Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 6

Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 6
menntun Opinber útgjöld til leik- og grunnskóla hafa lækkað á undan- gengnum árum, segir í umsögn Kennarasambands Íslands (KÍ) um tillögu til þingsályktunar um fjár- málaáætlun 2019–2023. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Aðalheiður Steingrímsdóttir, fyrrverandi varaformaður KÍ, fóru á fund fjárlaganefndar í vikunni og kynntu umsögn Kennarasam- bandsins. Í umsögninni leggur Kennara- sambandið fast að Alþingi og stjórn- völdum að endurskoða og stækka tekjustofna sveitarfélaga með það fyrir augum að auka fjárveitingar til leikskóla og grunnskóla í sam- ræmi við aukin verkefni og breyttar áherslur. „Á tímanum 2008 til 2017 lækkuðu opinber útgjöld til leik- skóla sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu um 9,6%, að raunvirði um 8,0% og um 14,7% á hvern mann. Á sama tíma lækkuðu opin- ber útgjöld til grunnskóla sem hlut- fall af vergri landsframleiðslu um 9,4%, að raunvirði um 7,5% og um 14,4% á hvern mann.“ Í umsögn Kennarasambandsins er líka fjallað um framhaldsskóla- stigið. Þar segir að óverulegar hækk- anir séu ráðgerðar á framlögum til framhaldsskólanna á fimm ára tímabili áætlunarinnar frá 2019 til 2023. „Hins vegar má sjá á nýrri áætlun að ekki standi til að draga það fjármagn úr rekstri framhalds- skólanna sem sparast við styttingu námstíma til stúdentsprófs og er það vel.“ – jhh Rúmlega 100 látnir eftir flugslys á Kúbu Farþegaflugvél kúbverska ríkisflugfélagsins Cubana de Aviacion brotlenti skömmu eftir flugtak frá José Martí flugvelli í Havana síðdegis í gær. Sam- kvæmt þarlendum fjölmiðlum voru 104 farþegar um borð í vélinni auk níu áhafnarmeðlima. Útlit er fyrir að allir sem voru um borð hafi látist utan þriggja sem fluttir voru á sjúkrahús, alvarlega slasaðir. Vélin var á leið til borgarinnar Holguin sem er á austurhluta Kúbu. Nordicphotos/AFp VIÐSKIPtI Sérfræðingar Capacent telja að hlutabréf í fasteignafélögun- um Regin og Reitum séu undirverð- lögð á markaði samkvæmt nýjum verðmötum sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Capacent metur gengi bréfa í Reitum á 104 krónur á hlut sem er um 17 prósentum hærra en gengi bréfanna stóð í þegar markaðir lokuðu í gær. Bent er á að rekstur fasteignafélagsins sé stöðugur og að rekstrarhagnaðurinn hafi aukist taktfast og örugglega þrátt fyrir litlar fjárfestingar.  Engu að síður hafi mikil ládeyða verið yfir gengi Reita. „Kannski þyrfti félagið að vera með hoppukastala, trúða og kandíflos á næsta fjárfestafundi,“ segja grein- endur Capacent. Sérfræðingarnir meta gengi bréfa í Regin á 25 krónur á hlut sem er um 5 prósentum yfir markaðsgengi félagsins í gær. Bent er á að afkoma félagsins í fyrra hafi verið 15 pró- sentum lakari en rekstraráætlun gerði ráð fyrir en að fyrsti fjórðung- ur þessa árs lofi hins vegar góðu. – kij Fasteignafélögin undirverðlögð menntun Breyta þarf námi grunn- skólanna og viðhorfi foreldra til þess að hægt sé að efla iðnnám hér á landi, að mati Guðrúnar Hafsteins- dóttur, formanns Samtaka iðnaðar- ins. Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, ritaði grein í Fréttablaðið í vikunni þar sem hann gerir grein fyrir mikilli fækkun á útskrifuðum iðnnemum síðustu tíu ár. „Iðan fræðslusetur heldur utan um skráningu á fjölda sveinsprófa í 36 iðngreinum. Tölurnar sýna að árið 2008 lauk 681 einstaklingur sveins- prófi. Árið 2016 var þessi tala komin niður í 448. Það er 35% fækkun. Í mannvirkjagerð er ástandið hroða- legt. Árið 2008 luku 293 einstakl- ingar sveinsprófi í húsasmíði. Árið 2016 luku 92 slíku prófi. Þetta er fækkun um hartnær 70%. Málurum, múrurum og pípurum fækkar líka,“ skrifar Þorbjörn. Guðrún Hafsteinsdóttir segir Samtök iðnaðarins vinna stöðugt að eflingu iðnnáms. Samtökin séu með tvo starfsmenn á launum sem séu í samskiptum við grunnskólana, sam- tökin séu meðeigendur í Tækniskól- anum og Háskólanum í Reykjavík, haldi úti vefsíðunni Nema hvað? og sendi öllum börnum á Íslandi í 9. og 10. bekk fræðsluefni um fjölbreyttar iðngreinar. Þá hafi verið gerð upp- lýsinga- og fræðslumyndbönd fyrir unglinga. „Við höfum rætt það svolítið innan samtakanna að við hefðum kannski þurft að beina sjónum okkar meira að foreldrum heldur en í beinni markaðssetningu að börnunum,“ segir Guðrún og bendir á að viðhorf foreldranna hafi áhrif á ákvarðanir barnanna. „Síðan held ég að við verðum að gera gríðarlegar breytingar í grunn- skólunum, auka þar vægi iðngreina, bæði með hæfum kennurum en síðan en ekki síst að börnin okkar fái að kynnast mismunandi hand- verki. Með fullri virðingu fyrir þeirri handverkskennslu sem á sér stað í grunnskólunum þá held ég að ansi mörg börn séu að koma heim með brauðbretti og smjörhnífa ár eftir ár eftir ár. Það sé nánast öll kennslan. En það eru ekki margir grunnskólar að sýna þeim inn í heim rafmagnsins, múrverksins, flísalagna og ég gæti haldið endalaust svoleiðis áfram,“ segir Guðrún. Guðrún segir að Íslendingar hafi sem þjóð leyft sér að tala niður til iðnaðarins og til iðnnemanna. „Að það sé fólk sem var skussar í námi eða að þeir hafi farið í iðngreinar vegna þess að þeir gátu ekki annað. Þetta er algjör misskilningur og við þurfum á mjög hæfu handverksfólki að halda þannig að þeir sem eru að byggja hús og leysa úrlausnarefni tengd því þurfa að vera mjög klárir einstaklingar.“ jonhakon@frettabladid.is Lykilatriði sé að breyta viðhorfum foreldranna „Árið 2008 luku 293 einstaklingar sveinsprófi í húsasmíði. Árið 2016 luku 92 slíku prófi,“ sagði Þorbjörn Guðmundsson í aðsendri grein. FréttAblAðið/Vilhelm Algjört hrun hefur orðið í fjölda útskrifaðra iðn- nema frá hruni. Formað- ur Samtaka iðnaðarins segir þörf á að efla iðn- menntun i grunnskólum og breyta viðhorfi for- eldra. Kynna þarf heim rafmagnsins, múrverks flísalagna og fleiri iðn- greina fyrir börnunum. Guðjón Auðunsson, forstjóri reita. FréttAblAðið/dANíel Sveitarfélögin fái meiri pening fyrir skólana 9,6% að raunvirði er lækkun opin- berra útgjalda sem hlutfall af vergri landframleiðslu til leikskóla á tímabilinu 2008 til 2017 Í umsögninni leggur Kennarasambandið fast að Alþingi og stjórnvöldum að endurskoða og stækka tekjustofna sveitarfélaga með það fyrir augum að auka fjárveitingar til leikskóla og grunnskóla Samfélag Lið Ölfuss er sigurvegari Útsvars á þessu tímabili. Ölfus- ingar sigruðu lið Ísafjarðar með 75 stigum gegn 51. Í liði Ölfuss eru þau Árný Leifsdóttir, Hannes Stefáns- son og Magnþóra Kristjánsdóttir. Lið mótherjanna frá Ísafirði var skipað þeim Gylfa Ólafssyni, Tinnu Ólafsdóttur og Greipi Gíslasyni. Í ár tóku samtals 28 lið þátt í keppninni sem hófst í þetta skiptið þann 15 september. Ísafjörður atti einmitt kappi í fyrstu viðureign- inni svo keppnistímabilið hefur spannað rúma átta mánuði fyrir liðsmenn Ísafjarðar. Þáttunum var stýrt af þeim Sólmundi Hólm og Guðrúnu Dís Emilsdóttur í fyrsta sinn í ár en Þóra Arnórsdóttir og Sigmar Guðmundsson höfðu farið með stjórn þáttanna frá árinu 2007. – gþs Ölfusingar sigra í Útsvari 1 9 . m a í 2 0 1 8 l a u g a R D a g u R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 1 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D 9 -F B 7 8 1 F D 9 -F A 3 C 1 F D 9 -F 9 0 0 1 F D 9 -F 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.