæði með „noice cancellation“
Handfrjáls búnaður í bílinn.
Sekt fyrir að tala í símann undir stýri
án handfrjáls búnaðar er 40.000 kr.
kosningar Af átján sem skráðu lög-
heimili sitt í Árneshreppi á tveimur
vikum fyrir 5. maí hafa ellefu nú misst
skráninguna eftir yfirferð Þjóðskrár.
„Þessir einstaklingar eru ekki taldir
hafa fasta búsetu í skilningi lögheim-
ilis laga,“ segir Ástríður Jóhannes-
dóttir, sviðsstjóri hjá Þjóðskrá. Einn til
viðbótar dró skráninguna til baka. Sex
mál sem eftir standa verða afgreidd
eftir helgi. Búast má við að hrepps-
nefnd ákveði samsvarandi fækkun á
kjörskrá fyrir kosningarnar eftir viku.
Að sögn Ástríðar er það ekki rétt
sem haft var eftir varaoddvita Árnes-
hrepps í blaðinu í gær að það hefði
verið að kröfu Þjóðskrár sem hrepps-
nefndin samþykkti kjörskrá með sér-
stökum fyrirvara. Hafi menn athuga-
semdir við kjörskrá sem nú liggur
frammi eigi þær að berast sveitar-
stjórn, ekki Þjóðskrá. – gar
Tólf missa lögheimilið í hreppnum
Kosningin fer fram í félagsheimilinu í trékyllisvík. Fréttablaðið/stEFÁn
viðskipti Icelanda ir Group ætlar að
hefja söluferli á hótelum undir merkj-
um Icelandair og fasteignum sem til-
heyra. Félagið sendi tilkynningu til
Kauphallarinnar í gær. Icelandair
Group rekur 13 hótel undir merkjum
Icelandair hótela og Hótels Eddu.
Um er að ræða 1.937 her bergi og
stefnt er að opn un nýs hót els við
Aust ur völl árið 2019.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, segir að fé lagið ætli
að skerpa frek ar á kjarn a starf semi fé-
lags ins, alþjóðaflug starf sem inni. „Þar
ætl um við að fjár festa í frek ari vexti
fé lags ins, í sta f ræn um lausn um, auk-
inni sjálf virkni og nýj um flug vél um.“
Samhliða þessu hefur verið ákveðið
að dótt ur fé lög in Ice land Tra vel og
VITA verði hluti af kjarn a starf semi
Icelanda ir Group. – ósk
Icelandair setur
hótelin á sölu
1 9 . m a í 2 0 1 8 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
9
-D
3
F
8
1
F
D
9
-D
2
B
C
1
F
D
9
-D
1
8
0
1
F
D
9
-D
0
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K